Morgunblaðið - 08.01.1992, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 08.01.1992, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1992 H .Bgsagði'þérc&égyr&ö abelns fátmum minútam ofðein." * Ast er... ... eins og tónverk, sem gleymist ekki. TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved c 1991 Los AngelesTimesSyndicate Heyrðu væna: Við getum ekki notað þennan spegil. HÖGNI HREKKVÍSI Páfinn genginn af trúnni Eins og kunnugt er reyndu kommúnistar með alls konar ráð- um, allt frá fúkyrðaaustri til gijótkasts, _að koma í veg fyrir inngöngu íslendinga í Atlants- hafsbandalagið. Sem betur fer tókst kommunum ekki það ætlun- arverk sitt. En áratugum saman héldu þeir áfram baráttu sinni gegn NATO í ýmsum myndum, t.a.m. með svokallaðri friðarbar- áttu. („Rússar fundu upp friðinn,“ sagði Steinn Steinarr forðum.) Þó linuðust sósíalistar og alþýðuband- alagsmenn fljótt í reynd, ef ráðher- rastólar voru í boði. En stundum, og raunar allt fram til síðustu ára, tók þessi fyrr- nefnda barátta kommanna á sig hinar furðulegustu myndir. Dæmi: Þegar járntjaldið hafði hrunið og hörmungarnar í austantjaldsríkj- unum komu í ljós, tóku ýmsir þeirra sem þangað höfðu mörgum sinnum lagt leið sína um árabil og lýst höfðu fögru mannlífi þar innfjálgum orðum, að gera hosur sínar grænar fyrir þeim Arafat og Saddam (sem löngum höfðu feng- ið vopn sín og veijur frá Sovét- inu). Stofnað var Palestínufélag og þeir sem áður höfðu lagt land undir fót í Austur-Evrópu, héldu nú til fundar við þá PLO-menn. Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hug-ur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við aö skrifa. Með- al efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttar- ins, þó að höfundur óski nafn- leyndar. Ekki verða birt nafnlaus bréf sem eru gagnrýni, ádeilur eða árásir á nafngreint fólk. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda bladsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Og um það bil sem til tíðinda var að draga við Persaflóann hófu þessi menn að lýsa því fjálglega, að börn væru hrædd við stríð o.s.frv. og nutu þarna dyggilegrar aðstoðar einstakra manna hjá ríkisljölmiðlunum. Fljótt urðu um- ræddir menn þó að skipta um skoðun, því að Sovétleiðtogarnir þáverandi neyddust til að snúa baki við þeim Arafat og Saddam, sem nú eru heldur vinafáir orðnir. En í árslok 1991 gerast stærstu tíðindin í þessum efnum. Rússar og fleiri Austur-Evrópuþjóðir hyggja á inngöngu í NATO, að sögn heimspressunnar. Hvorki meira né minna. Það má því segja að páfinn sé genginn af trúnni. Guðrún vegna ágengni fjölmiðlamannanna og þótti sem þeir færu villur vega. Þeir sem þekkja baksvið stjórn- mála og fréttamennsku eru hættir að taka nokkurt mark á slíkum furðusögum. Vekur undrun að hvað eftir annað skuli unnt að etja frétta- mönnum út i slíkan leik. xxx Um áramótin skaut nýju orði upþ í hinni stöðluðu fjölmiðla- umræðu og er það orðið bölmóður, sem allt í einu var farið að nota í tíma og ótíma. Samkvæmt Orðabók Menningarsjóðs merkir þetta orð sorg eða erfiðleika. Er það nú notað til að gera frekar lítið úr málflutn- ingi og rökum þeirra, sem sjá ástæðu til að benda á vandann í íslenskum þjóðarbúskap. Hvað skyldi þetta orð verða lengi í tísku? Skyldi notkunin breyta merkingu orðsins? Víkveiji hefur stundum áður vakið athygli á því, hvernig orðið skötuhjú er notað, tií dæmis á síðum Morgunblaðsins, þannig að það hefur nú tæplega hina fremur niðrandi merkingu sem getið er í Orðabók Menningarsjóðs. Heilræði Sjómenn. Meðferð gúmmíbjörgunarbáta er einföld og fljótlærð. Þó geta mistök og vanþekking á meðferð þeirra valdið íjörtjóni allra á skipinu á neyðarstundu. Lærið því meðferð og notkun gúmmíbjörg- unarbáta. Víkveiji skrifar Víkveiji vakti máls á því fyrir nokkrum mánuðum, að svo virtist sem þjónusta við almenning minnkaði, eftir að fyrirtækið Sorpa kom til sögunnar. Fólk yrði sjálft að annast flutning á sorpi, sem áður hefði verið sótt til þess. Enn hefur þetta sannast, þegar fyrir- mæli hafa verið gefin um að jólatré skuli flutt í gámastöðvar. Hvers vegna er ekki unnt að skipuleggja söfnun á notuðum jólatijám með öðrum hætti? Væri ekki betra að láta vörubíla aka um hverfi en stefna þúsundum ef ekki tugþús- undum manna í þessar nýju stöðv- ar? Hvað um þá, sem ekki eiga bíla? Hvers vegna er ekki samið við einkaaðila um að safna jólatijám? Borgaryfirvöld verða að grípa í taumana, áður en þetta nýja ópin- bera einokunarfyrirtæki dregur enn úr þjónustunni. xxx Furðusögur í fjölmiðlum skjóta alitaf upp kollinum öðru hveiju. A þetta ekki síst við um það, sem sumir flokka líklega undir stjórnmálaskýringar, en er í raun ekki annað en pólitískar gróusögur. Nýlegt dæmi er fjölmiðlatalið um að stjórnarandstaðan kunni að geta myndað starfhæfan þingmeirihluta á bakvið nýja ríkisstjórn í sam- starfi við einstaka þingmenn úr röðurri Sjálfstæðisflokksins. Svo virðist sem einhverjir úr stjórnarandstöðunni telji stöðu sína styrkjast með því að sögur af þessu tagi séu á kreiki. í. sjónvarpsþætti á gamlársdag létu þeir Steingrímur Hermannsson, formaður Fram- sóknarflokksins, og Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubanda- lagsins, eins og þeir hefðu einhver tök á einstökum þingmönnum Sjálf- stæðisflokksins og gætu fengið þá til samstarfs við sig. Andmælti Davíð Oddsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, því rösklega. Fjölmiðlamenn ríkisins létu sér þó ekki segjast. Snemma á föstu- dagsmorgun sáu, þeir ástæðu til að ræða við Matthías Bjarnason, þing- mann Sjálfstæðisflokksins, sem Ólafur Ragnar hampar einkum í þessu sambandi. Matthías aftók með öllu, að hann væri fús til þess að ijúfa einingu sjálfstæðismanna í því skyni að ganga til samstarfs við Ólaf Ragnar. Var auðheyrt á Matthíasi að honum var nóg boðið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.