Morgunblaðið - 18.01.1992, Síða 28

Morgunblaðið - 18.01.1992, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992 Frumvarp um Framkvæmdasjóð Islands: Fortíðarvandi tíl Lánasýslu ríkisins Frumvarp um Framkvæmda- sjóð íslands var til 2. umræðu í gær. Frumvarpið gerir ráð fyrir að leggja starfsemi sjóðs- ins niður og að Lánasýsla ríkis- ins yfirtaki skuldbindingar og kröfur sjóðsins. Þingmenn lögð- ust ekki gegn þessari tillögu en ræddu nokkuð fortíð sjóðsins og hveijir væru ábyrgir fyrir þeim vanda sem sjóðurinn hefði komist í. Rannveig Guðmundsdóttir (A-Rn) mælti fyrir áliti meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar. Rannveig taldi rétt í tengslum við þetta mál að vekja athygli að breytingartilögu sem hún hefur lagt fram við frumvarp til lánsfjár- laga fyrir árið 1992, þess efnis að fjármálaráðherra verði heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að yfirtaka skuldir Framkvæmdasjóðs íslands allt að 1.700 milljónum króna. Talsmenn minnihluta, Stein- grímur J. Sigfússon (Ab-Nv) og Halldór Ásgrímsson (F-Al) lögð- ust ekki gegn afgreiðslu frum- varpsins en þeir hefðu kosið og talið æskilegt að málefni Fram- kvæmdasjóðsins yrðu afgreidd í tengslum eða samhliða við endur- skoðun á sjóðakerfínu almennt. En þeir gagnrýndu að mikill flýtir hefði verið á málinu fyrir jól, t.a.m. sagði Halldór Ásgrímsson að þess hefði verið óskað að fá stjórn Framkvæmdasjóðsins til viðræðna en ekki orðið við því. Einnig fundu stjómarandstæð- ingar að ræðum og yfiriýsingum Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra um málefni sjóðsins og fortíðarvanda. Voru skýrsla fortíð- arvandanefndar og erindisbréf þessarar nefndar gagnrýnd. Steingrímur Hermannsson (F-Rn) taldi það nú orðna kreddu að kenna þessum sjóði um tap og tjón, og hefðu málefni Álafoss og fískeldisins aðallega verið nefnd í því sambandi. Steingrímur viður- kenndi að þarna hefði vissulega farið illa en hann varaði við því að horfa einungis á blikur og vá- boða. Hann væri nú ekki svo viss um að útlitið í fískeldi yrði svo svart eftir 2-3 ár. Ræðumaður benti á að menn hefðu haft ástæð- ur til að vera bjartsýnir um fram- tíð fískeldisins. Davíð Oddsson forsætisráðherra taldi að menn hefðu að skaðlausu mátt kanna þessi mál betur og vitnaði til varn- aðarorða sem framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs ríkisins, Vil- hjálmur Lúðvíksson, lét falla í fe- brúar 1985. Ólafur Ragnar Grímsson (Ab- Rn) taldi ræðu, orð eða ummæli Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra vera árás á Þorstein Pálsson sjávarútvegsráðherra sem borið hefði ábyrgð á sjóðnum sem fjár- málaráðherra og forsætisráðherra í eina tíð. Einnig hefði forsætisráð- herra höggvið að Össuri Skarp- héðinssyni formanni þingflokks Alþýðuflokksins, en hann hefði verið fulltrúi íjármálaráðherra í sinni ráðherratíð. Ólafur Ragnar fjallaði einnig mjög í ræðu sinni Stuttar þingfréttir Bankaráð Landsbankans Alþingi hefur kosið aðalmann og varamann til setu í bankaráði Landsbankans til 31. desember 1993. Sæti aðalmannsins skipar Kjartan Gunnarsson fram- kvæmdastjóri í Reykjavík, en varamaður var valinn Fannar Jónasson viðskiptafræðingur á Hellu. Kjartan og Gunnar eru valdir í stað Friðriks Sophusson- ar fjármálaráðherra, sem hefur nú beðist undan setu í bankaráð- inu, og Jóns Þorgilssonar, sem lést skömmu fyrir áramótin. Þinghlé? Þegar þing kom saman 6. jan- úar var ætiunin að afgreiða helstu frumvörp sem eru nauð- synlegar forsendur samþykktra fjárlaga þessa árs. Gert var ráð fyrir að þingfundir yrðu nokkra daga en svo yrði gert hlé á störf- um þingsins. Að sögn Salome Þorkelsdóttur forseta