Morgunblaðið - 04.10.1991, Page 41
MORGtJNBLAÐIÐ 'FÖSTliDAGtJR 4. OKfl'ÓBER 1991
041"
VELVAKAMDI
SVARAR í SÍMA
B91282KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Tillitslausir sundlaugargestir
Ég hef nú í eitt ár stundað sund
nánast daglega í Laugardalslaug-
inni. Sundiðkun er án efa einhver
besta og heppilegasta íþrótt sem
almenningur á kost á. Sundstaðir
eru margir í borginni og opnir fram
á kvöld. Sundið geta ungir sem aldn-
ir stundað. Ménn ráða tíma sínum
alveg sjálfír. Sumir fara og synda
sinn sundsprett, en margir fara
vegna félagsskaparins og þá sérs-
taklega eldra fólk. Eftir góðan sund-
sprett og afslöppun í nuddpotti er
maður fullfær að takast á við verk-
efni dagsins. Þá er það kostur að
þessi íþrótt tekur ekki langan tíma.
Ég myndi því ráðleggja öllum þessa
íþrótt.
Það er þó tvennt sem fer ákaflega
í taugarnar á mér, en það er hve
tillitslausir sumir sundlaugagestir
eru. Eins og gefur að skilja er oft
þröngt á þingi í sundlauginni og
þurfa menn þá að skáskjóta sér til
að lenda ekki í árekstri. Hins vegar
virðast skriðsundsmenn oft synda
beirít af augum, oft með miklum
buslugangi, og svo baksundsmenn
sem náttúrulega sjá ekkert hvert
þeir stefna. Þetta fólk ætlast til að
sá sem á móti kemur víki fyrir því.
Þetta finnst mér hins vegar ótrúlegt
tillitsleysi. Það yrði væntanlega held-
ur betur öngþveiti ef allir syntu bak-
sund. Þá er það einnig pirrandi hve
erfitt er oft að komast að sápuskál-
um í sturtuklefum þar sem menn
fara úr sturtunni að sápuskál og
standa þar og dæla sápu og þvo lík-
amann svo ekki komast aðrir að, í
stað þess að fá sér sápu í lófann og
fara aftur í sturtuna.
Ég vona að sundlaugagestir íhugi
þetta, ekki bara þarna heldur alls
staðar í hinu daglega lífi. Við verðum
jú að taka tillit til annarra, því við
Mánudaginn 30.september var
haldinn fundur í Alþýðuhúsinu í
Hafnarfirði með Sighvati Björg-
vinssyni heilbrigðismálaráðherra.
Eins og flestir landsmenn vita hef-
ur staðið til að gera Sankti Jós-
efsspítala að hjúkrunarheimili fyrir
aldraða, nú segi ég og skrifa ugla
sat á kvisti átti börn og missti. Það
er algjört þekkingarleysi af hálfu
heilbrigðismálaráðherra að láta sér
detta þvílíkt og annað eins í hug,
þar sem við bæjarbúar og nágrann-
ar okkar höfum bestu aðstöðu á
öllu landinu fyrir aldraða: Númer
1. Öldrunarheimilið Sólvangur.
Númer 2. Heimilishjálpin. Númer
3. Heimahjúkrunin. Númer 4.
Hrafnista. Nú spyr ég: Hvar á land-
inu er meira rými fyrir aldraða?
Sighvatur heilbrigðismálaráð-
herra hefur háa og hvella rödd og
brýnir vel raddbönd sín þegar hann
talar, það vantar ekki. Og ekki
vantaði heldur allar þær skuldir
landsmanna sem hann sýndi okkur
á vegg. Sighvatur þandi nasavæng-
ina, dró fram einhverja loftnetstöng
af bíl, að mér sýndist, sem hann
viljum að aðrir geri það gagnvart
okkur.
