Morgunblaðið - 18.01.1992, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.01.1992, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992 fólk í fréttum Ahugasamir bingospilarar. Morgunblaðið/Steinunn Osk Kolbeinsdóttir FELAGSSTARF Krakkamir skemmtu þeim eldri á Hvolsvelli að var þröngt setinn bekkurinn á hinni árlegu fjölskylduhátíð hjá félagsmiðstöðinni Tvistinum, föstudagskvöldið 10. janúar sl., sem Keppendur í hæfíleikakeppninni. haldin var í félagsheimilinu Hvoli. Þá skemmtu krakkar á öllum aldri, systkinum, ömmum, öfum, foreld- rum, vinum og fleira fólki af hjart- ans lyst. Hátíðin hófst með bingóspili og voru glæsilegir vinningar í boði sem fyrirtæki á staðnum gáfu. Þá sýndu nemendur í dansskóla Auðar Haralds dans. Krakkar frá 6 ára til 16 ára sýndu góða takta, hvort heldur um var að ræða fingrapolka eða rokk. Hápunktur kvöldsins var svo hæfi- leikakeppnin. Að þessu sinni sýndu þátttakendur söngleikni sína við við undirleik Smára Eggertssonar. Sigurvegarar að þessu sinni voru þau Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir og Árni Þór Guðjónsson. Þau eru bæði tólf ára og sungu sig inní hjörtu áheyrenda með laginu Játningu. Sigfús Halldórsson samdi lagið en Tómas Guðmundsson gerði ljóðið. Sigurlaunin voru peningainnistæða í Landsbankanum á Hvolsvelli. Að lokum var dansað við dynjandi undirleik hljómsveitarinnar Munkar í meirihluta. - S.Ó.K. Barnaskór -JPf! Barnaföt TILBOÐSDAGAR Hefjast f dag 30 - 50% afsláttur af olfum vörum í búðinni. ÚLPUR, BUXUR, PEYSUR, NÆRFÖT, SKÓR O.M.FL. VANDAÐUR FATNAÐUR. FRÁBÆR VERÐ. Opið laugard. kl. ÍO00 - 1600 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS X & z BARNAFATAVERSLUN SKÓL.AVÖRÐUSTÍG 6B, SÍMI 621682 Alls kyns Óvættir voru á vappi. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson VESTMANNAEYJAR Fjölmenni á þrettándagleði Vestmannaeyjum. Mikill fjöldi Eyjamanna tók þátt í þrettándagleði sem Knattspyrnufélagið Týr stóð fyrir í Eyjum á mánudag. Jóla- sveinar fóru blysför um bæinn og álfar, púkar og tröll stigu dans á íþróttavellinum ásamt Grýlu og Leppalúða. Týr hefur séð um þrettánda- gleðina í Eyjum í áratugi og eru hátíðarhöldin ávallt með svipuðu sniði. Flugeldasýning hófst klukk- an átta og um leið tendruðu jólasveinar kyndla sína á Hánni, fjalli vestan við bæinn. Þeir gengu síðan fylktu liði til bæjar- ins þar sem bæjarbúar biðu þeirra og gengu með þeim um bæinn við undirleik og söng. Á íþróttavellinum var síðan stiginn álfadans og þar sýndu sig alls konar furðudýr og tröll að ógleymdum hjónunum Grýlu og Leppalúða. Frá íþróttavellinum var síðan gengið til Sjúkrahússins en síð- an héldu jólasveinarnir og fylgdarlið til fjalla á ný þar sem þau dvelja í hellum sínum til næstu jóla. Ágætisveður var þegar hátíð- arhöldin fóru fram og var þátt- taka Eyjabúa með mesta móti. Grímur Alfakóngvr og drottning ásamt fríðu föruneyti. COSPER - Þú getur sparar þér að ganga í svefni í nótt, vinnu konan er í fríi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.