Morgunblaðið - 18.01.1992, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992
21
SAMSKIPTI íslendinga og íbúa
Venesúela hafa verið lítil fram
til þessa. I hugum margra hefur
landið yfir sér fjarlægan ævin-
týraljóma en fá tækifæri hafa
gefist til kynna af landi og þjóð.
Nú stendur hins vegar yfir sýn-
ing á verkum sex myndlistar-
manna frá Venesúela í Hafnar-
borg í Hafnarfirði og er hún
hluti af viðleitni Venesúela-
manna til að kynna menningu
sína fyrir öðrum þjóðum. Sendi-
herra Venesúela á Islandi heitir
Rodolfo Molina-Duarte og hefur
aðsetur I Osló. Hann var staddur
hérlendis til að opna sýninguna
í Hafnarborg.
Duarte _ segir að diplómatísk
samskipti Islands og Venesúela eigi
sér tveggja áratuga sögu en hann
tók við sendiherraembættinu í byrj-
un síðasta árs. „Það er athygli-
svert að stór hluti erlendra sendi-
herra Islendinga hefur aðsetur í
öðrum löndum og er ég einn þeirra.
Fyrir sendiherra í slíkri aðstöðu
getur verið freistandi að sinna ein-
ungis helstu diplómatísku skyldum
sínum við íslendinga og láta önnur
samskipti lönd og leið. Ég er ekki
þannig sendiherra," segir Duarte.
„Mig langar til þess að efla tengsl
heimalands míns og Islands á sem
flestum sviðum og því þykir mér
mjög ánægjulegt að eiga þátt í því
að gera þessa myndlistarsýningu
að veruleika. Svo skemmtilega vill
til að menningarsamskiptin eru
gagnkvæm en í þessum mánuði
verður opnuð sýning á verkum
þriggja íslenskra myndlistar-
manna, Georgs Guðna, Jóns Óskars
og Ólafs Gíslasonar, í nútímalista-
safninu í Caracas, höfuðborg Ve-
nesúela. Ég lít svo á að nú sé ísinn
Morgunblaðið/KC
Rodolfo M. Duarte, sendiherra
Venesúela.
brotinn í samskiptum þjóðanna og
vona að þau eigi eftir að eflast og
ná til sem flestra sviða í framtíð-
inni.“ _
— A hvaða vettvangi telurðu að
helst eigi að efla þessi samskipti?
„Samskipti ríkja eru aðallega
þrenns konar. Stjórnmálaleg,
menningarleg og viðskiptaleg.
Samskipti íslands og Venesúela
hafa hingað til aðallega verið
stjórnmálalegs eðlis og með mjög
ánægjulegum hætti. Ég nefni sem
dæmi að góð persónuleg vinátta
er á milli forseta Venesúela og
Jóns Baldvins Hannibalssonar ut-
anríkisráðherra íslands. Þá hafa
íslendingar og Venesúelamenn ver-
ið samstíga í ýmsum málum á al-
þjóðavettvangi eins og í mann-
réttindamálum og_ hvað varðar
verndun hafsins. Á áttunda ára-
tugnum var mikilvæg hafréttarráð-
stefna haldin í Caracas. Þar var
stór hluti þeirrar stefnu, sem nú
ríkir í hafrétti, mörkuð og veit ég
til þess að gott samstarf var þá á
milli sendinefnda íslands og Ve-
nesúela.“
„Viðskipti íslendinga og Venesú-
elamanna eru lítil sem engin og
langar mig sérstaklega til að bæta
úr því,“ segir Duarte. „Norðmenn
selja lax og þorsk til Venesúela og
ég er viss um að það væri ómaks-
ins vert fyrir íslenska fiskútflytj-
endur að kanna markaðinn fyrir
þessar tegundir eða aðrar á þeim
slóðum. Eg veit ekki hvaða vörur
íslendingar vildu flytja inn á móti
en nefni sem dæmi að Venesúela-
menn framleiða ýmis efni til ál-
framleiðlsu sem þið kynnuð að
hafa áhuga á. Ég tek fram að þetta
eru eingöngu hugmyndir sem ég
nefni að lítt athuguðu máli en
gætu þó verið áhugaverðar fyrir
menn úr viðskiptalífinu. Menning-
arleg samskipti, eins og sýningin
hér í Hafnarborg, getur haft þýð-
ingu í því að koma á viðskiptalegum
tengslum. Hvort sem slíkt tekst eða
ekki mun ég beita mér fyrir því
að halda stjórnmálatengslum milli
íslands og Venesúela eins góðum
og þau hafa verið og efla menning-
artengslin frekar. Ég hef ýmsar
hugmyndir í því sambandi sem of
langt mál væri að telja upp en
næsta skref gæti verið að kynna
tónlistarmenn frá heimalandi mínu,
til dæmis gítar- og píanóleikara,
fyrir Islendingum."
