Morgunblaðið - 04.10.1991, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991
11
Leikarar og aðstandendur leikritsins.
HAU STDRAUGAR
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Undanfarið hefur verið furðu-
mikið um rask á listdómum mín-
um, svo að tveir þeir síðustu koma
mjög undarlega út á síðum blaðs-
ins, að ekki sé mun sterkara að
orði komist.
Þykir mér þetta ekki einleikið
því að hingað til hef ég álitið það
hlutverk pi'ófarkalesara og ann-
arra sem meðhöndla listrýni á leið
hennar á síður blaðsins, sé að
uppgötva hnökra á máli og jafn-
vel einfalda mál, en ekki bæta við
slíkum og gera setningar illskilj-
anlegar, jafnvel fáránlegar.
Þó er sjaldgæfara að myndir
víxlist jafn gróflega og átti sér
stað í pistli mínum „Arkitektar
New York-borgar“ sl. miðviku-
dag, en með honum birtist inni-
mynd úr nýmóðins klúbbi í Kawa-
saki í Japan eftir George Kunhiro
í stað tveggja skýjakljúfa í New
York eftir Richard Meier{\), sem
ég tók einmitt sérstaklega fyrir,
en minntist hins vegar hvergi á
hinn ágæta japanska arkitekt
George Kunhiro.
Þetta gerði það að verkum að
margur mun hafa átt erfitt með
að átta sig á samhengi texta og
myndar og skerti þetta pistil minn
stórlega. Var textinn þó þannig
að hvert mannsbarn hefði getað
séð að hann gat ekki staðist und-
ir myndinni, en rétta myndin var
einmitt hinum megin á síðunni
sem ég reif úr út sýningarskrá
og kyrfilega merkt með þrem
krossum. Leyfi ég mér því að birta
hér réttu myndina svo engum
geti blandast hugur um við hvað
ég átti í skrifum mínum.
Þá gerðist það í blaðinu í gær
að í listrýni minni um þá félaga
Guðjón Ketilsson og Grétar Reyn-
isson vantaði upphafið, en það er
svona:
„I Austursai Kjarvaisstaða svo
og gangi hafi féiagarnir Guðjón
Ketilsson og Grétar Reynisson
Háhýsi Richards Meier við Ma-
dison Square Garden.
hreiðrað um sig með tvær sjálf-
stæðar sýningar. Báðir eru þeir
vel kunnir fyrir athafnasemi sína
á myndlistarsviði Og eru sýningar
frá þeirra hendi nær árviss við-
burður og þá oftar en ekki í sölum
Nýlistasafnsins.“
Þá var ég ekki að ræða um
neitt þjóðarbú í iýni minni frekar
en fyrri daginn og mega aðrir
sinna þeim málaflokki. Vil raunar
efns og málum er háttað fyrir
enga muni láta bendla nafn mitt
við þann vettvang.
Ég lauk hins vegar við
þarnæstu málsgrein með því að
vísa til þjóðardjúps, sem er ann-
að hugtak og all langt frá þjóðar-
búi! Þykir mér rétt að endurtaka
alla málsgreinina vegna þess að
síðasta orðið er lykilorð.
Það er alheimurinn og dulvit-
undin, sem ræður ríkjum í mynd-
máli þeirra og er það í samræmi
við ákveðna núlistahefð, sem á
um margt uppruna sinn í Þýska-
landi, en styðst þó ekki í sama
mæli við sögulegar forsendur né
sértæka og skilvirka uppsprettu
þjóðardjúpsins.
Rússneskt leikrit fnim-
sýnt á Litla sviðinu
FRUMSÝNT verður nýlegt rússneskt leikrit á Litla sviði Þjóðleik-
hússins laugardaginn 12. október. Leikritið nefnist Kæra Jelena og
er eftir Ljúdmílu Razumovskaju.
Þegar leikritið var fyrst sýnt í
heimalandi höfundar árið 1980
vakti það mikið umtal og var bann-
að allt til ársins 1986. Iæikurinn
gerist á afmælisdegi Jelenu sem er
kennari í framhaldsskóla. Nokkrir
nemendur hennar koma óvænt í
heimsókn til að óska henni til ham-
ingju og færa henni gjafir, en fljót-
lega kemur í ljos að erindi þeirra er
í raun allt annað og óhugnanlegra.
Leikarar eru fimm talsins; Anna
Kristín Arngrímsdóttir ásamt Hall-
dóru Björnsdóttur, Baltasar Korm-
áki, Ingvari Sigurðssyni og Hilmari
Jónssyni, en þau fjögur síðasttöldu
eru meðal yngstu leikara Þjóðleik-
hússins. Leikstjóri er Þórhallur Sig-
urðsson en leikmynd og búninga
gerði Messíana Tómasdóttir.
(Fréttatilkynning)
Komdu til okkar á
DAGANA
UM HELGINA
Ljúfmeti af léttara taginu
úr tilraunaeldhúsi Osta- og smjörsölunnar veröur á boöstólum,
þar á meðal nokkrar nýjungar.
Kynntu þér íslenska gæðamatið
Nú hefur þú tækifæri til aö kynna þér niðurstöður íslenska
gæöamatsins á ostunum sem voru teknir til mats nú í vikunni.
Ostameistaramir verða á staðnum
og sitja fyrir svörum um allt sem lýtur aö ostum og ostagerð
og bjóða þér aö bragöa á ostunum sínum.
Kynningarverð á ýmsum ostategundum*
Nýir uppskriftabæklingar.
Verið velkomin
kl. 1-6 laugardag
og suimudag
að Bitruhálsi 2 * OSTA- OG SMJÖRSALAN SF.
OPIÐ
HÚS