Alþingis er þess vænst að afgreiðslu þessara mála verði lokið um miðja vikuna, ella verði ekki grundvöllur fyrir því að gera hlé. En ef það tekst mun þingið væntanlega koma saman á nýjan leik þriðjudaginn 4. febrúar. Á mánudaginn hefst þingfund- ur kl. 10.30 árdegis og er að því stefnt að ljúka 2. umræðu um frumvarp um ráðstafanir í efna- hagsmálum á árinu 1992 þann dag. Komið hafði til tals að út- varpa og e.t.v. sjónvarpa 3. um- ræðu um þetta mál en nú er ljóst að af því verður ekki. Á mánu- daginn kl. 3 síðdegis mun sam- gönguráðherra einnig flytja munnlega skýrslu um málefni Skipaútgerðar ríkisins. •mmm um Ríkisendurskoðun, ríkisendur- skoðanda og afskipti og uppá- skriftir Ríkisendurskoðunar á árs- reikningum Framkvæmdasjóðs sem sinn fulltrúi, Össur Skarphéð- insson, hefði gert athugasemdir við og neitað að undirrita. Ólafur Ragnar vildi að afgreiðslu þessa máls yrði frestað til þess að menn fengju tækifæri utan þingfundar til að ræða það alvarlega mál að ekki væri hægt að treysta uppá- skriftum Ríkisendurskoðunar. Davíð Oddssyni forsætisráð- herra þótti mjög miður sá siður Ólafs Ragnars Grímssonar að leggja sér orð í munn og útleggja og túlka svo með sínum hætti, ekki væri stafur fyrir fullyrðingum Ólafs Ragnars. Ekki væri hægt að taka þingmanninn alvarlega og væri það afskaplega slæmt. Olafur Ragnar viðhefði „leikaragang og loddaragang". Forsætisráðherran- um þótti Ölafur Ragnar einnig „ganga afskaplega langt í því að rægja ríkisendurskoðanda". For- sætisráðherra furðaði sig á þess- um tilmælum Ólafs Ragnars um frestun og vilja teija mál, þótt annað væri látið í veðri vaka. Þing- maðurinn ómerkti formann og varaformann þingflokks Alþýðu- bandalagsins, en um það hefði verið samkomulag að afgreiða þetta mál sem ekki væri neinn djúpstæður efnislegur ágreiningur um. Ólafur Ragnar Grímsson (Ab- Rn) sagði að fallist hefði verið á að afgreiða þetta mál í þeirri starfslotu Alþingis sem stæði nú yfir í janúarmánuði. Málið væri nú á dagskrá til þess að Steingrími Hermannssyni gæfist tækifæri til að vera við umræðu um frumvarp- ið eins og hann hefði óskað. Það hefði ekkert samkomulag verið um að ekki mætti ræða um forsætis- ráðherrann, ríkisstjórnina og stöðu mála. Hann ítrekaði ósk sína um frestun en til vara fór hann fram á það að atkvæðagreiðslu yrði frestað uns efnahags- og við- skiptanefnd hefði fengið tækifæri til að tala við stjórn Framkvæmda- sjóðs. Davíð Oddsson forsætis- ráðherra var því ekki mótfallinn að atkvæðagreiðslunni yrði frestað ef af einhveijum ástæðum þyrfti að tala við stjórn Framkvæmda- sjóðsins. Umræðu um frumvarpið varð lokið en eftir er að greiða atkvæði endanlega um frumvarp- ið. MMÍIGI Foreldrar og kemiarar and- mæla niðurskurði til skóla FULLTRÚARÁÐ Hins íslenska kennarafélags, kennarafundur í Fella- skóla og Foreldra- og kennarafélag Hólabrekkuskóla mótmæla í álykt- unum, sem borist hafa Morgunblaðinu, fyrirhuguðum niðurskurði á fjármagni til grunn- og framhaldsskóla. í ályktun, sem samþykkt var á fundi fulltrúarráðs HÍK, segir að í grunnskólum sé boðuð tveggja stunda fækkun á viku í 4.