Morgunblaðið - 18.01.1992, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992
11
Göran Sonnevi.
Roy Jacobsen.
móðir Önnu sjá fyrir að hjónaband
ungmennanna verði engum til
góðs. Móðir Önnu reynir að hindra
samdrátt þeirra með valdi og verð-
ur þannig til að koma því í kring
sem hún ætlaði að hindra. Móðir
Önnu er af yfirstétt, móðir Henriks
er alþýðukona. Andstaða beggja
við hjónabandið er stéttarleg ekki
síður en persónuleg. Um aldamótin
var Svíþjóð stéttskiptara samfélag
en nokkurt hinna Norðurlandanna
og stéttaskiptingin stóð á gömlum
merg.
Saga þeirrar fjölskyldu sem hér
er lýst hefst, eins og öll ævintýri,
á því að jafnvægi raskast; faðir
Henriks Bergmans giftist niður
fyrir sig og Henrik giftist síðar upp
fyrir sig. A meðan blöndun átti sér
stað á milli stétta í anda jafnaðar-
stefnunnar varð margt eitt hjóna-
bandið óhamingjusamt og börnin
sem í þeim fæddust taugaveikluð.
En úr jarðvegj allrar þessarar þján-
ingar spruttu snillingar eins og
Ingmar Bergman.
Askurinn
Hin bókin sem Svíar leggja fram
er ljóðabókin Trádet (Tréð) eftir
Göran Sonnevi (f.1939). Sonnevi
yrkir í orðmörgum, hálf-epískum
ljóðum, um þjáningu, sundrun,
dauða, en líka um endurnýjun lífs-
ins, ástina og samhengi hlutanna.
Allt þetta á sér sameiginlega tákn-
mynd í trénu, lífstrénu, sem er
hyllt í mögnuðum ljóðmyndum.
Hver vann?
Norðmenn leggjafram skáldsög-
una Seierherrene (Sigurvegararn-
ir) eftir Roy Jacobsen og smá-
sagnasafnið Et stort ode landskap
(Auðnin mikla) eftir Kjell Askilds-
en.
Skáldsaga Roy Jacobsen er gey-
simikið verk, 635 blaðsíður, enda
ekkert smáræðis efni sem er til
umræðu; þróun norska samfélags-
ins frá bænda- og fiskimannasam-
félagi til tölvu- og olíuþjóðfélags
eins og þetta speglast í örlögum
einnar ættar, þriggja ættliða.
Sagan hefst í Norður-Noregi, á
Hálogalandi, þar sem útvegsbónd-
inn Jóhann baslar áfram með
ómegð sína árið 1927. Lýsingin á
lífsbaráttu Jóhanns og fjölskyldu
hans minnir á Sjálfstætt fólk Hall-
dórs Laxness, stakar orustur er
Kjell Askildsen.
hægt að vinna en stríðið er tapað
fyrirfram.
Ein af dætrum Jóhanns, Marta,
fer að heiman fjórtán ára gömul
til að verða vinnukona í Osló.
Stúlkan sú stígur beint út úr sár-
ustu fátækt og frumstæðum at-
vinnuháttum inn í rafljósadýrð
borgarinnar, það eru millistríðsár.
Sjónarhornið fylgir Mörtu fyrsta
árið í Osló, gegnum stríðsárin og
kveður hana þegar hún gengur í
hjónaband með verkamanninum
og sósíaldemókratanum Frank.
Seinni hluti bókarinnar er svo
sagður af yngsta syni þeirra, Ro-
ger, sem er fæddur kringum 1954.
Hann og bræður hans eru ekta
úthverfisstrákar í Osló, og eiga
margt sameiginlegt með Voga-
strákum Einars Más Guðmunds-
sonar. Roger og bræður hans
stækka, verða töffarar, ganga í
háskóla, stofna fýrirtæki, sá elsti
verður gjaldþrota í fiskeldinu en í
lok sögunnar eru þeir allir komnir
á kjöl.
í Seierherrene er miskunnarlaus
greining á hugsunarhætti og
gildismati Norðmanna í dag. Milli-
kynslóðin er alin upp við sult og
seyru. Samfélagið sem hún skapar
malar henni gull á tímabili en hún
kann illa við það. Málamiðlun
hennar er meðalmennskan. Óttinn
við að fara offari, gera sig sekan
um ofneyslu og ofdramb, leiðir til
þess að of lítið er farið, það næstb-
esta er valið umfram það besta,
þeir sem skara fram úr eru illa
séðir og þeim er snúið frá villu
síns vegar. Þetta er norsk a út-
gáfan af velferðarsamfélaginu,
samkvæmt Roy Jacobsen.
