Morgunblaðið - 08.01.1992, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1992
17
Óhagræði einu áhrif-
in af brotthvarfi FÍS
- segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdasljóri Verslunarráðs
„ÁHRIF þess, að Félag íslenskra stórkaupmanna hverfur úr Verslun-
arráðinu eru eingöngu þau, að rekstur þessara tveggja sambanda
verður dýrari. Verslunarráðið verður nú sem fyrr ein öflugustu sam-
tök í islensku atvinnulífi," sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda-
stjóri Verslunarráðs Islands, í samtali við Morgunblaðið.
Birgir Rafn Jónsson, formaður annað fyrirkomulag á greiðslu-
FIS, sagði í samtali við Morgunbiað-
ið í gær, að hagsmunir fyrirtækja í
verslun væru fyrir borð bornir innan
verslunarráðsins. „Formaður FIS
heldur því fram að Verslunarráðið
hafi ekki beitt sér fyrir frjálsu
verðlagi á aðflutningsgjöldum, en
það er rangt,“ sagði Vilhjálmur.
„Við höfum barist fyrir þessu innan
verðlagsráðs í mörg ár og nú hillir
undir að málið komist í höfn, enda
er meirihluti fyrir því innan ráðsins.
Þá segir formaðurinn að FIS vilji
kortaviðskiptum. Þar hefur Verslun-
arráðið unnið að því að ná sáttum
milli aðila um hvar kostnaðurinn af
slíkum viðskiptum lendir. Ég tel
þokkalega niðurstöðu væntanlega í
því máli, í frumvarpi sem unnið hef-
ur verið að í viðskiptaráðuneytinu."
Vilhjálmur sagði að sér hefði oft
virst starfsemi FÍS fremur miðast
við andstöðu við Verslunarráðið en
að vinna málum verslunarinnar for-
gang. „Vegna ummæla formannsins
um að ákveðnar starfsgreinar geti
náð til sín óeðlilega miklum völdum
innan Verslunarráðsins vil ég benda
á, að kosningar til ráðsins eru með
lýðræðislegasta móti sem þekkist.
Þannig er auðvelt að hafa áhrif á
skipan stjórnar, öfugt við mörg önn-
ur félög. Verslunarráðið reyndi aldr-
ei að hafa áhrif á málefnastarf FÍS,
sem hafði fullt svigrúm til að segja
það sem það taldi réttast fyrir hag
sinna félaga. Þegar skrifstofuhald
þessara tveggja sambanda var sam-
einað var ætlunin að spara og hag-
ræða. Það tókst áð ýmsu leyti og
samstarfið gekk vel, allt þar til ný
forysta tók við í FÍS á síðasta ári,“
sagði Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs.
Aðföng til búvöruframleiðslu:
Allt að 67% verðmunur á
einstökum vörutegundum
VERULEGUR verðmunur er á
einstökum vörutegundum til bú-
vöruframleiðslu samkvæmt könn-
un Verðlagsstofnunar sem gerð
var um miðjan desember. Þannig
er 67% verðmunur á 100 metrum
af girðinganeti, en það kostar
4.520 kr. þar sem það er ódýrast
og 7.545 kr. þar sem það er dýr-
ast. Þá kostar fimm lítra brúsi
af hreinsuðu fóðurlýsi 535 kr. þar
sem það er ódýrast, en 55% meira
þar sem það er dýrast, eða 830 kr.
Verðlagsstofnun hefur annast eft-
irlit með verði á aðföngum til bænda
frá gerð kjarasamninga í febrúar
Selfoss:
Endurbætur á Olf-
usárbrú á þessu ári
Cnlfnaci
1990, og hefur stofnunin meðal ann-
ars fylgst með og birt verð á allmörg-
um fóður- og byggingarvörum
ásamt varahlutum í heyvinnsluvélar
og vörum til heyvinnslu. í könnun-
inni sem gerð var í desember var
verð á fóðri og byggingarvörum
kannað og borið saman við könnun
sem gerð var í apríl síðastliðnum.
Náði könnunin til 27 sölustaða víðs
vegar á landinu, og leiddi hún meðal
annars í ljós að verð á mótatimbri
lækkaði að meðalatali um 12,3% á
tímabilinu, og verð á hreinsuðu
fóðurlýsi lækkaði að meðaltali um
5,5%. Aðrar vörutegundir hækkuðu
hins vegar um 0,9-3,8%.
