Morgunblaðið - 01.11.1991, Side 20
■20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991
Gunnar Eggertsson ræðir við
George Bush Bandaríkjafor-
seta um Gaiu. Á minni mynd-
inni er Gunnar að kveðja Bush
og barnabörn hans á kajanum.
Morgunblaðið/Herdís Gunnarsdóttir
Gaia leggur úr höfn að nýju og siglir til Brasilíu:
Siglt undir merkjum barna-
hjálpar og umhverfisverndar
VÍKINGASKIPIÐ Gaia leggur
um miðjan nóvember upp í
næsta áfanga ferðar sinnar frá
Bandaríkjunum suður til Rio de
Janero í Brasilíu, þangað sem
komið verður 1. júní næstkom-
andi. Skipið siglir nú undir
merkjum Barnahjálpar Samein-
uðu þjóðanna og er för þess
sérstaklega ætlað að vekja at-
hygli á málefnum barna og
umhverfisvernd. Islendingarnir
tveir, Rikharður Pétursson og
Gunnar Eggertsson, sem fylgt
hafa skipinu alla tíð verða áfram
með í för en þeir eru sem stend-
ur staddir í fríi hér á landi. Að
sögn þeirra verður gengist fyrir
ritgeraðsamkeppni meðal barna
í þeim löndum sem skipið kemur
til og hefur ýmsum þekktum
rithöfundum verið boðið að sigla
með skipinu milli hafna. Banda-
ríski rithöfundurinn Kurt
Vonnegut hefur þegar þekkst
boðið og mun líklega koma um
borð í Havana á Kúbu og sigla
með til Kingston á Jamaíku, en
þangað verður væntanlega kom-
ið skömmu fyrir jól.
„Skipið hefur vakið mikla at-
hygli en það var talið að eitt af
því sem ætlunin var í upphafi hafi
ekki komist nægilega vel til skila
og það var að minna okkur á hvað
Morgunblaðið/RAX
Ríkharður Pétursson, til vinstri, og Gunnar Eggertsson ásamt
dóttur Gunnars, Aldísi.
við værum að gera Móður Jörð.
Þess vegna var ákveðið að halda
áfram og Knut Kloster gerir skipið
nú út í samvinnu við Bamahjálp
Sameinuðu þjóðanna og það er
siglt undir þeirra kjörorðum „Keep
the promise”, sem er hvatning til
stjómmálamanna um að standa við
gefin fyrirheit,” sagði Ríkharður.
Framkvæmdastjóri ferðarinnar
hefur verið ráðinn Odd Gran, fyrr-
verandi forstjóri Rauða Krossins í
Noregi og skipveijarnir eru nefnd-
ir sérlegir sendifulltrúar Samein-
uðu þjóðanna. Auk Gunnars og
Ríkharðs og leiðangursstjórans
Ragnars Thorseth heldur einn
Norðmaður úr upphaflegi áhöfn
förinni áfram en aðrir í áhöfninni
verða Norðmenn sem sigla nú með
í fyrsta skipti og koma.
Gaia er nú í höfn við Canaveral-
höfða á Flórída en heldur þaðan
16. eða 17. nóvember og siglir
áleiðis til Kúbu. Þaðan verða
þræddar stærstu eyjar Karíbahafs-
ins og síðan haldið eftir strönd
S-Ameríku til ósa Amazon-fljóts-
ins. Þá verður siglt upp eftir fljót-
inu til að minna á nauðsyn þess
að vernda regnskógana við Amaz-
on en ferðinni lýkur í Rio de Jan-
ero þann 1. júní. Alls staðar þar
sem skipið kemur við verður efnt
til ritgerðasamkeppni milli barna
um málefni barnahjálpar og meðal
annars þess vegna hefur rithöfund-
um verið boðin þátttaka. í hverri
höfn verður einnig skipt út hluta
af ballest Gaiu, sem nú er öll úr
norsku gijóti, og í staðinn tekið
gijót frá hveijum stað. I Rio er
svo fyrirhugað að reisa minnis-
varða um ferðina og málefnið úr
ballestinni.
George Bush kom með
barnabörnin að skoða skipið
Meðan Gaia var í Washington
kom George Bush Bandaríkjafor-
seti óvænt með barnabörn sín að
skoða skipið. Gunnar og Ríkharður
voru þá meðal fárra áhafnarmeð-
lima um borð. Forsetinn stóð við
í 20 mínútur og að sögn Gunnars,
sem var leiðsögumaður Bush, var
hann mjög áhugasamur um skipið
og ferðine, spurði margs og út-
skýrði hlutina fyrir bamabömum
sínum. „Hann ræddi meðal annars
um að eigið skip, sem er svokölluð
sígaretta, 20 metra langt og með
nokkur þúsunda hestafla vél, væri
ekki talið mjög umvherfisvænt,”
sagði Ríkharður.
