Morgunblaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991
21
Forræði tveggja íslenskra telpna í Tyrklandi:
Afgreiða verður málið
fyrir tyrkneskum dómi
190% tilvika fær móðir forræði barna í skilnaðarmálum í Tyrklandi
Forræðismál tveggja íslenskra telpna, sem haldið er af tyrkneskum
föður sínum í Tyrklandi, verður að afgreiða fyrir tyrkneskum dómstól-
um en samkvæmt íslenskum lögum samkvæmt því sem Guðmundur
B. Helgason, sendiráðsritari hjá utanrikisráðuneytinu, segjr í samtali
við Morgunblaði. Ka/.in Munir Ilamamcioglu, ræðismaður Islendinga í
Istanbúl, segir að í 90% tilvika fái móðirin forræði barna sinna í skiln-
aðarmálum þar í landi. Viðtal við móður telpnanna sem eru níu og tíu
ára birtist í Morgunblaðinu á miðvikudag.
„Málið kom fyrst til okkar 15. an. I þeim tilgangi höfum við verið
ágúst í fyrrasumar þegar Isak Halim
AI, faðir telpnanna, tilkynnt að hann
myndi ekki snúa til baka með börn-
in,” sagði Guðmundur er hann var
spurður um afgreiðslu málsins hjá
utanríkisráðuneytinu. „í janúar var
veittur skilnaður á borði og sæng
en þá fékk móðirin einnig bráða-
birgðaforræði yfir börnunum sam-
kvæmt úrskurði dómsmálaráðuneyt-
isins. Allt frá þeim tíma höfum við
reynt að fá þennan úrskurð staðfest-
í sambandi við tyrknesk dómsmálayf-
irvöld, bæði í gegnum sendiráð
Tyrkja í Osló og ræðismann okkar í
Istanbúl sem hefur verið að vinna í
málinu, en allar tilraunir hafa farið
á einn veg sem er sá að Tyrkir telji
málið einkamál sem reka beri fyrir
tyrkneskum dómsstólum. Þegar þessi
niðurstaða lá ljós fyrir höfðum við
samband við tyrkneskan lögfræðing
sem útvegaði okkur greinargerð um
framhald málsins þar sem meðal
Hús Sambandsins til sölu:
Bninabótamat húss-
ins er 1033 milljónir
HÚSEIGN Sambandsins að Kirkjusandi er til sölu. Til greina kem-
ur að húseignin öll verði seld, eða hluti hennar. Brunabótamat
hússins er 1033 milljónir króna og er fyrsta, önnur og fimmta
hæð hússins í eigu Sambandsins, en Lífeyrissjóður samvinnu-
manna á þriðju hæðina og Islenskar sjávarafurðir eiga þá fjórðu.
Samkvæmt upplýsingum Sigurðar Markússonar, sljórnarformanns
Sambandsins hafa ákveðnir aðilar Iýst áhuga á eigninni, en ekk-
ert Iiggi þó fyrir enn hvort samningar takist.
Auk ofangreindrar húseignar á
Sambandið byggingarrétt að
Kirkjusandi og frystigeymslu
sunnan hússins og tvær skemmur
á lóð Sambandsins eru í eigu ís-
lenskra sjávarafurða. Þær eignir
eru ekki inni í því brunabótamati
sem frá er greint hér að ofan.
Sigurður Markússon sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær
að Sambandið gæti hugsanlega
selt sínar hæðir hússins og þá hæð
sem er í eigu lífeyrissjóðsins.
Heimildir Morgunblaðsins innan
Sambandsins herma að íslenskar
sjávarafurðir vilji gjarnan hafa
höfuðstöðvar sínar áfram í húsa-
kynnum sínum að Kirkjusandi, en
þó myndi stjórn fyrirtækisins ekki
standa í vegi fyrir því að öll eign-
in væri seld, ef góður kaupandi
fengist að henni allri.
Sigurður sagði að ekki lægi
fyrir hvert starfsemi Sambandsins
yrði flutt, ef húseignin verður
seld, en til greina kæmi að flytja
starfsemina í Holtagarða, því sú
starfsemi sem enn færi fram á
vegum Sambandsins þyrfti ekki
mikið skrifstofuhúsnæði. „Ugg-
laust myndum við hafa einhvern
aðfarartíma að því, jafnvel þótt
húsið seldist allt saman. Það er
líka til í dæminu, ef húsið selst
ekki allt saman að við yrðum hér
áfram,” sagði Sigurður.
