Morgunblaðið - 18.01.1992, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.01.1992, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992 Billy bjargvættur Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Bíóborgin: Billy Bathgate Leikstjóri Robert Benton. Handrit Tom Stoppard, byggt á skáldsögu E.L. Doctorow. Kvikmynda- taka Nestor Almendros. Aðalleikendur Dustin Hoffman, Nicole Kidman, Lauren Dean, Bruce Will- is, Steven Hilí. Bandarísk. Touchstone 1991. Líkt og söguhetjan í GoodFellas, á táningurinn Billy Bathgate (Dean), sér þann draum heitastan að verða gangster. Enda kreppan í hámarki og þeir einu sem berast á og eiga aur eru gangsterar. Fremst- ur í flokki þeirra er undir- heimakóngurinn Dutch Schultz (Hoffman) og af bragðvísi kemur Billy sér í mjúkinn hjá honum og er tekinn í hópinn sem vika- piltur. Schultz þarf að ryðja úr vegi Weinberger (Willis), einum sinna hægrihandar- manna, en heldur eftir glæstri vinkonu hans, Preston (Kidman). Þegar Schultz er leiddur fyrir rétt vegna skattsvika fær Bath- gate m.a. það verkefni að hafa ofanaf fyrir ungfrú Preston og verður sú ákvörðun afdrifarík. Afar áferðarfallegt glæþadrama, útlitið er óað- finnanlegt — allt frá glæsi- vögnunum og íburðarmikl- um vistarverunum til munstranna í þverslaufun- um. Og það er ekkert smá- menni sem fangar and- rúmsloft ú'órða áratugarins á filmuna, heldur enginn annar en einn snjallasti kvikmyndatökustjóri okkar Brellur og bófahasar Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Háskólabió: Brellubrögð 2 - „FX 2“. Leikstjóri Richard Franklin. Aðalleikendur Bryan Brown, Brian Dennehy, Rachael Ticot- in, Joanne Gleason, Phil Bosco. Bandarísk. Orion 1991. Hér segir í annað sinn af brellumeistaranum snjalla, Bryan Brown, og viðskiptum hans við lag- anna verði og óþjóðalýð New York-borgar. Hann verður við ósk lögreglunnar og setur upp útsmogna brellugildru til að koma lög- um yfír hættulegan morð- ingja sem er ný sloppinn úr fangelsi. Kauði býtur á agnið en allt fer úrskeiðis og fyrr en varir er Brown flæktur í grunsamlegt sam- særi innan lögreglunnar. Leitar hann hjálpar Denn- ehys, síns gamla félaga (úr FX), og með aðstoð hans og brellnanna leysir hann málið á elleftu stundu. FX gekk betur en menn þorðu að vona, einkum sök- um ágætra brellna og eins eru þær það ásjálegasta í framhaldinu. Söguþráður- inn fylgir frummyndinni lengst af dyggilega en er mun tætingslegri og hefð- bundinni framvindu varpað fyrir róða um miðja mynd. Framan af er FX 2 prýðileg- ur þriller en eftir vendi- punktinn, mistök sem kosta lífíð lögreglumann (barns- föður og fyrrum eiginmann kærustu Bryans, svo ekki vantar dramatíkina), breyt- ist myndin nánast í farsa með hinum hugvitssamleg- ustu brellum. Einkum atrið- ið í verslanamiðstöðinni, þegar Bryan hagnýtir sér bragðarefskunnáttu sína úr kvikmyndaheiminum til að leika á morðingja sem hann er að flýja. En myndin er svo lauflétt og léttvæg að stílbrotin koma ekki að sök, FX 2 er ekki ætlað stærra hlutverk en að vera sóma- samlegt stundargaman og tekst það. Brögðin, þó þau séu oft aðeins bragðanna vegna, standa vel fyrir sínu og helstu karlleikararnir eru sjóaðir bragðarefír. Leik- stjórinn er kunnur fyrir vel frambærilegar B-myndir. VITASTIG 3 SÍMI623137 Laugard. 18. jan. Opið kl. 23-03. KK-BLÚS '92 KK-SÖNGUR, GÍTAR, ELLEN KRISTJÁNSDOTTIR, SÖNGUR, EYÞÓR GUNNARSSON, HLJÓMBORÐ, ÁSGEIR ÓSKARSSON, TROMMUR, ÞORLEIFUR GUÐJÓNSSON, BASSI, ATH. HÚSIÐ OPNAÐ KL. 23 V/EINKASAMKVÆMIS ÞETTA VERÐUR BRJÁLÆÐISLEGA HRESSTLAUGARDAGSKVÖLD! engum likur! GÖMLU DANSARNIR í HREYFILSHÚSINU í kvöld kl. 21-02. Pantanir í síma 34090 frá kl. 18.00-20.30 og við innganginn. Siffi og félagar. Söngkona Kristbjörg Löwe. Allirvelkomnir. Elding. Atriði úr Billy Bathgate, nýjustu mynd Roberts Benton, tíma, Nestor Almendros. Sagan er bæði ljót og fög- ur. Hún snýst í kringum hinn illræmda Dutch Scultz, hefst þegar farið er að halla undir fæti hjá þessum sögu- fræga glæpajöfri. Aðrar persónur eru flestar skáld- skapur hins góðkunna rit- höfundar E.L. Doctorow og leikritaskáldið Tom Stopp- ard hefur skrifað kvik- myndagerð skáldsögunnar. Valinn maður í hverju rúmi. Listilega fléttað saman hroðaverkum glæpaflokks- ins og ljúfri hrifningu ungl- ingsins og glæponadúkk- unnar Preston. Hoffman fer á kostum sem fyrr og yfírgnæfir aðra ágætisleikara. Nærvera hans er svo sterk að maður fínnur fyrir henni þó hann sé ekki í