Morgunblaðið - 18.01.1992, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.01.1992, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1992 Erlendur Vilmundarson frá Löndum - Minning Fæddur 26. október 1928 Dáinn 13. janúar 1992 Mig langar til að minnast lítillega góðs manns, sem ég kynntist lítil- lega fyrir nokkrum árum, þegar við vorum saman á námskeiði í mann- legum samskiptum. Ég var leiðbein- andi í smá hóp og sagði nú oft að Eili gæti haldið svoleiðis námskeið sjálfur því að hann var gull af manni. Aldrei lét hann sig vanta á fund eða millifund heima hjá mér. Oft sagði hann okkur hinum frá ýmsu skemmtilegu sem komið hafði fyrir hann og hans nánasta. Elli átti tvö böm með konu sinni, Helgu Sigurðardóttur, Ástu og Guð- mund, fyrir átti Helga einn son. Ég er svo heppin að hafa kynnst Guðmundi og konu hans Margréti og kalla þau vini mína, mér sýnist að Gummi hafi erft sitthvað af eigin- leikum föður síns. Elli veiktist seint á haustdögum af illkynja sjúkdómi og var lagður inn á sjúkrahús, hann barðist hetjulega og ætlaði sér að komast aftur heim. En því miður sigraði sjúkdómurinn og Elli fór ekki heim eins og hann ætlaði sér. Elsku Helga mín og fjölskylda, Ásta, Jón, Gummi, Magga, Énok og Elli litli, megi algóður Guð lýsa ykkur í hinu mikla myrkri sorgar- innar og blessa minninguna um góðan mann. Fjóla. í dag kveðjum við frá Ytri-Njarð- víkurkirkju kæran vin og góðan dreng, Erlend Vilmundarson frá Löndum, Grindavík. Erlendur háði baráttu sína við banvænan krabbameinssjúkdóm með opin augu, af karlmennsku, sem honum var meðfædd, ákveðinn í að standa svo lengi sem stætt væri. Þegar hann sá hvert stefndi tók hann því með æðruleysi, ræddi það og gerði sínar ráðstafanir og dó sáttur við lífið. Erlendur var sonur hjónanna Guðrúnar Jónsdóttur og Vilmundar Árnasonar, útvegsbónda frá Lönd- um í Staðarhverfi. Guðrún fæddist 12. júlí 1891 í Stærri-Bæ í Gríms- neshreppi, en var ung að árum send í fóstur að Litlagerði í Staðar- hverfí. Hún lést 4. ágúst 1958. Vil- mundur fæddist 12. mars 1884 á Sperðli í Landeyjum, en fluttist með foreldrum sínum aldamótaárið, fyrst til Krýsuvíkur, en sjö árum síðar að Húsatóftum í Staðarhverfí í Grindavík. Þar kynntust þau, giftust og reistu nýbýlið að Löndum, sem var tæpra 38 fermetra einbýlishús og eignuðust þar á næstu þrjátíu árum þrettán börn. Tólf þeirra kom- ust til fullorðinsára en eitt dó í frum- bernsku. Vilmundur lést 23. janúar 1975. Systkinin að Löndum voru þijár stúlkur, ein þeirra er látin, og tíu drengir og eru sjö þeirra látnir. Það eru því aðeins fimm eftir á lífi af þessari dugmiklu fjölskyldu, þar sem mannkostir voru í sérhveijum meðlim og stóð hún ávallt saman sem einn maður. Það myndi víst mörgum nútíma- manninum hrjósa hugur við þann aðbúnað að búa svo þröngt, að tæp- ir þrír fermetrar að grunnfleti væru ætlaðir á hvern einstakling, en þröngt máttu sáttir sitja enda var góðvild og umburðarlyndi aðals- merki þessarar fjölskyldu. Máltækið segir „það sem byijar illa, það endar vel“ en það hljóta að hafa svifíð góðir andar yfír nýbýl- inu Löndum, því efniviður þess hús átti sér merkilega forsögu. Þann 26. júní 1881 strandaði James Town, tröllaskipið mikla við Þórshöfn á Suðumesjum og úr því kom meiri timburreki en menn hafa áður haft spurnir af við íslandsstrendur. Úr því var fyrst byggt timburhús í Kirkjuvogi í Höfnum, það síðan rifíð og efnið flutt að Stað, af séra Oddi Gíslasyni, presti og slysavarnafröm- uðinum mikla, en hann reisti þar hús, sem Vilmundur síðar keypti til niðurrifs og byggði úr að nýju að Löndum. Þegar hann síðan brá búi, árið 1946, og flutti til Reykjavíkur, hafði hann með sér James Town- efniviðinn úr Löndum og byggði sér hús í Blesugrófínni í Reykjavík. Fjöldamargir aðrir um Suðumes nýttu sér skipreka þennan og endur- nýttu á sama hátt. Því hefur löngum verið haldið fram að aldamótakynslóðin, sem stóð af sér harðindin hér á Fróni og við eftirlifendur emm komnir af, hafí verið sterkur kjarni, því hún stóð af sér freistingarnar að yfír- gefa fóstuijörðina og flytjast til gósenlanda vesturheims, eins og Islendingar gerðu í þúsunda tali. Systkinin að Löndum þráðu menntun eins og eðlilegt var, en til þess máttu þau ganga fjörur og þræða hraunjaðra um fímm kíló- metra leið til Járngerðarstaðar- hverfis, í hvernig veðri sem var, en vinur minn Erlendur naut þess þó tvö síðustu árin á barnaskólaaldri, að ljúka náminu við Austurbæjar- skólann í Reykjavík, þar sem hann fékk að dvelja hjá þeim sæmdar- hjónum Lúther Hróbjartssyni, um- sjónarmanni skólans, og konu hans, Steinunni Jónsdóttur, en hún var móðursystir Erlendar. Þess má geta að okkar ágæti póst- og símstöðvar- stjóri í Keflavík, Björgvin Lúthers- son, er sonur þessara hjóna. Elli, eins og við vinir hans og kunningjar kölluðum hann, ólst upp jöfnum höndum við búskap og sjó- sókn og fór til að mynda fyrst til sjós með bróður sínum, Guðvarði skipstjóra, á síldveiðar sem hjálpar- kokkur, þá aðeins níu ára gamall. Þegar hann komst á legg reri hann á bátum héðan af Suðurnesjum, frá Vestmannaeyjum og á Kveldúlfs- togaranum Þórólfi og Jóni forseta frá Reykjavík. Hann vann einnig um skeið við gerð Reykjavíkurflug- vallar og við Hitaveitu Reykjavíkur. Það duldist engum sem tók í hlýja hönd Ella, að þar fór karlmaður sem unnið hafði hörðum höndum, enda voru þær bæði stórar og sterkar. Elli kvæntist eftirlifandi konu sinni, Helgu Sigurðardóttur, þann 17. júní 1955. Hún er dóttir þeirra sæmdarhjóna Ástríðar Stefánsdótt- ur og Sigurðar B. Gunnarssonar, bónda og smiðs í Litla-Hvammi í Dyrhólahreppi í Mýrdal, þar sem Sigurður var um langt árabil odd- viti sveitarfélagsins. Ástríður var einnig um langt árabil organisti í Skeiðflatarkirkju þar í sveit. Þau eignuðust fjögur börn. Helga eign- aðist einn son fyrir hjónaband, Sig- urð Árnason, viðskiptafræðing hjá Reykjavíkurborg. Hann er kvæntur Unu Bryngeirsdóttur og eiga þau tvö börn og eru búsett í Reykjavík. Sigurður ólst upp hjá afa sínum og ömmu í Litla-Hvammi og var þeirra augasteinn, en þó hefur alla tíð ver- ið mikill samgangur og mikil ástúð á milli hans, móður hans og stjúp- föður, sem þótti alltaf vænt um hann og leit á hann sem sinn eigin son. Börn Helgu og Ella eru Ástríð- ur, sambýlismaður hennar er Jón A. Gunnlaugsson, sjómaður, og búa þau í Njarðvík, og Guðmundur Jón, símsmiður, kvæntur Margréti óskarsdóttur, þau eiga tvö böm og eru einnig búsett í Njarðvík. Helga og Elli hófu fyrst búskap í Keflavík, en keyptu sér síðan íbúð að Hólagötu 35 í Njarðvík, en þar kynntumst við hjónin síðla árs 1956 er konan mín og ég keyptum íbúð að Hólagötu 41. Milli okkar fjöl- skyldna myndaðist strax traust vin- átta sem stendur enn föstum fótum. Þau byggðu sér síðan fallegt einbýl- ishús að Hraunvegi 