•1 . t \ " ' '. i . p «w>i -BHf aisr
l ’■ ***#• ***** "»*JI iiskt 'km ISiíg *S8|
1" iSSÍB iíSOÍ iBlx ÍSEí SB.j IBSi HSIÍ'IIH'lItriaiI'IIfi IHHUTO'rfW*1
m sssiai 11111111 i«íi mm wmwi
Sambandshúsið á Kirkjusandi.
Málþingið á sérstakt erindi til
foreldra og allra sem áhuga hafa á
uppeldi barna. Fjallað verður um
börn og barnauppeldi frá ýmsum
sjónarhornum.
Fyrirlesarar eru Valborg Sigurð-
ardóttir, fyrrverandi skólastjóri
Fósturskóla íslands, dr. Þuríður J.
Kristjánsdóttir prófessor, Halldór
Hansen barnalæknir, dr. Laufey
Steingrímsdóttir næringarfræðing-
ur og prófessor Páll Skúlason heim-
spekingur. Heldur hann síðan fyrir-
lestur sem hann kallar: Siðgæði og
uppeldi. Er uppeldi vonlaus við-
leitni?
Leikskólabörn syngja og leika
annars kemur fram að reka þurfi
málið fyrir tyrkneskum dómstólum
en samkvæmt íslenskum lögum þar
sem þau séu sameiginleg lög hjón-
anna.”
Guðmundur sagði að ekki hefði
enn verið tekin ákvörðun um hvort
þessi leið yrði farin enda væri ákvörð-
unin undir móðurinni komin. Hann
sagði ómögulegt að spá fyrir um
niðurstöðu málsins hjá tyrkneskum
dómstólum en benti á að óneitanlega
væri jákvætt að málið yrði tekið fyr-
ir samkvæmt íslenskum lögum.
Morgunblaðið hafði samband við
Kazin Munir Hamamcioglu, ræðis-
mann íslendinga í Istanbúl, og spurð-
ist fyrir um líklega niðurstöðu þar-
lendra dómara. Kazin sagði að
ómögulegt væri að segja til um nið-
urstöðuna að svo komnu máli. Hún
færi eftir vitnisburði foreldra og að-
standenda. Aftur á móti kom fram
í máli hans að almenna reglan væri
sú að móðirin fengi bömin í skilnað-
armálum. „I 90% tilvika fær hún
börnin. Það er ekki nema sannað
þyki að hún geti ekki séð um barnið,
sé til dæmis alkóhólisti, að faðirinn
fær forræðið,” sagði Kazin í samtali
við Morgunblaðið.
Hann sagði að faðir stúlknanna
hefði nokkrum sinnum hringt í sig
en hann vildi hvorki gefa upp veru-
stað sinn né systranna. Þá sagði
Kazin að íslensk kona hefði verið hjá
föðurnum þegar hann heimsótti hann
fyrir um það bil 6 mánuðum í fata-
verslun sem ísak ræki í Istanbúl.
Kazin sagðist hafa tilkynnt þetta til
íslenska utanríkisráðuneytisins.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Orn Kærnested, hjá Álftárósi, afhendir Pétri Sigurðssyni, formanni
sjómannadagsráðs, lykla að þjónustuíbúðum aldraðra við Jökulgrunn.
Sj ómannadagsráð:
Raðhús fyrir aldraða
reist við Jökulgrunn
Sjómannadagsráð í Reykjavík og Hafnarfirði hafa reist 26 rað-
hús við Jökulgrunn í Laugarás. I húsunum eru þjónustuíbúðir
fyrir aldraða og verður séð fyrir þjónustu við íbúana í tengslum
við Hrafnistu.
Raðhúsin eru ýmist 85 fermetr-
ar, án bílskúrs, en önnur eru með
bílskúr og ýmist 85 eða 92 fer-
metrar að stærð. Sem dæmi um
verð þeirra má nefna, að 85 fer-
metra hús með 26 fermetra bíl-
skúr kostar rúmar 13 milljónir
króna. Ýmiss konar þjónusta
stendur íbúum húsanna til boða.
Viðbrögð við neyðarhnappi eru frá
heilsugæslu allan sólarhringinn.
Þá geta íbúar tekið þátt í félags-
starfi með vistmönnum á Hrafn-
istu. Að auki geta þeir fengið
ýmsa þjónustu þar, sem þeir greiða
sérstaklega fyrir, s.s. hárgreiðslu,
fótsnyrtingu, keyptan mat, þveg-
inn þvott, saumaskap og neyðar-
þjónustu frá iðnaðarmönnum.
