Morgunblaðið - 18.01.1992, Síða 44

Morgunblaðið - 18.01.1992, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1992 „£g g&t ekJci stillt þennan, kúfci. " Ast er... ... að vera rómantískur. TM Reg. U.S. Pat Off. — all righta reserved ® 1991 Los Angeles TimesSyndicate Hvað er þig að dreyma, maður? HOGNI HREKKVISI HANN \SILU HAFA ElGlM DYÆOG PyKAVORÐ." Endurtakið þættina á kvöldin Ríkisútvarpið flytur nú á hverj- um morgni rétt fyrir kl. 10 stutta þætti er nefnast: „Sigurbjörn Ein- arsson biskup segir börnunum sögu.“ — Þetta er um það bil 10 mínútur í hvert sinn og er sagt „fyrir börn — yngri og eldri“. Vert er að vekja sérstaka at- hygli á þessum fallegu og einstak- lega hugljúfu þáttum, sem ekki er hægt annað að segja um en að feli í sér sáðkorn Guðsríkisins fyrir bæði eldri og yngri. — Hér er ijall- að um dýpstu spurningar og við- horf mannlegs lífs í svo einföldu og hugljúfu máli, að ekki getur annað en gengið beint inn að hjarta hinna eldri sem hlusta, og án efa sálir þeirra barna, sem kunna að heyra — svo fagurlega og af svo mikilli hlýju, djúpskyggni og speki er þetta máí flutt. — Þetta er sett fram í einföldum orðum sem hæfa öllum „bamslega“ hugsandi sálum, og flytur í raun slíka lífsspeki að erindi á við alla — nú á þeim tímum þegar fólk hungrar og þyrstir eftir svörum um tilgang í dimmum heimi — sérstaklega hina yngri, sem vantar og leita eftir hagnýtri, ein- faldri leiðsögn inn í þokuhulda og óræða framtíð sína. — Það víkkar sannarlega og dýpkar sjónarsvið hinna eldri — og lýsir upp hinn dimma veg framundan fyrir ungar sálir. Þessi þáttur á því — eins og gefið er í skyn í kynningunni — erindi við unga og ekki síður aldna. Ber að þakka Ríkisútvarpinu fyrir að gefa landsmönnum kost á slíku afburðaefni, sem þó lætur svo lítið yfir sér. — Virðist í þessu sam- bandi full ástæða til að benda á, að á þessum tíma dags er mikill hluti þeirra barna og unglinga, sem þyrftu að heyra þetta, bundinn á skólabekk, og mikill fjöldi hinna eldri sem líka þyrftu að hlusta, bundinn við skyldustörf. Er því spurning, hvort Ríkisút- varpið ætti ekki að hafa þessa þætti endurtekna á kvöldin í dag- skránni, t.d. rétt fyrir kl. 22, því þá em flestir heima, og er sá, sem þetta ritar, ekki í vafa um að þetta myndi mælast vel fyrir — líka sem kvöldhugvekja, þegar börn — yngri og eldri — eru að ganga inn í svefn næturinnar — hið dularfulla ástand, sem fáir skilja, þar sem mannshugurinn dvelur í ríki drauma og anda, á meðan líkaminn hvílist. Það mætti hugsa sér að það myndi falla vel við t.d. að koma á undan „Orðum kvöldsins“ — sem eru kyrrlát og hugljúf kvöldkveðja sem Ríkisútvarpið hefur flutt lands- mönnum um árabil og aldrei missir gildi sitt — að loknum erli brauðst- rits og daglegra sviftinga hins ver- aldlega. Þá væri hugsanlega ekki úr vegi að slíkt afburðaefni yrði gefið út til sölu á segulbandsspólu af Ríkis- útvarpinu — þegar þessum þáttum er lokið — svo gefa megi vinum, yngri sem eldri, og láta þannig þessi dýrmætu frækom Guðsríkis- ins — og hagnýtrar lífsspeki — berast áfram, og verða handbær til að spila á heimilum fyrir börnin í kvöldkyrrðinni á ókomnum árum. — Ekki veitir af í hinum mikla umróti og losi sem einkennir dag- legt líf í landinu, t.d. þegar veruleg- ur hluti mæðra vinnur úti — og hefir lítinn tíma til að sinna börnum sínum, sem fara því á mis við þá blessun og það öryggi, að mamma sé alltaf við hendina — til að veita skjól og huggun — og til að sinna andlegum og líkamlegum þörfum þeirra — eins og fyrri kynslóðir áttu allajafnan að fagna. Eitt af eldri börnunum Þessir hringdu . .. Góður þáttur um Þjóðminjasafnið Bergþóra Jóhannsdóttir- hringdi: Ég vi! þakka Sigurði Richter umsjónarmanni þáttarins Nýjasta tækni og vísindi fyrir síðasta þátt um Þjóðminjasafnið. Þar kynntist þjóðin því merka starfi sem þar fer fram. Þetta var góður þáttur. Ljúfmannleg hjálpsemi Farþegi hringdi: Ég kom með Flugleiðavél frá London 21. ágúst sl. var svo óheppinn að skilja eftir forláta myndavél í biðsal á Heatrow flug- velli. Vil ég þakka Flugleiðafólki fyrir einkar ljúfmannlega hjálp- semi og fyrirhöfn við að koma myndavélinni í réttar hendur. Eft- ir tvö símtöl og innan þriggja daga var myndavélin komin á af- greiðslu Flugleiða