VIÐTAL: Kjartan Magnússon.
Dómkirkian:
Beðið fyrir Evrópu við sam-
kirkjulega guðsþjónustu
A MORGUN, sunnudaginn 19. jan-
úar, verður guðsþjónusta í Dóm-
kirkjunni á vegum samstarfs-
nefndar kristinna trúfélaga og
hefst hún kl. 14.00.
Prédikun annast sr. Jónas Gísla-
son, vígslubiskup, og mun hann í
prédikun sinni m.a. ræða um þau
vandamál sem þjóðir Evrópu standa
frammi fyrir. Þessi guðsþjónusta er
sérstaklega helguð bænum manna
fyrir Evrópu og er sannarlega ástæða
til þess eins og málum er víða háttað
með styijöldum og öðrum ógnum.
Altarisþjónustu munu annast sr.
Ágúst Eyjólfsson, prestur Maríu-
kirkjunnar í Breiðholti, og sr. Hjalti
Guðmundsson, dómkirkjuprestur.
Ritningarlestur og bæn munu annst
Eric Guðmundsson, forstöðumaður
Sjöunda dags aðventista, Hafliði
Dómkirkjan í Reykjavík.
Kristinsson, forstöðurnaður Hvíta-
sunnusafnaðarins, og Oskar Jónsson,
brigader í Hjálpræðishernum.
Tónlistarflutning annast sönghóp-
urinn Guðný og drengirnir og einnig
syngur Dómkórinn undir stjórn Mar-
teins H. Friðrikssonar, dömorgan-
ista.
Frá samstarfsnefnd
trúfélaga.
Frá afliendingu hjartadælunnar, f.v.: Grétar Ólafsson yfirlæknir,
Sigmundur Þórðarson formaður íþróttafélagsins Höfrungs, Gunn-
hildur Þorbjörg Sigþórsdóttir og Sigurður Helgason formaður Lands-
samtaka hjartasjúklinga.
Landspítalanum færð
hjartadæla að gjöf
Tilefnið er árangursrík meðferð stúlkr
með sködduð lungu
FÉLAGAR í íþróttafélaginu Höfrungi á Þingeyri og Landssamtök
hjartasjúklinga færðu nýlega hjarta- og lungnaskurðdeild og gjör-
gæsludeild Landspítalans að gjöf 1,5 millj. kr. til kaupa á nýrri blóð-
dælu í hjarta- og lungnavél sjúkrahússins. Tilefni gjafarinnar er
árangursrík meðferð sem stúlku með sködduð lungu var veitt eftir
bílslys í sumar. Árangur meðferðarinnar hefur vakið athygli erlend-
is og er læknum Landspítalans og erlendum læknum sem þeir hafa
rætt við ekki kunnugt um að sjúklingur með eitt lunga hafi bjargast
á þennan hátt.
Að lokinni guðsþjónustu gefst
kirkjugestum kostur á að njóta kaffi-
veitinga í safnaðarheimili Dómkirkj-
unnar gegn vægu gjaldi.