GALLABUXNATILBOÐ
KR. 3.900,-
(Ath. venjulegt verö kr. 5.900,-
Verslunin Gæjnr, Bnnknstræti 14
Selfossi.
UNDIRBÚNINGUR er hafinn hjá
Vegagerð ríkisins að endurbygg-
ingu Ölfusárbrúar við Selfoss.
Gólf brúarinnar verður end-
urnýjað og nýrri og gangbraut
komið fyrir á henni. Gólf brúar-
innar er mjög illa farið og aðkall-
andi að gera á því endurbætur.
Mjög knýjandi er og að göngu-
leið yfir brúna verði gerð örugg-
ari.
Vegagerð ríkisins hyggst hefja
framkvæmdir við endurbætur á
brúargólfi Ölfusárbrúar í apríl eða
maí á þessu ári. Framleiðsla for-
steyptra gólfeininga í brúargólfið
hefst í þessum mánuði. Þessi áætlun
miðast við að ekki verði gerðar
breytingar á forgangsröð verkefna
í tengslum við fyrirsjáanlegan nið-
urskurð íjármagns til vegagerðar á
Suðurlandi.
Þessar framkvæmdir á brúnni
hafa í för með breytingar á þver-
sniði brúarinnar þar sem gert er
ráð fyrir að akstursleiðin verði með
vesturhlið hennar en gangbrautin
austanmegin. Vegstæði sunnan við
brúna breikkar og norðan brúarinn-
ar þarf að tengja gangbraut brúar-
innar við gangbrautir sem taka við
af henni.
Vegagerðin áformar að veija til
þessa verks 50 milljónum á þessu
ári en gert er ráð fyrir að tvö ár
taki að ljúka verkinu og ganga frá
öllum þáttum þess. Heildarkostnað-
ur er áætlaður um 70 milljónir
króna.
— Sig. Jóns.
Skilafrestur
launaskýrslna o.fl. gagna
Spádómar Bibliunnar
Opinberunarbokin
Námskeið um hrífandi spádóma Biblíunnar hefst
þriðjudaginn 14. janúar kl. 20.00 á Hótel Holiday
Inn, Sigtúni 38. Efni Opinberunarbókarinnar
verður sérstaklega tekið til meðferðar.
ÞÁTTTAKA ER ÓKEYPIS.
Fjölbreytt námsgögn EINNIG ÓKEYPIS.
Leiðbeinandi verður dr. Steinþór Þórðarson.
Ótrúlegir atburðir gerast í heiminum á okkar
dogum. Spádómar Biblíunnar hafa mikið að segja
um þá. Þeir boða að stórkostlegir atburðir eigi
enn eftir að gerast, jafnvel á okkar dögum.
Nánari upplýsingar og innritun í símum 679270
á skrifstofutíma og 673551 eða 673626 á kvöldin.
Samkvæmt lokamálsgrein 93. gr.
laga nr. 75/1981 um tekju- og eignar-
skatt hefur skilafrestur eftirtalinna
gagna, sem skila ber á árinu 1992
vegna greiðslna o.fl. á árinu 1991,
verið ákveðinn sem hér segir:
1.77/ og með 21. janúar 1992:
1. Launaframtal ásamt launamiðum.
2. Hlutafjármiðar ásamt
samtalningsblaði.
3. Stofnsjóðsmiðar ásamt
samtalningsblaði.
2. Til og með20. febrúar 1992:
1. Afurða- og innstæðumiðar ásamt
samtalningsblaði.
2. Sjávarafurðamiðar ásamt
samtalningsblaði.
3. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt
samtalningsblaði.
3. Til og með síðasta
skiladegi skatt-
framtala 1992:
Greiðslumiðar yfir hvers konar
greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausa-
fé, fasteignum og fasteignaréttindum,
sbr. 1. og 2. tölul. C-liðar 7. gr. sömu
laga.
Gögn frá eignarleigufyrirtækjum þar
sem fram koma upplýsingar varðandi
samninga sem eignarleigufyrirtæki,
sbr. II. kafla laga nr. 19/1989, hafa gert
og í gildi voru á árinu 1991 vegna
fjármögnunarleigu eða kaupleigu á
fólksbifreiðum fyrirfærri en 9 manns.
M.a. skulu koma fram nöfn leigutaka
og kennitala, skráningarnúmer
bifreiðar, leigutímabil ásamt því verði
sem eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir
bifreiðina.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI