Morgunblaðið - 26.01.1992, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.01.1992, Blaðsíða 11
C 11 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1992 Eg teysti unga fólkinu til að halda merkinu hótt ó lofti - SEGIR VALDIMARINDRIÐASON, FYRRUM ALÞINGISMAÐUR VALDIMAR Indriðason, fyrrum alþingismaður og framkvæmdastjóri á Akranesi, hefur lengi staðið í fylkingarbrjósti í bæjarstjórn Akraness og man tímana tvenna í þeim efnum. Valdimar var kjörinn til setu í bæjarstjórn Akraness í sveitarstjórnar- kosningunum 1962 og sat samfleytt þar til ársins 1986. Um skeið gegndi hann stöðu forseta bæjar- stjórnar. Valdimar er innfæddur Akurnesingur og þekkir vel sögu bæjarins og kann því góð skil á einstökum þáttum hennar. Við ræddum við Valdi- mar í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Akraness og hann var fyrst spurður um aðdraganda þess Valdimar að Akranes fékk kaupstaðarréttindi 1942. lðnadur:Sementsverksmiðjan á Akranesi tekin til starfa. Eftir því sem ég hefi kynnt mér frá þessum tíma voru aðalrök- in þessi: Akranes var stærsti þéttbýliskjaminn í , Borgar- fjarðarsýslu og voru umsvif þar vax- andi upp úr 1940. í sýslufélaginu var sýslunefndin æðsta stjórnvaldið. Til hennar þurfti hver hreppur að sækja um leyfí til allra stærri fram- kvæmda. Sýslunefndin þurfti einnig að veita hreppunum leyfi til lántöku hjá bönkum og sjóðum. Þetta þótti stjómendum Ytri-Akr- aneshreppar orðið þungt í vöfum, þar sem ýmsar framkvæmdir vom á döf- inni. Mér virðist sem samstarfsmenn í Borgarfirði hafi haft góðan skilning á þessum sjónarmiðum, og þeir voru samþykkir breytingunni." Valdimar segir að þrátt fyrir þessa breytingu sem varð á stjómskipun- inni hafi ávallt verið góð samvinna á milli Borgfirðinga og Akurnesinga. „A þessum tíma eða í byijun seinna stríðsins var mikill uppgangur á Akranesi og fylgja þurfti því eftir ýmsum framfaramálum af festu. Hafnargerð var komin af stað, raf- orkumál horfðu til betri vegar og atvinnuhættir urðu fjölbreyttari. Öllum rökum sem hnigu í þá átt að gera Akranes að sérstöku sveitar- félagi var vel tekið á Alþingi og það kom í hlut Péturs Ottesens, þing- manns Borgfirðinga, að flytja frum- varp þar um kaupstaðarréttindi fyrir Akranes sem fékkst síðan samþykkt frá og með 1. janúar 1942.“ Duglegir menn völdust til forystu Valdimar segir að í þá daga hafi sveitarstjórnakosningar í þéttbýli farið fram í janúarmánuði og að þessu sinni voru kosningarnar 25. Bæjarstjórar og bæjarfulltrúar Kjörnir bæjarfulltrúar 1942: Guðmundur Guðjónsson, Guðmundur Kr. Ólafsson, Haraldur Böðvarsson, Hálfdán Sveinsson, Jón Árnason, Jón Sigmundsson, Ólafur B. Bjömsson, Sveinbjörn Oddsson, Þórhallur Sæmundsson. Bæjarstjóri: Amljótur Guðmundsson. Kjömir bæjarfulltrúiu- 1992: Benedikt Jónmundsson, Gfsli Einarsson, Guðbjartur Hannesson, Hervar Gunnarsson, Ingibjörg Pálmadóttir, Ingvar Ingvarsson, Jón Hálfdanarson, Sigurbjörg Ragnarsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir. Bæjarstjóri: Gísli Gíslason. Bæjarstjórar frá árinu 1942: Arnljótur Guðmundss. 1942-1946 Guðiaugur Einarsson 1946-1950 Sveinn Finnsson 1960-1954 Daniel Ágústínusson 1964-1960 Hálfdán Sveinsson 1960-1962 Bjöigvin Sæmundsson 1962-1970 Gylfi ísaksson 1970-1974 Magnús Oddsson 1974-1982 Ingimundur Sigurpálss. 