Morgunblaðið - 03.11.1991, Side 24

Morgunblaðið - 03.11.1991, Side 24
mumarn mmamMMSmM mtíMm 24 ð Unnur Tryggva- dóttír — Minning Fædd 18. júní 1921 Dáin 26. október 1991 Fyrir um 25 árum hittist, fyrir atbeina foringja og félagsforingja í Skátafélaginu Kópum, höpur mæðra sem áttu það eitt sameigin- legt að börn þeirra voru og eru enn í dag félagar. Þessi hópur stofnaði kvennadeildina Urtur sem er stuðn- ingshópur félagsins. í öll þessi ár starfaði Unnur ötul og baráttuglöð. Stóð fyrir sínu á hveiju sem gekk. Störfín voru margvísleg og í mörg hom að líta en við uppskárum ómældar ánægjustundir og hafa þær myndað óijúfanleg vináttu- og tryggðarbönd okkar á milli. Unnur er sú fyrsta sem kveður í þessum hópi. Hið skyndilega fráfall hennar var á vissan hátt líkt skapgerð hennar, því að hún var bæði snögg og ákveðin þegar því var að skipta. Hún var tíguleg kona, glaðsinna við störf og leik og mátti ekki vamm sitt vita. Hláturinn sem svo stutt var í er þagnaður. Við þökkum þessi góðu kynni og söknum vinar í stað. Það er trú okkar að hún hafí verið sátt við allt og alla. Urturnar votta börn- um hennar og allri fjölskyldunni einlæga samúð sína. Fyrir hönd kvennadeildarinnar Urtur, Dóra Hannesdóttir Þú andi lífsins, alheims mikla sál orku mér- gef að flytja hjartans mál leiðsögn mér veittu, helga sólar sýn sannleiks að finni veginn upp til þín. (Valdimar Jónsson frá Hemru) Söngfélagi okkar og vinur, Unn- ur Tryggvadóttir, er látin. Nú kem- ur hún ekki lengur á æfíngar né í ferðalög með okkur í þessum heimi. Við vissum sum hver að hún hafði fengið „hjartaaðvörun” en að hún yrði svo brátt kölluð frá okkur óraði okkur ekki fyrir, hún sem var svo kát og hress fyrir stuttu síðan. Nú er stórt skarð í altröddinni og það skarð verður vandfyllt því Unnur var einn af þeim félögum sem mynduðu þann sterka kjarna er hefur haldið Söngfélagi Skaft- fellinga starfandi í nærri 20 ár. Unnur var Önfírðingur, en hún var gift öðlingnum Birni Sigurðssyni frá Hvammi í Skaftártungu. Björn lést fyrir rúmum 5 árum. Bjöm söng einnig með Söngfélaginu í mörg ár og var meðal annars for- maður þess á þeim tíma er félagið gaf út plötuna „Mín sveitin kær”. Að vera formaður á þeim tíma er plötuútgáfa stendur yfír er tíma- frekt starf. Það leysti Björn af hendi með einstakri prýði, og víst er að heimili þeirra hjóna var um langan tíma undiriagt af því sem fylgir plötuútgáfu og allt fram á síðasta ár geymdi Unnur plötur fyrir kór- inn. Sá brennandi áhugi sem þau Björn og Unnur höfu á starfí Söng- félagsins smitaði dætur þeirra og hafa þær sett svip sinn á starf kórs- ins nú hin síðustu ár og starfað þar af sama krafti og samviskusemi og foreldrar þeirra. Unnur var ákveðin kona og hafði sína meiningu á hlutunum. Afstaða hennar var alltaf hrein og bein. Með slíku fólki er gott að starfa. Þá var samviskusemi hennar ein- stök, t.d. hélt hún alla tíð mætinga- skrá yfír altröddina. Við félagar hennar í Söngfélag- inu þökkum henni fyrir samfylgdina og samstarfíð í gegnum árin. Henn- ar verður sárt saknað. t Ástkær fóstra okkar og systir, SALVÖR JÓNSDÓTTIR, áður Hvoli, Ölfusi, Skúlaskeiði 36, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víöistaðakirkju í Hafnarfirði þriðjudaginn 5. nóvember kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Ingi Guðjónsson, Ása Guðjónsdóttir, t Gottskálk Guðjónsson, Þurfður Jónsdóttir, Gróa Jónsdóttir. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐJÓNS GÍSLASONAR, Vesturvegi 15b, Vestmannaeyjum. Guðrún Guðjónsdóttir, Helgi Sigmarsson, Ágúst Guðjónsson, Gunnlaugur Guðjónsson, Ágústa Ágústsdóttir, Gísli Guðjónsson, Guðrún Alexandersdóttir, Reynir Guðjónsson, Dagbjört Erna Guðjónsdóttir, Stefán Sævar Guðjónsson, Sif Svavarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför eigin- manns mins, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KOLBEINS ÖGMUNDSSONAR, Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks hjartadeildar Landspítalans fyrir frábæra umönnun. Guðfinna Sigurgeirsdóttir, Ásdís Þ. Kolbeinsdóttir, Guðmundur K. Jónmundsson, Gísli G. Kolbeinsson, Kolbrún Kolbeinsdóttir, Eðvarð R. Guðbjörnsson, barnabörn og barnabarnabörn. Við vottum Möggu, Sigríði, Hönnu og fjölskyldum þeirra, Onnu systur og öðrum ættingjum, okkar innilegustu samúð. Guð styrki ykkur i sorg ykkar. Þér fijálst er að sjá hve ég bólið mér bjó ef bömin mín smáu þú lætur í ró. Þú manst að þau eiga sér móður. Og ef að þau lifa þau syngja þér söng um sumarið blíða og vorkvöldin löng, þú gerir það vinur minn góður. (Þorsteinn Erlingsson) Félagar í Söngfélagi Skaftfell- inga. Laugardaginn 26. október lést á Borgarspítalanum Unnur Tryggva- dóttir frá Flateyri. Foreldrar hennar voru sæmdarhjónin Tryggvi Jóns- son frá Dýrafírði og kona hans, Margrét Eggertsdóttir frá Bolung- arvík. Unnur var þriðja í röðinni af 5 systrum. Hún vandist fljótt á að hjálpa til heima enda var hún dug- leg, vel verki farin að hveiju sem hún gekk enda skylduræknin og vandvirknin henni í blóð borin. Ung stúlka fór hún til Reykjavík- ur og vann þar við saumaskap. Þar kynntist hún Birni Sigurðssyni, húsasmíðameistara, hinum ágæt- asta manni ættuðum frá Hvammi í Skaftártungu. Þau gengu í hjóna- band 16. júní 1954. Fljótlega réð- ust J)au í að byggja sér húsnæði að Alfhólsvegi 10, Kópavogi. Efni voru lítil en hugur og kjarkur mik- ill. Með þrautseigju og dug tókst þeim það enda samtaka vel. Bjöm var hörkuduglegur, traustur, ósér- hlífinn og hjálpsamur, ákveðinn en hafði létta lund. Ávallt var gott að vera í návist hans. Unnur var mik- il húsmóðir, dugleg, ráðdeildarsöm og allt lék í höndum hennar. Heim- ili og fjölskylda var henni allt og yfír því var hún vakin og sofín. Þau hjón kunnu að njóta lífsins saman, þau ferðuðust mikið um landið, fóru í útilegur, gönguferðir og alltaf var myndavélin með í hafurtaskinu. Bæði voru þau söngelsk og sungu í kórum. Og mikið lifandi ósköp dönsuðu þau fallega saman. Einhvern veginn var það svo að þau hjón voru nánast alltaf nefnd í sömu setningu, svo samrýnd voru þau. Heimilið var þeirra aðalvett- vangur. Það var ávallt opið vinum og vandamönnum enda var þar mjög gestkvæmt. Þángað var gott að koma. Björn lést fyrir 5 árum, og var missir Unnar mikill. Unnur og Björn eignuðust þrjár dætur, þ.e. Margréti, gift Kristjáni Leifssyni, Sigríði, gift Reyni Páls- syni, og Hönnu, gift Sighvati Guð- mundssyni. Ólst hún upp hjá móður- foreldrum sínum. Bamabörnin eru tólf. Allt er þetta mannvænleg og fal- legt fólk. Unnur og Björn áttu vissulega bamaláni að fagna. Kveð ég nú mæta frænku og vinkonu með þakklæti fyrir sam- fylgdina, minningarnar sem ég á um hana em ljúfar. Vona ég að hún fái góðan byr í sólarátt til æðstu heima. Dætrum og ástvinum öllum sendi ég samúðarkveðjur, blessuð sé