Morgunblaðið - 04.10.1991, Page 7
7
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 4. OKTOBER 1991,
Heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur til írlands;
Leiklist og leikbók-
menntir í öndvegi
Líður eins og heima í þessari borg,
sagði Vigdís Finnbogadóttir
Dyflinni. Frá Páli Þórhallssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
LEIKLIST og leikbókmenntir voru í öndvegi á öðrum degi heimsókn-
ar Vigdisar Finnbogadóttur, forseta íslands, til írlands. Forsetinn
skoðaði handrit að verkum nóbelsskáldsins Samuels Becketts í bóka-
safni Trinity College, hún var viðstödd opnun sýningar á listaverkum
sem tengjast Beckett í galleríi skólans og í ræðu í móttöku borgar-
stjóra Dyflinnar líkti Vigdís heimsókn sinni við leikrit og væri henni
hlutverk sitt kært. í gærkvöldi var hún svo viðstödd sýningu í Ab-
bey Theatre á „Dancing at Lughnasa" eftir Bryan Friel.
Reuter
Forsetarnir Vigdis Finnbogadóttir og Mary Robinson heimsækja
Trinity College i gær.
Forseti íslands og Mary Robin-
son, forseti írlands, heimsóttu Trin-
ity College í Dyflinni í gærmorgun.
Farið var í tignarlegt bókasafn skól-
ans þar sem bækur þekja veggi upp
undir loft þannig að nota þarf
örmjóa stiga til að komast að efri
hillunum. Einn helsti dýrgripur
safnsins er Book of Kells, handrit
sem fyrst er getið árið 1007. Segir
í annálum að þá hafi því verið stol-
ið úr kirkjunni í Kells en víst þykir
að það sé þó nokkuð eldra. Það
hefur að geyma guðspjöllin fjögur
og er ritað á latínu þar sem fyrsti
stafurinn á hverri blaðsíðu er listi-
lega dreginn.
Frú Vigdís staðnæmdist lengi við
handrit írska leikskáldsins Samuels
Becketts sem nú eru til sýnis á
safninu. Sagði hún Mary Robinson
frá því að flest leikritanna sem þar
mátti sjá hefðu verið færð upp á
íslandi. Robinson gat þessa í ræðu
við opnun sýningar í galleríi Trinity
College á verkum ýmissa lista-
manna sem sóttu innblástur til
ævistarfs Becketts. Háskólinn verð-
ur fjögur hundruð ára á næsta ári
og sagði frú Robinson að í hugum
viðstaddra væri árið 1992 ekki
tengt innri markaði Evrópubanda-
lagsins heldur afmæli þessarar
merku menntastofnunar. Þar lagði
hún stund á lögfræði og varð síðar
prófessor í stjórnskipunar- og refsi-
rétti auk þess að flytja fyrirlestra
um meginlandsrétt. Sagðist hún
eiga það sameiginlegt með Beckett
að hafa kennt við Trinity College
og einnig vildi hún geta þess að
meðan hún sat á þingi var Beckett
með lögheimili í kjördæmi hennar
og hefði hún áreiðanlegar heimildir
fyrir því að hann hefði greitt henni
atkvæði sitt utan kjörfundar þar
sem hann bjó í París.
í ræðu sem forseti íslands hélt
í móttöku borgarstjóra Dyflinnar
sagði hún að sér iiði eins og heima
í þessari borg sem byggst hefði á
grunni sem norrænir menn lögðu
líkt og íslenskt samfélag. írar og
íslendingar hafa ætíð verið nánir
þrátt fyrir hafið á milli þeirra, sagði
forsetinn. En það hefði i raun fært
þjóðirnar nær hvor annarri. En Irar
og íslendingar ættu fleira sameigin-
legt. Þeirynnu sagnalist og í vissum
skilningi lifðu þeir á henni. Sagði
hún Íslendinga vera gagntekna af
fortíðinni og notuðu þeir ellefu alda
sögu til að skilja samtímann. Svipað
gilti um íra og báðar þjóðir ættu
að geta viðurkennt að áætlanasmíð
um framtíðina væri ekki þeirra
sterka hlið. Vigdís sagði að henni
væri Dyflinni kær vegna þess að
þar væri vagga leikbókmennta
enskumælandi landa á þessari öld
en sjálf hefði hún haft all nokkur
afskipti af leikhúsmálum. „Dagarn-
ir í Dyflinni hafa verið eins og leik-
rit þar sem margar persónur taka
þátt með því að gæða ljóð sín'viti
og visku sína ijóðlist. Hvert sem
ég fer mun ég hafa í hávegum hlut-
verk mitt í þessu leikriti."
Kjötstöðin Glæsibæ:
Greiðslustöðv-
un í 2 mánuði
SKIPTARÉTTUR Reykjavíkur
veitti í gær Kjötstöðinni Ásgeiri í
Glæsibæ greiðslustöðvun í tvo
mánuði. Að sögn Kristjáns Stef-
ánssonar lögmanns, sem fer með
málefni fyrirtækisins á greiðslu-
stöðvunartímanum, er stefnt að
því að leita eftir niðurfellingu
skulda að verulegu marki og að
auka hlutafé félagsins.
Kristján sagði skuldir miklar en
vildi ekki nefna upphæðlr í því sam-
bandi. Haldinn var fundur með
stærstu kröfuhöfum 27. september
þar sem þeim var kynnt staða félags-
ins og leitað eftir afstöðu þeirra til
niðurfellingar skulda. Að sögn Kristj-
áns var þar eindreginn stuðningur
við þessar hugmyndir og er unnið
að málinu í samræmi við þær.
Greiðslustöðv-
un hjá Niður-
suðuverk-
smiðjunni
Niðursuðuverksmiðjunni hf. á
Isafirði hefur verið veitt greiðslu-
stöðvun til tveggja mánaða. Þann
tíma hyggjast forsvarsmenn fyrir-
tækisins nota til fjárhagslegrar
endurskipulagningar sem meðal
annars feli í sér öflun nýs hluta-
og lánsfjár og samningaumleitan-
ir við lánardrottna.
í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu
segir að stefnt sé að því að ljúka
endurskipulagningunni fyrir áramót.
Stefán Jónsson viðskiptafræðingur
hefur tekið við framkvæmdastjórn
fyrirtækisins en Eiríkur Böðvarsson
hefur tekið við stjómarformennsku
og vinnur að verkefnum er snerta
endurskipulagningu og framtíðar-
rekstur fyrirtækisins.
f f Kl/ll f 1/1 !/•
Att þú númer í sjódnum?
.. ..../
ovDRÆrr/ hás^
/
i * #*.