Roger og bræður hans drekka
þetta hugarfar í sig með móður-
mjólkinni, en þeir skilja ekki for-
sendur þess og geta hvorki gengist
upp í því né hafnað því. Roy
Jacobsen minnir á að sagan sé allt-
af skrifuð af sigurvegurunum. En
hvaða saga? Og hver vann?
Öræfi sálarinnar
Öfugt við doðrantana sem lagðir
eru fram er smásagnasafn Kjell
Askildsen pínulítið, í því eru sex
smásögur, sumar örstuttar. En það
er varla hægt að segja meira í jafn
fáum orðum og gert er hér.
Sögurnar gerast í hversdagslegu
umhverfi, það eru hversdagslegar
persónur sem leika aðalhlutverkin
og þær segja fátt. Samt tekst Kjell
Askildsen að gera hveija sögu að
skelfilegu persónudrama þar sem
óhugnaðurinn læðist að lesandan-
um undan orðunum, á milli þeirra
og í því sem ekki er sagt.
í viðtölum við höfundinn er hann
oft spurður hvort hann sé mann-
hatari eða hvers vegna hann lýsi
sálarlífi og samskiptum fólks svo
miskunnarlaust. Því svarar höf-
undur með því að hann vilji sýna
manninn eins og hann sé og það
sé ekki þægilegt aflestrar enda
eigi list ekki að vera þægileg held-
ur truflandi.
Sögur Kjells eru hins vegar
hvorki gráar né eyðilegar. Þær
fylgja manni, verða reynsla sem
maður vildi ekki fyrir nokkurn mun
hafa misst af.
Bílamarkaburmn
v/Reykjanesbraut
Smiðjuveg 46e,
Kóp. Sími:
671800
Mazda 323F GTi 1.8 '90, svartur, 5 g., ek.
29 þ. km., rafm. i öllu. V. 1390 þús. (sk. á ód).
Honda Prelude EX 2,0 '88, topplúga, 5 g.,
ek. 28 þ. km. Sem nýr. V. 1280 þús.
Peugeot 405 GR ’89, 5 g., ek. 47 þ. km.
Toppeintak, sumar/vetrardekk. V. 1030 þús.
6 þ. km., aflstýri, o.fl. V. 1080 þús. (sk. á ód).
Daihatsu Rocky 4x4 '85, ek. 86 þ. km.,
úrvals jeppi. V. 820 þús. (sk. á ód).
Ford Bronco II XLT '87, 5 g., ek. 68 þ. km,
ýmsir aukahl. V. 1590 þús. (sk. á ód).
MMC Pajero T diesel '86, 5 g., ek. 130
þús. Toppeintak. V. 1390 þús. (sk. á ód).
Volvo 240 GL '88, sjálfsk., ek. 56 þ. km.
Fallegur bill. V. 1060 þús. (sk. á ód).
Volvo 740 GL '87, sjálfsk., ek. 86 þ. km.
Subaru Justy J-12 4WD '90, ek. 10 þ. km.
V. 840 þús. (sk. á ód).
NYJUNG
Aukið öryggi við bifreiðakaup
Skoðunarskýrsla Irá bekktu
bifreiðaverkstæði fylgir öllum
bílum á sýningarsvæði okkar.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásiöum Moggans!
BÓKAMARKAÐUR VÖKU-HELGAFELLS
OTRULEG
VERÐLÆKKUN
Dœmi um nokkur sértilboð
á bókamarkaðnum:
Van Gogh og list hans - Hans Bronkhorst
venjulegt verð: tilboðs- verð: afsláttur:
3.760,- 995,- 74%
1.984,- 295,- 85%
1.828,- 395,- 78%
1.260,- 295,- 77%
.2.580,- 495,- 81%
Mörg hundruð bókatitlar á einstöku verði bjóðast nú á bókamarkaði
Vöku-Helgafells í forlagsversluninni að Síðumúla 6 í Reykjavík.
Hér gefst einstakt tækifæri til þess að bæta eigulegum verkum í
bókasafn heimilisins - bókum af öllum gerðum við allra hæfi.
Margar bókanna eru til í takmörkuðu upplagi og því best að
drífa sig sem fyrst!
yerð niður i
50 krónur.
0
VAKA-HELGAFELL
1981-1991
Síðumúla 6, sími 688300