mynd. Hunn lumar ætíð á ferskum töfrabrögð- um, nú er það m.a. ný rám og gróf rödd sem hann beit- ir við persónusköpunina. Dean er aðlaðandi leikari í sínu fyrsta stórhlutverki skynsams stráks sem hélt sig vera einn af milljón og geta „lært til glæpons“, en fékk sig fullsaddan. Kidman er glæsileg og trúverðug sem viðhald stórglæpona sem segir reyndar að þeir séu “gangsterarnir henn- ar“. Gamalkunnur góðleik- ari úr ijölda aukahlutverka, Steven Hill, fer hér með veigamikið hlutverk „fjár- málastjóra" Schultz, og farnast það með prýði. Sama má segja um Willis í bitastæðu smáhlutverki. Benton heldur endunum saman og skapar sterka og forvitnilega mynd með mögnuðum leik og stórkost- legum atriðum. Minnir meira að segja á meistara Hitchcock í listilega vel gerðu og klipptu spennuatr- iði á veðreiðunum. Honum hefur tekist með sínu frá- bæra fólki að gera BiIIy Bathgate „öðruvísi", bæði fyndna, grimma og Ijúfa í senn. Það hefur ekki verið meiningin að skrá hér nýjan kafla í kvikmyndasöguna en ætlunarverkið tekst, að segja litla, góða sögu á fag- legan og hreinskiptinn hátt. Heimnii m skemmtir gestum Rauða Ijónsins í kvöld Snyrtilegur klæðnaður café opiö í kvöld kl. 11-3 850 kr. Þroskasaga Henrys Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Mál Henrys („Regarding Henry“). Sýnd í Háskóla- bíói. Leikstjóri: Mike Nichols. Aðalhlutverk: Harrison Ford, Annette Bening, Bill Nunn, Mikki Allen, Donald Moffat og Nancy Marchand. Það er dálítið kaldrana- legt en forsendurnar sem melódramað Mál Henrys gefur sér eru þær að til að uppi níunda áratugarins sjái að sér í tilfinningaleysi og fégræðgi og taki að meta hin raunverulegu lífsins gæði, sem myndin segir okkur að er heiðarlegt fjöl- skyldulíf, þarf hann að fá skot í höfuðið. Þetta er nákvæmlega það sem kemur fyrir Harrison Ford í Máli Henrys. Hann leikur samviskulausan stór- fyrirtækjalögfræðing og alls engan „vin litla manns- ins“. Við sjáum hann fyrst troða í svaðið bláfátækan mann sem vill ná fram rétti sínum gegn moldríku sjúkrahúsi. Fjölskyldu sína þekkir Harrison aðeins af afspurn enda virðist lítil dóttir hans þunglynd. Allur tíminn fer í framann, glæsta en kannski ekki heiðarlega sigra, samkvæmi og limósínur. Kvöld eitt fer hann út í sjoppu að kaupa sígarettur og er skotinn í höfuðið af vopnuðum þjófum. Hann lif- ir það af en missir minnið og lamast. Hann gengur í barndóm og þarf að læra að tala og ganga upp á nýtt, kynnast vinum sínum og vinnu á ný og ekki síst eiginkonu og dóttur. Mál Henrys er tilfinn- ingadrama en það er ósköp lítið af raunverulegum til- finningum í henni. Hún er fagmannlega gerð og af góðum hug en kemur ein- hvern veginn svo sáralítið við mann. Persónurnar eru yfirborðskenndar og mynd- in er fyrirsjáanleg og efnið verður aldrei nein opinber- un. Harrison er líka heldur ósannfærandi í hlutverkinu, ekki endilega af því hann sýnir vondan leik heldur miklu frekar af því hann er ekki rétti maðurinn á rétt- um stað. Maður er vanur því að stormi að honum í spennumyndum en það er eins og dragi niður í honum í tilfinningaleiknum. Leikstjóranum Mike Nichols tekst best upp í smáatriðunum, lýsingunni á flottræfilshætti hinna ríku, smjaðrinu og falshluttekn- ingunni og óttanum við að færast niður á við í mann- virðingarstiganum. Hann hefur gert það sem kalla má mjúka mynd sem vili benda á önnur gildi en þau sem felast í sífelldu velmeg- unarkapphlaupi. Harrison Ford er Gordon Gekko úr „Wall Street“ í byijun en undir lokin er hann snúinn frá villu síns vegar og orð- inn hinn fullkomni mjúki maður. Það tók skot í höfuð- ið. En reynið það ekki heima hjá ykkur. Laugavegi 45 - s. 21 255 I kvöld: Nýjasta rokkbandið í bransanum: smmmm Richard Scobie, Björgvin Ploder, Einar Dagur Hilmarsson, Sigurður Kristinsson Fostud. 24. jan. viNinúnn Sérstakur gestur: HELGIBJÖNNSSON Laugard. 25. jan. SÁLINHBNS S I 4 BJ K Inni á Nausti aldrei þver ánægjunnar sjóður. Þorramatur þykir mér þjóðlegur og góður. ÞORRAHLADBORD Við tökum forskot ó þorrann og bjóðum glæsilegt þorro- hlaðborð okkar fró og með laugardeginum 18. janúar. Vinsamlegast athugið að vegna mikillar aðsóknar þarf að panta borð tímanlega. Vesturgötu 6-8, Reykjavík. Borðapantanir í síma 17759. _________Hefst kl. 13.30 Aðalvinninqur að verðmæti j________100 þús. kr. _______ Heildarverðmæti vinninqa um 300 þús. kr. TEMPLARAHOLLIN Eiríksgötu 5 — S. 20010

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.