Morgunblaðið - 18.01.1992, Qupperneq 1
64 SIÐUR B/LESBOK
14. tbl. 80. árg.
LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Alsír;
Herinn sakaður um
fjöldahandtökur
Algeirsborg. Reuter.
HERMENN slógu varðhring um mosku í Algeirsborg í gær og leiðtog-
ar heittrúaðra múslima sögðu á bænafundi þar að nýju valdhafarnir
í Alsír hefðu látið handtaka 500 manns. Þeir hvöttu fólk til að halda
stillingu sinni svo ekki kæmi til blóðsúthellinga.
Moskan er í verkamannahverfi í
borginni, Bab el-Oued, einu af höf-
uðvígjum íslömsku hjálpræðisfylk-
ingarinnar (FIS), sem vann stórsig-
ur í fyrri umferð þingkosninganna
sem nýju valdhafarnir ákváðu að
aflýsa í vikunni. Leiðtogar flokks-
ins, Abdelkader Hachani og Abd-
elkader Moghni, ávörpuðu nokkur
hundruð múslima sem komust í
moskuna áður en hersveit sló varð-
hring um hana og vísaði fólki frá.
„Þessi stjórn á eftir að falla. Eg
bið ykkur að gæta ykkar og varast
að ögra henni,“ sagði Hachani í
ræðu sinni.
Einn af leiðtogum flokksins í
hverfmu sagði að herinn hefði
látið til skarar skríða gegn heit-
trúuðum múslimum og handtekið
að minnsta kosti 500 manns.
Hermenn stöðvuðu bifreiðar við
moskuna og könnuðu persónu-
skilríki vegfarenda á meðan leið-
togar FIS hvöttu fólk úr öðrum
hverfum að halda heim og „forð-
ast blóðsúthellingar".
Nokkru áður hafði Mohamed
Boudiaf, formaður fimm manna rík-
isráðs, sem fer nú með völdin í land-
inu, flutt sjónvarpsávarp og skorað
á leiðtoga heittrúaðra múslima að
nota ekki íslam í eiginhagsmuna-
skyni. „Allir verða að virða
stofnanir ríkisins og ríkisvaldinu
ber að fara að lögum,“ sagði hann.
*
Norður-Irland:
Sjö farast í
sprengjuárás
Belfast. Reuter.
SJO manns létust og sjö særðust
þegar lítil rúta var sprengd í
loft upp á sveitavegi á Norður-
írlandi í gær. Er þetta mann-
skæðasta árás hryðjuverka-
manna á óbreytta borgara i land-
inu síðan ellefu manns fórust er
sprengja sprakk við minningar-
athöfn í Enniskillen árið 1987.
í bifreiðinni voru iðnverkamenn
á ferð milli bæjanna Omagh og
Cookstown í Tyrone-sýslu. Tals-
maður lögreglu segir að sprengjan
hafi annaðhvort verið grafin í veg-
inn eða henni hafi verið komið fyrir
í vegarkantinum. Um 100 m löng
leiðsla lá frá sprengjunni að stað
þar sem sjá mátti yfir veginn. Telur
lögreglan því að ætlunin hafi verið
að sprengja þennan tiltekna bíl í
loft upp.
Talið er að fórnarlömbin hafi
unnið við viðgerðir í herstöð í
Omagh. í gærkvöld lýsti írski lýð-
veldisherinn ábyrgð á hryðjuverk-
inu á hendur sér en IRA hefur lengi
litið á byggingaverkamenn í þjón-
ustu Breta sem réttmæt skotmörk.
Árásin í gær kemur í kjölfar
þess að bresk stjórnvöld ákváðu að
auka liðsstyrk sinn í Belfast um
1.000 manns til að beijast gegn
sprengjuherferð IRA í borginni.
Mohamed Boudiaf kom til Alsírs í
fyrradag eftir 27 ára útlegð.
Herflugvélar flugu yfir Bab el-
Qued og hermenn voru í iyrsta sinn
sendir til hafnarinnar og brautar-
stöðvarinnar í Algeirsborg. Skrið-
drekasveitir hafa verið á verði við
mikilvægar opinberar byggingar í
borginni frá því valdhafarnir
ákváðu að aflýsa síðari umferð
kosninganna sem átti að fara fram
á fimmtudag.
Islamska hjálpræðisfylkingin á
nú í viðræðum við Frelsisfylking-
una, sem var áður við völd í landinu
og hefur sagt að nýju valdahafarn-
ir hafi brotið gegn stjórnarskránni
með því að aflýsa þingkosningun-
um.
Reuter
Múhameðstrúarmenn í Istanbul í Tyrklandi sýndu í gær samstöðu með íslömskum heittrúarmönnum í
Alsír. Nokkur hundruð manns söfnuðust saman og meðal annars var franski fáninn brenndur. Fundur-
inn fór friðsamlega fram að öðru leyti.