í Reykjavík og mér boðið að sækja hana. Kærar þakkir Flugleiðafólk. Raunhæfustu kjarabæturnar Lesandi hringdi: Varðandi væntanlega kjara- samninga vil ég koma þessari lausn á framfæri: Eru það ekki raunhæfustu kjarabæturnar að atvinnurekendur og launþegar gerðu samning með þátttöku rík- isvaldsins um að leyfa innflutning á landbúnaðarvörum frá EB lönd- um? í staðinn yrði sleppt öllum kauphækkunum. Köttur Mjási, sem er stór hvítur köttur með bröndótt skott og bröndótta kardínálahúfu, hefur verið týndur síðan 2. janúar. Vinsamlegast hringið í síma 41199 ef hann hef- ur einhvers staðar komið fram. Hringur Giftingahringur fannst í Kópa- vogi, vesturbæ, Upplýsingar í síma 642599. Víkveiji skrifar Kunningi Víkveija kom að ösku- tunnu sinni fullri nú rétt eftir jólin, enda víða í hverfum, sem féllu úr vinnudagar vegna jólahátíðar- innar og því ekki unnt að losa tunn- urnar. Hann ákvað því að fara með poka á eina gámastöðina með venjulegu húsasorpi, sem alla jafn- an fer í tunnuna heima. Þegar kunninginn kom með pok- ann sinn og spurði hvar hann mætti losa sig við hann, svaraði af- greiðslumaður Sorpu að bragði með töluverðum þjósti: „Þú verður að flokka sorpið!“ Kunninginn sagði sem væri að þess gerðist ekki þörf, því að um væri að ræða venjulegt heimilissorp, sömu tegundar og vikulega væri sótt heim til hans. Allt kom fyrir ekki, afgreiðslumað- urinn heimtaði flokkun og engar refjar. Sló þá í brýnu milli afgreiðsl- umannsins og kunningjans, sem lyktaði með því að kunninginn strunsaði á brott og eftir lá sorpið óflokkað. Það er meira en lítið undarlegt, þegar komið er með venjulegt húsa- sorp á gámastaði Sorpu, að þá ein- mitt skuli þurfa að flokka það, en ekki þegar það er sótt heim. Þá er hofmóður afgreiðslumanna heldur hvimleiður og ekki til þess fallinn að hvetja fólk til þess að heim- sækja þessar gámastöðvar aftur. Annars verður það að segjast, að það voru mikil mistök hjá þessu fyrirtæki, Sorpu, að neita að taka við jólatrjám í lok jólanna. Nú eru þessi tré út um víðan völl, alls staðar og hvergi, öllum til ama og lýsir engu öðru en sóðaskap. Hér áður fyrr, á meðan sorphirða Reykjavíkurborgar var og hét, tók hún jólatré eins og ekkert væri við tunnurnar og þau hurfu að loknum jólum eins og dögg fyrir sólu. Nú er borgin hins vegar öll útbíuð í þessum miður skemmtilegu leifum jólanna. Fulltrúar Sorpu segja gjarnan, að það sé of mikið verk að fjar- lægja öll jólatré frá húsum borg- arbúa, en það eru rök, sem ekki duga. Jólatré hafa verið hirt öll undanfarin ár og það umyrðalaust. Nú er getuleysið algjört og það allt í einu, þegar Sorpa kemur til skjal- anna. Hins vegar gat Hafnaríjarð- arkaupstaður veitt þessa þjónustu í ár og þar var þetta framkvæman- legt, þótt ekki væri það í höfuðborg- inni. Annars má gefa sendibílstjórum „rós í hnappagatið“ fyrir framtak þeirra, en þeir buðust til þess að sækja heim tré gegn 200 króna gjaldi. Ljóst er þó að ekki hafa all- ir nýtt sér þá þjónustu. Fréttir birtust nú í vikunni um það, hve mikið áfengi íslend- ingar hefðu innbyrt á síðastliðnu ári og voru það engin smábýsn í lítrum talið. Hins vegar hafði bjór- sala dregist töluvert saman frá ár- inu á undan og sannast það, að eftir að nýjabrumið fór af minnkaði salan. En athyglisvert var að heyra að hver íslendingur hafði drukkið á árinu tæpa 5 lítra af hreinum vínanda. Hvað segja þessir lítrar lesandan- um eða hlustanda útvarps, sem á fréttirnar hlýðir? í raun ekki neitt, en samt telur Víkverji, að þessi samanburður sé hafður við til þess, að menn sjái í huga sér dauðadrukk- inn íslending, já nær dauða en lífí, af því að hafa svolgrað í sig 5 lítra af alkohóli. En sé málið athugað öllu nánar skulum við hugsa okkur mann, sem hefur þann sið að drekka með há- degismat einn Egils-pilsner, 33ja sentilítra flösku, og aðra með kvöld- matnum. Þetta gerir hann alla daga ársins og hefur þessi náungi, þótt hann hafi aldrei fundið á sér, þá drukkið 5,42 lítra af hreinum vín- anda á árinu og stendur keikur eft- ir. Það er sem sé ekki magnið, sem innbyrt er, sem lýsir þjóðarböli því sem kennt er við áfengi, heldur á hvern hátt það er drukkið. Magnið segir í raun ekkert um þjóðarbölið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.