1982-87 Gísli Gfslason 1987- janúar 1942. Kosningu hlutu fímm menn af lista Sjálfstæðisflokks, þrír frá Alþýðuflokki og einn frá Fram- sóknarflokki. Degi síðar komu síðan nýkjömir bæjarfulltrúar saman til síns fyrsta fundar og þar var Ólafur B. Björnsson framkvæmdastjóri kos- inn fyrsti forseti bæjarstjórnar. Am- ljótur Guðmundsson lögfræðingur var nokkm síðar ráðinn fyrsti bæjar- stjóri á Akranesi. Valdimar segir að þeir menn sem kosnir vom í fyrstu bæjarstjómina hafi allir verið hinir bestu menn sem höfðu mikinn metnað fyrir málefnum Akraness. „Þetta voru harðduglegir og framsýnir menn, menn sem við völdum til þessara starfa. Ég kynnt- ist þeim misjafnlega mikið. Tengda- faðir minn, Olafur B. Bjömsson, sem var forseti fyrstu bæjarstjómarinnar, var mér einn sá eftirminnilegasti. Ólafur hafði langa reynslu af sveitar- stjómamálum eftir að hafa setið í hreppsnefnd Akraness lengi og einn- ig hafði hann komið víða við á öðrum sviðum á Akranesi. Fleiri menn væri hægt að nafn- greina, en þess gerist ekki þörf,“ segir Valdimar og bætir við: „Allir voru þeir mjög virkir í störfum, enda af nógu að taka í ýmsum málaflokk- um og ég held að þessir menn hafi komist mjög vel frá þessum störfum sínum á þeim tíma sem þeir störf- uðu. Helstu málaflokkamir fyrstu árin voru að koma vatnsveitu í bæ- inn, koma á meiri og betri raforku sem mikið breyttist með tilkomu Andakílsárvirkjunnar 1947. Þama er örugglega tekið eitt mesta framfa- rastökkið í uppbyggingu bæjarfé- lagsins,“ segir Valdimar. Valdimar segir að á sjötta ára- tugnum hafi mest borið á hafnar- gerðinni, gerð nýrrar vatnsveitu og síðan hafi bygging Sementsverk- smiðjunnar verið vítamínsprauta í atvinnuuppbyggingu á Akranesi. Þá varð vemlega fólksfjölgun sem kall- aði á ýmis þjónustuverkefni t.d. nýj- ar skólabyggingar. Bæjarfélagið hefur notið mjög góðs af starfsemi verksmiðjunnar. Sjúkrahús Akraness tók til starfa 1952 og Akumesingar og reyndar DANÍEL Ágústínusson var bæj- arstjóri Akraness á árunum 1954-1960, en þá stóð yfir eitt mesta framfaraskeið í sögu bæj- arins. Við báum Daníel að rifja upp það markverðasta sem að hans mati hefði drifið á daga hans sem bæjarstjóra. BJBér er óhætt að segja að BHHmikil bjartsýni og fram- kvæmdahugur hafi ríkt á Akranesi á sjötta áratugnum. Afla- brögð voru góð og með tilkomu Sementsverksmiðjunnar varð Vestlendingar aliir fá seint þakkað þá ómetanlegu þjónustu sem sjúkra- húsið, með sínu prýðilega starfsfólki hefur veitt fram á þennan dag.“ Frumkvöðlar í steinsteyptum götum Valdimar segir að Akurnesingar hafi verið frumkvöðlar í gerð stein- steyptra gatna. Varanleg gatnagerð hófst á árinu 1960. Þá var hluti Kirkjubrautar steyptur og síðan var unnið mjög markvisst að varanlegum frágangi gatna í bænum og í dag er mjög stór hluti gatnakerfis bæjar- ins bundinn varanlegu slitlagi. Nú eru liðin rösk 30 ár frá því að Kirkju- braut var steypt og stendur hún enn óhögguð og ekkert viðhald hefur farið fram á henni. Valdimar segir að annað mikilvægt verkefni hafi fylgt gatnagerðinni en það er að endumýjaðar voru allar frárennslis- og vatnslagnir í götunum og einnig var komið fyrir nýjum rafstrengjum í þeim eða undir gangstéttum. „Þetta er að mínu mati eitt merkasta átak sem við höfum gert í einum mála- flokki á Akranesi, segir Valdimar." íþróttastarf og menningar líf í blóma Valdimar segir að íþróttastarf og menningarlíf hafi löngum verið mjög gott á Akranesi og margar skemmti- legar