Morgunblaðið - 04.10.1991, Side 33
MÖkGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991
Minning:
Einar Jónsson
Fæddur 25. mars 1935
Dáinn 17. september 1991
Einar frændi minn og uppeldisfé-
lagi er horfinn sjónum okkar sem
hér búum.
Hann var að mínu mati ungur
að árum eða aðeins 59 ára. Hann
var búinn að ganga í gegnum mik-
il veikindi og mikla sorg og_ bar lík-
ami hans þess menjar. Ég ætla
ekki að dæma um hvort sé betra
að fara ungur eða heyja baráttu
við sjúkdóma sem lama og særa,
en við sem eftir erum söknum hans
mikið. Hann var sonur Jóns Stein-
grímssonar frá Sölvhóli í Reykjavík.
Seinni ár sín var hann kenndur við
fyrirtækið Völund en þar vann hann
sem verkstjóri lengstan tíma starf-
sævi sinnar.’Jón fæddist 12. nóvem-
ber 1889. Hann varð bráðkvaddur
í ferðalagi með samstarfsfélögum
sínum 14. júlí 1962. Eiginkona Jóns
var Þuríður Kristín Guðjónsdóttir
frá Bakkagerði á Stokkseyri, fædd
26. október 1906 og dó aðeins
mánuði eftir andlát eiginmanns síns
eða 13. ágúst 1962.
Systir Einars er Steinunn Sigríð-
ur sem er gift Knud Salling. Jon
og Dúa eins og móðir Einars var
alltaf nefnd, misstu dóttur sína
Svövu aðeins eins árs gamla úr
bráðaberklum. Það var fyrir fæð-
ingu Einars.
Einar fékk snemma að kynnast
harðri lífsbaráttu, því aðeins sex
vikna gamall fékk hann kíghósta
sem gekk mjög nærri honum. Einar
ólst upp í miklu ástríki á heimili
foreldra sinna á Hverfisgötu 100,
þar sem foreldrar hans, systir og
gömul kona sem var kölluð Abba
umvöfðu hann öll uppvaxtarár
hans.
Mér finnst mikill ævintýraljómi
yfir veru Öbbu á heimilinu. Hún
hafði verið vinnukona í Sölvhóli á
uppvaxtarárum Jóns og voru gæði
Dúu og Jóns svo mikil að þau veittu
henni skjól á heimili sínu. Hún hét
Helga og margir eiga vatnslita- og
ljósmyndir upp á vegg þar sem hún
er að störfum fyrir utan Sölvhól.
Við krakkarnir hlógum oft mikið
þegar hún talaði um Einar, því að
í hennar augum var hann mesta
gersemi sem fæðst hafði á þessari
jörðu. Einar bjó að atlæti foreldra-
heimilis síns allt sitt líf. Hann var
ljúfur og bóngóður alla tíð.
31. október 1953 kvæntist hann
Valdísi Hildi Valdimars, fædd 17.
desember 1930. Þegar é'g lít til
baka finnst mér það hafi verið hans
skemmtílegustu fullorðinsár sá tími
sem hann fékk að njóta samvist-
anna við Dísu. Hún gat verið hrók-
ur alls fagnaðar og sóttist ég eftir
að vera nálægt henni í mannfögn-
uðum fjölskyldunnar. Hun var afar
músíkölsk og kunni skil á flestum
hljómplötum sem út voru gefnar
hverju sinni með léttri tónlist. Hún
var svo orðheppin að enn sæki ég
fram í hugann orðaleiki sem hún
viðhafði og ylja mér við þá. Þau
áttu glæsijegt heimili sem þau
fengu aðstoð við að setja upp, bæði
frá Dúu og Joni og systrunum
Steinunni og Margréti Valdimarsd-
ætrum frá Eskifirði, sem ólu Dísu
upp. Dísa og Einar eignuðust þrjú
börn. Jon Þór, f. 7. febrúar 1954.
Sambýliskona hans er Sjöfn Krist-
jánsdóttir, barn þeirra er Tómas
Þór, f. 28. nóvember 1989. Jón Þór
á einnig dótturina Steinunni Dúu,
f. 2. apríl 1982. Barnsmóðir Kristín
Magnúsdóttir. Hilmar fæddur 4.
júní 1957. Kvæntur Moniku S.
Baldursdóttur. Börn þeirra eru
Margrét Steinunn, f. 2. maí 1982,
og Hildur María, f. 24. júlí 1990.
Sigríður Helga, fædd 14. júlí 1958.
Gift Hjálmari Björgvinssyni. Börn
þeirra eru Eydís Hildur, f. 28. apríl
1984, og Guðný Björg, f. 28. júlí
1986.
Árið 1962 kom fyrsta reiðarslag-
ið, þegar Jón og Dúa dóu með
mánaða millibili. Það var þungt
högg fyrir Einar. Foreldraheimilið
sem alltaf hafði verið hans öryggis-
staður var ekki lengur til staðar.
