Morgunblaðið - 04.10.1991, Qupperneq 4
4
.MOltelJNISLAÐlÐ FÖSTUlUGUR l. ÓKTÓBÉIÍ 1991
Aðlögnn að markaðsákvörðun gengis að hefjast:
Stefnt að tengingu krón-
unnar við ECU árið 1993
Stefnu stöðugs gengis haldið áfram
RÍKISSTJORNIN hefur ákveðið í samráði við Seðlabanka íslands
að hefja strax í haust undirbúning að því að tengja íslensku krón-
una við evrópsku mynteininguna ECU. Er ráðgert að slík tenging
fari fram á árinu 1993 enda hafi reynslan þá sýnt að hún fái stað-
ist. Fyrsta skrefið verður að breyta lagaákvæðum um skilaskyldu
erlends gjaldeyris þannig að forsendur skapist fyrir millibankamark-
aði með erlendan gjaldeyri þar sem Seðlabankinn getur átt við-
skipti til að hafa áhrif á gengi krónunnar. Þá hefur verið ákveðið
að breyta gengisvoginni um næstu áramót þannig að í henni verði
ECU, bandaríkjadollar og ECU samanborið við 17 gjaldmiðla í nú-
gildandi gengisvog. Á blaðamannafundi í gær kom fram hjá Jóni
Sigurðssyrti viðskiptaráðherra að þeirri stefnu stöðugs gengis, sem
fylgt hefði verið frá árslokum 1989, yrði fylgt áfram.
Jón Sigurðsson, sagði á blaða-
mannafundinum að þegar í haust
yrði byijað að þróa hér gjaldeyris-
markað, millibankamarkað, með því
að rýmka um skilaskyldu erlends
gjaldeyris þannig að bankar og
lánastofnanir yrðu ekki skilaskyldar
á gjaldeyri. Þannig gætu viðskipti
með gjaldeyri haft bein áhrif á
gengi krónunnar. í öðru lagi þyrfti
að breyta ákvæðunum um gengis-
skráningu íslenskum krónunnar í
lögunum um Seðlabanka íslands og
taka upp sambærilegt gengisfyrir-
komulag og gilti á öðrum Norður-
löndum og reyndar í flestum löndum
Vestur-Evrópu. í þriðja lagi þyrfti
að efla möguleika Seðlabankans til
þess að hafa áhrif á gengið með
markaðsaðgerðum. Til þess þyrfti
hann að ráða yfir fleiri skammtima-
bréfum til þess að selja á markaði.
Þar væri mikilvægast að fyrir-
greiðsla Seðlabankans við ríkið yrði
í sem mestum mæli í formi skuldav-
iðurkenninga með markaðsvöxtum
sem þankinn gæti síðan selt á mark-
aði. I fjórða lagi benti viðskiptaráð-
herra á að til að einfalda núgild-
andi gengisvog sé æskilegt að miða
gengisvogina héðan í frá eingöngu
við ECU, bandaríkjadollar og jap-
anskt jen.
í öðrum áfanga aðlögunarinnar
að tengingu við ECU sem hefst um
eða eftir mitt næsta ár er ráðgert
að taki gildi ný lög um Seðlabank-
ann á grundvelli tillagna nefndar
sem nú starfar að endurskoðun
þeirra. Þá yrði breytt skipan gjald-
eyrismála með nýjum lögum þar
sem frelsi í gjáldeyrismálum yrði
aukið ennfrekar en orðið er. Enn-
fremur yrði unnið áfram að því að
efla gjaldeyrismarkað og möguleika
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 4. OKTÓBER
YFIRLIT: Skammt fyrir suðaustan land er 962 mb lægð sem þok-
ast norðaustur og er farin að grynnast.
SPÁ Norðan 7-9 vindstig. Slydda eða kalsarigning norðanlands en
þurrt að mestu syðra. Hiti 0-5 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG:Hæg breytileg átt, víða léttskýjað og
fremur kalt.
