Morgunblaðið - 18.01.1992, Page 5

Morgunblaðið - 18.01.1992, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992 5 Þrítugföldun á rennsli Norðurár í flóðunum Aldrei meira rennsli mælst í ánni RENNSLI Norðurár hefur aldrei mælst meira en í flóðunum í Borgarfirði undanfarna daga svo þúsundföldun hefur orðið á venjulegu vetrarrennsli þegar mest hefur verið, að sögn Arna Snorrasonar, vatnafræðings hjá Orkustofnun. Flóðin eru auk þess frábrugðin venjulegum vetrarflóðum þar um slóðir að því leyti að flóðatímabilið er óvenju langt. Norðurá er dæmigerð dragá, verður vatnslítil í þurrkatíð en vex mjög í flóðum, að sögn Árna. „Vor- leysingar eru að jafnaði miklar, enda úrkomusamt á vatnasviði hennar. Mestu flóðin í Norðurá eru þegar saman fara miklar rigningar og snjóleysing, eins og nú hefur gerst,“ sagði Árni í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði jafnframt að tíminn væri ekki óvenjulegur, því þessi flóð væru árviss í desember eða janúar. Vetrarflóðin væru oft mjög snögg og með miklum ísagangi en stæðu stutt. Einnig sagði hann að dæmi væru um mikil flóð samfara sumar- og haustrigningum. Að sögn Árna urðu mestu flóð í Borgarfirði frá því að mælingar hófust í janúar 1983 en þá varð asahláka á freðinni jörð. Gríðarleg- ur jakaburður var þá í ánum og flóðin voru mjög snögg. Hvítá náði þá mesta rennsli sem þar hefur mælst frá 1963 eða 536 rúmmetr- um á sekúndu. I flóðunum nú hefur rennslið náð 382 rúmmetrum á sek- úndu. Árið 1983 var samtímis ofsa- flóð í Norðurá og varð mesta rennsli þá 650 rúmmetrar á sekúndu. Rennslið í ánni nú hefur hins vegar náð 695 rúmmetrum á sekúndu þegar mest hefur verið. Morgunblaðið/Sigvaldi Ámason Norðurá eins og hún er að sumri til. Örin á myndinni sýnir vatnshæðina eins og hún var hæst í flóðun- um fyrir skömmu. Askorun forseta ASI: Kópavogsbær hætti við hækkun vatnsskatts BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur samþykkt hækkun á vatnsskatti úr 0,13% í 0,20% af fasteignamati. Að sögn Sigurðar Geirdal bæjar- stjóra er hækkunin vegna nýrra laga um vatnsveitur sveit- arfélaga. Ásmundur Stefánsson, forseti ASI, hefur sent bæjarstjóra Kópavogs bréf þar sem segir að Kópavogur virðist vera eina bæjar- félag landsins sem ætli að hækka gjaldið langt umfram almennar verðlagshækkanir og skorar á bæjarsljórn að taka ákvörðunina til endurskoðunar. Sigurður sagði að í nýju lögun- um væri gert ráð fyrir öðrum stofni til innheimtu. Lágmark fellur niður en það var 0,13%. Til að ná sömu krónutölu hafi skatturinn orðið að hækka í 0,17%. „Þetta eru mistök í lagasetningu og engu líkara en menn hafi ekki áttað sig á að álagningin skilaði mun lægri upp- hæð,“ sagði Sigurður. „Hins vegar hækkuðum við álagninguna í 0,20% og var það gert til samræm- ingar við nágrannasveitarfélögin. Hækkunin í krónum talið er ekki í raun úr 0,13% í 0,20%, þar sem við lækkuðum fasteignagjöldin úr 0,5% í 0,485% en á kjörtímabilinu verða fasteignagjöldin lækkuð í áföngum í 0,45%.“ í bréfi forseta ASÍ segir að Kópavogskaupstaður hafi lækkað álagningarhlutfall fasteingaskatts úr 0,50% í 0,485 en samtímis hafí álagningarhlutfall vatnsskatts hækkað úr 0,13% í 0,20%. Þar sem um sama gjaldstofn sé að ræða sé einfaldast að líta á álagninguna i heild og því hafi álagningarhlut- fall fasteigna og vatnsskatts í bæjarfélaginu hækkað um 8,7% umfram verðlagshækkanir. -----» » ♦----- Hæstiréttur; Þór varaforseti ÞÓR Vilhjálmson hæstaréttar- dómari hefur verið kjörinn vara- forseti Hæstaréttar Islands frá 1. janúar 1992 til 31. desember 1992. Guðrún Erlendsdóttir gegnir emb- ætti forseta Hæstaréttar Islands til 31. desember 1992, en hún tók við embætti 1. janúar 1991. Frá þessu er skýrt í tilkynningu frá Hæstarétti. Norðurá í Borgarfirði Rennsli dagana 12. til 17. janúar / Mest mældist / rennsli í Norðurá Rúmm./sek. 695 rúmm. /sek. kl. 8:00 að morgni R Meðaltal mestu 1 11 1971“ 397 1 rúmm./sek. \ Meðalárs- \ rennsli, i V rúmm./sek. 13. 14. 15. 16. 17. jan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.