Morgunblaðið - 01.11.1991, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 01.11.1991, Qupperneq 28
28 JVJORpUN^LAÐIÐ .FQST.UDAG.IJR. 1. NÓVEMBER 1991 Flugfélag Norðurlands: Fækkað um ferð á viku til þriggja staða FLUGFELAG Norðurlands mun breyta áætlun sinni eftir áramót á þann veg að ferðum til þriggja staða á Norðausturlandi verður fækk- að um eina á viku og þá verða ferðir sameinaðar, þannig að flogið verður á tvo staði i einni ferð í nokkrum tilvikum. Breytingar á áætl- un koma til af hækkandi rekstrarkostnaði og minnkandi tekjum flugfé- lagsins á þessum flugleiðum, en það sem einkum varð til þess að áætl- unin var endurskoðuð er að um áramót tekur gildi ný reglugerð þess efnis að ávallt skuli tveir flugmenn vera í áhöfn vélar í áætlunarflugi. Að sögn Sigurðar Aðalsteinssonar, framkvæmdastjóra Flugfélags Norð- urlands verður ferðum fækkað um eina í viku til Kópaskers, Raufar- hafnar og Þórshafnar, þannig að eftir áramót verður fiogið þrisvar í viku til Kópaskers, fjórum sinnum til Raufarhafnar og fimm sinnum til Þórshafnar. Áætlun verður óbreytt að því er Vopnafjörð varðar og áfram flogið þangað sex sinnum í viku. Hið sama gildir um aðra ákvörðunar- staði. Sigurður sagði að farþegafjöldi til viðkomandi staða hefði verið hafður til hliðsjónar við þessar breytingar. Langfæstir farþegar eru til Kópa- skers, eða í kringum 500 á ári, en aftur á móti eru farþegar um 3.000 á jafnaði á ári til Vopnafjarðar. Um 1.000 farþegar ferðast til og frá Raufarhöfn á ári og 1.500 um Þórs- höfn. Engin ákvörðun hefur verið tekin um áætlunarflug til Siglufjarðar, en þangað er nú flogið fjórum sinnum í viku. Sigurður sagði að tæki reglu- gerðin gildi um næstu áramót yrði flugi þangað hætt, en verði gildistöku hennar frestað myndi félagið halda uppi flugi þangað, a.m.k. í vetur. Farþegar með Flugfélagi Norður- lands til Siglufjarðar eru að jafnaði um 800 á ári og hefur tap verið á Siglufjarðarfluginu að jafnaði yfir árið. Hvað Þórshöfn, Raufarhöfn og Kópasker varðar er reksturinn í jám- um. Morgunblaðið/Benjamín Helgi Þórsson, Ingólfur Jóhannesson og Hafdís Pétursdóttir „við upp- gröft” á Granastöðum, en það er eitt þeirra atriða sem tekið verður fyrir í kabarettsýningu Freyvangsleikhússins í kvöld og annað kvöld. Freyvang-sleikhúsið: Skemmtidagskrá um atburði í sveitinni Ytn-Tjarnir. Freyvangsleikhúsið starfar af krafti um þessar mundir og hafa félag- ar undanfarnar vikur lagt nótt við dag og æft hálfs annars tíma dag- skrá. Dagskráin verður sýnd tvisvar, fyrst í kvöld, föstudagskvöld, og síðan annað kvöld. Félagar úr leikfélaginu hafa samið handritið og eins og undanfarin ár er gert góðlátlegt grín að náungan- um og ýmsar uppákomur settar á svið sem fróðlegt verður að fylgjast með. Stjórnendur sýningarinnar er Valdimar Gunnarsson og Vilberg Jónsson, en tónlistarflutning leiða Reynir Schiöth og Eiríkur Bóasson. "’Álls taka um tuttugu manns þátt í sýningunni. Nú hefur verið ákveðið hvaða verk verður sett upp í vetur og er það hið sígilda verk Jesús, Guð, dýrlingur, eða Jesus Christ Superstar. Hefjast æfíngar á því eftir áramót. Búið er að skipa í flest hlutverk, en þó fínnst ekki, þrátt fyrir mikla leit, einhver sem fara vill með aðalhlutverkið, Jesú Krist. -Benjamín IHÁSKÓUIMN A AKUREYRI Háskólinn á Akureyri Opinn fyrirlestur laugardaginn 2. nóv. kl. 14.00 í stofu 24, aðal- byggingu háskólans v/Þingvallastræti. Fyrirlesari: Prófessor Baldur Jónsson, forstöðurmaður íslenskrar málstöðvar. Efni: Um nýyrðasmíð og þýðingar. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyiir. Frá ársfundi Hafnarsamband sveitarfélaga sem hófst á Akureyri í gær. Morg-unbiaðið/Rúnar Þ6r Arsfundur Hafnarsambands sveitarfélaga: Mengnnarvarnir í höfn- um af skornum skammti BÚNAÐUR vegna mengunarvarna við hafnir landsins er mjög af skornum skammti. Islendingar eiga um 1.000 metra af flotgirðing- um, af fjórum mismunandi gerðum, sem ekki er hægt að tengja saman. Sumar þeirra eru gamlar og ómeðfærilegar og ólíklegt að þær verði notaðar nema mikið liggi við. Til samanburðar, þó ólíu sé saman að jafna, eiga Norðmenn um 110 kílómetra af flotgirðing- um. Starfshópur sem i eiga sæti fulltrúar frá Hafnarsambandi sveit- arfélaga, olíufélögunum og Siglingamálastofnun hefur skilað áliti um viðbúnað vegna mengunaróhappa í höfnum. Davíð Egilsson deild- arstjóri hjá Siglingamálastofnum kynnti tillögur starfshópsins á árs- fundi hafnarsambandsins sem hófst á Akureyri í gær. Flotgirðingar eru til í Reykjavík, Akranesi, Isafírði og á Akureyri auk þess sem varnarliðið á mengunar- vamabúnað við hafnirnar í Hval- fírði og Helguvík. Hreinsibúnaður er til í Reykjavík og í Helguvík og dreifíefni eru til í Reykjavík, ísafírði, Akureyri, Eskifírði og Vestmannaeyjum. Fram kemur í greinargerð frá starfshópnum að námskeið hafi verið haldin nokkrum sinnum á undanförnum árum, en síðan hafi engar æfingar verið hjá þeim sem nota ættu búnaðinn að námskeiði loknu. Úr þessu sé brýnt að bæta. Lagt er til að sett verði raunhæf markmið sem unnt verði að standa við. Haft verði að leiðarljósi að ráð- ast ekki í of viðamikla uppbyggingu strax. Meginhugmynd starfshópsins er að höfnum landsins verði skipt í þijá flokka eftir mati á hættu vegna megnunar, hversu miðlægar þær eru og umfangi starfs. Viðbúnaður í höfnunum færi eftir þessari flokk- un. Þjálfun og æfing mannaafla skipti höfuðmáli og taka tillögur mið af því að unnt verið að tryggja að þekking og reynsla glatist ekki með tíðum mannaskiptum. Lagt er til að birgðastöð Sigl- ingamálastofnunar verði höfuðstöð, þar sem búnaður til að fást við óhöpp utan hafnasvæða sé til stað- ar og einnig yrði meiriháttar óhöpp- um innan hafnasvæða, sem hafnirn- ar ráða ekki við sinnt. Landshlutahafnir yrðu í 1. flokki, en þar yrði um að ræða Reykja- vík/Hafnarfjörð, Isafjörð, Akureyri, Reyðarfjörð og Vestmannaeyjar, en þetta eru stærstu og fjölsóttustu hafnir hvers landshluta. Einungis er um tillögu að ræða, ákvörðun um val landshlutahafna verður tek- in síðar. Lagt er til að í landshluta- höfnum verði til fullkominn búnaður til að hefta útbreiðslu olíu og ná henni upp, en auðvelt þarf að vera að flytja hann. í 2. flokki yrðu svæðishafnir, átta að tölu og eru þær valdar vegna staðsetningar