Morgunblaðið - 08.01.1992, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1992
Læknaráð Landakots vill viðræður um sameiningu:
Jákvæð niðurstaða en málið
strandar á Jósefssystrum
- segir Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra
LÆKNARÁÐ Landakotsspítala hefur samþykkt ályktun þar sem
fram kemur vilji til að halda áfram viðræðum við fulltrúa heil-
brigðisráðuneytis og Borgarspítala um sameiningu spítalanna
tveggja. í áiyktuninni eru sett þau skilyrði fyrir sameiningu að
sérhæfð þjónusta haldi áfram á Landakoti meðan samningur
ríkisins við St. Jósefssystur er í gildi. Sighvatur Björgvinsson
heilbrigðisráðherra segir það jákvætt að þessi vilji sé til staðar
en að málið í heild strandi á afstöðu Jósefssystra, sem eru alfarið
á móti sameiningu.
í ályktun læknaráðsins segir
meðal annars um forsendur sam-
einingar: „Til þess að svo megi
verða telur læknaráð nauðsynlegt
að gera breytingar á þeirri áætlun
um sameiningu sem kemur fram
í áliti nefndar sem nú hefur lokið
störfum. Læknaráð telur nauðsyn-
legt að sameining verði betur und-
irbúin og til hennar ætlaður lengri
tími en gert er ráð fyrir. Læknar-
áð leggur áherslu á að virk sér-
hæfð þjónusta haldi áfram á Land-
akotsspítala meðan samningur
ríkisins við St. Jósefssystur er í
gildi og að tekið verið tillit til þess
starfsfyrirkomulags í læknisþjón-
ustu sem tíðkast hefur á Landa-
kotsspítala í 90 ár og gefíst vel.“
Ályktunin var samþykkt í læknar-
áði með 27 atkvæðum gegn tveim-
ur.
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra segir, að þótt það
sé jákvætt að læknaráðið hafi lýst
yfir vilja sínum til að halda sam-
einingarviðræðum áfram, séu skil-
yrði þess óraunhæf. í ályktunni
sé gert ráð fyrir óbreyttum rekstri
fram til ársins 1997 og fjármagn
til þess sé einfaldlega ekki til stað-
ar. Málið strandi þar að auki á
afstöðu Jósefssystra sem eru alf-
arið á móti sameiningu. Heilbrigð-
isráðherra telur því að framhald
málsins sé alfarið í höndum forr-
áðamanna Landakots sem stend-
ur.
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00
Heímild: Veöurstola íslands
{Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gær)
I/EÐURHORFUR í DAG, 8. JANÚAR
YFIRLIT: Á milli íslands og Noregs er 988 mb lægð, sem hreyfist
austnorðaustur og grynnist. Á sunnanverðu Grænlandshafi er
hæðarhryggur á norðaustur leið.
SPÁ:Hæg breytileg átt og víðast léttskýjað. Talsvert frost.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Allhvöss suövestan átt. Éljagangur um
vestanvert landið en annars þurrt að mestu. Heldur kólnandi veður.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg vestlæg átt og víða léttskýjað um
norðaustanvert landið en vaxandi sunnan og suðaustan átt og hlýn-
andi veður um sunnan og vestanvert landið.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN:
Heiðskirt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
# # *
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Í7 Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hiti +3 +1 veður alskýjað skýjað
Bergen 3 rigning og súld
Helsinki 0 snjókoma
Kaupmannahöfn 6 þokumóða
Narssarssuaq -í-13 alskýjað
Nuuk vantar
Osló +1 skýjað
Stokkhólmur 4 skýjað
Þórshöfn 3 léttskýjað
Algarve 16 þokumóða
Amsterdam 5 þokumóða
Barcelona 7 mlstur
Berlín 7 skýjað
Chlcago 0 þokumóða
Feneyjar 0 þoka
Frankfurt 2 þokumóða
Glasgow 11 rigning
Hamborg 5 skýjað
London 9 skýjað
Los Angeles 8 hálfskýjað
Lúxemborg 1 þokumóða
Madríd 6 skýjað
Malaga 15 léttskýjað
Mallorca 13 alskýjað
Montreal +2 skýjað
NewYork 4 skýjað
Orlando vantar
París vantar
Madeira vantar
Róm vantar
Vín 11 léttskýjað
Washington vantar
Winnipeg +7 alskýjað
Jólatrén sett á gánia Sorpu. Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Bannað er að henda
jólatrjám í öskutunnur
ÍBÚUM höfuðborgarsvæðisins hefur verið bent á að henda ekki
jólatrjám í sorptunnur fyrir utan heimili sín heldur að fara með
þau á gámastöðvar Sorpu. Nýja Sendibílastöðin hefur tekið að sér
að taka jólatrén hjá fólki og koma þeim á gámastöðvarnar gegn
200 króna gjaldi.
Nýja Sendibílastöðin veitir þessa
þjónustu í dag, miðvikudag, á milli
kl. 16 og 18. Að sögn Inga Dóra
Einarssonar hjá Nýju Sendibíla-
stöðinni er mjög líklegt að þjónust-
an verði einnig veitt á morgun,
fimmtudag, á sama tíma vegna
fjölda beiðna um aðstoð.