HORFUR Á SUNNUDAG:Austlæg átt, fremur svalt og víða nætur-
frost inn til landsins. Þurrt um vestanvert landið en annars skúrir
eða slydduél.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN: y, Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus
stefnu og fjaðrirnar y Skúrir
V Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. * V El
4 Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
A / / / = Þokumóða
4 Hálfskýjað * / * ’ , ’ Súld
/ * / * Slydda ÖO Mistur
4 - \ Skýjað / * / * * * —j- Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að fsl. tíma
hlti vaður
Akureyri 6 alskýjað
Reykjavi'k 5 rigning
Bergen 12 skýjað
Helsinki 9 skýjað
Kaupmannahöfn 12 rigning
Narssarssuaq ■f4 heiðskírt
Nuilk +2 hálfskýjað
Osló 7 rigning
Stokkhólmur 9 hálfskýjað
Þórshöfn 9 alskýjað
Algarve 24 heiðskirt
Amsterdam 17 skýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Berlín 15 skýjað
Chicago 16 þokumóða
Feneyjar 21 heiðskírt
Frankfurt 16 léttskýjað
Glasgow 10 skúr
Hamborg 16 skýjað
London 18 skýjað
Los Angeles 19 heiðskirt
Lúxemborg 16 léttskýjað
Madríd 21 heiðskírt
IVIalaga 25 léttskýjað
Mallorca 25 láttskýjað
Montreal 15 skýjað
NewYork 21 alskýjað
Orlando vantar
París 18 léttskýjað
Madeira 24 skýjað
Róm 24 léttskýjað
Vín 15 léttskýjað
Washington 19 rigning
Winnipeg 1 skýjað
Morgunblaðið/Sverrir
Björn Friðfinnsson, Jóhannes Nordal, Jóns Sigurðsson og Þórður
Friðjónsson á blaðamannafundinum i gær.
Seðlabankans til að hafa þar áhrif.
í þriðja áfanga sem ráðgert er að
hefjist árið 1993 er síðan stefnt að
því tengja krónuna við ECU.
Jóhannes Nordal Seðlabanka-
stjóri, benti á að gengið hefði nú
verið óbreytt frá því í desember
1989. Yfirlýsing hefði verið gefin
um fast gengi í sambandi við kjara-
samningana snemma á árinu 1990.
„Sú yfirlýsing var þó ekki gefin
nema út samningstímabilið. Ogþess
vegna var nauðsynlegt að það væri
nú um þetta leyti ákveðið hvert
framhald skyldi vera á gengisstefn-
unni vegna þess á nýju samnings-
tímabili hlýtur gengi að vera ein
meginforsendan sem aðilar í slíkum
samningi þurfa að ganga út frá.
Það sé eindregin skoðun Seðlabank-
ans í þessu máli að fastgengisstefna
í einu eða öðru formi sé eini grund-
völlur stöðugleika í efnahagsmálum
hér á landi sem raunhæft væri að
nota. Þess vegna fellur þessi
ákvörðun algjörlega að skoðun okk-
ar í því efni.“
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, benti á að
stefna stöðugs gengis krefðist mjög
strangra efnahagslegra forsendna.
„í fyrsta lagi þá felur slík stefna í
sér að gjörbreyta þarf stjóm efna-
hagsmála. Stefnan í ríkisfjármálum
og peningamálum verður að vera
mun aðhaldssamari en hún hefur
verið á undanförnum árum og ára-
tugum hér á landi og styðja þannig
fastgengisstefnuna. í öðru lagi er
nauðsynleg forsenda að breytt verði
tilhögun gengisskráningar þannig
að markaðurinn hafi færi á að hafa
meiri möguleika á skráningum
þ.e.a.s. að gengisskráningin verði
með svipuðum hætti og í nálægum
löndum. Seðlabankar noti óbeinar
aðferðir til þess að stýra genginu
innan þeirra marka sem ákveðin
verða. I þriðja lagi er auðvitað nauð-
synlegt að laun og kjör byggi á
raunsæjum efnahagslegum for-
sendum. í fjórða lagi þá felur slík
stefna í sér að starfsskilyrði sjávar-
útvegs munu gjörbreytast þannig
að sjávarútvegur verður að hafa
getu til þess að taka á sig miklar
sveiflur sem óhjákvæmilega verða
af og til í þessari grein. Það verður
að gera sjávarútveginum þetta
kleift bæði með tryggari eiginfjár-
stöðu að jafnaði en jafnframt
sveiflujöfnunarsjóðum.“
Skipaður starfshópur
um útboð á akstri SVR
MARKÚS Örn Antonsson, borg-
arstjóri, hefur skipað starfshóp
til að gera tillögur um útboð á
akstri Strætisvagna Reykjavík-
ur. Starfshópinn skipa Sveinn
Andri Sveinsson, stjórnarfor-
maður SVR sem mun veita hópn-
um forstöðu, Sveinn Björnsson,
forsljóri SVR, og Eggert Jóns-
son, borgarhagfræðingur.