Hætta á borgarastyrjöld í Georgíu;
Blóöi verður úthellt vegna
endurkomu Gamsakhurdia
- segir einn af núverandi valdhöfum
Tbilisi, Moskvu. Reuter.
MIKIL spenna ríkir nú í Georg-
íu og hættan á borgarstyrjöld
er talin hafa aukist eftir að
Zviad Gamsakhurdia, sem hrak-
inn var úr forsetaembætti fyrir
tæpum tveimur vikum, sneri
aftur til lýðveldisins á fimmtu-
dag. Einn af núverandi valhöf-
um, Georgíj Tsjanturia, leiðtogi
Þjóðernislýðræðisflokksins,
sagði á fréttamannafundi í gær
að tilraunir Gamsakhurdia
Reuter
Friðargæsla hefst
Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna settu upp sínar fyrstu búðir
í Króatíu í gær. Gert er ráð fyrir því að í kvöld verði 45 starfsmenn
SÞ búnir að koma sér fyrir á ellefu stöðum nærri víglínunni sem
skilur að Króata og sambandsher Júgóslavíu. Á myndinni sjást frið-
argæslumennirnir þrír sem verða í nágrenni bæjarins Karlovac.
Með þeim er króatískur hermaður.
myndu kosta blóðsúthellingar
en þær væru dæmdar til að
mistakast.
Talið er að Gamsakhurdia hafíst
við í borginni Zugdidi í héraðinu
Megrelía þar sem hann er upp-
runninn og nýtur mikils stuðnings.
Hefur hann haldið þar fjöldafund
og hvatt til uppreisnar gegn nýju
valdhöfunum. Vill hann að menn
vígbúist og haldi til Tbilisi til að
steypa stjórninni.
Einn aðstoðarmanna Jaba Iosel-
iani, annars tveggja leiðtoga her-
ráðsins sem nú fer með völd, sagði
við georgíska blaðamenn í gær að
um ijögur hundruð manna vopnuð
sveit hefði haldið áleiðis til vestur-
hluta lýðveldisins í rútum og fólks-
bílum. Hann sagði að herráðið
hefði ekki í hyggju að efna til
átaka heldur væri ætlunin að
„koma vitinu" fyrir stuðnings-
menn Gamsakhurdia. Talið er að
sveitirnar ætli að halda til borgar-
innar Kutaisi sem er í um sextíu
kílómetra fjarlægð frá Zugdidi og
eigi að stöðva allar tilraunir liðs-
manna Gamsakhurdia til að nálg-
ast Tbilisi.
Að sögn TASS-fréttastofunnar
var allt með kyrrum kjörum í
Kutaisi og nágrannabænum Sam-
tredia í gær eftir að þar hafði
verið lýst yfír neyðarástandi.
Símasambandslaust hefur verið
við vesturhluta Georgíu og að sögn
rússneska sjónvarpsins hefur öll
lestaumferð þangað verið stöðvuð.
Georgískir embættismenn í
Moskvu sögðust telja að allt að
fímmtungur íbúa lýðveldisins
styddi Gamsakhurdia. Þeir benda
meðal annars á að forsetinn fyrr-
verandi hafi tangarhald á öllum
útvarpssendingum í vesturhluta
landsins og geti því hugsanlega
styrkt enn frekar stöðu sína í þess-
um landshluta þar sem hann fékk
yfírgnæfandi stuðning í forseta-
kosningunum í maí í fyrra. Út-
varps- og sjónvarpsútsendingar
frá Tbilisi ná ekki til stórra svæða
í lýðveldinu og eiga því nýju vald-
hafarnir erfitt með að koma sjón-
armiðum sínum á framfæri.
Rúmlega sex þúsund stuðnings-
menn Gamsakhurdia gengu fylktu
liði að höfuðstöðvum georgíska
sjónvarpsins í Tbilisi í gær. Eftir
að varðmenn skutu viðvörunar-
skotum upp í loftið leystist fylking-
in hins vegar upp og ekki kom til
blóðsúthellinga.
Mannfall í
Uzbekistan
Moskvu. Reuter. The Daily Telegraph.
TVEIR námsmenu létust og tug-
ir særðust í höfuðborg Uzbe-
kistans, Tashkent, í gær þegar
lögregla skaut á fólk sem mót-
mælti verðhækkunum í landinu.
Óeirðirnar byijuðu um kvöld-
matarleytið á fimmtudag þegar
lögregla reyndi að dreifa hópi
námsmanna sem mótmælti verð-
hækkununum. Að sögn Tass-frétt-
astofunnar hefur nefnd verið skip-
uð til að rannsaka atburðina undir
forystu Abdulkhashims Mutalovs
forsætisráðherra.