Morgunblaðið - 18.01.1992, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992
7
Þórshöfn:
Biðröð í lönd-
unarkranann
Þórshöfn.
SÍÐASTI blærinn af jólaróleg-
heitunum sópaðist af mönnuni
í einu vetfangi sl. sunnudag. Þá
lönduðu hér fjórir bátar loðnu
og síld í sunnanblíðu. Þá varð
langur vinnudagur hjá löndun-
armönnum en þeir eru ýmsu
vanir og kalla ekki allt ömmu
sína.
Þórshamar landaði tæpum 300
tonnum af síld, Gullberg og Húna-
röst u.þ.b. 620 tonnum hvor af
loðnu og Örninn var einnig með
loðnu, fullfermi eða rúm 730-
tonn.„Loðnuverksmiðjan er því
keyrð á fullum afköstum núna og
fara þá um 500 tonn í gegn á
sólarhring," sagði Hilmar Þór
Hnuplaði
vörum
frá Bónus
KONA á fimmtugsaldri var
handtekin í versluninni Bónus
á fimmtudag. Hún var með
mikið af vörum innan klæða og
enn fleiri fundust í bifreið
hennar fyrir utan.
Konan hafði farið inn í verslun-
ina með innkaupapoka frá Hag-
kaup. Hún fyllti hann og gekk út
úr versluninni án athugasemda.
Þá ákvað hún að fara aðra ferð,
en í þetta sinn stakk hún vörum
inn á sig. Starfsmaður verslunar-
innar veitti þessu athygli. Þegar
konan var stöðvuð kom í ljós að
hún hafði stungið á sig fjórum
túbum af handsápu, tveimuv
krukkur af hunangi, tveimur
plastpokapökkum, tveimur pökk-
um af bjúgum, þremur pökkum
af nautagúllasi og tveimur tann-
kremstúbum. í bifreið konunnar
fyrir utan verslunina fannst af-
rakstur fyrri ferðar hennar, tvær
rauðkálskrukkur, sex rafhlöður,
tveir brúsar af rakkremi, tvær
hunangskrukkur, tveir pakkar af
plastpokum, tvær krukkur af
kaffi, tvær túbur handáburðar og
tvær tannkremstúbur.
Konan viðurkenndi að þetta
væri ekki í fyrsta sinn sem hún
hnuplaði úr verslunum. Hún gat
ekki skýrt hegðan sína, en sagði
að ekki væri um fjárhagsvandræði
hennar að ræða.
-♦ ♦ ♦
Hótel hafi ekki
kröfur á farþega
- segir Wilhelm Wessman formaður SVG
„ÁN þess að vita nákvæmlega um lagalegu hliðina á slíkum málum,
þá finnst mér það i raun almenn skynscmi að hótclin eigi ekki að
geta haft kröfur á farþega, sem greitt hafa ferðina, heldur aðeins á
það fyrirtæki, sem tekið hefur við greiðslunni og ekki komið henni til
skila,“ sagði Wilhelm Wessman, formaður Sambands veitinga- og gisti-
húsa, er Morgunblaðið spurði hann hvaða reglur giltu á Islandi í tilfell-
um sambærilegu því, sem íslenskir ferðamenn á vegum ferðaskrifstof-
unnar Veraldar, standa nú í á Kanaríeyjum.
„Mér þykir líklegast að farið væri hótelgestum væri hent út af hótelum
Örninn við löndunarkranann.
verksmiðjustjóri.
I Hraðfrystistöðinni vinna um
50 manns en undanfarna daga
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
hefur afli heimabáta verið lítill
enda mjög fáir að róa.
- L.S.
venjulega leið og gerð væri krafa í
þrotabú ferðaskrifstofunnar. Eftir
því sem ég best veit og þekki til í
nágrannalöndum okkar, væri ekki
gengið að ferðamönnunum sjálfum,“
sagði Wilhelm.
Hann sagðist ekki vita til þess að
vegna slíkra aðstæðna. Ef hótelin
teldu að ferðaskrifstofurnar væru
lélegir viðskiptavinir, þá ætti að
krefjast fyrirfram greiðslu. Þetta
væri ekki mál ferðamannanna heldur
eingöngu þess aðila, sem svikist hefði
undan að koma greiðslunni til skila.
Utanríkisráð-
herrar Norð-
urlanda funda
í Reykjavík
FUNDUR utanríkisráðherra
Norðurlanda verður haldinn í
Reykjavík 20. og 21. janúar. A
dagskrá fundarins eru ni.a.
málefni Rússlands og annarra
ríkja i fyrrum Sovétríkjunum,
ástandið á Balkanskaga, Mið-
austurlönd og Suður-Afríka og
Ráðstefnan um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu.
Auk Jóns Baldvins Hannibals-
sonar, utanríkisráðherra, munu
Uffe Ellemann-Jensen, utanríkis-
ráðherra Danmerkur, Paavo Váy-
rynen, utanríkisráðherra Finn-
lands, Thorvald Stoltenberg, utan-
ríkisráðherra Noregs, og Margar-
etha af Ugglas, utanrikisráðherra
Svíþjóðar, sitja fundinn.
Þú svalar lestrarþörf dagsins _
' sjöum Moggans!
VIÐSKIPTAVINIR
SPARISJÓÐANNA
HAFA VINNINGINN
HÆSTA
ÁRSÁVÖXTUN Á
INNLÁNSREIKNINd.
Hæsta ársávöxtun á innlánsreikningum hjá
bönkum og sparisjóðum kom í hlut þeirra sem
skipta við sparisjóðina.
Annað árið í röð hefur þannig
reynslan sýnt að þeir sem vilja
ávaxta sparifé á innláns-
reikningum geta borið mest úr
býtum hjá sparisjóðunum.
Hafðu þetta í huga árið 1992.
Komdu til okkar
-hjá sparísjóðunum.
SPARISJÓÐIRNIR
fyrir þig og þína