Morgunblaðið - 08.01.1992, Side 40
PC MAGAZINE UM
IBM OS/2:
„ÞETTA ER
FRAMTÍÐIN"
MORGVNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK
SÍMI 601100, FAX 691181, PÓSTllÓLF 1565 / AKVREYRÍ: HAFNARSTIVETl 85
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Tveir ráðherrar á Alþingi:
Gerðar verði athugasemd-
ir við samningsdrög GATT
TVEIR ráðherrar Iýstu þeirri skoðun sinni á Alþingi í gærkvöldi, að
gerðar yrðu athugasemdir af hálfu Islands við ákveðin atriði landbúnað-
armála við umræður um lokatillögu framkvæmdastjóra GATT-viðræðn-
anna. Viðskiptaráðherra lýsti því þó jafnframt yfir að hann teldi að
því yrði lýst yfir, að viðleitni Arthurs Dunkels til að ná fram heildar-
lausn yrði studd, og látinn í Ijós vilji til þess að leiða viðræðurnar far-
sællega til lykta. í gær var staða íslensks landbúnaðar, með tilliti til
væntanlegra GATT-samninga, rædd utan dagskrár á Alþingi. Þing-
menn stjórnarandstöðu, sérstaklega Alþýðubandalags og Framsóknar-
flokks, settu fram harða gagnrýni á fyrirliggjandi samkomulagsdrög.
Þeir þingmenn Sjálfstæðisflokks sem til máls tóku vildu allir að Islend-
ingar geröu athugasemdir við samningsdrögin.
Fersk flök
með skipum
til Evrópu
^TILRAUNIR hafa verið gerðar
með flutning á ferskum flökum
með skipum á markaði til Eng-
lands og Þýskalands. Flökin eru
flutt í venjulegum ferskfiskgám-
um 1-3 tonn í einu og lofar út-
flutningur þessi góðu.
Sverrir Guðmundsson deildar-
stjóri þróunarseturs íslenskra sjáv-
arafurða hf. segir að ástæðan fyrir
þessum tilraunaútflutningi sé eink-
um vegna þess hve lítið framboð er
á fraktplássi í flugvélum. í máli
hans kemur fram að þokkaleg verð
fáist fyrir flökin miðað við að verið
sé að kynna nýja vöru. „Aðalatriðið
er að gæta þess að varan sé sem
^ferskust þegar henni er pakkað og
hún haldist vel í kælingunni,“ segir
Sverrir.
Sjá bls. B1
Fjörtíu þús-
und byssur
eru skráð-
-ar á Islandi
VEIÐIBYSSUEIGN landsmanna
hefur aukist hröðum skrefum
undanfarin ár og skotveiðar hafa
aukist til muna, svo að fuglafrið-
unarmenn hafa áhyggjur af
fuglalífi í landinu, að því er fram
kom í samtali við Ævar Petersen
fuglafræðing í gær. Á hveiju ári
eru 500-700 byssuleyfi gefin út.
Nú munu um 20 þúsund Islend-
ingar hafa byssuleyfi og um 40
þúsund byssur eru skráðar.
Ævar sagði ennfremur að ýmsir,
sem þekktu til, álitu að auk skráðra
skotvopna væri mikið til af óskráð-
i'.m vopnum og að á hvetju ári væri
talsvert flutt ólöglega inn af þeim.
Þessum vopnum væri óspart beitt
til veiða, einkum til fuglaveiða, sem
hafi aukist hröðum skrefu'm. Veiði-
menn væru ekki aðeins vel vopnaðir,
heldur réðu margir þeirra yfir jepp-
um, vélsleðum og fjórhjólum, sem
gera þeim kleift að komast nánast
hvert á land sem er, allan ársins
hring.
Fuglafræðingar hafa orðið
áhyggjur af veiðigleðinni og Ævar
Petersen álítur orðið mjög tímabært
að huga að þessum veiðum og friða
griðlönd fugla.
Sjá „Stórauknar veiðar ...“ á
miðopnu.
„Með nýjum reglum hefur dregið
úr framboði húsbréfa og dregið
hefur úr lánsfjárþörf ríkissjóðs, ef
tekst að halda ríkisfjármálum innan
fjárlaga. Lánsfjáreftirspurn virðist
vera heldur minni en áður, a.m.k.
mjög lítil frá fyrirtækjum. Þetta eru
þættir sem benda til þess að vextir
ættu að geta lækkað og þarna er
GATT-samningurinn var ræddur
á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun án
niðurstöðu og verður áfram til um-
Seðlabankinn að stíga h'tið skref,“
sagði Eiríkur.
