Morgunblaðið - 26.01.1992, Síða 18
18 C
MORGUNBLAÐIÐ MENIMINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1992
MNýjasía mynd ástralska
leikstjórans George Mill-
ers, sem gerði Mad Max
og Nornirnar í Eastwick,
heitir Olía Lorenzos eða
„Lorenzo’s Oil“. Er hún með
Nick Nolte og Susan Sar-
andon í aðalhlutverkum en
myndin segir sanna sögu
hjónanna Augusto og Mic-
haelu Odone sem fundu
lækningalyf fyrir son sinn
sem greindur var með dular-
fullan og banvænan sjúk-
dóm er læknavísindin höfðu
engin svör við.
MBreski leikarinn Bob
Hoskins heldur áfram að
leika í bíómyndum í Holly-
wood. Sú nýjasta heitir Lát-
inn eða „Passed Away“ og
segir frá kvæntum manni
sem kynnist ungri stúlku
við jarðarför föður síns og
tekur að vera með henni.
Með önnur hlutverk fara
m.a. William Petersen og
Frances McDormand.
MNýjasta mynd hasarleik-
stjórans John McTiernans
verður frumsýnd vestra í
næsta mánuði en hún heit-
ir „Medicine Man“ og er
með Sean Connery í aðal-
hlutverki. Hann leikur lækni
sem vinnur við rannsóknir
á nýju lyfi í regnskógum
Brasilíu. Handritshöfundur
er sá sem skrifaði Bekkjar-
félagið, Tom Schulman.
MStórstjaman knáa, Syl-
vester Stallone, hefur ekki
gefist upp á gamanmyndun-
um ennþá. Nýjasta myndin
hans heitir Stoppaðu eða
mamma skýtur þig eða
„Stop or My Mother Will
Shoot". Stallone leikur
löggu hvers móðir verður
vitni að morði og saman
leita þau morðingjans. Leik-
stjóri er Roger Spottiswo-
ode.
Gian Maria Volonté leikur mannúðlegan dómara sem
þráast við að kveða upp líflátsdóm yfir morðingja í
myndinni Opnar dyr.
Opnar dyr
Paradísarbíóið er ekki eina ítalska bíómyndin sem
gerð hefur verið á undanfömum ámm þótt hún sé
skýrasta dæmið um að ítalskur kvikmyndaiðnaður
er í talsverðri sókn.
Opnar dyr heitir ein af
athyglisverðustu
myndunum sem komið
hafa frá Ítalíu upp á síðk-
astið en hún var_ í sam-
keppninni um Óskarinn
fyrir bestu erlendu mynd
ársins í fyrra (svissneska
myndin Vegur vonar sigr-
aði).
Leikstjóri hennar heitir
Gianni Amelio en myndin
er byggð á skáldsögu Sikil-
eyska rithöfundarins Leon-
ardo Sciascia. Bækur hans
hafa oft áður verið kvik-
myndaðar, t.d. Skrautleg
lík eftir Francesco Rosi og
Við myrðum enn upp á
gamla mátann eftir Elio
Petri.
Opnar dyr gerist á Ítalíu
árið 1937 þegar fasistar
eru við völd. Leikarinn Gian
Maria Volonté leikur dóm-
ara í hryllilegu morðmáli.
Maður nokkur frá Palermo
drap yfirmanninn sem rak
hann, manninn sem tók við
starfinu
hans og eig-
inkonu sína,
allt sama
daginn.
Maðurinn
játar á sig
glæpina og
örlög hans
virðast ráðin
— aðeins
dauðadómur
kemur til
greina í fas-
istaríkinu.
Sjálfur er
maðurinn
fasisti og vill
fá dauða
dóm, han
vill verða arvottur og
reiðist dóir íum fyrir til-
raunir hans tn að forða sér
frá aftökusveit.
Opnar dyr hefur hvar-
vetna fengið mjög lofsam-
lega dóma og þeir sem sjá
um kvikmyndahátíðir hér
ættu að hafa hana í huga.
6.000 á
Glæpa-
gengið
Alls hafa nú um sex
þúsund manns séð
glæpamyndina Glæpa-
gengið með Christian
Slater í Laugarásbíói að
sÖgn Grétare Hjartars-
sonar bíóstjóra.
Þá hafa að hans sögn
um 7.000 manns séð
hrylimgsmyndina
Preddi er dauður og um
7.000 manns gaman-
myndina Prakkarann 2.
Næstu myndir
Laugarásbíós eru„Sho-
ut“ semsegirfrádreni
um í vandræðaskóla
taka að líta lífið
öðrum augum eftir
að þeir fá nýjan
tónlistar-
kennara,
John Trav-
olta, „My
Own Pri-
vate Ida-
ho“ eftir
Gus Van
Saint
verður
sýnd um
miðjan fe-
brúar og
hryllings-
mynd-
in„Child’s
Play 3“
verður
sýnd á
næstunni.
Þá verður
Slaterí spennu-
genginu. »Cape
Fear fra
Universal-kvikmynda-
verinu frumsýnd 12.
mars bæði í Laugarás-
bíói og í einu Sambíó-
anna líka að beiðni kvik-
myndaversins.
John Lithgow;
leikur slæman föður.
Nýr þriller
frá De Palma
NYJASTI þriller spennumyndaleikstjórans Brians De
Palma heitir „Raising Cain“ og er með John Lithgow
í aðalhlutverki. Hann leikur barnasálfræðing sem tekur
sér tveggja ára frí til að sinna uppeldi dóttur sinnar
en klikkar í leiðinni.
