Morgunblaðið - 18.01.1992, Síða 35

Morgunblaðið - 18.01.1992, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992 35 Benedikt Guðnason, * Asgarði - Minning Fæddur 11. nóvember 1903 Dáinn 12. janúar 1992 í dag, þegar tengdafaðir minn, Benedikt Guðnason frá Ásgarði, er kvaddur hinstu kveðju, langar mig til að minnast hans með nokkrum orðum. Benedikt kynntist ég fyrst sumarið 1963, þegar við Ingigerður dóttir hans tókum saman. Komst ég fljótt að því, að þar fór mikill drengskaparmaður, sem ekki lagði illt orð til nokkurs manns og tók að jafnaði orðastað þess, sem minni- máttar var. Fjölskyldumaður var hann mjög mikill og nutum við hjónin þess ekki síst, þar sem við bjuggum á heimili þeirra hjóna í nokkur ár, eða þar til við fluttum í Egilsstaði í janú- ar 1968. Vorum við þá orðin fjögur í minni fjölskyldu, þar sem við höfð- um eignast tvo drengi, en alltaf var nóg rými fyrir alla í Ásgarði. Öll börn hændust mjög að honum og t.d. var tnikil ásókn í að fá að vera „kúarektor" í Ásgarði. Benedikt var bóndi fyrst og fremst, sem unni sinni jörð, hann byggði hana upp frá grunni af myndarskap, bæði hús og ræktun. Það var ekki fyrr en á síðustu árum að maður gæti sagt að komið væri að endurnýjun húsa, enda hafa búskaparhættir breyst ört á síðustu áratugum. Nú hefur íbúðarhúsið verið gert upp að miklu leyti og er ennþá að mestu óbreytt, en það byggði Benedikt árið 1937. Benedikt fylgdist alla tíð vel með atburðum, bæði innlendum og er- Iendum, og var með mjög ákveðnar skoðanir á þjóðmálum. Hann ferð- aðist ekki mikið um aðra landshluta en Austurland, en var mjög fróður um ísland og kunni víða bæjaröð í sveitum, þó hann hefði ekki farið um þá sveit sjálfur. Fornsögurnar kunni hann mjög margar utanað. Hann hafði ákveðnar skoðanir í pólitík, fylgdi alltaf sínum flokki ákveðið, en gagnrýndi hann óhikað, ef honum líkaði ekki það sem gert var og eins var með aðra flokka, þeim var hrósað ef honum fannst þeir gera vel. Mér fannst mjög at- hyglisvert, hvað Benedikt fylgdist vel með ölium þjóðmálum fram á síðasta dag og t.d. á nýársdag, þegar við komum til þeirra hjóna, sagði hann mér að ræða Davíðs hefði ekki verið góð og þannig flutt að hann hefði ekki náð athygli fólksins. Þá var Benedikt búinn að vera að mestu leyti rúmfastur síðan í byrjun nóvember og stundum sár- þjáður. Oft sagði hann manni ýms- ar gamlar sögur, þá ekki síst frá þeim árum sem hann vann sem bíl- stjóri á Reyðarfirði, en hann var einn af fyrstu bílstjórum KHB. Benedikt voru æskustöðvarnar í Sandfelli mjög kærar, náttúran þar og ekki síst Hjálpleysan, þar sem hann átti mörg sporin. Benedikt gegndi ýmsum trúnaðarstörfum í sinni sveit sem ég tel ekki upp hér, langar aðeins að minnast á að hann vann í ijöldamörg ár sem kjötm- aðtsmaður við sláturhúsið á Egils- stöðum, og var þar mjög mikils metinn. í desember 1989 keyptu þau hjón sér íbúð í Miðvangi 22, hér á Egils- stöðum. Ekki gat maður annað fundið, en að Benedikt yndi sér þar vel, þó að alltaf hljóti að vera erfitt Helga Guðmunds- dóttir - Minning „Hún var lóan svo ljúf, sem að lofandi guð, boðar lífið og vorið á jörð.“ (Vald. Briem) í dag, þriðjudaginn 14. janúar, verður elskuleg tengdamóðir okkar, Helga Guðmundsdóttir borin til hinstu hvíldar, en hún lést á heimili sínu, 6. janúar sl., eftir erfið veikindi. Okkur tengdadætrum hennar langar í fáeinum orðum að minnast hennar. Helga var alveg einstök kona, falleg, blíð og góð. Er okkur nú, þegar leiðir skilur, efst í huga þakk- læti fyrir það elskulega viðmót sem hún ávallt sýndi okkur frá því að við komum inn í fjölskylduna. Frá sterkum persónuleika hennar blátt áfram streymdi hlýjan og velvildin, en auk þess var Helga ákaflega greind og glæsileg kona. Þrátt fyrir langvarandi veikindi hélt hún ávallt reisn sinni og æðraðist aldrei, sama á hveiju gekk. Bjartsýnin ásamt óbilandi trú á Guð, lífið og hamingj- una, var Helgu í blóð borin og var sá hornsteinn sem hún byggði heim- ilislífið og uppeldi barna sinna á. Eftir að barnabörnin komu nutu