Morgunblaðið - 04.10.1991, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.10.1991, Qupperneq 12
12 MORGÚNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991 Borgarfjörður: fyrri lauskjarna rúllubindivélum. Breytingin fælist fyrst og fremst í þeim 14 hnífum sem væru látnir skera heyið um leið og það færi inn í vélina. Einnig væri hægt að binda rúllurnar mismunandi þéttar og því væri stjórnað úr dráttarvélinni sem og hvort að hnífarnir væru notaðir eða ekki. Sagði Grétar að þarna væri um dýrt tæki að ræða sem væri jafnframt afkastamikið á velli og hentaði því kannski vel til félags- eignar bænda eða búnaðarfélaga. Að sögn sölumanns hjá umboðs og söluaðila Deutz-Fahr rúllubindi- vélanna, Þórs hf. Ármúla 11 Reykjavík, er þessi nýja vél um 20% dýrari en samskonar vél án söxun- arbúnaðarins. Þó svo að vélin væri fyrst að koma til íslands í sumar þá hefði hún verið smíðuð fyrst 1988 og síðan eftir prófanir og endurbætur sett á markað erlendis 1990. Ákveðið hefði verið að bíða þar til nú í sumar með að flytja inn fyrstu vélarnar til íslands til að láta fyrst koma í ljós hvernig vélarnar reyndust erlendis. Helstu kostir þessarar vélar væru að þeirra mati meiri þjöppun við bindingu og minna loft í böggunum, færri rúllur á hvern bundinn hektara, minni plastnotkun og auk þess væri betra að gefa heyið. TKÞ. Morgunblaðið/Theodór Jómundur bendir á hnifana 14 sem skera heyið í vélinni. Ný rúllubindivél sker heyið í smátt Borgarnesi. SIÐÁSTLIÐIÐ sumar kom á markaðinn hérlendis ný rúllubindivél sem sker heyið um leið og hún tekur það inn í sig. Rúllurnar verða því þéttari og þar með færri og sparast því kostnaður við plast og vélavinnu með notkun á þessari vél. Bóndinn á bænum Skarðshömr- um í Norðurárdal í Borgarfirði, Jó- mundur Ólason, var sá fyrsti sem að keypti sér rúllubindivél í Norður- árdalnum árið 1985. í sumar reið hann aftur á vaðið og keypti sér nýja Deutz-Fahr bindivél með skurðarbúnaði. Vélin er önnur tveggja þess konar véla sem til eru hérlendis. Jómundur sagði að hann væri búinn að binda yfir 2.000 rúll- ur með vélinni síðan hann keypti hana. Aðspurður um kosti vélarinn- ar sagði Jómundur að kostirnir væru margir ef miðað væri við eldri gerðir af bindivélum. Vélin væri afkastameiri en eldri gerðir, með þessari hefði hann bundið einn dag- inn að jafnaði um 30 rúllur á klukkustund. Vegna hnífanna sem saxa heyið um leið og hún tekur það inn í sig, væri hægt að hafa rúlluna mun þéttari en áður var hægt. Þó svo að heyið væri þéttara í rúllunni þá ætti að vera betra að gefa það því það væri smágerðara eftir skurðinn og losni því örugg- lega betur í sundur. Fyrmefnd bindivél var í sumar til skoðunar hjá Bútæknideild rann- sóknastofnunar landbúnaðarins á Hvanneyri. Að sögn Grétars Einars- sonar deildarstjóra voru bundnir 5 til 600 hundruð rúllubaggar með vélinni þar í sumar. Bundið var mismunandi verkað hey og mis- munandi grastegundir. Þá voru rúll- urnar hafðar mismunandi þéttar og þær síðan vigtaðar. Sagði Grétar að ekki yrði að fullu lokið að vinna úr þessum rannsóknum fyrr en í vetur. Hins vegar væri ljóst að með notkun þessarar vélar gæti meira hey verið í sömu stærð af rúllum en áður, vegna þess að heyið yrði smágerðara við skurðinn og hægt væri að stilla þjöppunina. Einnig ætti að vera betra að ná heyinu í sundur við gjöf vegna söxunarinn-' ar. Sagði Grétar að vélin sem þeir hafi prófað hafi verið með minni gerðina af baggahólfi, þ.e. 1,20x1,20 m en stærri vélin væri 1,20x1,50 m en að öðru leyti eins uppbyggð. Þarna væri um sömu grunnuppbyggingu að ræða og á Bóndinn á Skarðs- hömrum, Jómund- ur Ólason, losar rúllubagga úr nýju Deutz-Fahr rúllu- bindivélinni sinni. Séð inn í bindivélina, Jómundur