Morgunblaðið - 08.01.1992, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1992
3
Snjó kyngdi niður á Akureyri:
50 sentímetra jafnfallinn
snjór á 12 klukkutímum
Mikill erill hjá lögreglu vegna ófærðar
SNJÓ kyngdi niður á Akureyri í fyrrinótt, en frá því byrjaði að
snjóa um kl. 20 á mánudagskvöld og fram á þriðjudagsmorgun
mældist snjódýptin 50 sentímetrar. Mikill erill var hjá lögreglu-
mönnum í gærmorgun við að aka fólki til vinnu á ýmsar stofnanir
og aðstoða ökumenn. Þrátt fyrir að allt sé nú á kafi í snjó í bænum
festi lítinn snjó í Hlíðarfjalli.
Árni Magnússon varðstjóri lög-
reglunnar sagði að annasamt hefði
verið frá kl. 6 í gærmorgun og fram
á morguninn. Ekki var búið að
ryðja götur árla morguns og bílar
víða fastir vegna ófærðar. Lögregl-
umenn aðstoðuðu fólk sem starfar
á sjúkrahúsi og ýmsum stofnunum
í og úr vinnu í býtið og einnig lentu
margir ökumenn í vandræðum
vegna ófærðar. Um kl. 9.30 var
búið að hreinsa helstu leiðir og
gekk umferð þá þokkalega. „Ann-
ars voru mjög margir sem fóru
gangandi til vinnu, enda í mörgum
tilfellum ekki hægt að hreyfa bíla
út af stæðum," sagði Árni.
Á um það bil 12 klukkustundum
var úrkoman 18 millimetrar og
snjódýptin mældist að meðaltali 50
sentímetrar í bænum, en áður en
fór að snjóa á þrettándakvöld var
jörð nánast auð.
Þrátt fyrir að bærinn sé á kafi
í snjó eftir þessa hrinu festi ekki
snjó í Hlíðarfjalli að neinu ráði.
Austanátt var og hvasst þar efra,
en þegar þannig viðrar „fer snjór-
inn á vitlausan stað“, eins og
starfsmaður í Hlíðarfjalli orðaði
það. Ekki er þó alveg snjólaust í
fjallinu og er stefnt að því að opna
um helgina ef ekki þiðnar. Spáð
er rigningu á fimmtudag svo
brugðið getur til beggja vona hvað
það varðar.
Tekjutenging elli- og örorkulífeyris:
Grunnlífeyrir skerðist
hjá tæplega 3.000 manns
Lífeyrir frá lífeyrissjóðum skerðir ekki ellilífeyrinn
Umhverfis-
ráðuneytið
hnekkir úr-
skurði varð-
andi Sogn
Anægjuleg niður-
staða, segir heil-
brigðisráðherra
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ
hefur kveðið upp úrskurð í
máli, sem heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
vísaði til þess vegna synjunar
byggingarnefndar Olfus-
hrepps á umsókn ráðuneytis-
ins um að breyta Sogni í Ölf-
ushreppi í réttargeðdeild.
Urskurður umhverfisráðu-
neytisins er, að ályktun bygg-
ingarnefndarinnar sé felld úr
gildi, og lagt er til við nefnd-
ina að taka umsókn heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðu-
neytisins til efnislegrar með-
ferðar lögum samkvæmt.
í úrskurði umhverfisráðuneytis-
ins segir m.a., að rök byggingar-
nefndarinnar fyrir synjuninni séu,
að áform ráðuneytisins falli ekki
að tillögu að svæðisskipulagi frá
1979 eða þeirri endurskoðun á
þeirri tillögu, sem nú standi yfir.
Umhverfísráðuneytið telji að rök
þessi fái ekki staðist, þar sem
ekkert skipulag að því svæði, sem
um sé rætt, hafi verið staðfest.
Hins vegar hafi verið rekin, með
samþykki yfirvalda sveitarstjórn-
armála eða a.m.k. fullri vitund
þeirra, stofnun á Sogni árum sam-
an.
Umhverfisráðuneytið getur því
ekki fallist á rök byggingarnefnd-
arinnar og að hún hafi ekki tekið
umsókn heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytisins til efnislegrar
meðferðar.
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra segir að hann sé
ánægður með þessa niðurstöðu
málsins og vonar að bygginga-
nefnd hraði vinnu sinni í því enda
töfin á uppkomu réttargæsludeild
á Sogni orðin ærin. „Það stefnir
í óefni með þessi mál hérlendis
því Svíar hafa nýlega ákveðið að
taka ekki erlenda ríkisborgara inn
á þessar stofnanir sínar en þar
hafa fjórir íslendingar verið í vist-
un,“ segir Sighvatur. „Þar að auki
hækkuðu nýlega daggjöldin fyrir
þetta fólk í Svíþjóð upp í 5.000
krónur á dag.
Kostar vist þeirra því um 50
milljónir króna á ári eða svipað
og við áætlum kostnað við átta
manns hérlendis.“
Bandaríkjamaðurinn var flug-
nemi og hafði að baki á milli 40
og 50 flugtíma. Til að öðlast einka-
flugmannsréttindi þarf 40 flugtíma
og þjálfun í yfirlandsflugi. Hjá loft-
ferðaeftirlitinu fengust þær upplýs-
ingar að flugið hefði verið í alla
staði eðlilegt. Það var skipulagt af
flugkennara mannsins hjá flug-
klúþbi á Keflavíkurflugvelli.
