Morgunblaðið - 08.01.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 08.01.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1992 9 Gríptu daginn! Núna er rétta tækifærið til að hefja reglulegan sparnað með áskrift að Jeltsín og olíuviðskipti Frjáls verðmyndun hefur verið í sviðsljósinu að undanförnu vegna þess að í byrjun ársins hefur verðlag verið gefið frjálst í fyrrum lýðveldum Sovétríkjanna. Tilgangurinn er að blása lífi í dautt og steinrunnið efnahagskerfið, sem kommúnistar skilja eftir sig, og reyna að auka vöruframboð til að forða almenningi frá hungurvofunni. Hér heima hefur athyglin beinst að frjálsri verðmyndum á olíu og miðstýrðri jöfnun á flutningskostnaði. Forustugrein- ar í framhaldi af forustu- greiu Morgunblaðsins sl. sunnudag um frelsi í olíu- viðskiptum hafa DV og Alþýðublaðið ritað for- ustugreinar um málið. Bæði blöðin sjá ástæðu til að bera saman þróun- ina i verðlagsmálum í Sovétrikjunum fyrrver- andi og andstöðu við fullt frelsi í olíuviðskiptum hér á landi, einkum út frá efasemdum þing- flokks Sjálfstæðisflokks- ins um afnám flutninga- jöfnunar. Traust á fijálsræði I forustgrein DV í fyrradag sagði m.a.: „Jeltsin hefur sann- færst um, að hami getur ekki komið markaðnum í eðlilegt horf með áframhaldandi ríkisaf- skiptum. Hann trúir því að framboð og eftirspum muni smám saman koma jafnvægi á verðlag. Hann hefur gefist upp á sósíal- ískum kenningum um yfirstjórn ríkisins og er að söðla um. Borís Jeltsín hefur reynsluna. Hann þekkir afleiðingarnar af því að ríkið brengli frelsi og aðlögun markaðarins. Hami er að hverfa frá fomeskjunni og úreltum stjórnvaldsaðgerðum. Hann setur traust sitt á fijálsræðið og lögmál framboðs og eftirspum- ar. Það er kaldhæðnislcg staðrcynd að á sama tima og þeir í fyrrum Sovét- ríkjunum snúa svo gjör- samlega við blaðinu og draga lærdóm af dýr- keyptri reynslu sinni er emiþá hik á okkur Islend- ingum þegar kemur að frelsi markaðarhis, verð- lagi og frarnleiðslustyrkj- um. Við þomm ekki einu sinni að stiga litlu skrefin meðan Jeltsín tekur stóra stökkið. Hér á landi standa memi emiþá vörð um landbúnaðarframleiðslu sem er úr öllu samhengi við markaðimi. Hér verð- um við að leggja millj- arða króna í niður- greiðslur á matvömm, hér stundum við sósíal- ískar aðferðir við úthlut- un á fiskveiðikvótum og hér má helst engu breyta í fijálsræðisátt öðmvisi en heilir þingflokkar svo- kallaðra fijálslyndis- flokka rísi upp á aftur- fætuma og mótmæli frelsinu. Kaþólskarí en páfínn? Viðskiptaráðherra hefur í hyggju að gefa verðlag fijálst í olíu- og bensínsölu. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins skrifar ráðherranum bréf af því tilefni og var- ar við afleiðingunum. Nýlega hafnaði sam- gönguráðherra þessa sama flokks beiðni frá flugfélagi sem vildi lækka fargjöld á tiltek- inni flugleið til og frá íslandi. Ekki er langt síð- an fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins bmgðust ókvæða við þegar við- skiptaráðherra vildi rýmka útflutningsleyfí á sjávarafurðum! Er það virkilega að verða svo að sósíalisminn eigi sitt síð- asta athvarf í islenska Sjálfstæðisflokknum? Er- um við orðnir kaþólskari en páfhm?“ Miðstýring f forustugrein Alþýðu- blaðsins í gær sagði m.a.: „Á sama tíma og fyrr- um kommúnistar í Rúss- landi hafa valið leið fijálsrar verðmyndunar og rekið verðlagsnefndir skriffinnanna á dyr, lifir miðstýring í verðlags- málum enn góðu lífí á íslandi. Helsta lirciður hennar virðist vera þing- flokkur Sjálfstæðis- flokksins. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra hefur látið senvja fmmvarp sem fylgir eftir fijálsri verðlagningu á olíu hér- lendis. Frumvarpið felur meðal amiars í sér, að felld verði niður jöfnun kostnaðar við flutning á oliu á landi en jöfnun á flutningum á sjó viðhald- ið. Boðun verðlagsfrelsis í frumvarpmu hefur far- ið fyrir bijóstið á þing- flokki Sjálfstæðisflokks- ins. Þingflokkurhm hef- ur sent ráðuneytisstjóra viðskiptaráðuneytisins bréf um þetta efni, þar sem tilkynnt er, að rétt sé að stjómarflokkamir eigi að hefja viðræður um „að auka fijálsræði í verðlagningu og verð- samkeppni milli olíufé- laganna en þó þannig, að hvert félag tryggi sam- bærilegum viðskiptavhi- um sömu kjör alls staðar á landinu". Hvað skyldi Jeltsín segja um þessa síðustu klausu í bréfi þingflokks Sjálfstæðis- flokksins?" spariskírteinum ríkissjóðs Hringdu eða komdu í Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa eða Seðlabanka íslands og pantaðu áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Kalkofnsvegi 1, Hverfisgötu 6, sími 91- 626040 sími 91-699600 Kringlunni, sími 91- 689797 I $ ts «3 SJÓÐSBRÉF 1 HJÁ VÍB Arðbær og örugg ijárfesting Sjóðsbréf 1 henta vel þeim sem vilja njóta góðrar ávöxtunar á sparifé sínu án þess að taka mikla áhættu. Stærstur hluti eigna sjóðsins er ávaxtaður í skuldabréfum ríkis og sveitarfélaga. Sjóður 1 er því mjög öruggur. Sjóðsbréf 1 sameinaeiginleikaskammtíma-oglang- tímasparnaðar. Þau er hægt að innleysa, án innlausnar- gjalds, fyrstu þrjá virka daga hvers mánaðar eftir að fern mánaðamót eru liðin frá kaupum. Verið velkomin í VIB. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavik. Simi 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvarl 68 16 25.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.