þau í ríkum mæli góðmennsku hennar og leiðsagnar og kölluðu jafnvel börn úr öðrum fjölskyldum hana líka „ömmu Helgu“. Börnum sínum, sem og okkur hinum sem tengdust henni sterkum böndum, var hún ekki bara mikil móðir, heldur einnig traustur vinur. Þó að söknuðurinn sé sár fyrir okkur sem kunntumst Helgu náið, eigum við yndislegar minningar um elskulega konu sem setti svip á umhverfið og mótaði lífssýn okkar; minningar sem um aldur og ævi munu ylja okkur um hjartaræturnar. Oftar en ekki sagði hún við okkur: „Það þarf ekki alltaf að fá peninga fyrir allt sem gert er,“ en sjálf lagði Helga ómælda vinnu í þágu líknar- mála og þeirra sem minna mega sín í samfélaginu. Fyrir þjóðfélag sem öðru fremur einkennist af peninga- hyggju og eiginhagsmunum, er mik- ill sjónarsviptir af slíkum mannvini sem Helga Guðmundsdóttir var. Aldraðri móður sinni, Guðrúnu Ásbjörnsdóttur, reyndist hún sér- staklega vel og voru þær miklar vin- konur og samrýndar. Gunnlaugi eiginmanni sínum var hún traustur lífsförunautur og sterkur bakhjarl og milli þeirra ríkti djúpur kærleikur og gagnkvæm virðing. Var um- hyggja hans í veikindum Helgu ein- stök. Þá er ómetanleg aðstoð og styrkur einkadótturinnar Guðrúnar Ingibjargar, sem af alúð hjúkraði móður sinni til hinstu stundar. Er missir þeirra mikill og biðjum við algóðan Guð að styrkja þau í þeirra djúpu sorg. Blessuð sé minningin um stórkost- lega konu. Hvíli hún í Guðs friði. Far þú i friði friður Guðs þig blessi hafðu þðkk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Tengdadætur. að yfirgefa þann stað sem maður byggir upp og býr á í yfir 50 ár. Eg hef ekki hugsað mér að fara að skrifa langa lofræðu um Bene- dikt enda hefði honum ekki verið það að skapi, hann hafði sínar ákveðnu skoðanir á þeim máluin. Ég vil aðeins þakka honum fyrir allt það sem hann gerði fyrir mig og fjölskyldu mína. Slíkra manna sem Benedikt var er gott að minn- ast. Kæra Þura og aðrir aðstendend- ur, mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu Bene- dikts. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem.) Eiríkur Elísson. Eftir langa og farsæla ævi hefur nú Guð kallað hann afa burí úr þessum heimi. Okkur barnabörnin hans langar t.il að minnast hans í nokkruin orð- um og þakka honum fyrir allt og allt. Fyrir allar ánægjustundirnar sem við áttum í sveitinni hjá honum og ömmu. Það var oft glatt á hjalla þegar við hittumst þar öll frænd- systkinin frá Reykjavík, Vest- mannaeyjum og Egilsstöðum. Okk- ur þótti gaman að fylgja afa eftir við hin ýmsu sveitastörf. Hann var fús til að leyfa okkur að taka þátt í þeim með sér, leiðbeina okkur og láta okkur finnast við gera eitthvað gagn. Það var gott að eiga þau ömmu og afa í Ásgarði að á upp- vaxtarárum okkar. Við áttum margar notalegar stundir í eldhús- króknum þar sem þau spjölluðu við okkur á meðan við nörtuðum í góðu kleinurnar hennar ömmu ásamt öðru góðgæti sem hún bar á borð. Elsku amma, við sendum þér kveðj- ur og biðjum Guð að veita þér styrk. Við viljum í lokin gera orð skálds- ins að kveðjuorði okkar til hans afa. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Þuríður, Margrét, Hörður, Ásdís, Benni, Steindór, Gísli, Elli og Viðar. Hilmar Þ. Davíðs- son - Kveðja Fæddur 24. október 1967 Dáinn 22. nóvember 1991 Kallið er komið, komin er nú stundin, vinskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem) Núna eru jólin gengin yfir og nýtt ár heilsar er við höfum kvatt hið gamla. Vi hugsum til framtíðar- innar, hvað bíður okkar, en um leið fyllumst við sárum söknuði, sárari en nokkuð annað, því 22. nóvember á liðnu ári var ástkær mágur minn, Hilmar Þór, hrifinn frá okkur í blóma lífsins, þegar bátur hans fórst ásamt fimm mönnum við Grindavík. Hilmar Þór eða Hilli eins og við kölluðum hann var var sonur hjón- anna Bóthildar Halldórsdóttur og Davíðs Sigurðssonar á Blönduósi og átti hann fjögur systkini, Halldór Rúnar, Önnu Kristínu, Guðmund Reyr og tvíburabróður, Sigurð Frið- rik, sem nú hafa misst svo mikið því Hilli átti