Morgunblaðið - 18.01.1992, Qupperneq 47
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992
47
Bidasoa hótarad rifta
samningnum við Júlíus
Leikur Júlíus Jónasson ekki
með íslenska landsliðinu í
B-keppninni í Austurríki?
Júlíus Jónasson í leik með landsliðinu.
KORFUKNATTLEIKUR
Æsispennandi
lokasekúndur
- þegar Njarðvík lagði KR í „Ljónagryfjunni"
SPÆNSKA handknattleiksfé-
lagið Bidasoa staðfesti í gær
að Júlíus Jónasson fengi ekki
frí hjá félaginu til að leika með
íslenska landsliðinu í æfinga-
mótinu í Austurríki í næstu
viku. Jafnframt var skýrt tekið
f ram að Júlíus gæti ekki verið
með í B-keppninni nema hvað
varðaði 24. og 25. mars, en þá
verða leikir í milliriðli. Sætti
HSÍ sig ekki við þetta og reyni
að fá spænska handknattleik-
sambandið og IHF til að setja
Júlíus í leikbann með Bidasoa
verði því einfaldlega svarað
með því að rifta samningnum
við Júlíus. HSÍ og Bidasoa und-
irrituðu samning s.l. sumar
þess efnis að Júlíus mætti fé-
lagsins vegna vera með ífyrr-
nefndum mótum.
Samkyæmt upplýsingum frá
HSÍ gerði sambandið skrifleg-
an samning við Bidasoa 24. ágúst
s.l. þar sem kemur fram að Júlíus
fái frí frá félaginu 27. desember til
5. janúar, 22. til 26. janúar og 17.
til 30. mars. Júlíus var með landslið-
inu um áramótin, en fyrr í vikunni
barst símbréf frá spænska félaginu
til HSÍ, þar sem segir að Bidasoa
geti ekki verið án Júlíusar á þeim
tíma, sem HSÍ óskar eftir að fá
hann, en dagar í febrúar komi hins
vegar til greina. Bidasoa eigi að
leika 7., 14. og 28. mars í úrslita-
keppninni á Spáni, en bikarakeppn-
in verði 19. til 22. mars og því
geti Júlíus ekki verið með í B-
keppninni nema 24. og 25. mars.
Stálístál
HSÍ svaraði þessu um hæl og
bað félagið um að endurskoða af-
stöðu sína með tilliti til samnings-
ins, sem var gerður í ágúst. Óskað
var eftir jákvæðu svari innan sólar-
hrings, en stæði akvörðun Bidasoa
óbreytt ætti HSÍ ekki um annað
að velja en að snúa sér til spænska
handknattleikssambandsins og IHF
og leita réttar síns — fara fram á
að þau settu Júlíus í leikbann með
Bidasoa þar til málið leystist.
Svar barst til HSÍ í gærmorgun
þar sem fyrri afstaða Bidasoa var
áréttuð. Ekki var minnst á samn-
inginn frá því í sumar, en bent á
að HSÍ hefði ekkert með mál Júlíus-
ar að gera og því hótað að Bidasoa
segði upp samningnum við Júlíus
ef HSÍ ætlaði að reyna aðrar leiðir.
Gallharður
Morgunblaðið hafði samband við
Benardo Garcia, forseta Bidasoa,
og spurði hvort hann ætlaði ekki
að standa við gerðan samning, sem
hann undirritaði í ágúst. Garcia
svaraði því til að hann hefði verið
neyddur til að skrifa undir umrædd-
an samning, því annars hefði HSÍ
neitað að veita Júlíusi leyfí til að
leika með Bidasoa. Hann neitaði
hins vegar að ákveðnar dagsetning-
ar hefðu verið nefndar í samningn-
um.
„Það er augljóst mál að þegar
við borgum leikmanni milljónir pe-
seta þá höfum við forgang, þegar
við þurfum á honum að halda. Hon-
um er hins vegar frjálst að gera
það sem hann vill í frítíma sínum,“
sagði Garcia.
Aðspurður um hvort hann stæði
við stóru orðin varðandi samninginn
við Júlíus sagðist Garcia meina það
sem hann hefði sagt við HSÍ. „Ég
er gallharður á þessu og rifti samn-
ingnum hikstalaust ef á þarf að
halda. Júlíus veit hvernig málið
stendur og honum er kunnugt um
að alvara fylgir máli.“
Fóma ekki starfinu...
Júlíus er á milli steins og sleggju.
Hann sagði að þegar hann samdi
við Bidasoa í maí s.l. hefðu Spán-
veijarnir sagt að þeir myndu reyna
að koma til móts við hann í sam-
bandi við B-keppnina, en þá hefðu
þeir hvorki vitað um dagsetningar
í deildinni eftir áramót né bikar-
keppninni. Þær hefðu hins vegar
legið fyrir í ágúst, en Spánveijarnir
segðu að þeir hefðu þá verið þving-
aðir til að skrifa undir samninginn
og um það snerist ágreiningurinn.
„Þeir láta eitt yfir okkur Bogdan
Wenta [landsliðsmann Póllands]
ganga. Annaðhvort leyfa þeir okkur
báðum að fara eða setja okkur stól-
inn fyrir dyrnar. Málið lítur ekki
vel út og ofan á allt saman meidd-
ist Jesus Olalla í leik með spænska
landsliðinu á heimsbikarmótinu í
Svíþjóð og verður frá í þijá mánuði
ef ekki út tímabilið."
En hvað ætlar þú að gera í stöð-
unni?
„Það er ljóst að ég er frekar illa
staddur. Hafa ber í huga að þetta
er mín vinna og ég fórna ekki starf-
inu einn, tveir og þrír. Þetta er leið-
inlegt mál og ég get ekki tekið
ákvörðun umhugsunarlaust.“
...en langar í B-keppnina
Júlíus sagðist vera mjög ánægður
hjá Bidasoa. „Það hefur allt staðist
eins og stafur á bók og þetta er
eina vandamálið, sem hefur komið
upp. En þetta er líka djöfullegt, því
mig langar rosalega til að taka
þátt í B-keppninni.“
Treysti á HSÍ
1. deildin á Spáni byijar á ný
1. febrúar og Júlíus átti von á að
fá leyfí til að fara í æfíngamótið í
Austurríki en hann sagði að þjálfar-
inn hefði sagt nei og það stæði.
„Spánveijarnir eru harðir í horn
að taka og þeir segjast láta hart
Njarðvíkingar unnu KR-inga á
æsispennandi lokamínútum í
„Ljónagi-yfjunni" í Njarðvík í gær-
kvöldi þar sem sigur-
Björn karfan var gerð fjór-
Blöndal um sek. fyrir leikslok.
skrifarfrá Lokatölur leiksins
Kefíavik Urðu 76:74 eftir að
staðan I hálfleik hafði verið 42:33 fyr-
ir heimamenn. Njarðvíkingar og KR-
ingar beijast um sigurinn í A-riðli
deildarinnar og fyrir leikinn höfðu lið-
in tapað jafnmörgum stigum. Lands-
liðsmennirnir Páll Kolbeinsson og
Axel Nikulásson voru meiddir og léku
ekki með KR og í lið UMFN vantaði
ísak Tómasson sem var veikur.
Það var þó vesturbæjarliðið sem
byijaði betur, en Njarðvíkingar voru
fljótir að taka við sér og áður en varði
voru þeir komnir með gott forskot.
Þeir náðu mest 17 stiga forskoti 38:21
eftir stundarfjórðung, en í hálfleik var
munurinn 9 stig. í síðari hálfleik fóru
KR-ingar að láta meira að sér kveða
og þeir söxuðu jafn og þétt á forskot
Njarðvíkinga. Geysileg stemmning var
á lokamlnútunum þegar KR-ingum
tókst að jafna 72:72 rúmum tveim
mínutum fyrir leikslok. Njarðvíkingar
náðu forystunni aftur 74:72, en KR-
ingar jöfnuðu aftur 74:74. Næsta upp-
hlaup Njarðvíkinga rann út í sandinn
og KR-ingar áttu möguleika á að ná
forystunni. En þeir misstu boltann
hálf klaufalega þegar 28 sek. voru
eftir og meira þurftu Njarðvfkingar
ekki, þeir létu boltann ganga örugg-
lega á milli sín og þegar 4 sekúndur
voru til leiksloka skoraði Rondey Rob-
inson sigur körfuna. „Þetta sérlega
þýðingamikill sigur fyrir okkur vegna
stöðunnar í riðlinum og segja má að
þetta hafí verið fjögra stiga leikur,“
sagði Friðrik Rúnarsson þjálfari
Njarðvíkinga eftir leikinn. „Við lékum
vel í fyrri hálfleik og náðum þá góðu
forskoti, en eins og svo oft áður þá
er eins og menn missi einbeitinguna
þegar þessi staða kemur upp. Þeir
fara að slaka á og það voru KR-ingar
fljótir að nýta sér. En reynslan var
okkar sterka vopn þegar mest á
reyndi." „Það sem varð okkur að falli
var léleg skotnýting og þá sérstaklega
í 3ja stiga skotum," sagði Birgir Guð-
björnsson þjálfari KR. „Við vorum auk
þess án landsliðsmannanna Páls og
Axels sem vitaskuld veikti liðið. Þeir
náðu góðu forskoti í fyrri hálfleik sem
kostaði okkur mikla orku að vinna upp
og með smá heppni hefði sigurinn allt
eins getað lent okkar megin. Þetta
voru dýrmæt stig sem þarna var ba-
rist um, en ég hugga mig við að við
eigum eftir að mæta þeim á okkar
heimavelli," sagði Birgir ennfremur.
Teitur Orlygsson, Friðrik Ragnars-
son, Rondey Robinson og Jóhannes
Kristbjörnsson léku best hjá Njarðvík,
en þeir Jon Baer, Hermann Hauksson
og Olafur Gottskálksson hjá KR. Einn-
ig stóðu ungu mennirnir Oskar Kristj-
ánsson og Sigurður Jónsson vel fyrir
sínu.
mæta hörðu. Ég hef ekkert heyrt
í HSÍ í dag [föstudag], en treystí
)ví að sambandið geri ekki neitt í
málinu án þess að láta mig vita,
því eins og staðan er bitnar þetta
allt á mér.“
ÚRSLIT
Handknattleikur
Selfoss - FH 30:31
íþróttahúsið á Selfossi, Islandsmótið I hand-
knattleik, 1. deild, föstud. 17. janúar 1992:
Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 4:3, 5:4, 5:5,
8:5, 9:6, 10:9, 11:10, 12:11, 14:12, 15:14,
16:15.16:16,17:18,19:20,21:21, 22:24,24:
25,, 25:27, 26:28, 27:29, 28:30, 30:31.
Mörk Selfoss: Sigurður Sveinsson 10/5,
Einár Gunnar Sigurðsson 8, Gústaf Bjamqj _
son 5, Einar Guðmundsson 3, Jón Þ. Jóns-
son 3, Kjártan Gunnarsson 1.
Utan vallar: 6 mín.
Varin skot: Gisli Felix Bjarnason 8.
Mörk FH: Hans Guðmundsson 10/2, Sig-
urður Sveinsson. 7, Gunnar Beinteinsson
6, Kristján Arason 5, Þorgils Ó. Matthiesen
1, Pétur Petersen 1, Hálfdán Þórðarson 1.
Utan vallar. 4 mín.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinssson 3,
Magnús Sigmundsson 4
Áhorfendur. 520.
■Selfyssingar sáu á eftir sigri til FH-inga
í sviplitlum leik. Áhorfendur sköpuðu góða
Ijónagryfjustemmningu en FH-ingamir
komust í gegnum það. Góður hópur stuðnni^
ingsmanna FH fylgdi liðinu á Selfoss. FH-
ingar og beittu þvi að taka tvo leikmenn
Selfoss úr umferð i seinni hálfleik, þá Einar
Gunnar Sigurðsson og Sigurð Sveinsson.
Þetta truflaði sóknir Selfyssinganna og
FH-ingar komust yfir á þessu bragði og •
héldu þvi til loka. í leiknum var áberandi.
hvað reyndir leikmenn hafa tilhneigingu til
að skipta sér af dómum. Þetta henti FH-ing-
inn Þorgils Ottar, en dómaramir létu þetta
ekki hafa áhrif á sig og dómgæslan var
mjög góð. I lok leiksins færðist talsverð
spenna í leik liðanna þegar munaði einu
marki og Selfyssingar voru við það að jafna
en FH-ingar héngu á muninum og bættu
um betur með einu marki á síðustu sekúnd-
unum. Bestir í liði Selfoss vom Einar Gunn-
ar Sigurðsson og Sigurður Sveinsson. í FH
liðinu voru Sigurður Sveinsson og Hans
Guðmundsson bestir.
Sigurður Jónsson
KA-Stjarnan 27: &
íþróttahús KA:
Gangur leiksins: 2:2, 6:3, 11:4, 12:5, 13:9,
16:9, 20:12, 25:17, 27:21.
Mörk KA: Sigurpáll Ámi Aðalsteinsson
10/5, Erlingur Kristjánsson 6, Aifreð Gísla-
son 3, Pétur Bjarnason 3, Jóhann Jóhanns-
son 3, Stefán Kristjánsson 2.
Varin skot: Axel Stefánsson 15, Birgir
Friðriksson 3.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Sljörnunnar: Magnús Sigurðsson
8/7, Skúli Gunnsteinsson 5, Patrekur Jó-
hannesson 4, Hafsteinn Bragason 3, Axel
Bjömsson 1.
Varin skot: Brynjar Kvaran 7, Ingvar
Ragnarsson 2.
Utan valiar: 10 mínúlur og þar af ein úti-
lokun.
Dómarar: Guðjón Sigurðsson og Hákon
Siguijónsson.
Áhorfendur: 670.
■KA-menn mættu sigurglaðir til leiks á
Akureyri gegn Stjömunni og það var aldrei
spuming um sigurvegarana heldur frekar
hvað sigur KA yrði stór. KA náði strax
góðri forystu og hélt henni með Sigurpál
og Erling sem bestu menn og Alfreð sterk-
an í vöminni. Þá var Axel öraggur í mark-
inu. Stjarnan náði sér aldrei á strik og eng-
inn stóð upp úr.
Einar Pálmi Arnason
Körfuknattleikur
UMFN - KR 76:74
íþróttahúsið ( Njarðvík, íslandsmótið í
körfuknattleik, Japísdeildin, föstudaginn
17. janúar 1991.
Gangur leiksins: 0:3, 3:3, 3:7, 7:7, 11.7,
15:13, 20:13, 30:21, 38:21, 42:33, 47:40,
58:52, 64:61, 72:68, 72:72, 74:74, 76:74.
Stig UMFN: Teitur Örlygsson 24, Friðrik
Ragnareson 19, Rondey Robinson 12, Jó-
hannes Kristbjömsson 9, Kristinn Einarsson
6, Gunnar Örlygsson 2, Ástþór Ingason 2,
Sturla Örlygsson 2.
Stig KR: Hermann Hauksson 17, Jon Baer
17, Ólafur Gottskálksson 14, Óskar Kristj-
ánsson 11, Sigurður Jónsson 6, Guðni
Guðnason 5, Láras Árnason 2, Matthías
Einarsson 2.
Dómai'ar: Kristinn Albertsson og Kristinn
Óskarsson sem dærndu vel.
Áhorfendur: Um 500.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR / LYFJAPROF
Andersen í eins árs bann
Norski lögregluþjónnitin Georg Andresen, sem varð annar í kúlu-
varpi á heimsmeislaramótinu í Tókýo, var í gær dæmdur í eins
árs keppnisbann eftir að hann féll á lyfjaprófi sl. september. Andersen
verður að skila silfurverðlaunum sínum frá Tókýó.