minningar því tengdar. „fþrótt- ir og hróður okkar fólks í þeim hefur sett mikinn svip á bæjarlífið og aug- lýst Akranes vel út á við. Stofnun Tónlistarskóla Akraness og koma Hauks Guðlaugssonar, organista og núverandi söngmálastjóra Þjóðkirkj- unnar til Akraness er einnig minnis- stæð. Haukur stóð að miklum breyt- ingum á tónlistarlífi í bænum og gerði það mjög öflugt ásamt fleirum. Lengi hefur leikstarfsemi blómstrað og fleira í þessum dúr gæti ég nefnt,“ segir Valdimar. „Nú hillir í að nýr tónlistarskóli verði tekinn í notkun og eins rís hvert íþróttamannvirkið á fætur öðru. Þetta sýnir best þá grósku sem er í þessum málaflokkum hjá okkur,“ segir Valdimar. Valdimar var eins og áður kemur fram bæjarfulltrúi á árunum 1962- 1986 og kynntist því vel málefnum Akurnesinga. Hann segir að starf í bæjarstjórn sé skemmtilegt, annars hefði hann ekki eytt 24 árum í þau störf. „Þetta var langur tími og mik- il vinna,“ segir Valdimar. „Ég kynnt- ist mörgu góðu fólki í þessu starfi og á skemmtilegar minningar. Allir reyndu að gera sitt besta þó auðvitað væru skoðanir skiptar um einstök mál, en það var hugsjón allra að koma málum sem fyrst í fram- kvæmd. Þar var aðeins deilt um nið- urröðun verkefna en ekki að það skyldi ekki framkvæma þau.“ fólksfjölgun mjög ör og mun íbúum hafa fjölgað um 1.300 á áratugnum. Það . risu upp _____ ...._________ heilu íbúða- aliverfin og er- fitt var að full- Daniel Ágústínusson, nægja eftir- fyrrum bæjarsljóri. spurn um lóðir. Stór hluti tekna bæjarins fór í lagningu gatna og holræsa,“ segir Daníel. Staða Akraness í dag Valdimar segir að tveir síðustu áratugirnir hafi einkennst öðru frem- ur af uppbyggingu félagslegrar þjón- ustu á Ákranesi og henni hafi fylgt uppbygging á mannvirkjum á vegum hins opinbera. „Við höfum reist myndarlegt heimili fyrir aldraða, sömuleiðis heimili fyrir fjölfatlaða og verndaðan vinnustað fyrir fólk með skerta starfsorku, mjög hröð upp- bygging skólastofnana hefur staðið yfir, sömuleiðis gerð íþróttamann- virkja og dagvistunarstofnana svo nokkuð sé nefnt. Við höfum oft átt í erfiðleikum í atvinnulífinu," segir Valdimar og bætir við að sem betur fer hafi það öðru hvoru fengið mikinn fjörkipp. „Það átti sér stað þegar Sements- verksmiðjan var byggð á sínum tíma. Slíkt tímabil var einnig þegar bygg- ing Járnblendiverksmiðjunnar stóð yfir og á sama tíma var verið að stofna Fjölbrautaskóla á Akranesi. Þá fjölgaði íbúum á Akranesi tölu- vert sem aftur kallaði á meiri þjón- ustu. Nokkrir erfiðleikar í atvinnu- málum hafa verið á síðustu árum en vonandi kemur nýr fjörkippur í at- vinnulífið fljótlega, og þá horfa margir til væntanlegi'a framkvæmda við gerð jarðganga undir Hvalfjörð sem fyrirhugaðar eru.“ „Þið bjargið ykkur á Akranesi" Þegar erfiðleikap steðja að í ein- stökum sveitarfélögum í atvinnumál- um eða öðru er oft úr vöndu að ráða og að mörgu að hyggja. Valdimar segist hafa það á tilfinningunni að Akurnesingar hafi alltaf haldið nokk- - En hveijar eru þá eftirminni- legustu framkvæmdirnar sem þú stóðst fyrir á bæjarstjóraárum þín- um? „Það eru tvímælalaust þijú verk: efni sem koma upp í hugann. í fyrsta lagi hafnarfrámkvæmdir. Þær voru unnar á árunum 1956- 1957 og breyttu miklu fyrir heima- menn. Það gerðist iðulega að fiski- bátar lágu undir skemmdum og flúðu til Reykjavíkur í slæmum veðrum. Þetta var mjög stórt verk- efni og