Morgunblaðið - 08.01.1992, Blaðsíða 5
MORGUftBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1992
5
Morgunblaðið/Gunnar Baldursson
Ragnar Reykás, einn fastra við-
mælenda '92 á Stöðinni.
Spaugstofan
byrjar á ný á
laugardaginn
FRÉTTAÞÁTTUR Spaugstof-
unnar, ’92 á Stöðinni, mun hefja
göngu sína að nýju í Ríkissjón-
varpinu á laugardaginn. Þættirn-
ir verða með svipuðu sniði og
þeir hafa verið að sögn Karls
Ágústs Ulfssonar, eins stöðvar-
manna. Þættirnir verða á dag-
skrá sjónvarps fram á vor.
Karl Ágúst sagði að aðeins yrði
um smávægilegar breytingar að
ræða. Fréttamenn Spaugstofunnar
myndu halda áfram að fylgjast með
fréttum og taka á því sem ástæða
þætti til hvequ sinni. Aðspurður
sagðist Karl Ágúst fastlega eiga
von á nýjum persónum í þættina.
---------♦ ♦ ♦----
Gjaldeyris-
viðskipti
rýmkuð um
áramótin
UM síðustu áramót voru heimildir
ísienskra aðila til lántöku erlendis
án sérstaks tilefnis rýmkaðar úr
5.625.000 krónum í 7.500.000
krónur, og einnig voru hækkuð
fjárhæðarmörk einstaklinga sem
opna bankareikninga í erlendum
inniánsstofnunum úr 1.500.000
krónum í 3.750.000 krónur.
Þá var innlendum aðiium heimilað
frá 1. janúar síðastliðnum að stofna
til beinna fjárfestinga í atvinnu-
rekstri í útlöndum fyrir að hámarki
7.500.000 krónur í stað 5.625.000
króna áður, og sömuleiðis hækkaði
heimiid innlendra aðila til að veita
erlendum aðilum lán úr 5.625.000
krónum í 7.500.000 krónur.
Um er að ræða áfangabreytingar
samkvæmt reglugerð um gjaldeyris-
og viðskiptamál, sem gildi tók 1. jan-
úar 1990, en frá 1. janúar 1993 falla
þessi fjárhæðarmörk niður.
-----♦ ♦ ♦----
Nýr umsjón-
armaður
kirkjugarða
RÁÐINN hefur verið nýr um-
sjónarmaður kirkjugarða, Guð-
mundur Rafn Sigurðssón lands-
lagsarkitekt, og tekur hann við
starfinu af Aðalsteini Steindórs-
syni, sem verið hefur umsjónar-
maður kirkjugarða frá árinu
1964, en lætur af störfum fyrir
aldurs sakir.
Starfið var auglýst laust til um-
sóknar í október síðastliðnum, segir
í frétt frá Biskupsstofu, og voru
umsækjendur 13, 12 karlar og ein
kona. Á fundi skipulagsnefndar
kirkjugarða í desember síðastliðinn
var Guðmundur Rafn ráðinn um-
sjónarmaður kirkjugarða. Hann
kemur til starfa 1. júní næstkom-
andi og mun Aðalsteinn gegna
starfinu fram að þeim tíma.
Framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga um auknar álögur:
Viljum ekki láta draga okkur inn í
hvernig að álögunum verður staðið
SAMBAND íslenskra sveitarfélaga hefur ekki orðið við þeirri beiðni
félagsmálaráðherra, að sambandið gerði tillögur um með hvaða hætti
fjár yrði aflað frá sveitarfélögunum í stað lögregluskattsins svo-
nefnda, sem gert er ráð fyrir í frumvarpi til laga um ráðstafanir í
rikisfjármálum 1992. Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri Sambands
íslenskra sveitarfélaga, segir að þar sem aldrei hafi verið haft samráð
við sveitarfélögin um um auknar álögur á þau, þá vilji þau ekki láta
draga sig inn í hvernig að þeim verði staðið.