Sundlaugargestur
notaði sem áhersluprik við glærur
sínar (kannski að ráðherrarnir séu
allt í einu orðnir svo skuldugir að
þeir séu farnir að bijóta af bílum
sínum). Allar þessar skuldir okkar
voru sýndar í hólum, hæðum og
fjöllum. Auðvitað viðurkenni ég að
það er sorglegt að horfa á skuldir
landsmanna en nú spyr ég Sighvat
Björgvinsson ráðherra: Hvar virð-
ast alltaf vera til peningar? Ef
minnst er á eyðslu ráðherra og
hvað þeim er hampað í þjóðfélaginu
þá er alltaf farið undan í flæmingi
og málinu eytt. Af hveiju? Ég er
kannski svona barnaleg en ég held
endilega að innst inni þá skammist
þeir sín svolítið.
Það sem ég á við með þvi að
skrifa ugla sat á kvisti o.s.frv. er
að Jósefsspítali í Hafnarfirði stend-
ur með reisn og hefur alla tíð gert
og hann á að fá að halda reisn sinni,
ekki lúta því að verða ýtt til hliðar
eins og gerist í leikjum gáskafullra
barna.
Virðingarfyllst,
Elsa Thorlacius sjúkraliði.
Lokun Sankti Jósefs-
spítala í Hafnarfirði
ýáéovi e*utOi
á ýódcc í
Hallargarðurinn er rómantískur staður
þar sem matsalur, bar og koníaksstofa
mynda eina heild á ánœgjulegu kvöldi.
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7,
símar 678555 og 30400, fax 678571.
Skatturmn fer illa
með útlendinga
Mig langar til þess að mótmæla
„Islenskum sjómanni“ sem skrifar
í Velvakanda fyrir skömmu og telur
þar að útlendingar komi hingað og
vinni í stuttan tíma en borgi ekkert
í skatt þar sem þeir fái allir heilsárs-
skatt. Ég var með útlending hjá
mér í fyrra sem fékk atvinnuleyfi
í tvo mánuði en hann vann aðeins
í sex vikur og fékk samtals 95.868
kr. í laun og af því þurfti hann að
borga 7.291 kr. í skatt. Ég hugg-
aði hann með' því að hann myndi
fá þetta endurgreitt í sumar eins
og við Islendingar myndum fá ef
við ynnum einungis fyrir þessari
upphæð á ári. Svo kom endur-
greiðslan og hún hljóðaði upp á 870
krónur. Þannig var farið með þenn-
an útlending.
Ég held að það sé eitthvað grugg-
ugt við þetta og mér þætti fróðlegt
að fá svar frá ríkisskattstjóra um
það hvort önnur skattalög gildi um
útlendinga. Ég hef slæma reynslu
af skattinum fyrir hönd þessa út-
lendings og mér fannst farið virki-
lega illa með hann.
Húsmóðir í Vestmannaeyjum.
flnrgimnMfjfoíifo
Blaðiö sem þú vaknar við!
BRÉFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
Múlalundur
I SlMI: 62 84 50
_______________
Hinn eini og sanni
Stópútsölumarkaður
Bíldshöfða 10
NÚ ER HVER AÐ VERÐA SÍÐASTUR
SÍÐUSTUDAGAR
ÍDAGOG
Á MORGUN!
Nú lækkar verð enn meira
Fjöldi fyrirtækja - gífurlegt vöruúrval - ÓTRÚLEGT VERÐ
Steinar, Karnabær, Sonja, Vinnufatabúðin, Partý, Bombey, Strikið, Kókó/Kjallar-
inn, Stúdíó, Saumalist, Theodóra, Árblik, Blómalist, Karen og Madam
Með lágu verði, miklu vöruúrvali og
þátttöku fjölda fyrirtækja hefur Stórút-
sölumarkaðurinn svo sannarlega sleg-
ið í gegn og stendur undir nafni.
FRÍTT KAFFI - VÍDEÓHORN FYRIR BÖRNIN
Opnunartimi: Föstudaga kl. 13-13. Laugardaga kl. 10-16. Aöra daga kl. 13-18