Morgunblaðið - 03.11.1991, Page 18
18 C________ ______MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDÁGUR 3.
Umbylting í bresk-
um sjónvarpsmálum
MESTA umbylting í 36 ára sögu óháðra sjónvarpsstöðva í Bretlandi er í uppsiglingu vegna ákvarðana
óháðu sjónvarpsnefndarinnar ITC um veitingu nýrra rekstrarleyfa til næstu 10 ára frá og með næstu ára-
mótum. Fyrirtækin, sem buðu í leyfin, urðu að sýna að þau hefðu bolmagn til þess bæði fjárhagslega og
tæknilega séð að flytja vandað efni áður en ITC-nefndin tók afstöðu til tiiboða þeirra.
Fjögur óháð fyrirtæki ITV-sam-
steypunnar missa rekstrarleyfi
Eitt þeirra er morgunsjónvarpið TV-
am og komið hefur á óvart að Marg-
aret Thatcher fyrrum forsætisráð-
herra hefur sagt að hún taki á sig
hluta ábyrgðarinnar á því. Hún
kvaðst harma að morgunsjónvarpið
hefði orðið fyrir barðinu á kerfi upp-
boða á sjónvarpsleyfum sem hún sjálf
hefði innleitt. Afskipti hennar af
málinu munu auka líkur á því að
fyrirtæki sem missa leyfi fari í mál.
Uthiutun leyfanna kom yfirleitt á
óvart. Aðalsigurvegaramir voru
helgarsjónvarpið London Weekend
Television, sem bauð aðeins 7,59
milljónir punda, og Granada á Norð-
vestur-Englandi, sem bauð aðeins 9
milljónir. Keppinautamir (Northwest
Television og London Independent
Broadcasting) uppfylltu ekki gæða-
kröfur.
Thames Television, stærsta fyrir-
tæki ITV, beið lægri hlut á Lundúna-
svæðinu fyrir brezk-bandarísku sam-
steypunni Carlton Communications,
sem á Technicolor og fær nú það
verkefni að sjá höfuðborgarbúum
fyrir sjónvarpsefni virka daga vik-
unnar. Thames bauð 32,7 milljónir
punda, en Cárlton 42,3 milljónir.
Fyrirtæki sjónvarpsstjörnunnar
Davids Frosts o.fl., CPT-TV, bauð
hærra en Carlton, en uppfyllti ekki
gæðakröfur.
Um 1.000 starfsmönnum Thames
Television verður sagt upp á næsta
ári og um 400 kann að verða sagt
upp hjá morgunsjónvarpinu TV-am,
sem bauð lægra en samsteypan
Sunrise. Að Sunrise standa meðal
annarra Walt Disney, blaðið Guardi-
an og tvö bresk sjónvarpsfyrirtæki,
sem halda sínum leyfum — London
Weekend og Scottish Television í
Skotlandi. Central á Mið-Englandi
og Scottish halda leyfum sínum, þótt
tilboð þeirra hljóðuðu upp á aðeins
2.000 pund á ári, vegna þess að
engin önnur tilboð bárast.
Leslie Hill, framkvæmdastjóri
Central, var að vonum kampakátur.
Hann sagði að fyrirtækið vildi eign-
ast 25% óháðra sjónvarpsstöðva í
Bretlandi, en kvað ríkjandi höft koma
í veg fyrir frekari útþenslu. Harrn
vill einnig aukin umsvif Breta í sjón-
varpsmálum á meginlandinu, en ótt-
ast að evrópsk lög verði þeim Þránd-
ur í Götu.
TVS á Suður-Englandi missti leyf-
ið þrátt fyrir tilboð upp á 60 milljón-
ir punda, þar sem ekki þótti víst að
fyrirtækið gæti flutt nógu vandað
efni. Fyrirtæki á Suðvestur-Englandi
fékk ekki leyfi af sömu ástæðu og
beið lægri hlut fyrir fyrirtæki með
helmingi lægra tilboð, um 8 millj.
punda.
Margir hafa gagnýnt ákvarðanir
ITC-nefndarinnar um leyfisveiting-
arnar og kallað þær „ósigur vandaðs
efnis fyrir peningum,” „stórslys í
sjónvarpsmáíum” og „skrípaleik”.
Aðrir telja að gæðamat ITC hafi
verið rétt og nefndinni kunni að hafa
tekist að koma á nothæfu kerfi.
Átta leyfi af 16 vora ekki veitt
hæstbjóðendum. Formaður ITC, Ge-
orge Russell, telur að tekjur ríkis-
sjóðs af ITV muni aukast um 40
milljónir punda á ári, minna en búist
var við. Að sögn ITC munu árs-
greiðslur allra þeirra fyrirtækja sem
fengu leyfi nema 350 milljónum
punda að meðaltali.