Framkvæmdir við Jökulgrunn
hófust fyrir fjórtán mánuðum.
Teikningar húsanna vann Teikni-
stofan hf. Ármúla 6, Halldór Guð-
mundsson, arkitekt. Verkfræðing-
ar voru Verkfræðistofa Stefáns
Ólafssonar, Stýritækni sf. sá um
rafhönnun, aðalverktaki var Álftá-
rós hf., umsjón með verkinu hafði
Gunnlaugur Kristjánssopn og
Oddur H. Oddsson var byggingar-
stjóri.
Málþing um börn
BERNSKAN - íslandsdeild OMEP, alþjóðasamtaka um uppeldi barna,
gengst fyrir málþingi í Háskólabíói, sal 4, laugardaginn 2. nóvember
kl. 13.00. Heiti málþingsins er: Foreldarar og börn í önn dagsins.
Fundarstjóri verður Helga Hannesdóttir Iæknir.
ýmsa hreyflleiki eftir tónlist undir
stjórn Ólínu Geirsdóttur leikskóla-
stjóra. Loks mun Pétur Jónasson
gítarleikari leika klassíska gítar-
tónlist.
Málþingið er öllum opið. Þátttök-
ugjald er kr. 600.
Félagið hefur gefið út í bókar-
formi fyrirlestra frá síðasta mál-
þingi: Rödd barnsins - Réttur barns-
ins. Útgáfuna styrktu með myndar-
legu fjárframlagi barnaverndar-
sjóður Knuds Knudsen og barnavin-
afélagið Sumargjöf. Bókin verður
til sölu á málþinginu á laugardaginn
2. nóvember.
(Fréttatilkynning)
Öll leikrit Shake-
speares á íslensku
MÁL og menning hefur sent frá sér síðustu þijú bindin af Shakespe-
ares-þýðingum Helga Hálfdanarsonar, þ.e. sjötta, sjöunda og áttunda
bindi þýðinganna. Þá eru fáanleg öll leikrit Shakespeares á íslensku.
í fréttatilkynningu frá Máli og
menningu segir: „Útgáfusaga þess-
ara þýðinga er orðin nokkuð löng.
Hún hófst hjá Máli og menningu
árið 1956 og næstu tvo áratugi
komu út alls sex bindi, þar af sum
oftar en einu sinni. Þegar sjötta
bindið kom út árið 1975, en þá
höfðu alls birst 18 leikrit, þraut
forlagið erindið, og það varð að
samkomulagi að Almenna bókafé-
lagið tæki við útgáfunni. Helgi end-
urskoðaði þýðingar sínar og þær
byijuðu að koma út að nýju á árun-
um 1982 til 1987, alls fimm bindi.
Þau geymdu 22 leikrit. Enn brást
útgáfuna úthald, og síðastliðið sum-
ar varð að samkomulagi milli for-
lagánna að Mál og menning tæki
við útgáfunni að nýju.
Sá kostur var valinn að gefa þijú
síðustu bindin út samtímis núna og
gefa um leið áhugafólki kost á að
kaupa allt safnið í öskju sem Jón
Reykdal hefur myndskreytt.
I síðustu bindunum eru alls 15
leikrit, þar á meðal verk eins og
Kaupmaðurinn í Feneyjum, Ys og
þys útaf engu, Þrettándakvöld,
Vetrarævintýri og Ofviðrið. Eru þá
öll leikrit Shakepeares, 37 að tölu,
út komin. Síðustu þrjú bindin eru
um 500 blaðsíður hvert, og lætur
nærri að allt safnið sé 4.000 blaðsíð-
ur að stærð. Mun það líklega telj-
ast stærsta ritsafn erlends höfundar
sem birst hefur á íslensku. Bækurn-
ar eru framleiddar í Prentsmiðjunni
Odda hf.
Skinandi
LIÐSMAÐUR
Mr. Sheen hreinsar, fægir og ilmar.
Hann bregður skínandi áferð út í hvert
horn heimilisins með undraverðum
hætti. Jafnvígur á alla harða fleti
innanhúss og í bílnum —tréverk, g'er,
spegla, veggi — hvað sem er!
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á.síöum Moggans!
Borgartúni 26.
SKAGFJORÐ
jjl .jl 't !/ ú á U ií J .i i ii
Hólmaslóð 4, 101 Reykjavík, sími 24120