Morgunblaðið - 08.01.1992, Blaðsíða 1
48 SIÐUR B
5. tbl. 80. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Georgía:
Jól í Rússlandi
Jólin voru í gær haldin hátíðleg opinberlega í Rúss-
landi í fyrsta skipti síðan 1917. Miklir efnahagsörðug-
leikar og matvælaskortur felldu nokkum skugga á
hátíðahöldin en vestræn ríki keppast nú við að senda
neyðaraðstoð til Rússlands. Á myndinni má sjá prest
kyssa hönd patríarka rússnesku rétttrúnaðarkirkjunn-
ar við messu í dómkirkjunni í Moskvu.
Sjánar nánar frétt á bls. 18
Skotið á stuðningsmenn forsetans í Tbilisi
Tbilisi, Moskvu. Reuter.
VIÐRÆÐUR fóru í gær fram milli fulltrúa uppreisnarmanna í Georg-
íu og armenskra stjórnvalda um örlög forsetans, Zvíads Gamsakhúrd-
ía, sem flúði land á sunnudag og hefst nú við í armensku landamæra-
borginni Idzhevan. Sagði Raffi Hovannisian, utanríkisráðherra Arm-
eníu að ekki hefði verið skotið skjólshúsi yfir Gamsakhúrdía en hann
yrði ekki heldur neyddur til að hafa sig á brott. „Hann verður hér
meðan við reynum að miðla málum. Við vonum að Georgíumenn geti
ákveðið hvað þeir ætli að gera við þjóðkjörinn forseta sinn,“ sagði
Hovannisian.
Leiðtogar uppreisnarmanna í Ge-
orgíu sóru þess dýran eið í gær að
elta Gamsakhúrdía uppi og draga
hann fyrir rétt. „Ef eitthvert ríki
veitir Gamsakhúrdía hæli þá munum
við krefjast þess að hann verði fram-
seldur sem landráðamaður," sagði
Jaba Joseliani, foringi skæruliða-
hreyfingarinnar Mkhedrioni (riddar-
aliðarnir) og einn af leiðtogum upp-
reisnarmanna, í útvarpsávarpi.
Georgi Tsjantúría, leiðtogi Þjóð-
ernislýðræðisflokksins, tók í sama
streng á mánudagskvöld. Hann sak-
aði liðsmenn Gamsakhúrdía um að
hafa drepið og pyntað fanga í neðan-
jarðarbyrgi sínu undir þinghúsinu,
þar sem hann hafðist við í tvær vik-
ur. Sagðist hann ekki vita hve marg-
ir hefðu verið myrtir en það mál
yrði kannað. Sjónvarpið í Georgíu
hefur sýnt myndir úr kjallara þing-
Þota júgóslavneska sambandshersins grandar EB-þyrlu:
RUásstjórnir EB kreíjast tafar-
lausra skýringa frá Serbum
Zagreb, Belgrad, Brussel, Róm, Sameinuðu þjóðunuin. Reuter.
ÞYRLU, sem í voru fimm eftirlitsmenn á vegum Evrópubandalagsins,
var í gær grandað með flugskeyti af orrustuþotu frá júgóslavneska
sambandshernum yfir Króatíu. Mennirnir, fjórir ítalir og einn Frakki,
létust allir. Flugmönnum annarrar þyrlu, sem einnig var ráðist á, tókst
að nauðlenda. Ríkisstjórnir allra EB-ríkja hafa fordæmt árásina harð-
lega og krafist ítarlegra skýringa þegar í stað frá stjórnvöldum í
Belgrad. Italir gengu lengst í mótmælum, kölluðu heirn sendiherra sinn
í Belgrad til skrafs og ráðagerða og kröfðust að fundi utanríkisráð-
hcrra EB yrði flýtt.
í yfirlýsingu frá hermálayfírvöld-
um í Belgrad, sem Ta/y'ug-fréttastof-
an birti, viðurkennir herinn að ein
þotna þeirra hafi skotið niður þyrlu
og laskað aðra. Þetta „óæskilega“
og „hörmulega" atvik er harmað og
sagt að þegar í stað verði hafín rann-
sókn. Yrðu þeir sem á því bæru
ábyrgð sóttir til saka.
Forsætisráð Júgóslavíu, sem ein-
ungis Serbar og fulltrúar Svartfjalla-
lands sitja nú i, leysti í gærkvöldi
Zvonko Jurjevic, yfirmann júgóslav-
neska flughersins, frá störfum.
Franjo Greguric, forsætisráðherra
Króatíu, sagði þetta atvik sýna
greinilega að sambandsherinn væri
reiðubúinn að láta sverfa til stáls á
ný þrátt fyrir samkomulag það sem
Króatar og Serbar gerðu fyrir helgi.