Einnig veita embætti gatnamál-
astjóra í viðkomandi hverfum eldri
borgurum og öryrkjum aðstoð við
að koma trjánum á gámastöðvarn-
ar.
Að sögn Ásmundar Reykdal,
stöðvarstjóra Sorpu bs., er stefnt
að því í framtíðinni að allur garða-
úrgangur verði flokkaður sérstak-
lega og verði settur aftur í jarðveg-
inn.
Ásmundur segir að aðskilja
verði garðaúrgang sérstaklega ef
hann eigi að brotna niður og verða
Textavarp:
Flestir söluaðilar
með íslenska stafi
að jarðvegi. Sorpa sér um að aka
slíkum úrgangi á móttökustað fyr-
ir jarðveg við Gufunes þar sem
hann blandast jarðveginum. Hann
segir að stærstu trén, sem t.d. séu
í eigu bæjar- og sveitarfélaga víðs
vegar séu hins vegar tekin sérstak-
lega og endurunninn í timbu-
rendurvinnslu Sorpu, en minni trén
séu ekki nógu efnismikil til þess.
Ásmundur bendir á að ef fólk
eigi í einhveijum erfiðleikum með
að flytja trén á gámastöðvarnar
sé hægt að klippa þau í sundur.
Starfsmenn Sorpu eru einnig við
gámastöðvarnar og eru fólki innan
handar við að aðgreina úrganginn.
Þess má geta að samkvæmt
upplýsingum frá Sorpu eru um 56
þúsund heimili á höfuðborgar-
svæðinu.
FLESTIR söluaðilar sjónvarpstækja bjóða nú, eða eiga von á sjónvarps-
tækjum, sem sjónvarpa íslenskum bókstöfum í textavarpi, að sögn
Geirs Magnússonar umsjónarmanns textavarps RUV. Eigendum sjón-
varpstækja, sem ekki nema íslcnska bókstafi, er ráðlagt að afla upplýs-
inga hjá söluaðila um hvort hægt sé að fá íslenska stafi í textavarpið.
Geir sagði að í framhaldi af því
að komið hefði í ljós að mörg sjón-
varpstæki tækju ekki á móti íslensk-
um bókstöfum, hefðu stærstu inn-
flytjendum og söluaðilum sjónvarps-
tækja verið sendar upplýsingar um
hvernig best væri að leysa vandann.
Þessir aðilar voru heimsóttir í haust
og kom þá í ljós að flestir þeirra
höfðu þegar á boðstólum tæki, sem
taka á móti íslenskum bókstöfum í
textavarpi, eða voru í þann veginn
að fá slík tæki. Aðspurður benti
Geir eigendum eldri tækja, sem ekki
næmu íslenska bókstafi, að afla upp-
lýsinga um hvort hægt væri að koma
þeim fyrir hjá söluaðila.
Um nýjungar í textavarpi sagði
Geir að unnið væri að svokallaðri
dagbók sem stefnt væri að því að
byija að sjónvarpa í febrúar. I henni
verður meðal annars hægt að fá
upplýsingar um opnunartíma apót-
eka, klukkuna víðsvegar í heiminum,
tilkynningar félagasamtaka, neyðar-
síma og opnunartíma sundstaða og
safna. Einnig er að sögn Geirs stefnt
að því að gefa upplýsingar um rút-
ur.strætisvagnaferðir, flug og fetjur.
Geir sagðist hafa orðið var við að
fólk notfærði sér upplýsingaþjónustu
textavarpsins og þá einkanlega al-
mennar fréttir og íþróttafréttir.
Solarflug seldi 400
miða fyrsta daginn
Ferðaskrifstofan Sólarflug
seldi viðskiptavinum sínum á síð-
asta ári og félögum tveggja laun-
þegasamtaka um 400 farmiða á
tilboðsverði til Glasgow, London,
Kaupmannahafnar og Amsterdam
sl. mánudag, sem var fyrsti sölu-
dagurinn. Guðni Þórðarsson, for-
stjóri, sagði að allar simalínur
ferðaskrifstofunnar hefðu verið
uppteknar meginhluta dagsins.
Guðni sagði að fólk fagnaði mjög
ódýrum ferðamöguleikum og nefndi
að í sumum tilfellum væru fargjöldin
læg^ri en flug innanlands. Sagði hann
í því sambandi að Glasgowferð kost-
aði 10.900 kr. meðan Egilsstaðaflug
væri á nærri 15.000 kr. Þá sagði
Guðni að viðskiptavinir ferðaskrif-
stofunnar ættu aðgang að hagstæð-
um samningum sem gerðir hefðu
verið um sumarhús, hótel og bíla-
leigu. Samkvæmt þeim væri afsláttur
af hótelum 20-60% og boðið væri
upp á viku bíialeigu á 15.000 kr. í
stað 30.000 kr.
Tilboðsverð gildir fyrir viðskipta-
vini Sólarflugs á árinu 1991, félaga
í Verslunarmannafélagi Suðurnesja
og Hjúkrunarfélagið, en Guðni sagði
að 5-6 önnur launþegasamtök hefðu
einnig leitað eftir samningum.