Morgunblaðið - 08.01.1992, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1992
.7
Sparnaður í húsbréfakerfinu
Bjartsýnn að mark-
mið fjárlaga náist
— segir deildarstjóri húsbréfadeildar
EITT AF markmiðum ríkisstjórnarinnar í fjárlögum var að minnka
umfang húsbréfakerfisins úr 15 milljörðum króna sem það var i
fyrra niður í 12 milljarða króna í ár. Sigurður Geirsson, deildar-
stjóri húsbréfadeildar Húsnæðisstofnunar, segir að hann sé bjart-
sýnn á að lánin verði innan við 12 milljarða í ár.
Að sögn Sigurðar var þessi sparn-
aður í kerfinu útfærður að mestu í
október sl. er Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra kynnti sparnað-
arleiðir ráðuneytisins í kerfinu en
þær voru helstar að hámarkslán voru
lækkuð og endurbótalánum frestað
fram til 1993. Þessu til viðbótar nefn-
ir Sigurður að engin greiðsluerfið-
leikalán verði veitt á þessu ári en
þau námu 2,5 milljörðum króna í
fyrra, Og tvö bráðabirgðaákvæði, um
nýbyggingar eða kaup þeirra sem
eru að fjárfesta í sinni fyrstu íbúð,
falla einnig út en með því sparast
um hálfur milljarður.
„Og það má einnig geta þess að
miðað við þróunina á fasteignamark-
aðinum frá því í haust sýnist okkur
sem að fasteignaviðskipti muni
minnka nokkuð á þessu ári í sam-
ræmi við stöðuna í efnahagsmálum,"
segir Sigurður. „Að öllu þessu sam-
anteknu tel ég að hægt sé að vera
bjartsýnn á að umfang húsbréfakerf-
isins verði innan við 12 milljarða
króna í ár.“
Börn náttúrunnar
og Ryð á kvikmynda-
hátíðina í Rouen
Tvær íslenskar kvikmyndir hafa verið valdar í samkeppnina á 5.
norrænu kvikmyndahátíðinni í Rouen í Frakklandi dagana 11-22.
mars næstkomandi. Þær eru Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór
Friðriksson og Ryð eftir Lárus Ými Óskarsson.
Á þessari kvikmyndahátíð verður
athyglinni sérstaklega beint að ís-
landi og af því tilefni sýndar í svo-
nefndu „Panorama Islandais" níu
kvikmyndir til kynningar á íslenskri
kvikmyndalist og jafnframt tengslum
landanna gegn um frönsku físki-
mennina með tveimur gömlum kvik-
myndum eftir sögu Pierres Lotis.
í Panorama hafa verið valdar eftir-
taldar myndir:
1923 Hadda Padda eftir Gunnar
Robert Hansen
1924 Pecheur d’ísland eftir Bar-
oncelli
1933 Pecheur d’Island eftir Gu-
erlais
1979 Land og synir eftir Ágúst
Guðmundsspn
1980 Óðal feðranna eftir Hrafn
Gunnlaugsson
1981 Gísla saga Súrssonar eftir
Ágúst Guðmundsson
1985 Skilaboð til Söndru eftir
Kristínu Pálsdóttur
1987 Skytturnar eftir Friðrik Þór
Friðriksson
1988 í skugga Hrafnsins eftir
Hrafn Gunnlaugsson
HEFST í DAG
(otuS Álftamýri 7, sími 35522.
ár
Hressingarleikfimi kvenna og karla
Vetrarnámskeið hefjast mánudaginn 13. janúar nk.
Kennslustaðir: Leikfimisalur Laugarnesskóla og
Iþróttahús Seltjarnarness.
Fjölbreyttar æfingar
Músík - Dansspuni
Þrekæfingar - Slökun
Gleðil egt nýtt
ár
Nokkrar konur geta komist að mánudags-
og fimmtudagskvöld kl. 20.15.
Einnig nokkrir herrar sömu kvöld kl. 21.15.
