Morgunblaðið - 26.01.1992, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1992
C 3
LANDSLAG UÓÐRÆNT
Í SNJÓBÚNINGI
- segir Maggi hjá Islenskum fjallaferðum
ISLENSKAR fjallaferðir sér-
hæfa sig í óbyggðaferðum að
vetrarlagi. Um 20 ára skeið hafa
hópar af Frökkum gengið á skíð-
um þvert yfir hálendi íslands á
þeirra vegum. Gist er í skálum,
tjöldum eða snjóhúsum og allir
koma ánægðir til baka. Við
spyijum Magnús Asgeirsson,
betur þekktan undir nafninu
Maggi, hver sé leyndardómur-
inn?
Utivera að vetrarlagi gefur
manni meira,“ segir
Maggi.„Snjórinn mýkir öll form.
Landslagið verður svo ljóðrænt og
fagurt. Birtan alveg ótrúleg. Víð-
áttan ólýsanleg. Og orkan sem
maður fær við að komast í návígi
við náttúruöflin er svo geysileg, að
það tekur hálfan mánuð að ná sér
riiður. Þetta finna frönsku ferða-
mennirnir okkar.“
— Hvað með búnað?
„Eg yrði tekinn í gegn,“ segir
Maggi hlæjandi, „ef ég færi að
ráðleggja einhvem einstakan bún-
að. Hver klúbbur hefur sína skoðun
og útiverufólk er alls ekki sammála
um hvaða klæðnaður er bestur,
hvaða áttaviti o.s.fi’v. Það er líka
misjafnt eftir því hvort stefnt er á
skíði, vélsleða eða göngu.“
- Hvað ber að varast?
„Engin ein regla er til að fyrir-
byggja sérstök tilfelli. Heildarregl-
ur fjallgöngumanna eiga að fylla
upp í flest skörð. Veðrið veldur
pftast erfiðleikum, einkum hvað
Island varðar. En jafnvel í góðu
veðri getur eitt smáatriði, eins og
að gleyma sólgleraugum, gert
mann óferðafæran. Geysimikil-
vægt er að vera í góðu formi. Óvan-
ir göngumenn halda oft að þeir
geti miklu meira en þeir eru í raun
færir um. Alltof oft ofmetur maður
sjálfan sig.
Við íslendingar erum komnir úr
kuldanum inn í hitann. Og mörg
okkar hræðast- útiveru að vetr-
arlagi. En er vit í því að ioka sig
inni eins og gróðurhúsaplöntur,
skynja ekki náttúrufegurð í
óbyggðum, þar sem hvert augna-
blik getur verið svo ótrúlega mikils
virði?
Við megum ekki gleyma því, að
þúsundir Islendinga fara á fjöll og
snúa heilir tilbaka. Aldrei er hægt
að fyrirbyggja slys. Þess vegna
verðum við að halda áfram að full-
komna og leita stöðugt að betri
búnaði.
ísinn í skónum þrengdi sér að.
Þurfti að vera með tærnar á stöð-
ugri hreyfingu. Þú spyrð, hvort
mig hafi kalið? Ekki alvarlega.
Fékk fyrsta stigs kal í nokkrar tær
og fingur. Puttarnir eru ennþá
aðeins dofnir, en tilfínningin er að
koma aftur.
—Ótti? Nei, hræðsla náði aldrei
tökum á okkur. Við vissum að leit-
arsveitir voru á fullu. Sáum bíla
með blikkandi ljós fyrir neðan. Það
var rosalega „fúlt“ að sitja uppi á
fjalli, sjá bæjarljósin í Eilífsdal og
komast ekki niður. „Gálgahúmor“
náði tökum á okkur og við töluðum
um, hvað það væri fáránlegt ef við
yrðum úti svona rétt við bæjar-
dyrnar.