Neytendasamtökin, Félag ferðaskrifstofa og Flugleiðir;
Fráleitt að leggja virðisauka-
skatt á farseðla í miUilandaflugi
FULLTRÚAR Neytendasamtakanna, Félags íslenskra ferðaskrifstofa
og Flugleiða, taka fjarri hugmyndum Félags íslenskra stórkaupmanna
um að leggja virðisaukskatt á flugfarseðla til að draga úr innkaupaferð-
um íslendingum til útlanda. Slíkur skattur sé hvergi lagður á flugfar-
seðla í millilandaflugi. Þá séu hugmyndir FÍS um að endurgreiddur
virðisaukaskattur verði innheimtur hérlendis út í hött.
Glit biður
um greiðslu-
stöðvun
STJÓRN Glits hf. hefur ákveðið
að óska eftir greiðslustöðvun til
þriggja mánaða, samkvæmt frétt-
atilkynningu frá stjórn félagsins,
en beiðni þar um hafði ekki borist
skiptarétti Reykjavíkur í gær.
I fréttinni segir að tap hafi verið
á rekstri félagsins og fjárhagsstaða
þess sé slæm. Fyrirtækið hefur
undanfarin þijú ár verið rekið í sam-
vinnu við Reykjavíkurborg sem vinn-
ustaður fyrir fólk með skerta starfs-
orku.
Um síðustu áramót gerðust Ör-
yrkjabandalag íslands og Blindrafé-
lagið meirihlutaeigendur að fyrir-
tækinu ásamt Reykjavíkurborg auk
þess sem fyrri eigendur lögðu fram
hlutafé. Um 20 fatlaðir einstaklingar
hafa starfað á vinnustofu fyrirtækis-
ins.
-----*-*-*----
Kolaportið
stækkað nú
um helgina
KOLAPORTIÐ verður stækkað
um helgina og verða sölubásarnir
samtals 300 talsins, eða 150 hvorn
dag, laugardag og sunnudag. I
Kolaportinu hafa aldrei fyrr verið
svona margir básar.
Ekki verður húsnæðið stækkað
heldur kemur til framkvæmda nýtt
skipulag þannig að litlum sölubásum
fjölgar um 30 og heildarfjöldi þannig
úr 120 í 150 bása.
Ástæðan fyrir þessari skipulags-
breytingu er tvíþætt, að mæta auk-
inni eftirspurn eftir söluplássi og að
auka vöruúrvalið og er gert ráð fýr-
ir að þetta nýja skipulag verði reynt
til jóla.
Kolaportið er opið 10-16 á laugar-
dögum og kl. 11-17 á sunnudögum.
♦ ♦ ♦----
Verslunin
Rangá60ára
Tvær verslanir
sameinaðar í eina
VERSLUNIN Rangá er sextíu ára
í dag. Rangá er ein af elstu mat-
vöruverslunum Reykjavíkur. Fyr-
irtækið hefur undanfarin ár rekið
tvær verslanir en á morgun, laug-
ardag, eru þær sameinaðar í eina
að Skipasundi 56. í tilefni afmælis-
ins verður veitt kaffi og kökur í
báðum verslununum í dag.
Verslunin Rangá var stofnuð af
Jóni Jónssyni frá Ekru á Rangárvöll-
um 1. nóvember 1931. Ekra er á
milli Rangánna og þaðan er nafn
verslunarinnar komið. Rangá var
fyrst á Hverfísgötu 71 en flutti árið
1948 að Skipasundi 56 og var fyrsta
verslunin í Langholtshverfl. Núver-
andi eigendur, Agnar Ámason og
Sigrún Magnúsdóttir, keyptu versl-
unina 1. nóvember 1971.
Rangá keypti Kjartansbúð í Efsta-
sundi árið 1984 og hefur rekið hana
síðan. Á morgun verða búðimar sam-
einaðar í Skipasundi.
