Morgunblaðið - 18.01.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 18.01.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1992 9 KAIIPIN ígrillsteikum Nautasteik.......kr. 790,- m/bak. kartöflu, kryddsmjöri og hrásalati Lambagrillsteik..kr. 790,- m/sama Svínagrillsteik..kr. 760,- m/sama Jarlinn Langnr að- dragandi I Þjóðviljanum í gær er birt viðtal við annan ritstjóra blaðsins, Helga Guðmundsson, þar sem hann skýrir ástæðurnar fyrir stöðvun útgáfuiuiar og liugTuyndum um þátt- töku í nýju dagblaði. Hér á eftir eru birtir kaflar úr viðtalinu (millifyrir- sagnir eru Mbi.): „Það eru mikil tíðindi og allt annað cn skennntileg að flyija, að stjórnir Útgáfufélags Þjóðvi(jans og Útgáfufé- lagsins Bjarká hafa sam- eiginlega tekið þá ákvörðun að útgáfu Þjóð- viljans verði hætt eigi síð- ar en 31. janúar," sagði Helgi í viðtali við Þjóð- viljann. IJverjur eru ástæðurn- ar fyrir þessu skipbroti blaðsins? „Þetta á sér langan aðdraganda. Það vita það allir að rekstur Þjóðvilj- ans hefur um langt ára- bil verið erfiður. Þjóðvilj- inn er í þcim efnum ekki eúm á báti. Þetta er í raun og veru alþjóðlegt vandamál, að minni blöð hafa átt í vaxandi erfið- leikum. Það hafa orðið miklar breytingar á fjölmiðlamarkaðiuum sem hér á landi hefur komið fram í því, að fjölmiðlum hefur stór- lega Ijölgað, konmar eru tvær sjónvarpsstöðvar og fjöldi nýrra útvarps- stöðva. Þetta hefur haft það í för með sér, að tekjuinöguleikat- dag- blaðanna rýrna. Auglýs- ingamai-kaðurínn stækk- ar ekki að sama skapi sem fjölmiðlunum fjölg- ar, þær skiptast á færri staði. Þetta hefur komið svo berlega fram í rekstri Þjóðviþ'ans að á nokk- urra ára tímabili hafa auglýsingatekjurnar rýrnað á föstu verðlagi um 40 milljónir á ári.“ Hrun í auglýs- ingum En bafa menn ekki reynt að bregðast við l55 ára söau Sjóáviljans ykur um rmánaðamótin Þjóðviljinn hættir í janúarlok lýkur 55 ára göngu Þjóðvilj- ans, sem undanfarin ár hefur verið gefinn út undir merkjum sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar. Lífróðurinn, sem undanfarna mánuði hefur verið róinn til að bjarga útgáfu blaðsins, hefur endað með skipbroti. Aðstandendurnir vonast þó til að geta tekið þátt í útgáfu nýs blaðs, sem hefur verið í bígerð. þessum samdrætti með einhverjum hætti? „Vissulega höfum við gert það. Rekstur blaðs- ins hefur alltaf verið erf- iður, jafnvel á þeim árum sem rekstur Þjóðviyans gekk sem best, þá gerði hann ekki mikið meira en rétt að ná sér uppfyr- ir núllið. Þær aðgerðir sem við höfum gripið til undanfarin ár, hafa því miður ekki nægt til að bjarga útgáfunni. Við höfum skorið niður kostnað á öllum sviðum sem við höfum mögnlega getað, við höfum breytt blaðinu og reynt að gera það læsilegra fyrii- kaup- endur, og síðast en ekki síst stofnuðum við hluta- félag um reksturimi, Út- gáfufélagið Bjarka hf., sem tók að sér að gefa blaðið út frá áramótum 90/91. Jafnframt vai- gengið frá skuldbreyt- ingum á því sem næst öllum skuldum Þjöðvilj- ans, þannig að gert vai- ráð fyrir að greiða þær á mjög löngum tíina. Hugmyndin var sú að koma Þjóðviljanum með þessum hætti á núllið og reyna síðan að láta liann standa