Hann segir hins vegar að engar
ákvarðanir hafi verið teknar af
hálfu Seðlabankans um frekari
lækkun á kauptilboðum í spariskírt-
eini á Verðbréfaþingi. „Seðlabank-
inn fylgist með frá degi til dags,
og mótar afstöðu sína með hliðsjón
fjöllunar næstu daga. í utandag-
skrárumræðunum í gær kom fram
hjá ráðherrum að á föstudag og
af viðskiptunum sem verða. Það er
ómögulegt að segja til um hvernig
framhaldið verður en ég vænti þess
að þetta sé upphafið að frekari
lækkunum."
Kauptilboð í spariskírteini á
Verðbréfaþingi íslands voru 7,1% í
byijun sl. árs en fóru síðan hækk-
andi og náðu hámarki þann 21.
maí þegar þau urðu 8,65% eftir
hækkun á vöxtum spariskíiteina í
frumsölu. Frá þeim tíma hafa tilboð
farið smám saman lækkandi.
laugardag yrðu í Osló samráðsfund-
ir fulltrúa Norðurlandanna en á
mánudag verður lokatilboð Arthurs
Dunkels, framkvæmdastjóra GATT,
tekið fyrir og þá rennur út sá frest-
ur sem hann hefur gefið til athuga-
semda. Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði, við lok umræðnanna í
gærkvöldi, að enn væri of fljótt að
segja til um hveijar yrðu þær hug-
myndir sem Islendingar myndu
mæla fyrir þegar lokatillögur Art-
hurs Dunkels framkvæmdastjóra
GATT yrðu ræddar, en sér virtist
ljóst að þrennu væri hægt að lýsa
nú þegar. í fyrsta lagi að af íslands
hálfu yrði viðleitni Dunkels til að
ná fram heildarlausn studd og látinn
í Ijós vilji til þess að leiða þessar
viðræður farsællega til lykta. í öðru
lagi yrði tekið mjög skýrt fram að
Islendingar hyggðust halda áfram
ströngu heilbrigðiseftirliti með inn-
flutningi landbúnaðarvara. í þriðja
lagi yrði að árétta að ekki kæmi til
greina að sveiflur í gengi og verð-
lagi hefðu áhrif eða gætu valdið því
að skuldbindingum einstakra ríkja
varðandi markaðsaðgang yrði
breytt. Ráðherra tók fram að magn-
takmarkanir á innflutningi búvara
samkvæmt núgildandi GATT-samn-
ingum féllu ekki formlega út með
því viðbótarsamkomulagi sem nú
væri unnið að. Halldór Blöndal land-
búnaðarráðherra tók undir þann fyr-
irvara sem viðskiptaráðherra nefndi.
Hann sagði nauðsynlegt að fá skýr-
ari línur um það, helst ótvírætt, að
Islendingar geti staðið gegn inn-
flutningi á hráum sláturvörum. Þá
vildi hann bæta við athugasemdum
um að skilgreining á svokölluðum
grænum greiðslum yrði rýmkuð
þannig að hún næði yfir okkar stuðn-
ing við landbúnað.
Jón Helgason taldi sýnt að þessi
samningsdrög væru með öllu óað-
gengileg fyrir íslenskan landbúnað;
það yrði útilokað að framfylgja sjálf-
stæðri landbúnaðarstefnu, draga
myndi stórlega úr matvælaöryggi
þjóðarinnar. Páll Pétursson sagði að
umræðurnar sýndu að ekki væri
þingmeirihluti fyrir því að ríkis-
stjórnin léti hjá líða að setja stranga
fyrirvara við samningsdrögin. Ragn-
ar Amalds sagði að ef samnings-
drögin kæmust óbreytt til fram-
kvæmda væri ekki ofsagt að hrun
blasti við íslenskum landbúnaði.
Sjá einnig þingsíðu, bls. 25.
------»■ ♦ »-----
Banaslys
við Akranes
ÖKUMAÐUR um sextugt lést,
þegar tveir bílar, sem komu úr
gagnstæðri átt, rákust saman á
þjóðveginum við Akranes, laust
eftir klukkan 18:30 í gærkvöldi.
Okumenn voru einir á ferð og
voru fluttir á sjúkrahús. Annar var
þá látinn en hinn hlaut lítilsháttar
meiðsl. Að sögn lögreglunnar var
fljúgandi hálka þegar slysið varð.
Ekki er unnt að biita nafn hins
látna að svo stöddu.
Ti
Seðlabankinn lækkar kauptilboð í spariskírteini um 0,1%*
Vænti þess að lækkunin sé upp-
hafið að frekari vaxtalækkunum
- segir Eiríkur Guðnason, aðstoðarseðlabankastj óri
SEÐLABANKINN lækkaði í gær kauptilboð í spariskírteini á Verð-
bréfaþingi íslands, um 0,1% eða úr 8,25% í 8,15%. Eiríkur Guðna-
son, aðstoðarseðlabankastjóri segist eiga von á því að þetta sé byrjun-
in á vaxtalækkunum, en ýmis teikn séu á lofti um að lækkanir séu
framundan.