Morgunblaðið - 04.10.1991, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. ÖKTÓBER 1991
Nokkur skaði varð í
fárviðrinu á Húsavík
Húsavík.
í FÁRVIÐRINU sem gekk yfir Húsavík í sl. nótt varð nokkur skaði.
Tilfinnanlegast er það sem ekki verður bætt, skemmdir á trjágróðri
en allt að 66 ára gömul tré féllu í verstu stormhviðunum.
Vegna veðurblíðunnar í haust
hafa tré fellt lauf síðar en oft áður
j>> og voru því illa búin í átökin við
hinn mikla storm. I mörgum görð-
um féllu tré, þau brotnuðu ekki
heldur drógust upp rætur og tré
féllu. Elstu trén voru í sýslumanns-
garðinum gamla, þar sem Júlíus
Hafstein bjó einu sinni, og þar féll
66 ára gamalt tré eftir því sem
heimildir herma.
Þá fauk þak af billjardstofunni,
af sambyggingu við Garðarsbraut
flettist þakið alveg af og fauk til
sjávar og þak á næsta húsi virtist
ætla að fjúka en því var haldið niðri
með aðstoð stórrar gröfu frá bæn-
um.
Skúr norðan við gömlu bókabúð-
ina lagðist saman en húsið sjálft
stendur. Þakplötur losnuðu víða en
ekki varð teljandi tjón af því foki.
Við höfnina varð ekkert tjón,
enda er austanáttin sem hér var
ekki svo hættuleg þar.
Þó dregið hafi úr veðrinu er hér
enn allhvasst og töluverð rigning.
- Fréttaritari
Neytendafélag Akureyrar og nágrennis:
" Meðalverð neysluvöru
hefur lækkað um 13%
Á VEGUM neytendafélagsins var
verð á algengum neysluvörum
kannað í fímm verslunum í desem-
ber á síðasta ár og hún síðan endur-
tekin í janúar 1991. Þá varð ljóst
að mikil verðsamkeppni var í upp-
siglinu, segir í fréttatilkynningu frá
félaginu, sem lýsti sér í því að
ýmsar vörur voru seldar undir heild-
söluverði. „Nú, tíu mánuðum
seinna, liggur ein af þessum versl-
unum í valnum, rekstri hennar
hætt þar sem álagningin stóð ekki
undir rekstrarkostnaði með þeim
veltuhraða sem þar var,“ segir í
tilkynningunni.
í verðkönnun sem gerð var nú í
byijun október kom í ljós að bil
milli verslanana er að aukast, en
þar munar mest um, að Hagkaup
hefur lækkað verð mikið, eða um
13% að raungildi og sé verslunin
nú með svipað verð og KEA Nettó,
sem til skamms tíma var ódýrasta
matvöruverslunin á svæðinu.
í tilkynningu frá neytendafélag-
inu segir að Akureyringar og nær-
sveitamenn njóti nú góðs af verð-
stríði sem standi yfir suður í
Reykjavík. Ekki sé þó allt sem sýn-
ist, því fyrirkomulag sé með þeim
hætti í verslun Hagkaups að neyt-
andinn sé leiddur inn í innsta horn
til að kaupa nauðsynjar, en á leið
að afgreiðslukössunum eru t.d.
skólavörur og álagningin ekki eins
lág. Segir að álagning á þeim vörum
hafi hækkað yfir 100% á milli ára
og þær séu um 30% dýrari en hjá
öllum öðrum skólavörusölum bæjar-
ins.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Smíða sumarhús fyrirkennara
Þeir eru almennilegir smíðanemarnir í Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri, en þeir vinna nú að smíði sumarhúss, sem ætlað er til afnota
fyrir kennara í skólanum. Þeir ætla að ljúka smíðinni í vetur og
huga jafnframt að gróðursæium, góðum stað tíl að koma honum
fyrir á, svo kennarar geti hvílt lúin bein eftir amstur vetrarins er líður
á vorið og næsta sumar. Á myndinni eru í efri röð frá vinstri: Steinm-
ar og Skarphéðinn, en Jón Hólmgeirsson kennari er lengst til vinstri
í neðri röðinni við hiið Ólafs og Halldórs.
Óvenjumikil rigning
Akureyringar fengu að kynnast mun meiri rigningu en þeir eru vanir
í gær, en rigningin mældist 34,4 millimetrar frá kl. 18 í fyrradag og
til kl. 18 í gær. Mest rigndi í gærmorgun, 10,4 millilítrar miðað við
þriggja tíma mælingu, frá kl. 6 til 9. Varðstjóri lögreglunnar á
Akureyri sagði að þetta væri mun meiri rigning en vant er hér á
þessu svæði.
Húsavík:
Samið um úti-
vistar- og land-
græðsluskóga
Húsavík.
SAMINGUR hefur nýlega verið
gerður milli Húsavíkurbæjar og
Skógræktarfélags íslands um
ræktun Iandgræðsiu- og útivistar-
skóga í landi Húsavíkurbæjar.