8 í Njarðvík og við hjónin í næsta nágrenni í sam- liggjandi götu, svo að nágrannasam- skiptin hafa ekki rofnað. Þar bjó Helga manni sínum yndis- legt og fallegt heimili enda voru þau bæði samhent og samhuga um allt og höfðu yfírleitt sömu skoðun á lífinu. Helga hefur um langt árabil sungið með kirkjukór Ytri-Njarðvík- urkirkju og syngur enn og sótti Elli yfirleitt messur með henni, enda bæði trúuð og virtu sitt safnaðar- starf mikils. Við hjónin eigum margs að minn- ast eftir áratugalanga vináttu og mun ég hér aðeins minnast á fátt eitt. Við höfum blótað saman þorr- ann hjá Kvenfélagi Njarðvíkur frá upphafí okkar kynna. Heimsóknir þeirra til okkar í sumarbústaðinn, en síðast en ekki síst, ferðir okkar út í Staðarhverfi þar sem við eydd- um fögrum sumardögum með íjöl- skyldunum í faðmi hinnar fegurstu náttúru. Fyrir neðan fallegan hraun- jaðarinn eru breiðar túnsléttur sem nú eru nýttar til útivistar og þar er m.a. golfvöllur með mjög góðri aðstöðu. Sumum gömlu býlunum í Staðarhverfí hefur verið breytt í sumarbústaði og nýir risið. Fram af fjörukambinum tekur Staðarfjara við með mikilfengleika sínum og viðburðaríkri sögu. Þangvaxnar klappir langt í sjó fram og þar held- ur sjófuglinn sig og æðurin, en í fjörusandinum iðar allt af fuglalífi sem unun er að horfa á. Tína má enn í fjörunni sandmaðk og skeljar, Ijörugrös og söl. Úti fyrir, þar sem volgan Golfstrauminn ber fyrst upp að landinu, eru auðug og fjölskrúð- ug fískimið. Það var því ekki að undra þótt Staðhverfíngaskáldið Kristinn Reyr hafí ort til æskustöðv- anna; Þótt ég fari þveran heiminn, þótt ég gisti víðfræg lönd, alla mina ævidaga, er ég bundinn þeirri strönd. Þannig leið einnig Ella vini mín- um og öllum þeim Staðhverfingum sem ég hefí kynnst. Þó fór svo að hverfið lagðist endanlega í eyði árið 1964 og tel ég höfuðástæðuna vera skilningsleysi opinberra aðila á erf- iðum samgöngum þeirra sem þar bjuggu. Við Elli hófum störf saman hjá nýstofnuðu fyrirtæki árið 1957, Jár- niðnaðar- og pípulagningaverktök- um Keflavíkur hf., og störfuðum saman í samfleytt átján ár eða þar til hann varð að gangast undir að- gerð við bakveiki. Hjá félaginu lauk hann sveinsprófí í pípulögnum árið 1973. Hann varð að fá sér léttari vinnu en vann samt áfram í iðn sinni fram á síðasta mánuð og fáum mönnum hefí ég kynnst á lífsleið- inni sem hefur auðnast að eignast vin í sérhveijum samstarfsmanni. Um leið og við gömlu starfsfélag- arnir kveðjum þennan góða dreng, þá vil ég þakka honum góð störf í þágu þess fyrirtækis. Eg vil fyrir hönd fjölskyldu minnar þakka áratuga trausta vin- áttu. Helgu okkar og fjölskyldunni allri viljum við færa innilegar samúðarkveðjur og biðjum góðan guð að blessa Erlend Vilmundarson. Ingvar Jóhannsson, Njarðvík. Kveðja frá Lionsklúbbi Njarðvíkur Góður Lionsfélagi hefur nú kvatt þetta jarðneska líf. Erlendur lést á Sjúkrahúsi Kefla- víkurlæknishéraðs eftir erfið veik- indi 13. janúar sl. Hann veiktist í vetrarbyrjun og það kom síðar í ljós að hann var haldinn illkynja sjúk- dómi, sem nú hefur lagt hann að velli. Hann kveið ekki örlögum sínum og var tilbúinn að taka því sem að höndum bar. Erlendur fæddist í Grindavík í svokölluðu Staðarhverfi og ólst þar upp í stórum systkinahópi. Hann þurfti því ungur að bjarga sér og taka til hendinni. Framan af ævinni stundaði hann sjómennsku en vann síðan við pípulagnir í rúma