Framtíð sumra þeirra fyrirtækja
sem fengu leyfi er ekki talin trygg
og ef til lengri tíma er litið kunna
aðeins stór sjónvarpsfyrirtæki að
halda velli að sögn Sunday Times.
Þar sem Central, Scottish, LWT og
Granada fengu leyfi þrátt fyrir lág
tilboð er þeim spáð velgengni. Yorks-
hire og Carlton standa sæmilega að
vígi þrátt fyrir há tilboð. Hin fyrir-
tækin geta talist heppin ef þau halda
velli, að sögn blaðsins, enda renna
25-52% af auglýsingatekjum þeirra
í ríkissjóð.
Jafnframt óttast bresk sjónvarps-
fyrirtæki harðnandi samkeppni al-
þjóðlegra fjölmiðarisa. Auk þess era
kapal- og gervihnattasjónvarp í örum
vexti og munu valda gerbreytingu í
breskum sjónvarpsiðnaði að sögn
Sunday Times. Breskum fyrirtækjum
er að mestu gert ókleift að starfa í
Evrópu, en evrópsk fyrirtæki geta
tekið við rekstri breskra fyrirtækja
eftir 1994.
Fyrirtæki eins og Carlton hyggjast
fela sjálfstæðum aðilum mestalla
dagskrárgerð til að komast af með
færra starfsfólk. Önnur fyrirtæki
kunna að fara að dæmi Yorkshire-
sjónvarpsins, þar sem aðskilin dag-
skrárdeild er rekin með hagnaði. Nú
verður Thames-fyrirtækið öflugasti
sjálfstæði aðilinn sem framleiðir dag-
skrárefni. Starfsmenn þess eru 1.300,
en starfsmenn Carltons 360.
Granada og fleiri stöðvar á Norð-
ur-Englandi óttast að fyrirtæki á
Suður-Englandi verði allsráðandi.
Samrani sjónvarpsfyrirtækja er tal-
inn hugsanlegur þrátt fyrir hömlur
gegn slíku. Fyrirtæki ITV keppast
um að draga úr kostnaði og hyggj-
ast taka upp aukna samvinnu, meðal
annars með sölu á efni til útlanda
og á auglýsingum.
Gervihnatta- og kapalsjónvarp
nær til 2,7 milljóna breskra heimila
eða þrettán af hundraði og tekur æ
meira af auglýsingum frá ITV. Erfið
samkeppnisstaða breskra sjónvarps-
fyrirtækja í Evrópu mun ekki batna
nema þau stækki. Um leið hefur
áhugi erlendra fjölmiðlafyrirtækja á
ítökum í Bretlandi aukist og sum
þeirra tóku þátt í uppboðinu á dögun-
um. Gagnstætt fyrirtækjum í Evrópu
mega bandarísk fyrirtæki ekki eiga
meira en 20% hlut í breskum ljósvak-
afjölmiðlum.
NÓVEMBER 1991
BJÓÐENDURNIR
UMDÆMI Heimili með sjónvarp (millj.) FYRIRTÆKI TILBOÐ steri. pund Oæða- þröskutdur
Morgun- 21,4 Sunrise 34,61 m 0
sjónvarp TV-am 14,13m 0
Daybreak 33,30m 0
London, 5,0 | Carlton TV 43,17m 0
virka daga Thames 32,70m 0
CPV-TV 45,32m 1
London, 5,0 London Weekend 7,58m 0
helgar London Independent 35,41 m 12
Brodcasting
Miðlönd 4,0 | Central 2.000 0
Norðvesturhluti 2,8 | Granada 9,00m 0
North West TV 35,30m 2
Yorkshire 2J5 Yorkshire TV 37,70m 0
White Rose TV 17,40m 0
Viking TV 30,12m 2
Suður og suð- 2,3 l Meridian Broadcasting 36,52m 0
austurhluti TVS 59,76m 0
Carlton TV 18,08m 0
CPV-TV 22,11m 2
Wales og 2,0 ! HTV 20,53m 0
vesturhluti Merlin 19,37tn 2
Channel 3 Wales & West 18,29m 2
C3W mmm 17,76m 0
Austurhluti 1,9 HKSBHi 17,80m 0
Three East 14,08m 0
CPV-TV 10,13m 2
Norðausturhluti 1,2 | Tyne Tees 15,06m 0
North East TV 5,01 m - 0
Mið-Skotland 1,4 Scottish TV 2.000 0
Suðvesturhluti 0,7 Westcountry TV 7,82m 0
TSW 16,12m 0
Telewest 7,27m 2
Norður-írland 0,5 Ulster | 1,03m 0
LaganTV 2,71 m 2
TVNi 3,10m 0
Norður-Skotland 0,5 Grampian 0,72m 0
C3 Caledonia 1,13m 2
North of Scotland TV 2,71m 2
Landamæri 0,3 Border TV 52.000 0
Ermasundseyjar 0,04 Channel TV 1.000 ' 0
C13 102.000 2
Menn eins og Hill, forstjóri Centr-
al, vilja gera ITV að samsteyþu íjög-
urra eða fimm öflugra fyrirtækja til
að mæta erlendri samkeppni í Bret-
landi og keppa við fyrirtæki á meg-
inlandinu. Ekki er víst að af því geti
orðið af pólitískum ástæðum. Meðal
annars er óttast að dagskrárgerð
svæðastöðva kæmist í hættu.