Starfshópnum er ætlað að kanna
hvernig staðið sé að sambærilegum
útboðum erlendis og fylgjast með
framkvæmd útboða í nágranna-
sveitarfélögunum.
Þá á hópurinn að vinna að hönn-
um nýs kerfis við mat á afkomu
SVR þannig að sundurliða megi
með nokkuð nákvæmum hætti
rekstrarlega afkomu einstakra leiða
hjá fyrirtækinu. Gert er ráð fyrir
að slík sundurliðun verði látin liggja
til grundvallar mati á því hvort út-
boðsleiðin sé hagstæðari fyrir borg-
ina en núverandi rekstrarfyrir-
komulag.
Einnig á hópurinn að kanna að
hve miklu leyti gæti hentað SVR
að bjóða út einstakar leiðir samhliða
venjulegum rekstri eða hvort útboð
á öllum leiðum væri hagkvæmara.
Verði ákveðið að velja útboðsleiðina
mun starfshópurinn vinna áfram
að málinu þar til rétt verður talið
að leggja málið fyrir yfirstjórn SVR
til ákvarðanatöku.
Sveinn Andri Sveinsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að nefnd-
in myndi hefja störf fljótlega en
gefa sér góðan tíma til verkefnisins.
Kanaríeyjar:
Veröld seldi 300
sæti á 2 dögum
FJÓRAR fyrstu Kanaríeyjaferðir
Ferðamiðstöðvarinnar Veraldar
seldust upp á tveimur dögum eftir
að þær höfðu verið auglýstar. Um
eru að ræða 300 sæti.
Andri Már Ingólfsson, forstjóri
Ferðamiðstöðvarinnar, sagði að búist
hefði verið við svipuðum viðtökum
og í fyrra er þær voru afar góðar.
Viðtökurnar hefðu hins vegar farið
fram úr björtustu vonum. Nærri upp-
selt væri í ferðir um jólin og janúar-
Terðir væru uppseldar. Einnig væri
töluvert bókað í febrúar.
Andri Már sagði að mikið væri
um að fjölskyldufólk færi til Kanarí-
eyja yfir jólahátíðina. Meira væri um
hjónafólk eftir áramót.
Menntamálaráöherra:
Ég tók ákvörðunina og
ber einnig ábyrgðina
ÓLAFUR G. Einarsson menntamálaráðherra, segir að skipun nýs
útvarpsstjóra sé á hans ábyrgð. Honum sé ljóst hvers vegna þrír
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í útvarpsráði hafi sagt sig úr ráðinu
í kjölfar ráðningarinnar en fái ekki við það ráðið.
„Mér þykir auðvitað heldur verra vera mín en ekki þeirra og ábyrgð-
að þessir fulltrúar hafa sagt sig úr
útvarpsráði," sagði Ólafur. „Mér er
Ijós ástæðan en get ekkert við því
gert að þeir sætti sig ekki við
ákvörðun mína_ um skipan í starf
útvarpsstjóra. Ákvörðunin lilaut að
in því mín einnig. Hver og einn
verður svo að hafa sína skoðun á
hvort ráðherra hefði átt að hafa
samráð við einstaka umsækjendur
eða útvarpsráðsmenn í þessu máli.“
f
I
I
I
I
í
í
i
i
i