undir sér. Það hefur ekki tekist. Auk þess sem auglýs- iiigalekjurnar liafa hrun- ið þá höfum við á undan- fömum árum átt í tals- verðum erfiðleikum varðandi áskrifenda- fjöldann. Okkur tókst hmsvegar á sl. ári að snúa þar vöm í sókn. Það var ekki bara að við næðum aftur jafn mörg- um áskrifendum og þær áskriftir sem ríkissjóður sagði upp, heldur tókst að bæta við þúsund áskrifenduin til viðbótar og saxa þai- með nyög á það sem tapast hafði und- anfarhi ár. Þegar við hættum útgáfu blaðsins núna em áskrifendur ekki langt frá þvi að vera jafn margir og þeir hafa verið að mcðaltali mest allan tímaim sem Þjöö- viljinn hefur komið út.“ Ekkert sam- band En er það ekki tím- anna tákn að Þjóðvijjinn lognast útafá sama tíma og Sovétríkin? „Það er að minnsta kosti ekkert samband á milli þess og þeirra breytmga sem hafa orðið í Austur-Evrópu..." Alvöru samtöl Hver er staðan varð- andi Nýmæli og stofnun nýs dagblaðs? „Þegar áskrifenda- söfnunin stóð sem hæst á haustdögum og við vor- um í raun og vem að leggja af stað í nýja lotu til þess að koma fótunum undir blaðið Qárhags- lega, þá kom í ljós að það vom ekki bara við sem áttum i miklum erfiðleik- um. Blaðstjórn Tímans tók þá ákvörðun að hætta að gefa út Tímann um áramótin. Það lá því í augnm uppi að við mynd- um lenda í erfiðleíkum ef svo færi. Blöðin hafa sameiginlegan prent- samning og þau liafa staðið saman að dreif- ingu. Þessir þættir em svo mikilvægir i rekstrin- um, að ef annað biaðið hættir þá lendir hitt í erfiðleikum. Um svipað leyti fóm þá í gang alvöru samtöl um stofnun nýs blaðs, þar sem ekki var gert ráð fyrir að sameina Tímann og Þjóðviljann, einsog sumir liafa verið að tala um, hcldur stofna algjör- lega nýtt dagblað og að þessi eldri blöð vikju af markaðinum. Stöð 2, þ.e.a.s. Islenska útvaips- félagið, tók þátt í þessu af fullum krafti, en þegar til átti að taka taldi ís- lenska útvarpsfélagið sig ekki í stakk búið til þess að vera með í félaginu. Þannig að eftir feikilega vinnu, sem búið var að leggja í undirbúning að stofnun nýs blaðs, þá kom talsverður hnykkur í það nú skömmu fyrir hátíðimar. Það þýðir hinsvegar ekki að vinnunni sé ekki haldið áfram. Það er unniö iifram af fullum krafti við að stofna nýtt blaö þessa dagana, að reyna að fá nýja aðila í þetta félag. Aðstandend- ur Þjóðviljans hafa ákveðið að verða aðilar að þessu nýja blaði. Það sem er að gerast núna breytir ekki þeirri ákvörðun. Við höfum hinsvegar ákveðið að hætta útgáfu Þjóðvi(j- Háir vextir á verðbréfamarkaði Opið í Kringlunni í dctg á milli kl. 10 og 16. Við bjóðum mikið úrval verðbréfa með háum vöxtum. Anna Heiðdal verður í Kringlunni með upplýsingar og ráðgjöf. Húsbréf...............8,0 - 8,3% Spariskírteini........7,9 - 8,0% Féfangsbréf...........10,0% Kj arabréf............8,3%* Markbréf..............8,7%* Tekjubréf.............8,1%* Skyndibréf............6,8%* Skuldabréf traustra bæjarsjóða............9,2 - 9,5% Erlend verðbréf. Mikið úrval hlutabréfa. * Avöxtun miðast við janúar 1992. & VERÐBREFAMARKAÐUR FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF. KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.