Innritun og upplýsingar
í síma 33290
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir,
íþróttakennari.
Gleðilegt ár, þökkum viðskiptin á liðnum árum. Vantar nýlega bfla á söluskrá
M. Benz 230 TE '85,
ekinn 48 þús. km., sjálfskiptur, svart-
ur, sem nýr. Einn eigandi.
Verð kr. 1.580 þús. Skipti - nei
BMW 316 '88
ekinn 49 þús. km., sjálfsk., topplúga
o.fl. Verð kr. 1.300 þús. Skiþti á ódýr-
ari.
Nissan Sunny 15 SLX '87,
ekinn 69 þús. km., blár, vökvastýri.
Verð kr. 590 þús. Skipti - skuldabréf.
MMC Pajero langur Turbo
diesel ’88,
hvítur, sjálfsk., ekinn 65 þús. km.,
krómfelgur, spil o.fl. Verð kr. 1.850
þús. Einnig MMC Pajero langur
bensín ’88, silfur, ekinn 54 þús. km.
Verð kr. 1.750 þús.
Toyota Hilux EFI ’88,
ekinn 91 þús. km., svartur, krómfelg-
ur, 31“ dekk. Verð kr. 1.180 þús.
Skipti á ódýrari eða á dýrari VSK-bíl.
Ford Bronco XLT ’84,
ekinn 97 þús. km., blár og brúnn,
mikiö breyttur bíll. Verð kr. 1.250
þús. Skipti á ódýrari.
WltJ
MMC Lancer GLX ’88,
ekinn 34 þús. km., silfur, vökvastýri
o.fl. Verð kr. 750 þús. Skipti - skulda-
bréf.
■ mm
Volvo 740 GL '88,
ekinn 67 þús. km., gullsans., sjálfsk.
Verð kr. 1.360 þús. Skipti á ódýrari.
Range Rover Vogue ’88,
blásans., sjálfsk, ekinn 78 þús. km.
Verð kr. 3.000.000,- Skipti - skulda-
bréf.
Suzukl Fox 413 langur '85,
svartur, ekinn 74 þús. km. Einn eig-
andi. Toppeintak, mikið breyttur bíll.
Verð kr.890 þús. Skipti á ódýrari.
Einnig Suzuki Fox 413 Samurai ’88,
ekinn 46 þús. km. Verð kr. 690 þús
stgr.
Daihatsu Charade CX ’88,
ekinn 45 þús. km., rauður, sjálfsk.
Verð kr. 595 þús. Skipti - skuldabréf.
Nissan Sunny 16 SLX ’90,
ekinn 35 þús. km., rauður, rafrúður
o.fl. Verðkr. 880 þús. Skipti - skulda-
bréf.
Volvo 440 GLT ’89,
ekinn 49 þús. km., vinrauður, sport-
felgur, litað gler o.fl. Verð kr. 960 þús
stgr.
Suzuki Vitara '89,
ekinn 36 þús. km., rauður. Verð kr.
970 þús stgr.
Honda Accord EX ’87,
ekinn 97 þús. km., blásans., sjálfsk.,
rafrúður o.fl. Verð kr. 970 þús. Skipti
á ódýrari.
Toyota Carmy 2.0 XLI ’88,
ekinn 64 þús. km., silfur, sjálfsk.,
vökvastýri. Verð kr. 850 þús. staðgr.
Skipti - nei.
TORG
Toyota Landcruiser VX ’91,
ekinn 15 þús. km., gullsans., topp-
lúga, sjálfsk., dráttarkr.
Verð kr. 4.000.000,-, skipti á ódýrari
Daihatsu Feroza EL-II ’89,
ekinn 27 þús. km., vökvastýri, topp-
lúga, silfur og blár. Verð kr. 970 þús.
stgr.
Nissan Double Cab ’87,
ekinn 120 þús. km., 33“ dekk, króm-
felgur, rauður. Verð kr. 1.100 þús.
Skipti á ódýrari.
"■fcH«vnu