Morgunblaðið - 18.01.1992, Page 20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992
Samningar undirritaðir um kaupleigu Samskipa á ms. Esju;
Kaupverð skipsins tæp-
ar 120 milljónir króna
Oánægja meðal starfsmanna við skipaafgreiðslu
SAMNINGAR um þurrleigu Samskipa hf. á strandferðaskipinu ms.
Esju með kauprétti, voru undirritaðir í gærmorgun. Skipið er leigt
til allt að þriggja ára með kaupvali eftir sex mánuði og er kaup-
verð tæpar 120 miilj. að teknu tilliti til leigukostnaðar. Afhending
skipsins er ráðgerð í byrjun febrúar. Starfsmenn við skipaaf-
greiðslu Ríkisskipa lögðu niður vinnu við lestun Esjunnar um hádegi
í gær þegar starfsmenn Samskipa fóru um borð í skipið til að láta
fara fram skoðun á skipinu. Fóru stjórnendur Ríkisskipa þá fram á
það við starfsmenn að þeir lestuðu skipið yfir helgina. Starfsmenn
lýstu yfir mikilli óáuægju vegna þessara vinnubragða og höfnuðu
beiðninni á fundi eftir hádegið en samþykktu að hefja vinnu við
skipið á mánudag. Tefst brottför þess því um þijá daga.
Samkvæmt samningi ríkisins og
Samskipa er greidd föst dagleiga á
hverju sex mánaða tímabili á gildis-
tíma samningsins og er upphæðin
43 þúsund kr. á dag á fyrsta leigu-
tírnabilinu.
Á minnisblaði sem fylgir samn-
ingnum segir að Samskip bjóði, sem
svari einni áhöfn, vinnu hjá félaginu
en þar er um að ræða 13 starfs-
menn, að sögn Ómars Jóhannsson-
ar, framkvæmdastjóra Samskipa.
Sagði hann að áætlanir Samskipa
gerðu ráð fyrir að Amarfell, skip
félgsins, verði áfram í strandferðum
vestur og norður fyrir landið en
Esjan verði í strandferðum um
Austfirði.
Þórhallur Jósepsson, deildarstjóri
í samgönguráðuneytinu, sagði
ráðuneytið ánægt með samninginn.
„Við höfum ekki séð neitt sem gef-
ur okkur ástæður til að ætla að við
hefðum getað náð betri samningum
við Samskip eða aðra. Þar sem nið-
urstöðutölur samningsins eru all
nærri markaðsverði skipsins, eins
og það er áætlað af sérfræðingum,
er ekki ástæða til annars en að una
vel við, auk þess ágóða sem felst í
að losna við taprekstur hjá ríkinu,"
sagði hann.
Að sögn Þórhalls hafa Samskip
óskað eftir að hefja viðræður um
fleiri eignir Ríkisskipa og áttu við-
ræður að hefjast í gær um ms.
Heklu auk lausamuna. Ómar sagði
að félagið myndi skoða mögnlega
yfírtöku á öðrum eignum Ríkisskipa
og ætti að liggja fyrir á næstum
dögum hvort það reynist félaginu
hagkvæmt.
Þórhallur sagði að það væri skiln-
ingur ráðuneytisins að Samskip
ætli að bjóða um tíu starfsmönnum
Ríkisskipa störf hjá Samskipum.
„Svo er áfram unnið að því að liðka
til fyrir aðra starfsmenn um störf
annars staðar,“ sagði hann.
Viðræður eru í gangi við norskan
aðila um kaup á ms. Óskju og sagði
Þórhallur að sá aðili hefði óskað
eftir nokkurra daga fresti áður en
gengið yrði til samninga um sölu
skipsins en hann rennur út í byijun
næstu viku.
Óánægja
skipaafgreiðslumanna
Karl Óskar Hjaltason, formaður
starfsmannafélags Ríkisskipa,
sagði að Samskip hefðu haft fullan
rétt til að skoða skipið í gær en
starfsmenn hefðu hins vegar ekki
vitað hvenær ætti að ganga frá
samningum. Starfsmenn hafi ætlað
að lesta skipið í gærdag svo Esjan
gæti haldið af stað til Austfjarða í
nótt. Vinna féll hins vegar niður
laust fyrir hádegi þegar skoðunar-
menn Samskipa komu um borð í
Esjuna.
Ingólfur Jónsson, talsmaður
starfsmanna í skipaafgreiðslu,
sagði að starfsmenn hefðu verið
tilbúnir í lestun Esjunnar klukkan
hálf ellefu í gærmorgun. „Við viss-
um ekki annað en að skipið væri í
Uppsagnir ríkisstarfsmanna;
Biðlaun ef til uppsagua kemur
- segir Sigríður Kristinsdóttir, formaður SFR
SIGRÍÐUR Kristinsdóttur, formaður Starfsmannafélags ríkisistofn-
ana, segir að að ef til fjöldauppsagna komi á Landakoti um næstu
mánaðamót muni félagið krefjast biðlauna fyrir starfsmenn vegna
þess að verið sé að leggja niður stöður á grundvelli laga nr.38/1954.
