Morgunblaðið - 04.10.1991, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991
Meðal innfæddra
■ HRAÐSKÁKMÓT Taflfélags
Kópavogs verður haldið sunnu-
daginn 6. október kl. 14.00 í sal
TK í Hamraborg 5, 3. hæð.
■ MÁLFUNDAFÉLAG al-
þjóðasinna mun gangast fyrir
opinberum fundi.um ástand mála
á Kúbu laugardaginn 5. október
nk. Þar verður reynt að skýra
breytta stöðu hinnar sósíalísku
byltingar í heimi sem hefur tekið
verulegum breytingum á síðustu
árum. Frummælandi á fundinum
verður Mary-Alice Waters rit-
stjóri tímaritisins New Internati-
onal. Túlkað verður á íslensku
fyrir þá sem þess óska, og kaffi-
veitingar á boðstólum. Fundurinn
verður haldinn á Kornhlöðuloft-
inu (bak við Lækjarbrekku) kl.
15.00. Allir velkomnir.
(Fréttatilkynning)
■ ODDAFÉLAGIÐ heldur
kynningarfund laugardaginn 5.
október kl. 4 e.h. Fundurinn verður
haldinn í kórkjallara Hallgríms-
kirkju og er gengið inn'að austan-
verðu um hið gamla anddyri kirkj-
unnar. Allir eru velkomnir. Oddafé-
lagið er nýtt félag áhugamanna
víðs vegar á landinu, sem vinnur
að endurreisn Odda á Rangárvöll-
um. Hugmyndin er að þar rísi er
tímar líða menntasetur eða miðstöð
á sviði náttúruvísinda og sögu.
Haft yrði einkum í huga samspil
manns og höfuðskepna í aldanna
rás á íslandi ogjörðinni allri. Einn-
ig er ætiunin að efna um sumarsól-
stöður til árlegrar Oddatíðar til
skemmtunar og fróðleiks almenn-
ingi á öllum aldri. Fundurinn nk.
laugardag er fyrsta kyning Odda-
félagsins í höfuðborginni. Að lokn-
um örstuttum erindum forsvars-
manna og upplestri verður orðið
laust og er vænst frjálslegra um-
ræðna um málið. Fundi lýkur-um
kl. 6. e.h.
■ MEÐ nýrri reglugerð um gerð
og búnað ökutækja hefur aukin
þörf skapast fyrir þá sem smíða
tengibúnað á bifreiðar á löglegan
hátt. Iðntæknistofnun íslands
mun halda námskeið í smíði tengi-
búnaðar dagana 15. og 16. októ-
ber. Kynnt verður m.a.: Reglugerð
um dráttarbeisli, hönnunarkröfur,
burðarþolsreikningar, skriflegar
æfingar, suðuaðferðir, suðugallar,
suðuspennur, suðukröfur, staðlar
og æfð verður suða. Þátttakendum
gefst kostur á að þreyta verklegt
suðupróf í lok námskeiðsins. Nám-
skeiðið mun nýtast bæði framleið-
endum og innflytjendum á dráttar-
beislum.
(Fréttatilkynning)
■ UM HELGINA verða haldnir
ostadagar í Osta- og smjörsöl-
unni á Bitruhálsi 2. Þeir hefjast
föstudaginn 4. október kl. 16.30
þar sem kynnt verða úrslit dóma
í ostakeppni og ljúffengustu ost-
arnir verðlaunaðir. Þá verður út-
nefndur Ostameistari íslands og
ýmsar nýjungar í ostagerð verða
á boðstólum. Ostadagar verða opn-
ir almenningi á laugardag og
sunnudag frá kl. 13 til 18 báða
dagana. Þar gefst fólki kostur á
að bragða á ýmsum nýjungum.