Áður en vélin brotlenti var hún
í fullkomnu lagi og bensín eftir til
einnar klukkustundar flugs. „Flug-
AÆTLAÐ er að ellilífeyrir
skerðist hjá 12% ellilífeyrisþega,
neminn stóð sig með prýði úr því
sem komið var. Hann hélt ró sinni
og skynsemi allt til enda. Drengur-
inn á hrós skilið fyrir frammistöð-
una. Hann er lítið reyndur sjón-
flugsmaður sem lendir í afar slæm-
um aðstæðum og á ekki margra
kosta völ. Hann er ekki á sama
grundvelli og atvinnuflugmaður og
er undir eftirliti flugkennara í þessu
flugi,“ sagði Skúli Jón Sigurðsson
hjá loftferðaeftirlitinu, í samtali við
Morgunblaðið.
eða um 2.600 manns, og um 5%
þeirra, eða rúmlega 1.100
manns, missi ellilífeyrinn alfar-
ið, samkvæmt tillögum um tekj-
utengingu elli- og örorkulífeyris
sem nú eru til meðferðar á Al-
þingi. Þá er gert ráð fyrir að
örorkulífeyrir skerðist hiá um
7% öryrkja, eða um 350 manns,
og 2%, eða um 100 manns, missi
lífeyrinn alfarið, en á móti fá
tekjulægri öryrkjar einhverja
hækkun.
Tillögurnar gera ráð fyrir því
að ellilífeyrir byrji að skerðast við
65.847 króna atvinnutekjur á mán-
uði, en það er sama upphæð og
tekjutrygging almannatrygginga
er miðuð við. Tekjur úr lífeyrissjóð-
um eru ekki taldar til atvinnutekna
heldur er við það miðað, að sögn
Þorkels Helgasonar aðstoðar-
manns heilbrigðisráðherra, að þeir
sem verði fyrir skerðingu séu ekki
sestir í helgan stein heldur hafi
tekjur af vinnu. Að auki séu skerð-
ingarmörkin aðeins fyrir ofan
skattleysismörk og fyrst aðrir þjóð-
félagsþegnar séu taldir vera af-
lögufærir til þjóðfélagsins með
þessar tekjur sé ekki talið eðlilegt
að greiða þessum hópi að auki
fullan lífeyri.
Reiknireglan sem beitt er við
skerðinguna er sú, að fundinn er
mismunur tekna og skerðingar-
marksins og 25% af þeim mismun
dragast frá ellilífeyrinum. Hafi sá
einstaklingur 76 þúsund króna
tekjur á mánuði, eða 10 þúsund
umfram skerðingarmarkið, drag-
ast 25% af þessum mismun, eða
2.500 krónur, frá grunnellilífeyr-
irnum, sem nú er 12.123 krónur á
mánuði hjá einstaklingi. Niður-
staðan er sú að þessi einstaklingur
fær um 9.500 krónur í ellilífeyri.
Ef einstaklingur hefur 90 þúsund
krónur í atvinnutekjur á mánuði,
eða 24 þúsund umfram skerðingar-
mörkin, skerðist ellilífeyririnn um
25% af því, eða 6.000 krónur. Og
samkvæmt þessu fellur ellilífeyrir-
inn niður við um 114 þúsund króna
mánaðartekjur.
Ef um hjón er að ræða, er lífeyr-
ir hvors þeirra fyrir sig meðhöndl-
aður eins og hjá einstaklingum.
Þannig gæti annað hjónanna verið
með fullan lífeyri þótt hitt hafi
háar atvinnutekjur. Hins vegar er
lífeyrir hvors hjóna um sig 10%
lægri en hjá einstaklingum, eða
um 11 þúsund krónur á mánuði.
Örorkubætur verða einnig tekju-
tengdar samkvæmt tillögunum.
Að sögn Þorkels Helgasonar kom
til greina að sleppa öryrkjum við
skerðinguna, en sú leið hafi þó
ekki orðið fyrir valinu. Hins vegar
er skerðingarmarkið hærra hjá
þeim, eða við 69 þúsund króna
mánaðartekjur og lífeyririnn fellur
því að fullu niður við 117 þúsund
króna tekjur. Fénu, sem þannig
sparast, á síðan að veita til baka
til tekjulægri öryrkja með því að
lengja svokallað frítekjumark í
tekjutryggingu.
Þessar tillögur voru samþykktar
af ríkisstjórninni á mánudag og
lagðar fyrir þingflokka og efna-
hagsnefnd Alþingis, sem hefur
bandorminn svonefnda til umfjöll-
unar. Tillögurnar eru nánari út-
færsla á markmiðum sem sett voru
fram í fjárlögum og eiga þær að
spara ríkissjóði útgjöld sem næmu
260 milljónum króna á næsta ári.
Flugmálastjórn:
Flugmaðurinn sem
brotlenti gerði rétt
RANNSÓKNADEILD loftferðaeftirlitsins telur að bandaríski flugmað-
urinn, sem brotlenti flugvél sinni í Kaldadal sl. laugardag hafi brugð-
ist við á hárréttan hátt þegar hann lenti í vandræðum vegna veðurs
á flugleiðinni Sauðárkrókur-Selfoss.