eða staðhátta og í þeim þarf að vera til lágmarksbún- aður til að hefta útbreiðslu olíu, dreifíefni og fleira. í almennum höfnum, sem yrðu í 3. flokki er lagt til að beðið verði með að koma upp viðbúnaði uns reynsla sé komin á kerfið. Lagt er til að Hafnarsambandið óski eftir 28,8 milljóna króna ríkis- framlagi sem skiptist niður á tvö ár, en eðlilegt þykir að lágmarks- búnaður verði kominn í allar hafnir í flokkum 1. og 2. innan tveggja ára. Æskilegt sé að framhald verði á fjárveitingum til að koma upp búnaði í höfnum í flokki 3. í núver- andi tillögum til fjárlaga umhverfis- ráðuneytis er gert ráð fyrir 15 millj- ón króna framlagi til þessa verkefn- is. Alits leitað hjá Lagastofnun um málsgrein í kjarasamningi Útgerðarmönnum ber að tryggja skipverjum hæsta gangverð fyrir fiskinn Sjomannafelag Eyjafjarðar: SJÓMANNAFÉLAG Eyjafjarðar ætlar að leita álits Lagastofnunar Háskóla Islands á einni grein í kjarasamningi milli Sjómannasam- bands íslands og Landssambands íslenskra útvegsmanna, en hún fjallar um skiptaverð og sölu afla. Túlkun félagsins á greininni er sú að við sölu afla beri að taka mið af meðalverði á fiskmörkuðum, en fram kemur í greininni að útgerðarmenn verði að tryggja skip- veijum hæsta gangverð fyrir fiskinn. Umrædd málsgrein í kjarasamn- ingnum er í kafla 1.24. um skipta- verð og sölu aflans hljóðar svo: „Útgerðarmaður hefur með hönd- um sölu aflans og skal skipveijum tryggt hæsta gangverð fyrir físk- inn, þó aldrei lægra en útgerðar- maður fær. Sama gildir um hrogn lifur og bein.” Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, sagði að félagið hefði undir höndum kja- rasamninga allt frá árinu 1961 og er umrædd málsgrein inni í þeim kjarasamningum, en við gerð síð- ustu kjarasamninga frá nóvember á síðasta ári hefði orðinu hæsta verið bætt inn í málsgreinina. Hann sagði að áður hefði gang- verð verið miðað við landssam- bandsverð, en nú væri ekki lengur við það miðað. Til að mynda hefðu sjómenn á togurum Útgerðarfélags Akureyringa og Útgerðarfélags Dalvíkinga samið um annað verð. Túlkun Sjómannafélags Eyjafjarðar á málsgreininni væri á þann veg að taka beri mið af meðalverði á fiskmörkuðum á hveijum tíma. „Við lítum þannig á að hæsta gangverð þýði það verð sem gengur í frjálsum viðskiptum manna á milli. Við teljum langeðlilegast að allur fískur verði seldur á mörkuðum og okkar ósk er sú að þannig verði fyrirkomulagið í framtíðinni. Við vitum ósköp vel að það magn sem fer á íslensku fiskmarkaðina gefur engan veginn rétta mynd af verð- inu, því magnið er svo lítið og þess vegna er verðið óeðlilega hátt. Rætist okkar óskir um að allur fisk- ur verði seldur á fískmörkuðum mun verðið leita jafnvægis og þann- ig yrði verðmyndunin rétt,” sagði Konráð. Sjómannafélagið mun á næst- unni leita álits Lagastofnunar Há- skóla íslands á umræddri málsgrein í kjarasamningnum, þar sem félags- menn vilja vita hvort túlkun stofn- unarinnar sé hin sama og Sjómann- afélags Eyjafjarðar. Verið er að afla gagna þessa dagana áður en erindið verður sent til stofnunarinn- ar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.