Hún segir ranglega eftir sér haft mánaðamótin og haft þær upplýs-
í Morgunblaðinu að 100 starfs-
mönnum Landakots verði sagt upp
á mánudag. Hún hafí sagt að upp-
sagnirnar séu væntanlegar um
ingar úr fréttatíma Ríkisútvarpsins,
því ekkert samband hafí verið haft
við félagið um þær. Hún telji það
hins vegar siðferðilega skyidu að
ræða slíka hluti við viðkomandi
verkalýðsfélög. „Þessar eilífu hót-
anir auka hvorki bjartsýni né vinnu-
áhuga fólks.“
Sigríður sagði að samkvæmt lög-
um hefðu þeir sem hefðu unnið inn-
an við 15 ár rétt til biðlauna I sex
mánuði og þeir sem hefðu starfað
lengur rétt til biðlauna í eitt ár.
Ingólfur Jónsson starfsmaður í
skipaafgreiðslu Ríkisskipa.
siglingum fyrir Ríkisskip en svo
fáum við fréttir úr útvarpi að búið
sé að ganga frá samningum um
skipið. Lestunin stöðvaðist og við
vorum beðnir um að hinkra fram á
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra, Halldór Blöndal samgönguráð-
herra og Omar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Samskipa, undirrita
samning um kaupleigu ms. Esju í gær.
laugardag að vinna við skipið. Við
samþykktum að eiga ekkert við það
fyrr en á mánudag og því var strax
komið á framfæri við stjómendur
Ríkisskipa, sem sáu ekki ástæðu til
að amast við því. Þetta eru eigin-
lega þögul mótmæli við svolítið
gerræðislegum vinnubrögðum,"
sagði hann.
Hópuppsagnir um næstu
mánaðamót?
26 starfsmenn vinna við móttöku
og afgreiðslu skipa við Reykjavíkur-
höfn. Ingólfur sagði að starfsmenn-
imir ættu von á hópuppsögnum um
mánaðamótin. „Örfáir menn fá
tveggja mánaða uppsagnarfrest en
flestir hafa starfað hér ámm eða
áratugum saman og hafa full rétt-
indi. Það er ekki á hreinu hvort
áhöfn Esju fær starf hjá Samskip-
um en við höfum aðeins heyrt því
fleygt að vélstjórnamir fái að
minnsta kosti vinnu. Við fréttum
að haldinn hefði verið fundur meðal
starfsmanna Samskipa á fímmtu-
dag þar sem þeir Iýsa undmn sinni
yfir að verið væri að bjóða starfs-
mönnum Ríkisskipa störf á sama
tíma og samdráttaraðgerðir og upp-
sagnir ættu sér stað hjá Samskip-
um,“ sagði hann.
Rúmlega eitt hundrað manns
starfa hjá Ríkisskipum og sagði
Karl að staða þeirra væri mjög
óviss. Engar uppsagnir hefðu enn
borist en þeim hafí verið lofað upp-
lýsingum um framhald málsins 15.
janúar en ekkert orðið af því. „Það
er alger óvissa um hvenær við fáum
einhveijar upplýsingar þó okkur
gmni að allir fái uppsagnir um
mánaðamótin," sagði hann.
Heimsklúbbur Ingólfs
á traustum grunni
eftir Ingólf
Guðbrandsson
Einu sinni þótti góður siður hér
á landi að hafa það heldur, er sann-
ara reynist. Því er öfugt farið með
„gulu pressuna", sem hagnast á
lyginni og slúðrinu og þrífst á því
eins og púki á fjósbita. í trausti
þess, að sannleikurinn komi í ljós
um síðir, láta þó flestir þennan
ófögnuð yfír sig ganga fremur en
að elta ólar við hann, jafnvel þótt
málatilbúnaðurinn sé svo óvandað-
ur og rætinn að ógni hagsmunum
þeirra.
Miklar sviptingar hafa orðið í
starfsemi íslenskra ferðaskrifstofa
upp á síðkastið og sjá fáir fyrir
afleiðingar þeirra. Margt hefur
færst í betra horf í þjónustu við
farþega á undanförnum árum, og
telur undirritaður sig hafa átt í því
nokkurn þátt, m.a. með því að bjóða
íslendingum fjölbreyttari og vand-
aðri ferðir en áður þekktust, t.d.
hinar svonefndu heimsreisur.
Ferðaþjónusta er blómleg atvinn-
ugrein í öllum menningarlöndum
hins vestræna heims nema á ís-
Iandi, þar sem.hún lépur dauðann
úr skel; svo að-hvert fyrirtækið af •
öðru leggur upp laupana. Sú þróun
er ískyggileg fyrir alla landsmenn,
því að hún er andstæð hagsmunum
neytenda og út af fyrir sig rann-
sóknarefni. Hins vegar verður ekki
séð, að starfsemi Heimsklúbbs Ing-
ólfs gefí tilefni til sérstakrar rann-
sóknar, þar eð hún stendur traust-
um fótum og nýtur viðurkenningar
og vinsælda allra, sem til þekkja.