mikið fjármagn rann til þess. það þótti því ástæða til að urn veginn velli þegar kreppt hafi að. „Okkur hefur aldrei verið sérstak- lega hampað af opinberum stofnun- um og öðru slíku. Oft þegar ég var í erindagjörðum fyrir bæjarfélagið og fyrirtæki sem ég veitti forstöðu, t.d. í baráttu við lánastofnanir þar sem við bárum okkur ekki alltaf vel, var sagt við okkur: „Þið bjargið ykk- ur alltaf einhvem veginn á Akra- nesi,“ og voru menn tregir á lánin." Stoltur yfir því sem áunnist hefur Þegar ég lít tii baka og sé hvað unnist hefur á þessum 50 árum í sögu Akraness sem kaupstaðar fyll- ist ég stolti yfir því sem áunnist hefur. Ég hygg að fleiri bæjarbúar hugsi á sama veg,“ segir Valdimar og bætir við: „Framtíðin á Akranesi er björt. Ég treysti unga fólkinu vel til að halda merkinu á lofti. Æska bæjarins fær góða menntun á heima- slóðum og á öðrum sviðum búum við vel á Akranesi. Þó blikur séu á lofti í ýmsum þjóðmálum verðum við að vera bjartsýn á okkar hlut. Við verð- um að sjá um að tryggja öllum at- vinnu við sitt hæfi og láta það alltaf hafa forgang. Svartsýni er ekki til í mínum huga. Við fylgjum þeirri þró- un sem gengur yfir þjóðfélagið hveiju sinni og ég held að Akranes fái þar góða stöðu í framtíðinni sem hingað til. Það hefur margt breyst," segir Valdimar og bætir við: „Það var oft sagt um Akranes að það hefði tvennt til að státa sig af öðru fremur, bestu kartöfiurnar og falleg- asta kvenfólkið. Ég verð nú að segja að í dag eru konurnar enn fallegar, en kartöflurnar eru upp og ofan.“ halda hátíð í bænum og fagna því að Akurnesingar höfðu nú loksins fengið lokaða höfn. í annan stað var bygging vatns- veitu mjög brýnt verkefni enda eldri vatnsveitan talin gjörónýt. Vatnsleysið stóð bænum mjög fyrir þrifum, bæði heimilum og atvinnu- rekstri. Nýja vatnsveitan var lögð haustið 1955 og reyndist okkur ódýr. Hún þjónar okkur enn vel og hefur þurft sáralítið viðhaid. í þriðja lagi vil ég nefna bygg- ingu Gagnfræðaskóia sem liófst 1957 og fyrsta hluta hans var lok- ið 1959. Þetta var mjög brýnt verk- efni, enda skólinn 1 örum vexti. Framháldið er svo Fjölbrautaskóli Vesturlands. Mér kæmi ekki á óvart að sjötti áratugurinn væri sá gróskumesti í sögu Ákraness. Eitt er víst að bjart - sýni og trú á framtíðina einkenndu líf og störf fólksins í bænum,“ sagði Daníel að lokum. JANÚAR:Hátíðardagskrá.9 JÚNÍ: Hátíðarvika 12.-17. júní. Vígsla samkomusalar og mötu- JÚLÍ: Heimsókn forseta íslands, neytis í Fjölbrautaskóla Vestur- Vigdísar Finnbogadóttur. Lokaá- lands.9 fangi Höfða tekinn i notkun. Tónleikar í Vinaminni, ÁGUST: Ársþing Skógræktarfé- FEBRÚAR: Vígsla nýrrar lags íslands. heilsugæslustöðvar. Opin vika SEPTEMBER: Vígsla búnings- Fjölbrautaskóia Vesturlands. kiefa á Jaðai-sbökkum. MARS; Vígsla nýs tónlistarskóla OKTÓBER: Fjölskylduhátíð. á Akranesi. Dagskrá á vegum grunnskólans, leikskólana og Að auki verða íþróttamót á tóniistarskólans. vegum aðildarfélaga ÍA fiesta' APRÍL: Afmætistívolí Skátafé- mánuði og nokkur fagfélög munu lags Akraness. I. bindi Sögu standa fyrir málþingum fyrir al- Akraness gefið út menning um heilbrigðismál, skól- MAÍ: Afhending vita á Breið. amál, dagvistunarmál og öld- Skógræktarátak. runarmál. Bjartsýni og trú ú f ramtíðina einkenndu líf og störf fólksins - SEGIR DANÍEL ÁGÚSTÍNUSSON, FYRRUM BÆJARSTJÓRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.