Morgunblaðið - 08.01.1992, Page 27

Morgunblaðið - 08.01.1992, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANUAR 1992 27 Þorbjörg Vigfús- dóttir - Minning Fædd 17. júlí 1905 Dáin 28. desember 1991 í dag fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík útför ömmu minnar, Þorbjargar Vigfúsdóttur, sem lést á Landakotsspítala aðfaranóttt 28. desember 1991 Þorbjörg var fædd á Kálfárvöll- um í Staðarsveit á Snæfellsnesi árið 1905, næst yngst tíu systkina. Ung að árum missir hún foreldra sína og flyst ellefu ára til Reykja- víkur í fóstur hjá Elínu systur sinni og eiginmanni hennar, Sveinbirni Egilssen. 1929 giftist Þorbjörg Júlíusi Evert þá kaup- og útgerðar- manni á Akranesi. Á Akranesi bjuggu þau til ársins 1935 en flutt- ust þá til Reykjavíkur. Þau ólu upp þijú börn, Olaf einkabarn þeirra, f. 1939, búsettur í Danmörku, bróðurdóttur Þorbjargar, Ernu, f. 1929 og dóttur hennar Hrafnhildi, f. 1947. Júlíus lést 23. maí 1981. Það er gjaman á tímamótum sem minningar vakna og þegar mér bárust fregnir af andláti ömmu minnar aðfaranóttt 28. des- ember sl. vöknuðu hjá mér minn- ingar sem ég átti erfitt með að koma saman í heildstæða mynd. Ekki það að hún amma mín hefði breyst svo mikið gegn um árin, en hitt frekar að það rifjuðust upp minningar um okkar kynni frá mismunandi skeiðum míns eigin lífs, og oft reyndist erfitt að greina hvað í minningunni sagði mér eitt- hvað um sjálfan mig og hvað um ömmu mína. Það kom upp í huga mér þessi barnslega einfeldni þeg- ar ég uppgötvaði að hún amma mín hét alls ekki „Tobbudamma" heldur var þetta barnslegur samruni á „Þorbjörg amma“ sem ég nota enn í dag og ömmu minni fannst ekkert athugavert við. í lífi barnsins var jóladagur hjá ömmu og afa í Reykjavík sem vörður í óljósri rás tímans, fastur liður eða tímamót á borð við sautjánda júní, afmælið hans Dodda vinar míns, komu lóunnar, eða aðra stórvið- burði í lífi sex ára drengs, og þó svo jólasteikin hjá ömmu hafi að sjálfsögðu ekki verið eins stór og mig ætíð minnti held ég enn í dag í þá siði jólahaldsins sem rekja má til þessa tíma. Sem börn vorum við systkinin stundum í pössun hjá þeim Þor- björgu og Júlíusi, en þar var jafnan gestkvæmt og minnist ég ótal kaffiboða hjá ættingjum í Reykja- vík, heimsóknum vina og ættingja af Snæfellsnesi og úr Dölunum, sterkum fjölskylduböndum, sem mér sem barni var lengi vel um og ó að skilja upp eða niður í. Á árunum 1970-1972 bjó ég síðan hjá þeim tvo vetur meðan ég var við nám í Reykjavík. Mér er sérstaklega minnistæður dugn- aður þeirra hjóna á þessum árum og hversu góð þau voru mér. Júl- íus var síðari veturinn mikið til heima við vegna vanheilsu en Þor- björg vann þá í mjólkurbúð á Rán- argötunni. Um hver mánaðamót hjálpaði ég henni með uppgjör mánaðarins og mér er sérstaídega minnistæð sú ábyrgð og samvisku- semi sem Þorbjörg sinnti þessu starfi sínu og ekki síður þakklæti hennar í minn garð fyrir þetta smá viðvik mitt. Ekki get ég sagt að ég hafi haft mörgum skyldum að gegna meðan ég dvaldist hjá þeim Júlíusi á Oldugötunni. Þau hjónin skorti ekki skilning á högum og þörfum unga mannsins, sem var að fara að heiman í fyrsta skipti og taldi sér trú um að hann lifði sjálfstæðu lífi í þakherberginu á Oldugötunni. Ég hafði það eins og blómi í eggi. Lýsandi fyrir um- hyggju þeirra er saga sem vinir mínir hafa sagt mér „að það hafi ekki verið hægt að ná í mig í síma