Morgunblaðið - 04.10.1991, Side 15

Morgunblaðið - 04.10.1991, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1991 Perlan og hrófatildrin eftir Pétur Knútsson Fyrrverandi hitaveitustjóri vitnar í Morgunblaðinu 14. september sl. í orð vinkonu minnar, Vilborgar Dagbjartsdóttur skálds, þegar hún segir Perluna vel gerða og að þakka beri það sem þakkarvert sé. Eg hef ekki lagt leið mína í Perluna ennþá og get því ekki dæmt um hana, en ef Vilborgu finnst hún falleg þá er líklegt að mér fyndist það sama. Hitt er annað mál, að þó að hlut- ir séu vel gerðir er ekki þar með sagt að rétt hafi verið að gera þá. Það er margur fallegur hlutur í heiminum sem mannkynið má vel skammast sín fyrir. Perlur eru óneitanlega fallegar, og eins gull og demantar, en ekki langar mig til að þiggja eða gefa slíka hluti. Af mörgum og margvíslegum ástæðum. Hér skulu nefndar aðeins tvær. Demantar og perslur eru dýrar gjafir, en ekki alltaf gefnar af heil- um hug. Stundum eru demantar gefnir svo gleymist um stund það misrétti sem þiggjandinn er beittur dags dagiega. Oft er það svo, að það er þiggjandinn sjálfur sem hef- ur kostað gjöfina að miklum hluta, og hefði ef til vill hugsað tvisvar áður en hann legði sjálfur út í þann kostnað. Þegar við tökum við dýrum gjöfum frá ráðamönnum okkar, Perlunni, ráðhúsinu, Leifsstöð, glæsilegum • vegaframkvæmdum víða á höfuðborgarsvæðinu, megum við ekki gleyma að við höfum borg- að þær sjálf, og erum skuldbundin til að borga áfram um ókomin ár. Og við megum ekki einblína svo á glæsileika og fegurð þeirra að við gleymum vonleysinu sem leggst á heil bæjarfélög á landsbyggðinni um þessar mundir, eða umkomu- leysi þeirra sem minna mega sín í þessu þjóðfélagi, eða þeim ófyrir- „Perlur eru óneitan- lega fallegar, og eins gull og demantar, en ekki langar mig til að þiggja eða gefa slíka hluti.“ gefanlega skorti sem mennta- og heilbrigðistofnanir okkar búa við. Þegar dýrar og íburðarmiklar bygg- ingar rísa er alltaf hætta á að aðr- ar nauðsynjaframkvæmdir sitji á hakanum. í litlu þjóðfélagi eins og okkar er það næstum óhjákvæmi- legt. Eða er ísland undantekning frá þeirri meginreglu, að glæstar hallir rísa oftast í nábýli við örbirgð? En hagkerfi íslands er ekki lokað kerfi. Hagsæld okkar er ekki okkar einkamál. Fiskur okkar fer á al- heimsmarkað, og nóg er af svöng- Að gefnu tilefni eftirHeimiL. Fjeldsted íslendingar hafa löngum notið frumkvæðis einstaklinga og félaga- samtaka þegar átaks er þörf á hin- um ýmsu sviðum heilbrigðismála. Þannig eru 24 ár síðan Rannsóknar- stöð Hjartaverndar tók til starfa og hófst þar umfangsmikil hóp- rannsókn á fullorðnu fólki. Rann- sóknin beindist fyrst og fremst að hjarta- og æðasjúkdómum og áhættuþáttum sem tengjast þeim. Rannsóknarstöðin hefur haldið þessum rannsóknum áfram allar götur síðan en einnig sinnt öllum þeim einstaklingum sem til stöðvar- innar leita. Hjartavernd rekur rannsóknar- og leitarstöð og er eina félag sinnar tegundar í heiminum. Árlega koma 3-3.500 manns í rannsóknir og allir koma tvisvar. Rekstur slíkrar stöðvar kostar að sjálfsögðu ógrynni fjár og hefur Hjartavernd notið velvildar fyrir- tækja og almennings þegar efnt er til árlegs happdrættis til að standa straum af hluta þess kostnaðar. Nú nýlega efndu Landssamtök hjartasjúklinga til happdrættis sem að sögn tókst mjög vel en markmið- ið var að safna fé til kaupa á óm- sjá. Því miður virðist sá misskilning- ur hafa komið upp að þarna hafi verið á ferðinni hið árlega happ- drætti Hjartaverndar en svo er alls ekki. Hjartavernd hefur sent út happ- drættismiða sína til kvenna eins og verið hefur undanfarin ár, en einnig hefur JC-Vík tekið að sér sölu mið- anna á höfuðborgarsvæðinu. Vegna þessa leiða misskilnings er full ástæða til að óttast að eitt- hvað dragi úr sölu miða hjá Hjarta- vernd í ár, þar sem fólk telur sig þegar hafa styrkt málstaðinn. Vil ég skora á fólk að taka heimsendum miðum jafnvel 'og undanfarin ár og ekki síður sölufólki sem á vegi ykk- ar verður. Þá vil ég ekki síst hvetja fyrirtæki til að taka hraustlega á málum eins og undanfarin ár því Heimir L. Fjeldsted síst af öllu má draga úr starfsemi Rannsóknastöðvar Hjartaverndar. Höfundur er áhugamaður um hjartavæn happdrætti. Pétur Knútsson um þjóðum sem vilja gjarnan borga fyrir þann fisk með alls kyns varn- ingi. Öðruvísi fáum við ekki þær perlur og demanta sem við teljum okkur eiga rétt á. En demantar eru grafnir úr jörðu af fátækum hönd- um, og leið þeirra til okkar er lúmskt ferli ójafnaðar og misréttis. Eins er farið með aðra þætti þeirr- ar hámenningar sem við teljum okkur búa við hér í Norður-Evrópu; lífsgæði okkar grundvallast að ver- ulegu leyti á erfiðsvinnu þeirra sem fá aldrei að njóta þeirra sjálfir. Perlan á-Öskjuhlíðinni og hrófatild- ur fátækrahverfanna í stórborgum þriðja heimsins eru því nátengd hvort öðru. Hvorugt verður til án hins. Höfundur er lektor við Háskóla íslands. Góðcm dogirn! Heilsugæslustöðin Efra-Breiðholti Nýr heimilislæknir Ólafur Stefánsson, læknir, sérgrein: heimilis- lækningar, hefur tekið til starfa á Heilsugæslu- stöðinni Hraunbergi 6, Reykjavík. Skráning fer fram á stöðinni. Upplýsingar í síma 670200 kl. 08.00-17.00. UTSALA 8ófar 8tólar Boróstofuborö Boróstofustolar Rúm 8peglar 8ófaboró Innslcotsboró Eldhúsboró Elshússtólar Ljós Gjafavörur Borgartúni 29, sfmi 20640 - Opið laugard. kl. 11-14 Einnig útlilsgallaðar vörur meó 50% afslætti ligne roset Cassina C FLOS ALESSI Artemlde artek \

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.