þrjá ára- tugi og lauk m.a. sveinsprófi í pípu- lögnum 1973. Hann kvæntist eftirlifandi konu sinni, Helgu Sigurðardóttur, 17. júní 1955 og bjuggu þau nær allan sinn búskap í Njarðvík og áttu þar hlý- legt og gott heimili. Þau eignuðust ekki börn saman en tóku að sér tvö börn og ættleiddu og eru þau nú uppkomin og hafa stofnað sín heim- ili í Njarðvík. Erlendur gekk í Lionsklúbb Njarð- víkur 1978. Hann var allan tímann virkur félagi og tók þátt í öllu starfí klúbbsins af áhuga og samvisku- semi. Hann var með afbrigðum hógvær maður og lét lítið yfir sér. Það fór því aldrei mikið fyrir honum í Lions- hópnum. Ekki fór það þó framhjá neinum að hann hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og var ráðhollur þegar til hans var leitað. Oft fannst mér gott, sem yngri félaga, að leita til hans og heyra álit hans á félagsstarfinu. Það er sjónarsviptir að honum úr hópn- um, en genginn er góður drengur og sannur félagi. Þetta er annar félaginn úr Lions- klúbbi Njarðvíkur sem við kveðjum á þesssu starfsári. Fyrir hönd Lionsklúbbs Njarðvík- ur sendi ég elskulegri eiginkonu, börnum og barnabörnum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Jón Aðalsteinn Jóhannsson, Njarðvík. 13. janúar sl. lést tengdafaðir minn Erlendur Vilmundarson. Fyrir 5 árum kynntist ég Ella og konu hans Helgu, þegar ég kom á heimili þeirra með Guðmundi syni þeirra. Elli og Helga hafa verið einstök við drengina sína. Þau hafa aldrei látið sig muna um að passa Enok og Ella. Það voru ófáar ferðirnar sem Elli afí kom til að líta á drengina sína. Hann hjálpaði okkur mikið með litla nafnann, þegar þurfti að fara með hann á spítala, aftur og aftur. Afi lét sig ekki muna um að halda á honum og sótti sá stutti mikið í afa sinn, þótt Elli litli sé aðeins eins og hálfs árs finnur hann fyrir að afa vantar. Ég þakka Guði fyrir að hafa leyft okkur að hafa svona einstakan mann hjá okkur. Elsku Helga mín, Ásta, Jón, En- ok, Siggi, Una og Guðmundur minn, ég vona að Guð gefí ykkur styrk á erfíðum tímum, og kveð með sökn- uði Erlend Vilmundarson. Guð blessi minningu hans. Margrét Oskarsdóttir. í dag fer fram frá Ytri-Njarðvík- urkirkju útför Erlendar Vilmundar- sonar og verður hann til moldar borinn í Innri-Njarðvík. Það munu nú nálægt 4 áratugir frá því að kynni okkar hófust eða þegar móðir mín kynnti hann fyrir mér, en þau gengu síðar saman í hjónaband. Strax varð mér ljóst að hér var góðmenni á ferð sem ekki sneri sér síður að okkur sem þá vorum börn að aldri. Ætíð hefur hann reynst mér einstaklega vel og vil ég hér færa honum þakkir fyrir. Erlendur var fæddur 26. október 1928 að Löndum í Staðarhverfi, Grindavík, sonur Vilmundar Árna- sonar útvegsbónda þar, og Guðrúnar Jónsdóttur, eiginkonu hans. Systkin- in voru 13 að tölu og var Erlendur 9. í aldursröð talið. Sjö þeirra létust á undan honum en þau voru: Guð- varður, Árni, Magnús, Borghildur, Eyjólfur, Jón Kristinn og Hjálmar. Eftir lifa Anna, Guðni, Sigríður, Gísli og Eðvarð. Öll ólust þessi börn upp við að þurfa snemma að sjá fyrir sér sjálf. Erlendur fór ungur á sjó og stundaði sjómennsku á sínum yngri árum. Hinn 17. júní 1955 kvæntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Helgu Sigurðardóttur frá Litla-Hvammi í Mýrdal, og hófu þau búskap um þær mundir á Kirkjuvegi 17, Keflavík. Þar bjuggu þau fyrstu 2 árin eða þar til þau festu kaup á hæð á