Auk þess verða ostameistarar á
staðnum og svara spurningum um
osta og ostagerð og bjóða gestum
og gangandi að bragða á hinum
ýmsu ostakræsingum. Síðast en
ekki síst verða ýmsar ostategundir
og uppskriftabæklingar á kynning-
arverði. Osta- og smjörsalan hefur
á undanförnum árum gengist fyrir
ostadögum annað hvert ár en þess
á milli tekið þátt í alþjóðlegum
ostasýningum. I fyrra voru íslensk-
ir ostar á ostasýningu í Danmörku
og hlutu alls 12 gullverðlaun og
11 silfurverðlaun. Með þessum
hætti er stuðlað að því að auka
enn frekar fjölbreytni og gæði ís-
lensku ostaframleiðslunnar. Fyrir
ostadagana hafa mjólkurbúin skip-
að tólf manna dómnefnd og veitt
eru gull-, silfur- og bronsverðlaun
fyrir þá osta sem fá flest stig. Sá
ostameistari sem stendur efst að
stigum hlýtur síðan titilinn Osta-
meistari Islands.
■ 5. LANDSÞING Landssam-
bands framsóknarkvenna verður
haldið í Borgartúni 6, í Reykja-
vík dagana 5. og 6. október 1991.
Á þinginu verða auk hefðbundinna
þingsstarfa tvö meginmál tekin til
umfjöllunar en þau eru „Konur í
stjórnmálum“ og „Lífsstíll fjöl-
skyldunnar". Laugardaginn 5.
október verður haldið sérstakt
kvöldverðarhóf þar sem þess verð-
ur minnst að 10 ár eru liðin frá
stofnun Landssambandsins. í til-
efni 10 ára afmælisins verður einn-
ig gefið út sérstakt afmælisrit,
„Gróska“. Allar nánari upplýsingar
um þingið eru veittar á skrifstofu
Framsóknarflokksins.
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Þar til þú komst („Till There
Was You“). Sýnd í Háskóla-
bíói. Leiksljóri: John Seale.
Aðalhlutverk: Mark Harmon,
Deborah Unger, Jeroen
Krabbe.
í þessari svokölluðu „mögn-
uðu spennumynd" leikur hinn
einhæfi leikari Mark Harmon
barþjón sem heldur til afskekkt-
rar eyjar i S-Kyrrahafi til að
finna bróður sinn. Honum er
sagt að hann hafi verið drepinn
af innfæddum en barþjónninn
kemst með tímanum að því að
sú skýring geti reynst vafasöm.
Um það leyti ætti áhorfandinn
að vera farinn að sjá eftir miða-
verðinu.
Þar til þú komst er ekki spenn-
andi á neinn hátt og það eina
sem er magnað við hana er hvað
hún er léleg. Þetta er vita metn-
aðarlaus B-myndaframleiðsla
sem maður hélt sannast sagna
að menn væru búnir að gefast
upp á fyrir löngu. Handritið er
sundurlaust og ruglingslegt, per-
sónurnar klisjur einar og leik-
stjórnin hræðileg.
Leikararnir koma héðan og
þaðan og fara afleitlega með það
litla sem þeir þurfa að gera.
Deborah Unger, sem fellir hug
til Harmons, virðist vera með
þýskan hreim. Hún er blondínan
í myndinni. Jeroen Krabbe, sem
leikur fúlmenni myndarinnar,
talar með sínum hollenska hreim,
Harmon talar sína amerísku og
einn eða tveir til viðbótar tala
með hreim sem verður ekki auð-
veldlega rakinn. Hvernig allir
þessir útlendingar, sem tala
amerísku, á eyju í S-Kyrrahafí
tengjast aðalmálinu í myndinni,
gullfarmi á hafsbotni, en þó að-
eins lauslega því sá merki þáttur
smækkar á undarlegan hátt oní
dulitla neðanmálsgrein í handrit-
inu.
Um hvað er myndin þá? Jú,
Harmon og Unger, nú ástfangin
uppfyrir haus, vingast og kynn-
ast náið lifnaðarháttum inn-
fæddra. Þar til þú komst er ein
af þessum myndum sem sýna
hina frumstæðu og bláfátæku
íbúa fjarlægrar eyjar í eilífu
partýi. Hjá þeim er stanslaus
fagnaður, skrautlegir búningar,
dansar, söngur og átveislur hvert
sem litið er. Á tímabili er mynd-
in eins og skrautlegur
ferðabæklingur.