minning Unnar Tryggvadóttur. Guðrún Gunnarsson Á morgun, mánudaginn 4. nóv- ember, verður tengdamóðir mín, Unnur Tryggvadóttir, jarðsett frá Kópavogskirkju. Unnur andaðist á Borgarspítalanum 26. október, en hún gekk ekki heil til skógar, hafði raunar fengið óákveðinn frest hjá læknum vegna sjúkdóms, sem ekki var hægt að ná tökum á. Undanfar- in misseri gerði Unnur sér fulla grein fyrir hvert stefndi, og tók því með mikilli ró 'og skynsemi og naut þess að lifa. Fyrir þremur mánuðum flutti hún inn í nýja íbúð í Fann- borg 8, Kópavogi, þar sem Sunnu- hlíðarsamtökin reistu verndaðar þjónustuíbúðir aldraðra. Þar hugð- ist hún eyða ævikvöldinu, sem ekki varð þó lengra. Þó svo að Unnur væri fædd fyrir vestan og teldi sig „Flateyring” vegna búsetu þar á uppvaxtarárun- um, var hún í raun Kópavogsbúi. Hún flutti ásamt eiginmanni sínum, Birni heitnum Sigurðssyni, að Álf- hólsvegi 10A í Kópavogi árið 1957 og þar ólu þau upp dæturnar, og þar störfuðu þau og tóku þátt í félagslífí. Það var félagsstarf og samskipti við fólk sem gaf henni mikla fyll- ingu í lífíð. Unnur var skáti frá fyrstu tíð, og starfaði í „Urtunum”, sem er mömmudeild skátanna í Kópavogi, í mörg ár og fram til dauðadags. Söngurinn var mikið áhugamál hennar, hún hafði mjög góða söng- rödd og naut þess að syngja í Söng- félagi Skaftfellinga frá stofnun þess fyrir um 20 árum. Þar söng hún með Birni sínum og dætrunum, þannig að kórinn var fjölskyldu- mál. Þær eru ógleymanlegar sam- verustundirnar á æfingum, á kon- sertum og í ferðalögum með kórn- um. Nú síðast um miðjan október vorum við að hrista okkur saman í helgarferð austur á Flúðum, þar sem fólk söng og dansaði og þar fékk hún Unnur útrás fyrir kímnig- áfuna og sprellið. Já, hún naut þess að ferðast um landið. Með fjölskyldu og ættingjum hafði hún flækst um flest fjöll og firði. Vel kynntist ég henni, er hún ferðaðist með fjölskyldu okkar um Evrópu í heilan mánuð, sumarið 1987. Það kom á óvart hversu vel hún þekkti sig, hvar sem við fórum, en hún hafði undirbúið sig vel með lestri fyrir ferðina. Það er gaman í dag að eiga greinargóða ferðalýs- ingu frá degi til dags, sem hún skráði af kostgæfni í þeirri ferð. Með þessum stuttu kveðjuorðum þakka ég Unni fyrir yndisleg kynni, og bið um styrk til fjölskyldu og ættmenna, sem sjá á eftir mætri konu. Kristján Leifsson BLÓM SEGJA ALLT Mikið úrval blómaskreytinga fyrir öll tækifæri. Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins i Hafnarstræti 85, Akureyri. + Ástkær sonur okkar, faðir og bróðir, ARI KR. GUNNARSSON, lést af slysförum 9. október sl. Minningarathöfn um hinn látna ferfram frá Akureyrarkirkju þriðju- daginn 5. nóvember kl. 14.00. Álfhildur Gestsdóttir, Gunnar Arason, Gunnar Björgvin Arason, Gestur Örn Arason, Linda Gunnarsdóttir, Víkingur Gunnarsson. Þökkum samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GÍSLÍNU BJARNEYJAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Dalbraut 10, Bíldudal. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, EINARS Þ. JÓNSSONAR, fv. vélgæslumanns, Furugerði 1. Sólborg Sveinsdóttir, Guðrún Jónina Einarsdóttir, Loftur E. Pálsson, Lisabet Sólhildur Einarsdóttir, Sigurður A. Einarsson, Ingólfur D. Gíslason, Jóhanna Jónsdóttir, Axel H. Gíslason, Jódís Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — sími 681960

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.