Hóla- götu 35, Ytri-Njarðvík. Voru þar næsta áratuginn en höfðu þá reist sér hús skammt frá á Hraunsvegi 8. í því húsi hafa þau búið síðan. Helga og Erlendur áttu 2 börn. Þau eru bæði búsett í Ytri-Njarðvík. Ástríður sem býr með Jóni Á. Guð- laugssyni og Guðmundur Jón er kvæntur Margréti Óskarsdóttur. Þau eiga einn son saman en Mar- grét átti son fyrir og hefur Guð- mundur gengið honum í föðurstað. Um svipað leyti og þau Helga og Erlendur fluttust í Njarðvíkurnar hóf hann að vinna í landi, réðst til Járn- iðnaðar- og pípulagningaverktaka Keflavíkur. Lærði Erlendur þar pípu- lagnir og tók sveinspróf í þeirri iðn 1973. Hann mun hafa starfað þar samfleytt í 18 ár, en þá hóf hann störf hjá varnarliðinu á Keflavíkur- flugvelli og var starfsmaður þess í Rockville allt til dauðadags. Erlendur hafði mikinn áhuga á öllum þjóðmálum. Stjórnmál voru honum ofarlega í huga og myndaði sér fastmótaðar skoðanir og stóð við þær. Félagslyndur var hann og ávallt léttur í lund, tók meðal annars þátt í starfsemi Lionshreyfíngarinnar um Hallfreður G. Bjarna- son — Minning Fæddur 18. janúar 1917 Dáinn 14. desember 1990 Hann hét Hallfreður Guðbjörn fullu nafni. Hallfreður fæddist að Bæ í Árneshreppi, Strandasýslu og var sonur hjónanna Bjarna Bjarna- sonar og Halldóru Sigríðar Guð- mundsdóttur. Bjarni og Sigríður voru þá í húsmennsku að Bæ, en fluttust að Gautshamri í Kaldrana- neshreppi 1920. Eina alsystur átti Hallfreður, eina hálfsystur og tvo hálfbræður, en þeir eru báðir látnir. Að Gautshamri bjuggu foreldrar hans til 1933. Þar var stundaður búskapur og sjósókn og tók Hallfreð- ur þátt í því þegar aldur leyfði. Síðar fluttu foreldrar hans að Hafnarhólmi í sömu sveit og bjuggu þar til ársins 1937, er þau hættu búskap. Fluttu þau að Drangsnesi og sótti faðir hans sjó þaðan. Veturinn 1936 til 1937 var Hall- freður í Reykjaskóla í Hrútafirði, en fór haustið 1937 á vélstjóranám- skeið í Reykjavík, sem gaf honum réttindi til að vera vélstjóri á mótor- bátum. Einnig átti hann bát, sem hann sótti sjó á á sumrin. Menntun- ina notaði hann einnig til að vera vélstjóri í Hraðfrystihúsinu á Drangsnesi. Hallfreður var mikill íþróttamaður á yngri árum. Hann spilaði fótbolta og sýndi fímleika, sem hann hafði komist í kynni við á Reykjum. Hann hafði yndi af söng og var í kórnum heima í héraði. Bókamaður var hann einnig og ljóðelskur. Ljóð gerði hann sjálfur, en fór leynt með þau. Hann var félagi í Kvæðamannafélaginu Iðunni og tók virkan þátt í starfi þess. Hann var maður dagfarsprúð- ur, en þungur fyrir ef á hann var hallað. Árið 1939 festi hann ráð sitt með unnustu sinni og eftirlifandi eigin- konu, Guðbjörgu Einarsdóttur, en þau gengu í hjónaband 27. júní 1942. Þau stjórnuðu heimili að Drangsnesi frá 1940 og bjuggu þar til 1954; er þau fluttust til Stykkishólms. Árið 1957 fluttust þau síðan til Reykja- víkur. Hallfreður fór þá að læra bifvéla- virkjun í Ræsi hf. og vann hann þar síðan, meðan heilsan leyfði, eða til ársins 1984. Þá var hann illa farinn af liðagigt og kransæðastíflu. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið. Þau eru: Halldóra Sigríður, fædd 1941. Hennar maður er Gunn- ar Guðmundsson. Börnin eru þijú og barnabörnin tvö. Hanna Hall- gerður, fædd 1944. Hennar maður er Hjálmar Haraldsson bifvélavirki. Börnin urðu tvö, en annað þeirra er

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.