á morgnana þar sem ekki mátti vekja „prinsinn" of snemma — en velkomið að taka skilaboð". Þor- björg sá svo um að okkur Júlíus skorti ekki neitt, og þó svo að ég síðasta veturinn minn í skólanum byggi í íbúð úti í bæ gat ég ávallt leitað til þeiiTa. Síðastliðin tólf ár hitti ég Þor- björgu sjaldnar og þá helst í sum- ar- eða jólaleyfum frá námi erlend- is eða þá sjaldnar hin síðari ár í erindum til Reykjavíkur. Það er einmitt þegar fólk hittist sjaldan sem vart verður við miklar breyt- ingar en í mínum augum var hún síung — fram á það síðasta virtist aldurinn hafa haft lítil áhrif á Þor- björgu. Þessar gloppóttu minningar frá bernsku fram á fullorðinsár er það sem stendur upp úr þegar litið er til baka. Stundum er sagt að minn- ingar geti aldrei verið annað en ófullkomin mynd af raunveruleik- anum, en hversu ófullkomnar sem þær eru, geta þær haft djúpstæð áhrif og myndað þann raunveru- leika sem við bregðumst við. Þor- björg var í mínum minningum ákveðin festa og góð kona og góð- ar minningar gleymast ekki. Bless- uð sé minning hennar. Olafur Jón Arnbjörnsson. Kveðjuorð: Guðfinna L Guð- jónsdóttir Clausen Fædd 21. október 1905 Dáin 30. desember 1991 Enn eitt árið er liðið í aldanna skaut. Öll eiga þau það sameigin- legt að gefa okkur mönnunum tækifæri til að safna minningum úr lífshlaupi okkar í sjóð minninga er gefa lífí okkar gildi. Þannig varð mér hugsað er ég frétti lát kærrar föðursystur minnar, Guðfínnu Ingibjargar Guðjónsdóttur Clausen, Finnu, eins og við hennar nánustu kölluðum hana. Hún var skírnarvottur minn, eða svokölluð guðmóðir, og gegndi hún því hlutverki með sóma. Þegar erfiðleikar steðjuðu að vegna veikinda föður míns, tóku þau hjónin mig að sér um tíma og buð- ust til að taka mig í fóstur, en af því varð ekki. Hún sýndi það einn- ig með umhyggju sinni og hjálp- semi á meðan faðir minn var á lífi og tryggð og vináttu við móður mína og okkur systkinin, á meðan heilsa hennar og aðstæður leyfðu. Margt handbragðið lærðum við af henni og áttum henni mjög margt að þakka. Gott þótti okkur systrun- um og mömmu að leita til hennar með aðstoð við saumaskap, en á því sviði var hún mikil kunnáttu- og smekkmanneskja. Þá þótti mér einnig afar fróðlegt að hlusta á hana segja frá æskuslóðum hennar í Grunnavík, og frá lífi fólksins sem hún umgekkst mest, fjölskyldu, frændfólki og vinum. Við áttum líka oft líflegar samræður um and- leg málefni, lífið og tilvei’una. Hún trúði á líf að þessu loknu og því veit ég, að hún hefur ekki aðeins kvatt þetta líf södd lífdaga, heldur einnig hlakkað til endurfunda við sína nánustu, sem farnir voru á undan henni til æðri heima. Guðfinna Ingibjörg var dóttir hjónanna Ingibjargar Eiríksdóttur frá Oddsflöt í Grunnavík og Guð- jóns Sigurðssonar frá Múla í Þorskafirði, fjórða bamið í hópi 10 systkinna, en níu þeirra komust til fullorðinsára og var hún eina stúlkan í þeim hópi. Tveir bræður hennar lifa hana, hinir eru látnir. Hún ólst upp hjá móðurforeldrum sínum til unglingsára, en flutti þá til foreldra sinna á ísafirði, fór í vistir, eins og þá var títt með ung- ar stúlkur, og einnig lærði hún fatasaum. Ung að árum giftist hún Arin- birni Clausen vélstjóra. Stofnuðu þau heimili á ísafirði og eignuðust tvö börn, Stellu, fædd 1934, og Jens Pétur, fæddur 1939, en auk þess ólu þau upp dóttur Arin- björns, Sigrúnu, og eiga þau öll orðið stóra fjölskyldu. Finna var