í fjárlögunum er gert ráð fyrir að aði við löggæslu á árinu, samtals um
sveitarfélögin taki á sig 600 millj.
kr. af útgjöldum sem ríkissjóður bar
áður, en í lögunum er ótiltekið með
hvaða hætti það verður. í bandormin-
um svokallaða, frumvarpi til laga um
ráðstafanir í ríkisfjármáium 1992,
er hins vegar gert ráð fyrir þvi að
sveitarfélögin greiði hluta af kostn-
700 millj. kr., en sú upphæð verður
lækkuð í 600 millj.-kr. til samræmis
við íjárlögin. Afgreiðslu frumvarps-
ins var frestað fram í janúar, og með
bréfi dagsettu 27. des. leitaði félags-
málaráðherra eftir því við Samband
íslenskra sveitarfélaga, hvort sam-
bandið hefði aðrar tillögur um það
hvernig þessa fjár yrði aflað frá
sveitarfélögunum, og var óskað eftir
að tillögurnar bærust fyrir 3. janúar.
Að sögn Þórðar Skúlasonar kom
fram í svarbréfi Sambands íslenskra
sveitarfélaga til félagsmálaráðherra
að ekki væri séð hvaða tilgangi það
þjónaði á þessu stigi málsins að óska
eftir slíkum tillögum frá sambandinu,
meðal annars vegna þeirrar stað-
reyndar að allar grundvallarreglur
um samskipti og samráð ríkis og
sveitarfélaga hafi verið þverbrotnar
í aðdraganda þessa máls.
„Það er svolítið undarlegt að þeg-
ar búið er að ákveða álögurnar, þá
sé verið að óska eftir tillögum um
með hvaða hætti þetta verði hrifsað
af sveitarfélögunum, og menn hafa
líkt því við val um það hvort menn
séu hengdir eða skotnir. Miðað við
það hvernig mál þetta bar að viljum
við ekki láta draga okkur inn í það
hvernig að þessu verður staðið, en
það var ekkert samráð haft um þetta
að einu eða neinu leyti! Við höfum
margoft ítrekað andstöðu við þessar
hugmyndir, bæði við forystumenn
og fulltrúa ríkisstjórnarinnar, og það
er ekkert breytt viðhorf hjá okkur.
Þess vegna var það niðurstaða okkar
að skora á ríkisstjórnina og Alþingi
að falla frá þessum ákvörðunum,"
sagði hann.
ASTROS
SOLEY
MARGRET
ASTA
í Dansstúdíói
Sóleyjar í vetur
Byrjum 13. jan.
Fyrir börn 10 ára og eldri,
unglinga og fullorðna.
Flokkar fyrir byrjendur og
framhald.
■' Takib eftir:
I vetur ætlum við að hafa tíma
fyrir eldri nemendur. Það verða
tímar fyrir jbó sem dönsuðu á
sínum"sokkabandsárum" en hættu
einhverra hluta vegna. Við
vitum að ykkur langar til að
dansa og okkur langar til að fá
ykkur í tíma.
Kennarar:
Ásta, Sóley, Bryndís
og Hanna Stína.
@ fcóli
börll
Skóli fyrir stelpur og stráka
á aldrinum 2ja til 9 ára.
Jazzdans er skemmtileg og þroskandi hreyfing
fyrir hugann og líkamann; tími sem byggir
á upphitun, dansi og leikrænni tjáningu.
Tímar einu sinni í viku á föstudögum
og laugardögum.
Hafnarfjörðiir
Sömu kennslu bjóðum v/'ð / Hafnarfirði fyrir stelpur
og stráka á aldrinum 5 til 12 ára.
Kennum við jazzdans og Turtlesdansa og 13 ára
og eldri jazz og funk.
Kennari: Helena Jónsdóttir.
Innritun hefst mónudnginn 6. jnn.
í símn 687701 og 687801.