Við æfingar alla nóttina
Það var örugglega mikið frost,
því kuldinn var hræðilegur. Ysta
fatalagið gaddfraus svo við gátum
ekki rennt niður. Allar hreyfingar
varð að ákveða fyrirfram og vera
við stöðugar æfingar. Ef maður
hætti í 15 mínútur, tók 3 kortér
að ná sér upp og spyrna ísnum í
burtu til að geta hreyft sig. Það
fraus svo fljótt í kringum okkur.
Eg var kominn með sinadrátt í
fæturna. Og við vorum báðir orðn-
ir mjög þreyttir.
Við vorum alltaf að fylgjast með
hvor öðrum. Ef ég heyrði ekki í
Heimi smátíma, þá öskraði ég nafn
hans. Og hann sömuleiðis. Eg hef
enga trú á að við höfum sofnað.
Þá hefðum við aldrei vaknað. Við
vissum, að á meðan við skulfum
úr kulda var allt í lagi, þá var lík-
amshitinn fyrir ofan 34 gráður.
En í svona miklum kulda dofna
varir og andlit.
SJÁ NÆSTU SfÐII
Nýir og fjölbreyttari möguleikar
fyrir þig í kaskótryggingum
Nú bjóðast þér þrjár nýjar og mismunandi kaskótryggingar hjá VIS. Þarfir bifreiðaeigenda fyrir kaskótryggingar
eru mismunandi og loksins getur þú valið tryggingu sem hentar þér, bæði hvað varðar bótasvið og verð.
UMFERÐAR
AL-KASKO
Ný og víðtækari
kaskótrygging
Inn á bótasvið gömlu kaskó-
tryggingarinnar hefur verið bætt
eftirfarandi áhættuþáttum:
• Skemmdarverk
• Björgunarkostnaður
• Akstur erlendis
• Víðtækari akstursheimildir
• Nýjar reglur um útborgun bíla
• Bætur vegna flóða
Bónusflokkum hefur verið fjölgað
og eru þeir nú fjórir: 10%, 20%, 30%
og 40%. Góðir ökumenn falla nú minna
í bónus við tjón. Þessa nýju kaskó-
tryggingu býður VÍS á óbreyttu iðgjaldi.
K A S K O
Ný trygging sem
er sniðin að umferð
í þéttbýli
Umferðartrygging bætir tjón sem verða
vegna árekstra og áaksturs. Bónus er
ávallt sá sami og í ábyrgðartryggingu
bifreiða og getur orðið allt að 70%.
Þessi trygging er mun ódýrari en
venjuleg kaskótrygging. Eigináhætta í
þessari tryggingu er föst, nú kr. 48.800.
Dæmi um iðgjald fyrir Umferðarkaskó
miðað við 70% bónus.
Lítill bíll Meðalbíll Stór bíll
8.900 11.532 12.493
K A S K O
Nýjung fyrir þá.sem
aka aðallega á
þjóðvegum landsins
Vegakaskó er nýjung fyrir þá sem aka
aðallega á þjóðvegum landsins en iítið
í þéttbýli. Tryggingin bætir tjón vegna
veltu, bruna, foks, hruns og hraps.
Vegakaskó er nýr og ódýr valkostur
fyrir bifreiðaeigendur.
Iðgjald er óháð bónus. Eigináhætta í
þessari tryggingu er föst, nú kr. 48.800.
Dæmi um iðgjald fyrir Vegakaskó:
Lítill bill Meðalbíll Stór bill
8.688 11.256 12.195
-----Ȥ-
Já takk, ég óska eftir nánari upplýsingum
um nýju kaskótryggingarnar
Klipptu þeanan miða útog sendu Vátryggingafélagi íslaods hf. Þá færð þú uppfýsingabækling
um nýju kaskótryggirigarnar sendan um hæl.
'yvr
Nafn
Kennitala
Heimilisfang
Sveitarfélag -
Sími
VATRYGGINGAFEIAGISIANÐ8 HF
-þar sem tryggingar snúast um fólk
ÁRMÚLI3, REYKJAVÍK, PÓSTHÓLF 8400, SÍMI60 SO 60