ákaflega myndarleg húsmóðir til allra verka og minnist ég þess, hve heimili þeirra hjóna var fallegt. Sjálf var hún glæsileg kona í ásýnd og var tii þess tekið hve tignarlega hún bar íslenska þjóðbúninginn. í upphafi síldaráranna flutti fjöl- skyldan til Siglufjarðar og átti þar heima um tíma og hafði Finna oft á orði, hve gott og gaman hefði verið að eiga heima á Siglufirði. Seinna fluttu þau svo aftur til ísa- fjarðar, en þar lést Bjössi árið 1954. Eftir það hélt hún þar heim- ili með börnum sínum um skeið, en síðar fluttu þau til Reykjavíkur. Þar bjó hún síðan. Vann hún lengst af við saumaskap og ýmislegt fleira á meðan aldur og heilsa leyfðu. Síðustu æviárin dvaldi hún á Kumbaravogi við Stokkseyri, en þar lést hún á næstsíðasta degi ársins, sem var að kveðja. Verst var, hve langt hún dvaldi frá okk- ur, sem langaði til að hitta hana. Guð geymi frænku mína og blessi minningu hennar. Innilegar samúðarkveðjur til allra hennar nánustu aðstandenda frá okkur Laufeyju, Sigrúnu og fjölskyldum okkar. Helga Magnúsdóttir Laufey Eggertsdóttir sjúkraliði - Minning - Laufey Eggertsdóttir lést 28. desember sl. Hún var fædd á Sauða- dalsá á Vatnsnesi, Vestur-Húna- vatnssýslu, 2. mars 1913, dóttir hjónanna Sesselju Benediktsdóttur og Eggerts Jónssonar er þar bjuggu. Börn þeirra voru þrettán, en fjögur létust í bernsku. Laufey ólst upp við alinenn sveit- astörf. Hún byrjaði ung að vinna eins og títt var til sveita. Skólanám var takmarkað enda aðeins unt far- skóla að ræða, sem voru 8-10 vikur á vetri og alls ekki árlega. Um fram- haldsnám var ekki að ræða hjá þorra ungntenna í byggðarlaginu. Laufey vann heima fram yfír tví- tugsaldur, en þá fór hún til Reykja- víkur og réði sig i vist. Hún var heppin með heimili, fólkið elskulegt og tók henni eins og hún tilheyrði fjölskyldunni. Árið 1938 réðst Laufey sem starfsstúlka á Landakotsspítala og má segja að þá hafi lífsstarf hennar mótast. Þótt hún væri ekki menntuð til hjúkrunarstarfa var það fljótlega sem hún fór að sinna og hlúa að þeim sjúku. Hún vann á Landa- kotsspítala fram yfir stríðsárin en þá fór hún til Danmerkur og vann á sjúkrahúsi sem tilheyrði sömu reglu og Landakotsspítali. Þar var hún í tvö og hálft ár. Jafnframt sótti hún námskeið á hjúkrunarsviði hjá Rauða krossinum í Kaupmanna- höfn. Eftir heimkomuna vann Lauf- ey áfram hjá Landakotsspítala en hætti um fimm ára skeið og réðst til Lyfjaverslunar ríkisins en fór síðan aftur til starfa á Landakots- spítala. Þegar nám sjúkraliða var tekið upp árið 1965 innritaðist Laufey í skólann og var í hópi þeirra fyrstu sem útskrifuðust þaðan. Hún vann síðan sem sjúkraliði þar til hún veiktist og varð að hætta störf- um á sjötugasta aidursári. Ég ólst upp á næsta bæ við Sauðadalsá. Það var mikil vinátta á milli fjölskyldnanna. Á uppvaxtar- árunum lágu spor okkar barnanna saman. Bernskuminningar eru því meira og minna sameiginlegar. Lönd voru þá ógirt og búpeningur- inn fór ekki eftir landamærum. Þess vegna áttum við oft erindi milli bæjanna en þó var hitt ekki síður að það var kærkomin upplyft- ing í amstri dagsins að hittast og spjalla saman. Sauðadalsárfólkið var allt gott og heilsteypt fólk. Það var velviljað, greiðvikið og ávallt tilbúið að rétta hjálparhönd ef þess væri þörf. Efni voru lítil en þó var alltaf hægt að miðla þegar með þurfti. Þessi lífsviðhorf mótuðu Sauðadalsársystkinin strax í æsku. Þegar