Eiginkona hans hafði þá veikst af
illkynja sjúkdómi sem lék hana afar
illa.
Systurnar Steinunn og Margrét
hjálpuðu eftir fremsta megni en þær
höfðu einnig ættleitt barn Dísu,
Steinunni Margréti, sem hún átti
fyrir hjónaband.
Veikindastríð Dísu var afar örð-
ugt og 31. mars 1964 kvaddi hún
þetta jarðlíf. Systurnar tóku þá að
sér uppeldi allra barnanna þriggja.
Ég dáðist að þessum konum. Þær
eignuðust aldrei sjálfar börn og
giftust aldrei en í sameiningu ólu
þær upp fimm einstaklinga. Einar
átti mikið erfítt þessi ár en alltaf
var hann jafn ljúfur heim að sækja.
Hann vann mörg störf á lífsleið-
inni. Mér er minnisstætt hve dug-
legur hann var að selja blöð þegar
hann var stráklingur. Hann vann
lengi við bifreiðaakstur og um tíma
hjá Strætisvögnum Reykjavfkur.
17. júlí 1965 kvæntist hann Finnu
Ellý Þorsteinsdóttur Bottelet. Þau
bjuggu á Hverfísgötu 100 á æsku-
heimili Einars. Þau eignuðust tvo
drengi, Kjartan Halldór, fæddur 21.
október 1964. Sambýliskona hans
er Guðrún Erla Brynjólfsdóttir.
Barn þeirra er Þóra, f. 5. júlí 1988.
Guðjón Páll, fæddur 16. janúar
1967. Þau Einar og Finna slitu
samvistir 23. maí 1969.
Einar hóf þá sjómennsku á bátum
og millilandaskipum. Hann var
lert'gst af hjá Eimskip.
Það var mjög gaman að fylgjast
með hversu Einari tókst að gera
vinum og ættingjum úrlausn með
að versla fyrir þá og hló ég oft að
„bókhaldi" hans sem var oft ótrú-
lega viðamikið vegna kaupa fyrir
þennan og hinn. Honum tókst að
finna það besta hvort sem það var
lítið eða stórt. Mér fannst hann
njóta sín vel í mörg ár og fannst
mér yndislegt að hitta börn hans
og barnabörn í litlu íbúðinni á
Hrefnugötu 7, þar sem hann bjó
síðustu árin í félagsbúskap með
Guðbjörgu Ásgeirsdóttur. Ég dáðist
að börnum hans öllum fyrir ljúf-
mennsku þeirra við föður sinn. Það
var mikil guðsgjöf að þrátt fyrir
aðskilnað og oft erfiðar aðstæður
tókst þeim að sýna föður sínum
kærleika sem ég hef oft þakkað
fyrir í bænum mínum. Einar var
ekki auðugur hvað varðar ytri auð
en auðævi hans eru afar mikil þeg-
ar við lítum yfir þá niðja sem munu
bera uppi nafn hans um ókomin ár.
Einar fór ekki varhluta af veik-
indum sjálfur. Tvisvar sprakk í hon-
um maginn og 1988 fór hann í
hjartaaðgerð til London. Dóttir
hans Sigríður Helga fór með honum
og vakti yfír honum og aðstoðaði.
Hann náði aldrei fullri heilsu eftir
það. Hann veiktist mjög mikið fyrir
um það bil mánuði og þrátt fyrir
að starfsfólk Landspítalans gerði
allt sem var í þeirra valdi að gera,
náðist ekki að koma í veg fyrir að
hann kveddi þetta jarðlíf.
Börnin hans öll og tengdabörn
vöktu yfir honum allt til enda. Þau
sýndu hugrekki og æðruleysi sem
er þeim öllum til sóma.
Éinar var vinmargur og margir
þeirra voru honum afar tryggir.
Að síðustu langar mig til að riíja
upp æskuár okkar frændsystkin-
anna. Hjá Dúu og Jóni bjuggu afi
okkar, Guðjón Pálsson, og amma,
Vilborg Margrét Magnúsdóttir, síð-
ustu sambýlisár sín. Þar hittist fjöl-
skylda þeirra. Það var gaman að
sjá Einar, Svavar bróður minn og
Hilmar Bergsteinsson, en þeir voru
systkinasynir, leika sér saman, en
þeir voru allir jafnaldrar. Þeir hafa
alltaf haldið góðu sambandi. Börn
ömmu og afa voru mjög kærleiks-
rík og héldu vel saman. Það eru
góðar minningar frá þessum tímum
og við systkinabörnin fengum gott
veganesti út í lífið frá Hverfisgötu
100 hjá ömmu, afa, Dúu og Nonna
Nú eru margir af þeim horfnii
yfir móðuna miklu. Það er áreiðan-
lega tekið á móti Einari með kær-
leika og umhyggju. Við sem eftir
erum þökkum Einari fyrir sam-
fylgdina með miklum trega en
gleðjumst yfir að nú eru þjáningar
hans á enda. Ég bið Guð um að
blessa hann og styrkja. Ég bið Guð
um að blessa alía niðja hans og
umvefja þá um ókomin ár þeirra.