Mirror miðpimktur
ásakana um njósnir
Einn fréttastjóri blaðsins sagður hafa
unnið fyrir ísraelsku leyniþjónustuna
BRESKA dagblaðið Daily Mirror tilkynnti um miðja vikuna að
það hefði vikið fréttasljóra erlendra frétta blaðsins, Nicholas
Davies úr starfi, en hann hefur óvænt orðið miðpunktur ásakana
um njósnir fyrir ísrael. Útgáfufyrirtæki Daily Mirror sagði í frétt-
atilkynningu að Richard Stott, ritstjóri blaðsins hefði sagt Davies
upp störfum eftir að ljóst varð algjör neituri Davies á því að hafa
heimsótt Ohio í Bandaríkjunum á tilteknum tíma reyndist ekki
rétt. í tilkynningunni sagði hins vegar að blaðið teldi hins vegar
að allar ásakanir um að Davies hefði njósnað fyrir ísrael úr lausi
lofti gripnar.
Davies vissi af þeirri vöm sem
blaðið var að hefja fyrir hans
hönd. Því miður reyndist algjör
neitun hans á Ohio-þætti málsins,
sem blaðið treysti á, ekki rétt,”
sagði í tilkynningunni. „Stott átti
því engan annan kost en að víkja
honum frá störfum í samræmi við
reglur fyrirtækisins.”
Davies hefur rétt til að áfrýja
þessari ákvörðun til útgefanda
■ Mirror, Robert Maxwell, sem hefur
stefnt bandaríska blaðamanninum
og rithöfundinum Seymour Hersh
fyrir meiðyrði vegna ásakana sem
fram koma í bók Hersh, The Sam-
son Option, Israel, America and
the Bomb.
Davies hefur neitað ölium ásök-
unum sem fram koma í bókinni,
'þótt hann hafi síðar játað að hafa
verið í Ohio í efnisöflum hjá Am-
ish-trúflokkinum. í bókinni er því
haldið fram að tengsl hafi verið
milli Daily Mirror og leyniþjónustu
ísraei, Mossad. Heldur Hersh, sem
er m.a. Pulitzer-verðlaunahafi fyr-
ir blaðamennsku, því fram Davies
hafí átt hlut að máli íjsrelskrum
vopnasölusamningi til íran og að-
stoðað mannræningja Mossad til
að hafa upp á íraelska kjarnorku-
fræðingnum, Mordechai Vanunu,
sem kærður var fyrir landráð
1988. Hersh var í London á dögun-
um til að veija þær ásakanir sem
fram koma í bók hans og sat þá
m.a. fyrir svörum á fréttamanna-
fundi, en Maxwell, Davies og Mirr-
or-útgáfan notuðu þá tækifærið
til að birta honum stefnu fyrir
meint meiðyrði.
Málið hefur vakið mikila at-
hygli í Bretlandi og m.a. verið tek-
ið upp í breska.þinginu.
Ellert B. Schram og Jónas Krislj-
ánsson
BáðirDY -
ritstjórar
með bæknr
BÁÐIR ritstjórar DV munu gefa
út bækur nú fyrir jólin. Jónas
Kristjánsson gefur út tvær bæk-
ur, þær 10. og 11. í röðinni. Ell-
ert B. Schram gefur hins vegar
út sína fyrstu bók.
Ranghermt var síðasta sunnudag
að bók Jónasar, Madrid og
merkisborgir Spánar væri þýdd.
Hún er áttunda bókin í bókaflokki
hans um merkar ferðamannaborgir,
þar af tvær endurútgefnar. Fjölvi
gefur bókina út.
Þá sendir Jónas frá sér þriðju
bókina um hesta, sem hann gefur
sjálfur út. Nefnist hún Heiðurs-
hross og er á fjórða hundrað síður
í stærsta broti. Talin eru upp stóð-
hestar og hryssur sýnd árin 1990-
1991, en auk þess era litaskrár,
númeraskrár, ættargröf og myndir.
Fyrsta bók Ellerts kemur út fyrir
jólin og nefnist Eins og fólk er
flest. Eru það stakar greinar og
hugleiðingar um mannlífið, áður birt
og óbirt efni. Fijáls flölmiðlum mun
gefa bókina út.