Rangá er hverfisbúð og í fréttatil-
kynningu frá eigendum hennar segir
að hún hafí reynt að laga sig að
þróun og breytingum í verslunarhátt-
um í borginni. „Rangá hefur ekki
farið varhluta af þeim stormum sem
nú geysa á matvörumarkaði borgar-
innar, en grunnurinn er traustur og
við vonumst til áframhaldandi
ánægjulegra samskipta við fbúa
Langholtshverfís svo og við aðra
borgarbúa,” segir í fréttatilkynning-
unni.
Núverandi eigendur breyttu
Rangá í sjálfsafgreiðslubúð með
mjólkursölu árið 1972. í henni er
gjafavöruhorn og í tilefni afmælisins
verður veittur 10% staðgreiðsluaf-
sláttur af gjafavörum og leikföngum
í nóvember. Framvegis verður versl-
unin opin alla daga frá klukkan 10
til 22.
Jóhannes Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtakanna
sagði að ef stórkaupmenn ætluðu að
láta taka sig alvarlega yrðu þeir að
kynna sér mál betur en þeir hefðu
gert varðandi virðisaukskattinn, því
tvísköttunarsamningur næði einung-
is til tekju-, og eignakatts og út-
svars, en ekki virðisaukaskatts, auk
þess sem samningurinn við Bretland
hefði ekki öðlast gildi ennþá. Þá
væru tölur FÍS um innflutning að
sjálfsögðu ágiskun ein.
Þá væri það algjörlega fráleitt að
gera tillögu um að hækka fargjöld
um 24,5% með því að leggja virðis-
aukaskatt á þau þegar fyrir lægi að
þau væru þegar alltof há. Hins vegar
gætu Neytendasamtökin fallist á það
með stórkaupmönnum að jafna ætti
starfsskilyrði verslunar hér og er-
lendis. Það væri mikilvægt með til-
liti til evrópska efnhagssvæðisins, en
það væri einnig mikilvægt að stór-
kaupmenn litu í eigin barm. Skýring-
in á verslunarferðum til útlanda
væri mjög einföld. Verðlag hér væri
of hátt og seljendur ættu að líta í
eigin barm.
Helgi Jóhannsson, formaður Fé-
lags ferðaskrifstofa, sagði það mjög
einkennilegt að ein atvinugrein ætl-
aði að leysa eigin vandamál með því
að skattleggja aðra atvinnugrein. Þá
sagði hann stórkaupmenn stórýkja
tölu þeirra sem færu í þessar inn-
kaupaferðir, nær væri að tala um
12.500 en 25 þúsund, auk þess sem
það væri ekki rétt að fólk færi ein-
göngu í því skyni að versla, eða að
hjón versli fyrir 200 þúsund krónur
í ferðunum.
Helgi varpaði fram þeirri spurn-
ingu hvort ekki væri eðlilegt í fram-
haldi af þessu að kaupmenn úti á
landi gerðu kröfurtil þess að sérstak-
ur skattur verði lagður á ferðir innan-
lands til Reykjavíkur, því vitað væri
að fólk utan af landi kæmi til Reykja-
víkur til þess að versla. Það hlyti að
vera mjög óréttlátt. „Manni finnst
þetta koma úr hörðustu átt því kaup-
menn hafa verið talsmenn fijálsrar
samkeppni. Þeir ætla meira að segja
að stofna skipafélag til að fá meiri
samkeppni í flutningana.
Helgi sagði að ef virðisaukaskatt-
ur yrði lagður á farseðla myndi það
gilda bæði um útlendinga og íslend-
inga. Flugleiðir væru að reyna að
selja helgarferðir til Íslands frá hin-
um Norðurlöndunum og þar værum
við keppa við helgarferðir til stór-
borga Evrópu. Ferðamennimir sem
hingað kæmu versluðu hér og hann
væri hræddur um að kaupmenn yrðu
ekki ánægðir með að missa stóran
hluta af þessari verslun.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, sagði að hugmyndin um
virðisaukaskatt á farmiða í milliland-
aflugi væri út í hött.
„Þetta eru hugmyndir um að loka
verslunina inni í landinu á sama tima
og hafðar værur uppi kröfur, meðal
annars af hálfu stórkaupmanna, um
aukið frelsi í viðskiptum. Flugleiðir
hafa lýst yfir stuðningi við kröfur
um aukið frelsi í flugrekstri sem og
þær skyldur sem aðild að EES legg-
ur flugfélögum á herðar og miða
allar að því að opna landamæri og
ryðja hömlum úr vegi. Það væri því
út í hött ef ísland eitt landa færi að
leggja virðisaukaskatt á flugfarseðla
í millilandaflugi,” sagði Einar.