Það er von samstarfsnefndar kris-
tinna trúfélaga að fólk fjölmenni í
Dómkirkjuna og sameinist í bæn fyr-
ir friði og farsælli framtíð Evrópu
og þjóða hennar.
kristinna
í upplýsingum frá Grétari Ólafs-
syni yfirlækni um gjöfina kemur
fram að ástæða gjafarinnar er að
deildirnar höfðu í sumar til með-
ferðar sextán ára íþróttastúlku frá
Vestfjörðum [Gunnhildi Þorbjörgu
Sigþórsdóttur á Þingeyri] sem lent
hafði í alvarlegu umferðarslysi. í
fréttatilkynningu Landspítalans
segir: „Hún var flutt með sjúkra-
flugi til Reykjavíkur en við skoðun
þar kom í ljós að bæði lungu voru
alvarlega sködduð, það vinstra svo
mikið að það þurfti að fjarlægja
þegar í stað og var það gert á Borg-
arspítalanum. Það hægra fór einnig
fljótt að gefa sig og þegar sýnt var
að það yrði óstarfhæft var hún flutt
á Landspítalann og gripið til svo-
kallaðra ECLA-meðferðar (Extrac-
orporeal lung assist) en það var
gert meðal annars með hluta af
hjarta- og lungnavél sjúkrahússins.
Þar sem nota þurfti tvær af þremur
dælum vélarinnar, var fengin að
láni dæla frá fyrirtækinu í Þýska-
landi sem framleiðir vélina og
brugðust þeir skjótt og vel við. Eft-
ir fimm vikna meðferð tók hægra
lunga við sér á ný og eftir viðbótar-
aðgerð á því var árangursríkri með-
ferð á hjarta- og lungaskurðdeild
lokið. Allan þennan tíma var hún
höfð sofandi, en eftir að hún var
vakin náði hún sér furðu fljótt,
enda var hér um að ræða fyrir slys-
ið líkamlega hrausta íþróttastúlku
og hafði það sitt að segja hvað
meðferðin tókst giftusamlega. Hún
á þó fyrir höndum allanga endur-
hæfingarmeðferð.
Þetta atvik spurðist út á Norður-
löndum og víðar og fylgdust erlend-
ir starfsbræður okkar náið með
gangi mála, og enginn þeirra, sem
við höfum rætt við er kunnugt um
að sjúklingur með eitt lunga hafi
bjargast á þennan hátt.
Blóðdælur hjarta- og lungnavélar
Landspítalans eru þó ekki vel falln-
ar til svona langvarandi meðferðar
og nú eru til dælur sem byggjast á
miðflóttaafli og henta miklu betur
og skadda blóðið minna. Áður-
nefndir aðilar færðu Landspítalan-
um nú að gjöf af mikilli rausn fjár-
upphæð til kaupa á slíkri vél og
kunnum við þeim bestu þakkir fyrir
því þetta styrkir starfið og eykur
öryggi í framtíðinni.“
Bæjarsljórn Njarðvíkur:
Jákvæð afstaða til
réttargeðdeildar
BÆJARSTJÓRN Njarðvíkur hef-
ur ákveðið að taka jákvætt í er-
indi Hilmars Hafsteinssonar bygg-
ingameistara í Njarvík um bygg-
ingu og starfræktslu réttargeð-
deildar í Njarðvík.
Bæjarstjórnin vill þó áður en enda-
legt samþykki verði gefið, segir í
frétt frá bæjarstjóranum, „fá full-
vissu fyrir því, að íbúum bæjarins
stafaði ekki hætta af starfsemi rétt-
argeðdeildar og að fagmennska verði
höfð í fyrirrúmi við allt er lítur að
starfí þessarar stofnunar."
Bæjarstjómin vill jafnframt að það
skilyrði vrði fyrir ráðningu yfir-
manna við réttargeðdeildina, að þeir
hafi lögheimili og búsetu á Suður-
nesjum. Bæjarstjórnin lýsir yfir
ánægju inni með þetta framtak Hilm-
ars Hafsteinssonar sem vonandi
verður lyftistöng fyrir atvinnulífið á
Suðurnesjum.
F ALLE
Fimmta kynslóðin af Civic hefur
litið dagsins ljós. Við fyrstu kynni
vekja glæsilegar línurnar athygli,
nánari kynni upplýsa um tækni-
lega kosti og yfirburðahönnun.
Civic árgerð 1992 er til sýnis að
Vatnagörðum 24, mánudaga til
föstudaga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 - 15:00.
Nánari upplýsingar eru veittar í
síma 68 99 00
Verð frá: 949.000,- stgr.
Greiðslukjör við allra hæfi.
O'S'
Isinn brotinn í samskipt-
um Islands og Venesúela
-segir Rodolfo M. Duarte sendiherra Venesúela á íslandi