í bréfi sem Greguric ritaði stjórnvöld-
um í Portúgal, sem nú fara með for-
ystu innan EB, og lesið var upp af
útvarpinu í Zagreb, segir hann þetta
sanna að Serbar hyggist ekki standa
við skuldbindingar sínar.
Utanríkisráðherra Portúgal, Joao
de Deus Pinheiro, sagði að viðbrögð
EB myndu ráðast af því undir hvaða
kringumstæðum þyrlunni hefði verið
grandað. Nokkrum sinnum áður hef-
ur verið skotið á eftirlitsmenn EB,
jafnt bifreiðar sem þyrlur, en fram
til þessa hefur enginn særst alvar-
lega af þeim sökum.
Boutros Boutros Ghaii, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
sagðist vera sleginn yfir árásinni og
sagði hana sýna nauðsyn þess að
herða enn frekar tilraunir til að koma
á friði í Júgóslavíu.
Embættismenn hjá Sameinuðu
þjóðunum vildu í gær ekki tjá sig
um hvaða áhrif atvikið kæmi til með
að hafa á þau áform að senda tíu
þúsund manna friðargæslusveitir til
Júgóslavíu. Óttast margir að þau
áform verði nú lögð á hilluna í bili,
ekki síst þar sem ýmsar blikur voru
á lofti áður en þyrlan var skotin nið-
ur. Hafa leiðtogar Serba í Króatíu
lýst því yfir að þeir muni ekki sam-
þykkja neinar friðargæslusveitir á
þeim svæðum sem þeir byggja. Þá
eru þeir andsnúnir því að serbneskum
skæruliðum verði gert að afhenda
vopn sín.
Króati lieldur á hurð þyrlu EB sem skotin var niður.
Reuter.
hússins eftir að forsetinn flúði. Þar
sjást myrkir gangar þar sem hand-
járn hanga úr vatnsleiðslum og bún-
aður sem sagður er hafa verið notað-
ur til að gefa raflost. Fréttastofan
Interfax segir að Gamsakhúrdía hafi
tekið 700 milljónir rúblna með sér í
útlegðina.
Ekki er ljóst hver tekur nú við
völdum í Georgíu. Er því spáð að
valdabarátta sé í uppsiglingu.
Áformað er að herráð uppreisnar-
manna afsali sér völdum í hendur
bráðabirgðaríkisstjórn Tengiz Sigua,
fyrrverandi forsætisráðherra Georg-
íu, sem sagði af sér í ágúst. Hann
ávarpaði þjóð sína og hvatti til ein-
ingar og varaði við blóðugum
hefndaraðgerðum.
Georgí Khaindrava, sem ennfrem-
ur er í hópi forystumanna uppreisn-
arinnar gegn forsetanum, vill hins
vegar kalla heim einhvern úr kon-
ungsfjölskyldu Georgíu, sem nú býr
á Spáni, og breyta stjórnskipan ríkis-
ins á þann veg að þar verði þingbund-
in konungsstjórn.
Mikil spenna ríkti áfram í Tbilisi
höfuðborg Georglu í gær. Um þúsund
stuðningsmenn Gamsakhúrdía höfðu
komið saman til mótmæla í miðborg-
inni en þau tvístruðust er átta svart-
klæddir menn hófu skothríð á hóp-
inn. Byssumennirnir sögðu við blaða-
menn að þeir hefðu einungis skotið
púðurskotum en sjónarvottar sögðust
hafa séð mann sem særst hafði illa.
Fjölmiðlar í Georgíu telja að tvö
hundruð manns hafí látið lífið í átök-
um á síðustu tveimur vikum.
Yerður
Gorbatsjov
ákærður?
Moskvu. Reuter.
Rússneska dagblaðið Rabotsjaja
Tribuna skýrði í gær frá því að
Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrum for-
seti Sovétríkjanna, verður hugs-
anlega sóttur til saka vegna þess
að hann lét öryggislögregluna
KGB njósna um pólitíska andstæð-
inga sína.
I frétt blaðsins kom fram að KGB
hefði meðal annars njósnað um Bor-
is Jeltsín, forseta Rússlands, og ýmsa
þingmenn. Lagt hefði verið hald á
skýrslur sem sýndu greinilega fram
á þetta. Segir blaðið að á spássíum
sumra skýrslna væri að finna at-
hugasemdir skrifaðar með rithönd
Gorbatsjovs sem sönnuðu að hann
hefði fengið þær í hendur. Sagði
ennfremur í fréttinni að skrifstofa
rússneska ríkissaksóknarans teldi
þetta vera nægilegan grundvöll til
málshöfðunar.
Engin opinber staðfesting hafði í
gær fengist á fréttinni.
Gamsakhúrdía leyft
að dveljast í Armeníu