þetta er haft í huga er það eðlilegt að Laufey skyldi gera þjón- ustustörf að lífsstarfi sínu og það við þá sem hjálparvana voru og þurftu á nærgætni og hlýju að halda. Laufeyju féllu hjúkrunarstörfin vel. Það var eins og hún væri til þeirra kölluð. Hún var alúðleg og góð við sjúklingana og margur var þakklátur fyrir þann hlýhug og kærleika sem hún lagði í störf sín. Laufey var góð kona. Hún sóttist ekki eftir þessa heims auði, en lagði mikið á sig til að gleðja og hjálpa öðrum. Hún var skapgóð og sá ávallt það jákvæða í hverjum manni. Hún ræktaði hið góða tré svo að það gæti borið ávöxt hjálpsemi og kærleika. Hún var trúuð kona og efaðist ekki um áframhaldandi líf og undir það þyrfti hver og einn að vera búinn. Þannig mótaðist líf hennar af hlýhug til allra manna. Henni var það harmur þegar fólk brást sjálfu sér eða öðrum, og gæti hún úr bætt var það gert. Við sem þekktum Laufeyju frá barnsaldri og fylgdumst með lífí hennar og starfí sáum að hún gekk ekki fram- hjá þeim sem voru hjálparþurfi. Gæti hún orðið að liði var það gert. Þetta var aðalsmerki æskuheimilis hennar og það merki hné ekki í höndum Laufeyjar. Heilsteypt og hjálpsöm kona er gengin. Hún hefur linað marga þjáninguna og veitt mörgum innri gleði og hamingju á lífsleiðinni. Og það er ekki vafí á því að hún gengr- ur inn til fagnaðar herra síns til góðs hlutskiptis á nýjum vegum. Við þökkum henni og biðjum henni guðs blessunar. Eftirlifandi systkin- um hennar og aðstandendum öllum flytjum við samúðarkveðjur. Páll V. Daníelsson. • • Þorsteinn O. Þor- steinsson — Kveðjuorð Fæddur 20. september 1939 Dáinn 27. desember 1991 Þegar jólahátíðina bar hæst lést í Reykjavík, eftir stutta en stranga banalegu, á fimmtugasta og þriðja aldursári Þorsteinn Órn Þorsteins- son. Að slíkurn manni sem Þor- steinn var er þungur harmur kveð- inn, og sáran saknað sem vinar og félaga af undirrituðum. Með örfáum orðum viljum við minnast Þorsteins, eða Steina í Sundakaffi, sem við bræðurnirnir kynntumst fyrir um það bil sex árum, er við rákumst inn í morgun- kaffi til hans ásamt Þórarni Ragn- arssyni félaga okkar. Frá fyrsta degi tókst með okkur vinátta og félagsskapur sem aldrei bar skugga á, og margan kaffibollann höfum við fjórmenningarnir síðan tekið inn í Sundakaffí og átt þæginlega stund frá erli dagsins. Þar var skipst á skoðunum um málefni líðandi stundar. Þar voru ráð þegin og gefin, léttleikinn í fyr- irrúmi, allir með svipuð mál að glíma við, sem var endalaus brunn- ur að ausa úr. Þjóðmálin borðliggj^* andi en lausnirnar urðu alltaf fjór- ar. Það sem einkenndi rekstur Steina var snyrtimennskan hvar sem á var litið svo og það notalega andrúmsloft sem hann og hans góða kona, Margrét, sköpuðu með návist sinni, en saman höfðu þau hjónin, af eljusemi og dugnaði, byggt upp fyrirtæki sem er um margt til fyrirmyndar. Það er erfitt fyrir eftirlifandi ást- vini að sjá á eftir manni sem var jafn atkvæðamikill og Steini, að skilja tilgang lífsins þegar hugrakl^. ur dugnaðarmaður fellur svo snögg- lega frá, uppfullur af hugmyndum, og kappi sem var ótrúlegt. Allt til síðustu stundar, meðvitað- ur um það sem beið hans var hann að skipuleggja reksturinn, fullur eldmóðs, áhuga og óslökkvandi bjartsýni. Við vottum Margréti, börnunum, tengdabörnum og barnabörnum okkar dýpstu samúð. Páll og Rúnar Garðarssynir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.