Ég þakka Einari samfylgdina í jarð-
lífinu og get sagt með gleði að aldr-
ei bar skugga á þá samfylgd í garð
okkar Sólheimatungufjölskyldunn-
ar.
Selma Júlíusdóttir
t
Astkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓNAS HJÖRLEIFSSON,
Rauðafelli,
Austur-Eyjafjöllum,
verður jarðsunginn frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 5. október
kl. 14.00.
Ragnhildur Guðjónsdóttir,
Guðrún Jónasdóttir, Hiimar Árnason,
Guðný Jónasdóttir, Sigurður Benjamínsson,
Þórhildur Jónasdóttir, Ólafur Már Sigmundsson,
Þorsteinn Jónasson, Árný Guðlaugsdóttir,
Guðni R. Jónasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÖLVIR KARLSSON,
Þjórsártúni,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 5. október
kl. 14.00. Jarðsett verður í Kálfholtskirkjugarði.
Kristbjörg Hrólfsdóttir,
Valgerður Ölvisdóttir, Gunnar Hafsteinn Snorrason,
Lilja Ölvisdóttir, Emil Rafn Kristófersson,
Ingibjörg Ölvisdóttir, Jón Ármann Sigurðsson,
Karl Ölvisson, Jóhanna B. Hilmarsdóttir,
Gyða Ölvisdóttir, Unnar Agnarsson,
Hrólfur Ölvisson, Irma Sjöfn Óskarsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur og afi,
EINAR JÓNSSON
sjómaður,
Hrefnugötu 7,
sem andaðist 17. september verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju í dag, föstudaginn 4. október, kl. 13.30.
Jón Þór Einarsson,
Hilmar Einarsson,
Sigriður H. Einarsdóttir,
Kjartan Einarsson,
Guðjón Einarsson,
Steinunn S. Jónsdóttir,
Sjöfn Kristjánsdóttir,
Monika S. Baldursdóttir,
Hjálmar Björgvinsson,
Guðrún Erla Brynjólfsdóttir,
Knud Salling
og barnabörn.
Móðir okkar og tengdamóðir, t
KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR,
áður Hafnarstræti 4,
ísafirði,
verður jarðsungin frá ísafjarðarkapellu laugardaginn 5. október
kl. 14.00.
Högni Þórðarson, Hjördis Þórðardóttir, Kristrún Guðmundsdóttir, Árni Guðmundsson,
Anna Þ. Bachmann, Helga Þórðardóttir, Bjarni Bachmann,
Ragnhíldur Guðmundsdóttir,
Magnús Þórðarson, Maria Jóhannsdóttir.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓNAS B. MAGNÚSSON,
Hvanneyrarbraut 44,
Siglufirði,
verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 5. október
kl. 16.00. ... .. .
Johanna Magnusdottir,
Magnús B. Jónasson,
Ómar B. Jónasson,
Ævar B. Jónasson,
Sigrún J. Jónasdóttir.
t
Ástkær móðir, fósturmóðir, tengdamóðir, amma og langamma,
HALLDÓRA JÓHANNESDÓTTIR
frá Mosfelli,
Hlaðhömrum 2,
Mosfellsbæ,
Lágafellskirkju laugardaginn 5. október
verður jarðsungin frá
kl. 13.30.
Sverrir Kristinsson,
Helga Þórðardóttir,
Magnús Benediktsson, Guðrún Jósafatsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigríður Blöndal,
t
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
MAGNÚS RUNÓLFSSON
bóndi,
Haukadal,
verður jarðsunginn frá Skarði laugardaginn 5. október kl. 14.00.
Jónina Hafliðadóttir,
Hafsteinn Magnússon, Jóhanna Stefánsdóttir,
Heiða Magnúsdóttir, HaraldurTeitsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma og langamma,
HALLDÓRA ÍSLEIFSDÓTTIR,
Stykkishólmi,
verður jarðsungin frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 5. október
kl. 14.00.
Kristján Guðmundsson, Ragnheiður Hjálmtýsdóttir,
Lára Guðmundsdóttir, Halldór Nikulásson,
Marta Magnúsdóttir, Benedikt Benediktsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og
langafa,
ÞÓRÐAR GUÐNASONAR,
Sunnutúni,
Stokkseyri.
Guð blessi ykkur öll.
Valgerður Sigurðardóttir,
Elfar Þórðarson, Helga Jónasdóttir,
Gerður Þórðardóttir, Bjarni Hallfreðsson,
barnabörn og barnabarnabarn.