Heimsklúbburinn staðgreiðir öll við-
skipti sín og hefur hvergi safnað
skuldum.
Sérhæfð þjónusta
Heimsklúbbsins
Ferðir Heimsklúbbsins bjóða sér-
hæfða þjónustu, sem ekki er á valdi
annarra en þeirra, sem búa yfír
mikilli reynslu og kunnáttu. Mörg-
um fyndist skarð fyrir skildi í ferða-
þjónustu, ef ferðir Heimsklúbbsins
leggðust af. Með reynslu og hag-
sýni hefur tekist að gera þær við-
ráðanlegar almenningi og mun
ódýrari en sambærilegar ferðir frá
öðrum Evrópulöndum. í flestum til-
vikum spara þær þátttakendum
helming ferðakostnaðar eða meir.
Jafnvel fólki með miðlungstekjur
en fróðleiks- og ferðaþrá finnst til-
vinnandi að leggja á sig sparnað
til að eiga þess kost að skoða heim-
inn.‘ •«-*<>- ...■ • • • - - •
Hlutfallslega ódýrustu
ferðirnar
Fyrir atbeina Heimsklúbbsins
hafa margir íslendingar náð að sjá
það merkasta í öllum álfum heims-
ins og telja sig ríkari fyrir bragðið.
Aðeins nokkur hundruð manns taka
þátt í þeim á ári hveiju, svo að þær
geta ekki talist samkeppni við flug-
félög né ferðaskrifstofur, heldur
fylla þær annars autt skarð á sviði,
þar sem íslenskum ferðaskrifstofum
hefur annars ekki tekist að hasla
sér völl. Samningar Heimsklúbbs
Ingólfs við flugfélög, valda gisti-
staði og ýmsa þjónustuaðila erlend-
is eru í fullu gildi og vel virtir, vegna
þess að þeir byggja á grundvallar-
lögmálum viðskipta, nákvæmni og
skilvísi. Eitt helsta vandamál ís-
lenskra ferðaskrifstofa hefur verið
skuldasöfnun. Sú regla gildir í við-
skiptum Heimsklúbbsins að öll við-
skipti eru staðgreidd eða greidd
fyrirfram, og tryggir það allt í senn,
bestu kjör, bestu þjónustu og ör-
yggi farþega.
Ný lífssýn með heimssýn
Ferðir Heimsklúbbsins höfða til
annars hóps viðskiptavina en al-
mennar leiguflugferðir á baðstrend-
ur Evrópu eða fárra daga pakka-
Ingólfur Guðbrandsson
„Sú regla gildir í við-
skiptum Heimskiúbbs-
ins að öll viðskipti eru
staðgreidd eða greidd
fyrirfram, og tryggir
það allt í senn, bestu
kjör, bestu þjónustu og
öryggi farþega.“
ferðir til nágrannaborga. Þær
tengjast menningu, listum og sögu
heimsins og eru vandlega undirbún-
ar, einnig með fræðslustarfsemi,
sem best kemst til skila í félags-
starfi. Fleiri og fleiri kunna að
meta þann lífstíl, sem fólk kynnist
í ferðum klúbbsins, þar sem valið
er úr því besta af þvl sem hin ýmsu
lönd og þjóðir hafa að bjóða gestum
sínum. Ferðir klúbbsins eru í stíl
við ferðaþróun I heiminum síðustu
ár, þar sem menningarferðir af
þessu tagi eru í stöðugri sókn.
Það var ekki takmark Heims-
klúbbsins að stefna að almennum
ferðaskrifstofurekstri heldur að
veita félögum sínum ráðgjöf og
bestu þjónustu í sérferðum með
bestu kjörum. Á grundvelli persónu-
legra sambanda við leiðandi fyrir-
tæki um allan heim, nýtur klúbbur-
inn bestu viðskiptakjara. Á hveiju
sem gengur í fréttamennskunni,
sýna viðskiptavinir honum óbilandi
traust eins og margsannað er og
nú síðast með því að Thailandsferð-
in seldist upp á tveimur dögum.
Samgönguráðuneytið hefur enga
athugasemd geiit við starfsemi
Heimsklúbbsins, hvað þá óskað
rannsóknar á starfsemi hans.
Klúbburinn mun kosta kapps um
jákvæð vinnubrögð og góð sam-
skipti við yfirvöld sem aðra, þar
með talið flugfélög og ferðaskrif-
stofur. Verði ferðaskrifstofuleyfis
krafist til að reka þá menningar-
starfsemi, sem hér var lýst, verður
þess aflað, enda yrði réttur minn
til rekstrar ferðaskrifstofu, fagleg-
ur og siðferðilegur, naumast vé-
fengdur. Heimsklúbburinn mun í
öllu fara að landslögum og nægar
tryggingar fyrir hendi. Engar hót-
anir munu stöðva starfsemi hans
og framgang, en um rekstur hans
mun fara eins og önnur verkefni
mín, sem unnin eru eftir bestu vit-
und.
Höfundur er ferðafrömuður.