-10. bekk. í framhaldsskólum sé fyrirhugaður flatur niðurskurður sem nemur 5-7% og samsvari því að 1.500 nemendum verði vísað frá framhaldsskólunum í haust eða að Fjöibrautaskóla Norður- .lands vestra á Sauðárkróki og Menntaskólanum í Reykjavík verði lokað. Opið hús í Víkinni Frá og með deginum í dag verður opið hús á laugardög- um í félagsheimili Víkings, Víkinni í Fossvogi. Fjölmörg félög hafa haft þennan hátt á í mörg ár en nú fyrst hafa Víkingar fengið til þess aðstöðu. Veitingasalurinn verður opinn frá klukkan 10 og boðið verður upp á kaffi og aðr- ar veitingar. Lottokassi er kom- inn í húsið og geta menn spilað bæði í getraunum og lottói. Stjórn Víkings vill hvetja félaga og íbúa hverfisins til að mæta í Víkina á laugardögum. í ályktuninni segir að mennta- málaráðuneytið hafi sent frá sér óljósar hugmyndir sem meðal annars felast í því að kennslustundum verði fækkað í einstökum námsgreinum að óbreyttu námsefni, námsframboð minnki og nemendum fækki. Afleið- ingamar verði vægast sagt geig- vænalegar. Hætt sé við að námið dragist á langinn og nemendum sem yrði úthýst, yrði ekki hægt að vísa á vinnumarkaðinn á tímum sam- dráttar og atvinnuleysis. Þeim sem hvorki stunda nám né vinnu hljóti að þurfa að greiða atvinnuleysisbæt- ur. Kennarafundur Fellaskóla sem haldinn var 8. janúar 1992 segir í ályktun: „Það er með öllu ólíðandi að allt starf í gmnnskólum landsins sé háð geðþóttaákvörðun einstakra ráðherra hveiju sinni. Það er útilokað að skólastarfið verði markvisst ef sífellt er verið að breyta þeim lögum og reglugerðum sem skólanum er ætlað að starfa eftir. Stöðugt eru gerðar meiri kröfur til skólanna. Undir þeim kröfum stendur skólinn ekki sé nemendum fjölgað í bekkjar- deildum og skóladagur nemenda styttur. ísland er hluti af „nýrri Evr- ópu“. Með þessum niðurskurði ótt- umst við að Islendingar verði verr menntaðir en aðrar þjóðir álfunnar. Þetta er sú framtíð sem við viljum búa börnum okkar.“ Fundur í stjórn Foreldra- og kenn- arafélags Hólabrekkuskóla, bendir á að niðurskurður komi fyrst og fremst niður á nemendunum, sem síðar eigi að taka við þjóðfélaginu. Ogerningur sé fyrir grunnskólann að annast grunnmenntun þjóðarinnar með þeim sóma sem þjóðin á skilið ef hvaða ríkisstjórn sem er geti hringlað með kennslustunda- og nemendafjölda í bekkjum eftir geðþótta. „Fjölgun nemenda í bekkjardeildum í 30 er stórt spor aftur á bak. Ef taka á nemendur úr sínum skóla og flytja í skóla í öðru hverfi, sem gefið hefur verið í skyn að gera þurfi verður um nauðungarflutninga að ræða. Líklegt er að afleiðingar þessa niðurskurðar verði þjóðinni dýrari en nemur þeim sparnaði sem næst, í formi ýmissra félagslegra vandamála sem taka þarf á síðar. Með þeim niðurskurðarað- gerðum sem boðaðar hafa verið er horl't til fortíðar en ekki framtíðar." Kennarafélag Kvennaskólans í Reykjavík segir: „Níðurskurður fjár- veitinga til skólakerfisins og þær hugmyndir um aðgerðir til sparnaðar í framhaldsskólum sem lagðar hafa verið fram leysa engan vanda heldur munu þær þvert á móti skapa ný og kostnaðarsöm vandamál. Árið 1989 átti sér stað flatur nið- urskurður um 6% í skólakerfinu og síðan þá hefur hagur skólanna þrengst enn meir vegna yfirsetningar og aukinna krafna um þjónustu við alla nemendur er ljúka grunnskóla. Ráðuneytið getur ekki vænst þátt- töku kennara í aðgerðum er stuðla að kjaraskerðingu og gæðarýrnun í skólastarfi." Regnboginn sýnir myndina „Náin kynni“ REGNBOGINN sýnir um þessar mundir sakamálamyndina „Náin kynni“. Aðalhlutverk er í höndum Deborah Harry. Cory Wheeler (Deborah Harry) er rokksöngkona sem reynir að kreista fram lífið með söng á ódýr- um bjórkrám. Endar ná ekki saman þannig að Cory verður að hafa aukavinnu og veitir hún þá þjón- ustu að æsa karlmenn upp kynferð- islega í gegnum síma. Kvöld eitt hringir karlmaður sem biður hana um þjónustu. Cory er brugðið því karlmaðurinn er í sömu mund að myrða kvenmann með köldu blóði. Cory hleypur skelfíngu lostin á næstu lögreglustöð en þar vill eng- inn trúa henni enda engar sannanir fyrir hendi. Nú eru góð ráð dýr og Cory verður að velja á milli þess að duga eða drepast.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.