Það segir nokkuð um myndina
að þessi langi millikafli er besti
hluti hennar.
Athugasemd við frétt
í Morgunblaðinu í gær á
bls. 20 þar sem fjallað er
um tilboð Granda í Hrað-
frystihús Stokkseyrar
(H.S.) er eftirfarandi setn-
ing: „Byggðastofnun hafn-
aði sem kunnugt er tilboði
Granda í Hraðfrystihús
Stokkseyrar, sem talið er
gjaldþrota." Ég undirritað-
ur vil hér með benda á að
söluandvirði verðmæta í
Hraðfrystihúsi Stokkseyrar
er 550-600 milljónir ef fyr-
irtækið yrði lagt niður og
eignir þess seldar, en nettó-
skuldir 350 milljónir. Sem
Leiðrétting
í frásögn af skipun Ólafs
H. Kjartanssonar í embætti
bæjarfógeta á ísafirði mis-
ritaðist nafn föður hans en
hann heitir Kjartan T. Ól-
afsson, ekki Kjartan P. eins
og sagt var. Er beðist vel-
virðingar á þessu.
dæmi um verðmætin má
nefna að kvóti fyrirtækisins
einn og sér er tæplega 400
milljóna virði.
Sigfús Jónsson,
stjórnarformaður H.S.
Ttie Rockwille Trolls
leika Country Rock til kl. 03.00.
„Nothing but Country"
dansa i kvöld.
GARÐA-
KRÁIIM
Tökum að okkur allor tegundir
af einkasamkvæmum.
Garðatorgi 1 - Garðabæ.
Sími 657676.
20 ára 500 kr.
Föstudagskvöld:
B.B. bandið og
Anna Vilhjálms
Opiðtilkl. 3.
Laugardagskvöld:
Hljómsveitin
Tvennir tímar
Opið til kl. 3.
Sunnudags- og
mánudagskvöld:
Ingvar trúbador.
Opið til kl. 1
Munið okkar
vinsæla matseðil.
ÖLKJALLARINN
Pósthússtræti 17,
sími 13344.
TUNGLIÐ
Finnskur vökvi kynntur • Ýmir og Grétar uppi • Þossi í kjallara
20ára Opið til kl. 03
RAGNAR SIGURJONSSON,
Ijósmyndari DV.
„HAPPY DRAFT HOUR“ KL. 22-23
(LUKKU-DÆLU TÍMI)
STEMNINGIN VAR MEIRIHÁTTAR
UM SÍÐUSTU HELGI
- VIÐ BYRJUM ÞVj SNEMMA í KVÖLD -
NJÓTTU ÞESS AÐ VERA MEÐ
PULSINN
PS. MUNIÐ IRSKA KVOLDIÐ A
SUNNUD. 6. OKT.
KVEÐJUTÓNLEIKAR
DIARMUID O’LEARY & THE BARDS
Kynning á írskum guðaveigum!
ABMlllA 7
SIMI G8 16 61
HLJOMSVEITIN
Laugavegi 45 - s. 21255
í kvöld:
0.0.0
BUBBI OG RÚNAR
Laugardagskvöld:
LOÐIN
Rom
Ath. kl. 22 skemmta
TRÚBADORINN
LE0
0ILLESPIE
OG LÁTBRAGÐLEIKARINN
OG GALDRAMAÐURINN
MICKM.
RED HOOSE SKEMMTIR
„Draft happy hour“
daglega milli kl. 18-21
Þeir skemmta einnig
næstu kvölú
Hinir landsfrægu harmónikuleikarar,
Grettir Björnsson, Örvar Kristjónsson,
ósamt Jónmundi Hilmarssyni, skemmta
gestum Rauóa Ijónsins í kvöld.
Snyrtilegur klæðnaður.
)