engan sinn líka. Því fékk ég að kynnast er ég tengdist þessari fjölskyldu og tók saman við Sigurð bróður hans, þá reyndist Hilli okkur vel og var drengjunum okkar Fædd 2. júní 1914 Dáin 9. janúar 1992 Hún elsku amma okkar er dáin. Þessi góða kona sem var okkur svo kær er nú horfin yfir móðuna miklu, en við vitum að þar verður tekið vel á móti henni, því þar bíða hennar góðir vinir með opinn faðminn. Amma hafði lengi átt við erfið veikindi að stríða, en vegna hóg- værðar sinnar og glaðlyndis leyndi hún oft líðan sinni, og sterk var hún sem steinn er dró nær endalokunum og bugaðist aldrei. Það er ekki auðvelt að lýsa þeim tilfinningum sem kvikna þegar ást- kær amma okkar er nú til grafar borin og oft ræður eigingirni mann- eskjunnar ríkjum hjá þeim sem eftir lifa. Það er aldrei auðvelt að sjá á bak ástvinum sínum, hvort heldur þeir eru ungir eða gamlir, lasburða eða í blóma lífsins, en við vitum að amma hefur nú öðlast ró og frið frá amstri dagsins og erfiðum veikind- um, og fyrir það ber að þakka. Hún er nú sest á æðri og betri stað, þar sem sál hennar mun lifa um ókomna tíð, við birtu frá Guði almáttugum. Það er eins og fyrr segir ákaflega sárt að þurfa að kveðja hana í hinsta sinn, en allar sérstaklega góður. Hann var alltaf boðinn og búinn að hjálpa og að- stoða við hvað sem var og ef Siggi var frá heimilinu vegna vinnu hafði Hilli oft samband til að athuga hvort okkur vanhagaði um eitthvað. Og þetta gilti ekki bara um okkur því ég veit að margir gætu tekið undir þegar minnst er á hjálpsemi hans og greiðvikni. Hilmar kynntist eftir- lifandi unnustu sinni, Þórhildi Gísla- dóttur, á Blönduósi og stofnuðu þau heimili þar. Hilli var alltaf mjög til- finningaríkur og lét auðveldlega í ljós væntumþykju og ástúð, því efa ég ekki að þau áttu yndisleg ár sam- an og ekki dró úr hamingjunni þeg- ar Hildur Harpa fæddist, sólargeisl- inn í tilverunni. Síðastliðið haust lágu leiðir okkar allra suður og leigðu þau sér litla íbúð í Kópavogi hjá frænku hans Guðrúnu og Sveini manni hennar. Talsvert þurfti nú að vinna í íbúð- inni og hjálpuðust þeir bræður að ásamt Sveini, og munu ljúfsárar minningar geymast um þann tíma. Eftir skamma dvöl hér syðra bauðst Hilla pláss á bát sem hét Eldhamar og var gerður út frá Grindavík. Áhuginn var fyrir hendi þar sem hann hafði stundað sjóinn síðustu árin. Það kom okkur því talsvert á óvart, er hann var rétt nýbyijaður aftur á sjónum, að hann vildi hætta góðu minningarnar um elskulegu ömmuna okkar, þessa yndislegu konu, sem var okkur svo mikið, munu friða sálir okkar á þessari sorgarstundu. „Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir, þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum.“ (Hallgrímur I. Hallgrimss.) Innilega samúð okkar fær ástkær afi okkar, sem stóð eins og klettur við hlið hennar allt til endalokanna, hans er missirinn mikill. Elsku mamma og pabbi, þið fáið líka inni- legar samúðarkveðjur svo og aðrir nánir ættingjar og vinir. Við kveðj- um ömmu okkar með trega, en jafn- framt þakklæti fyrir að hafa átt slíka ömmu. Minning hennar mun alltaf lifa í hjörtum okkar sem elskuðum hana. Guð geymi elsku ömmu okkar. Hulda og Þórdís Jónasdætur. Kveðja frá barnabarna- börnum í dag kveðjum við elskulega langömmu okkar í hinsta sinn. Bless- uð sé minning hennar. og koma í land. Hilmar átti ekki afturkvæmt en hann er hjá okkur í hjörtum okkar. Við lútum höfði og þökkum góðum dreng alltof stutta samfylgd. Minningarnar munu lifa. Elsku Bóthildur og Davíð, Þór- hildur og Hildur Harpa, Rúnar og Jórunn, Anna, Gummi og elsku Siggi minn og aðrir ættingjar, Hilmar var okkur svo dýrmætur. Því bið ég Guð að geyma hann og styrkja okkur á erfiðum tímum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Arís Njálsdóttir Hin langa þraut er liðin nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? (V. Briem) Saknaðarkveðjur frá: Erlu Huld, Hreindísi Ylvu, Jónasi Þór, Harry Þór og Yngva Rafni. Minning: Hulda Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.