styður hendinni á einn af hnifunum sem skera heyið. en tónlist. Páll er þó liðtækur selló- leikari og hefur síðustu árin varið æ meiri tíma í tónlistariðkun. Hann er formaður hljómsveit- arinnar og með honum í stjórn þau Hulda Birna Guðmundsdóttir tón- listarkennari og Guðmundur Vig- gósson augnlæknir sem bæði eru fiðluleikarar. Hljómsveitarstjóri er Ingvar Jónasson víóluleikari. Nokkrar stöðurlausar -Hér eru menn auðvitað á nokk- uð misjöfnu stigi og sumir þurfa kannski að leggja meira að sér en aðrir en allir eru reiðubúnir til að gera sitt besta og kannski svo- lítið betur, segja þau. -Aðalatriðið er þó að vera með, bæta þau við og segja að stefnt sé að því að ná allt að 30 manna hljómsveit eins og í fyrra: -Það væri æskilegt að ná þeirri stærð og það mörgum hljóðfæra- leikurum í hveija rödd að ekki sé til vandræða þótt einn og einn vanti á eina æfíngu. Við getum bætt við í strengina og nokkrar stöður eru einnig lausar í aðrar raddir, segir-Páll og bætir því við að hljómsveitin megi samt ekki verða svo stór að hún skyggi á Sinfóníuhljómsveitina! Teljið þið að til sé fólk sem býr yfir kunnáttu á hljóðfæri og væri liðtækt í hljómsveitina? -Það er áreiðanlega margt fólk sem hefur lært á hljóðfæri allt upp að 5. eða 6. stigi en hefur kannski ekki spilað í mörg ár. Við viljum hvetja það fólk til að setja sig í samband við okkur og slást í hóp- inn og rifja upp þessa kunnáttu sína. Við erum öll jafningjar í þessari hljómsveit og við þurfum öll að æfa okkur heima. Æfin- garnar fara fram á þriðjudags- kvöldum og fengum við lánað húsnæði Háskólans við Hellusund, hér í gamla húsnæði Verslunar- skólans. Þetta getur líka verið gott fyrir Sinfóníuhljómsveit áhugamanna komin af stað á ný: Spilum fyrir vini og vandamenn Iljarnar gengu upp og niður eins og takturinn bauð, andlitin voru meitluð af einbeitingu og stunduin spratt fram gretta - kannski af því að tónninn var ekki nógu hreinn. Stjórnandinn sveiflaði sprotanum og kallaði öðru hverju einhverjar brýningar til hljóm- sveitarmanna sem seigluðusl gegnum sinfóníu Schuberts. Þetta er Sinfóníuhljómsveit áhugamanna en nafnið er þó ekki lögfest - hún gæti allt eins heitið ófullgerða sinfónían! Þessi hljómsveit hóf göngu sína á síðasta vetri og er nú að koina saman aftur til reglu- legra æfinga. En hverjir skipa þessa hljómsveit áhugamanna? -Það má eiginlega skipta með- limum í þijá hópa: Einn hópurinn eru þeir sem hafa lært talsvert mikið á hljóðfæri en ekki spilað neitt að ráði; annar hópurinn eru tónlistarkennarar og sá þriðji námsmenn í tónlistarnámi eða öðru námi sem vilja afla sér reynslu í svona starfi, segir Páll Einarsson sem er jarðeðlisfræð- ingur og vanari því að tjá sig við fjöimiðla um jarðskjálfta fremur Morgunblaðio/Bjarni Sinfóníuhljómsveit áhugamanna á æfingu. Páll formaður Einars- son er lengst til hægri. Ingvar Jonasson sveiflar sprotanum eins og Schubert mælir fyrir um. tónlistarnemendur því með þátt- töku í svona hljómsveit fá þeir annars konar reynslu og kynnast kannski svolítið annarri tónlist en í námi sínu. Tökum ekkert frá atvinnumönnum Sem fyrr segir er sinfónía Schu- - berts á efnisskránni og í vetur á einnig að æfa fiðlukonseit eftir Mozart og verður þá Bryndís Páls- dóttir fengin til liðs við hljómsveit- ina. -Við ætlum ekki að komast inn á tónleikadagskrá vetrarins á höfuðborgarsvæðinu og tökum engin verkefni frá atvinnumönn- um en við spilum kannski fyrir sjúkrahús eða elliheimili. í fyrra enduðum við starfið á því að halda tónleika í húsnæði aldraðra við Grandayeg. Við munum því stefna að tónleikum fyrir vini og vanda- menn því það er mikilvægt í svona hópi að stefna að ákveðnu marki. jt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.