Skógræktarfélagið skuldbindur
sig að afhenda nú og síðar eftir því
sem fjárhagur leyfír og átak í rækt-
un landgræðsluskóga kann að afla,
plöntur og annað til gróðursetningar
í afgirtu og fjárheldu landi Húsavík-
urbæjar. Húsavíkurbær hefur alla
umsjón með landi því sem plantað
verður og í og hefur jafnframt allar
nytjar af skógræktinni, enda sé fylgt
fyrirmælum skógræktarlaga um
meðferð landsins. Jafnframt skuld-
bindur bærinn sig til að halda land-
inu girtu á fuilnægjandi hátt þannig
að búfé nái ekki að skaða gróður.
Ræktun landsins ber að haga að
landið nýtist sem best almenningi til
útivistar og ber að gæta þess að jafn-
an sé gengið snyrtilega um landið.
Húsvíkingar gengust fyrir fjöl-
mennri landsráðstefnu vorið 1990
og stofnuðu síðan félagsskapinn
Húsgull og hafa forsvarsmenn fé-
lagsskaparins sýnt mikinn áhuga
fyrir verndun og uppgræðslu örfoka
lands skammt frá bæjardyrunum.
- Fréttaritari.
Siglufjörður:
Gamla beinaverksmiðjan
hrundi o g er gjörónýt
Mikið tjón af völdum óveðursins
Siglufiröi.
GAMLA beinaverksmiðjan á
Siglufirði hrundi og gjöreyði-
lagðist í ofsaveðri sem gekk
yfir í fyrrinótt og gærmorgun.
Mikið tjón varð á Siglufirði af
völdum veðursins, en lögregla,
starfsmenn bæjarins og félagar
úr björgunarsveitinni Strákum
unnu ötullega að björgunar-
störfum frá því um miðja nótt
og fram eftir degi í gær. Raf-
magnslaust varð í bænum og
einnig var símasambandslaust
um tíma. Skólahald féll niður
og fólk var hvatt til að vera sem
minnst á ferli. Engin slys urðu
á fólki.
Gamla beinaverksmiðjan er
þriggja hæða stórt hús við Snorra-
braut á Siglufirði. Til stóð að gera
húsið upp og varðveita það, en
fyrirhugað var að setja þar upp
minjasafn. Húsið hrundi undan
vindi og er nú gjörónýtt.
Guðni Sveinsson lögregluvarð-
stjóri sagði að lögreglumenn hefðu
verið á ferðinni alla nóttina og
kallað út starfsmenn bæjarins, en
félagar úr björgunarsveitinni
Strákum unnu einnig'ötullega að
Stálblóm frumsýnt í kvöld
FRUMSÝNT verður hjá Leikfé-
lagi Akureyri í kvöld, föstudag-
inn 4. október, nýtt bandarískt
leikrit, Stálblóm (“Steel Magn-
olias“) eftir Robert Harling i
þýðingu Signýjar Pálsdóttur.
Þórunn Magnea Magnúsdóttir,
sem er fastráðinn leikari við Þjóð-
leikhúsið, leikstýrir verkinu, Karl
Aspelund hannar leikmynd og
búninga og Ingvar Björnsson lýs-
inguna. Sex leikkonur fara allar
með stór hlutverk, þær Bryndís
Pétursdóttir, gestaleikari frá Þjóð-
leikhúsinu, Hanna María Karls-
dóttir, gestaleikari frá Borgarleik-
húsinu, Vilborg Halldórsdóttir, og
þijár fastráðnar hjá Leikfélagi
Akureyrar, Þórdís Arnljótsdóttir,
Þórey Aðalsteinsdóttir og Sunna
Borg.
(FréttHtilkyiniing)
Vilborg Halldórsdóttir og Hanna
María Karlsdóttir i einu atriða
Stálblómsins.
björgunarstörfum óveðursnóttina
og fram eftir degi í gær.
Þakplötur losnuðu af húsum um
allan bæ. Þakið fór af húsi einu
við Aðalgötu og öðru við Hvan-
neyrarbraut. Eigendur báta í höfn-
inni voru vel á verði að sögn
Guðna, en þeir fluttu báta sína í
var. Nokkur skip komu til hafnar
á Siglufirði og voru þar í vari á
meðan veðrið gekk yfir.
Rafmagnslaust varð í bænum í
gærmorgun, en á miðbæjarsvæð-
inu var rafmagn skammtað eftir
hádegið. Þá varð einnig símasam-
bandslaust við bæinn um tíma.
Siglufjarðarskarð var ófært í gær
vegna óveðursins. Skólahald féll
niður, nema kennt var í gagn-
fræðaskólanum fyrir hádegi.
Mjög hvasst var í fyrrinótt, um
10-12 vindstig alla nóttina, og
drundi í fjöllum i mestu hviðunum.
Hjá lögreglu á Ólafsfirði feng-
ust þær upplýsingar að allhvasst
hefði verið í bænum, en ekkert
tjón orðið af þeim sökum, utan
hvað ein trilla sem var uppi á landi
hefði fokið á hliðina. Sömu sögu
var að segja frá Dalvík, þar var
mjög hvasst og dökkt yfir og virt-
ist vindur held'ir vera að aukast
síðdegis.
— Matthías
INNLENT