Hann tekur að haga sér
undarlega og eigin-
konan hans fer að gruna að
ekki sé allt með felldu," seg-
ir Lolita Davidovich, sem
leikur konuna. Framleiðandi
er Gale Anne Hurd, nýja
eiginkona De Palma, en
áður framleiddi hún myndir
James Camerons og var gift
honum. 1 myndinni rænir
Lithgow sinni eigin dóttur
og lætur líta út eins og fyrr-
um elskhugi konunnar hans,
sem Steven Bauer leikur,
hafí gert það.
Lithgow lék í einni af
fyrstu myndum De Palm-
as,„Obsession“, fyrir fímmt-
án árum. „Við höfum þekkst
lengi, Brian og ég,“ segir
hann. Og bætir við: „Hann
getur orðið myrkur og alvar-
legur — en ekki með mér.“
Síðustu tvær myndir De
Palmas eftir Hina vamm-
lausu hlutu dræmá aðsókn.
Sérstaklega olli hin rándýra
stórmynd Bálköstur hégó-
mans vonbrigðum. „Raising
Cain“ markar stefnubreyt-
ingu hjá honum. Hann virð-
ist aftur hafa snúið sér að
hinum ódýrum sálfræðiþrill-
erum sem gerðu hann fræg-
an.
KVIKMYNDII*=*™
Bíbur hans heimsfrœgbf
Karlakórínn
Hekla
GUÐNÝ Halldórsdóttir áætlar að byija tökur á bíómynd
sinni, Karlakórnum Heklu, næsta sumar. Hun, ásamt
Hrafni Gunnlaugssyni, hlaut hæsta styrk Kvikmyndasjóðs
íslands í ár til þess að gera myndina, 21 milljón króna.
Guðný Halldórsdóttir
Guðný sagði í samtali
að ekki væri endan-
lega frágengið hveijir færu
með hlutverk í myndinni
en „mínir óskamenn í aðal-
hlutverkin eru Sigurður
Siguijóns-
son, Öm
Amason,
Þórhallur
„Laddi"
Sigurðs-
son, Gest-
ur Einar
Jónsson
og Rúrik
Haraldsson". Eitt megin-
kvenhlutverk er í myndinni
og mun söngkonan Ragn-
hildur Gísladóttir leika það.
Alls eru 27 meðlimir í
kór myndarinnar en „við
fylgjumst með frá upphafi
til enda þessum fimm
mönnum sérstaklega,"
sagði Guðný. Eins og kunn-
ugt er segir myndin frá
ferðalagi karlakórsins
Heklu úr Hveragerði til
Þyskalands. „Þetta er gam-
anmynd með alvarlegri
tónlist," bætti hún við og
lagði áherslu á að kóratón-
listin í myndinni yrði fyrsta
flokks.
Aðalhvatamaður að
ferðalaginu er Þjóðverji í
kómum sem dreymir um
að sjá tónleika með Pava-
rotti í leiðinni og heilsa upp
á aldraða móður sína. Slík-
ur er spenningurinn í aum-
ingja manninum að hann
deyr áður en lagt er af stað.
Kórfélögunum til mikillar
ánægju hitta þeir hann aft-
ur, þegar þeir koma til
Þyskalands en bara í örlítið
breyttri mynd. „Við þekkj-
um auðvitað engan annan
en Derrick,“ sagði Guðný,
„en þessi Þjóðveiji er leik-
inn af einni skærustu
stjörnu Þýskalands, Manf-
red Kmg. Það er skilyrði
fyrir því að Þjóðveijar
leggja pening í myndina
að hann leiki í henni.“
Alls koma 60 milljónir
frá kvikmyndasjóði í
Þyskalandi sem kvikmynd-
afélagið Aritel, meðfram-
leiðandi myndarinnar, hef-
ur útvegað. Guðný tók það
fram að þótt mikið fjár-
magn kæmi frá Þýskalandi
væri mjndin, þ.e. handrit,
leikstjórn, leikmyndir og
annað, alfarið í höndum
íslendinga.
Guðný byijaði á handrit-
inu um kórferðalagið fyrir
tveimur árum þegar hún
fékk 600.000 króna hand-
ritsstyrk úr Kvikmynda-
sjóði. Hún sagði þá að hug-
myndin hefði komið upp
um vetur i stórviðrum þeg-
ar menn gátu alltaf farið á
kóræfingar
á hveiju sem
.gekk og
þrátt fyrir
ofsaveður.
Tökur
hefjast að
líkindum í
júní/júlí „og
við þurfum
skip í fyrstu
tökumar því
kórinn siglir
út sem er
skot á Baltikaferðina forð-
um“.
Fyrsta myndin sem
Guðný leikstýrði var
Krisnihald undir jökli frá
1989 en hún var framleið-
andi myndanna Skilaboð til
Söndru (auk þess sem hún
átti þátt í handriti hennar)
og Gullsands og skrifaði
handritið að gamanmynd-
inni Stella í orlofi. Karla-
kórinn Hekla er fyrsta
myndin sem hún skrifar
handritið að og leikstýrir.
eftir Arnold
Indriðoson
í BÍÓ
Þá er ljóst orðið eftir
styrkveitingar
Kvikmyndasjóðs íslands
að næstu tvær ísiensku
bíómyndirnar sem gerð-
ar verða eru Hin helgu
vé eftir Hrafn Gunn-
laugsson og Karlakórinn
Hekla eftir Guðnýju
Halldórsdóttur (sjá ann-
ars staðar).
Hin helgu vé boðar
stefnubreytingu hjá
Hrafni í kvikmynda-
gerð. í fyrsta sinn sfðan
1982, eða í tíu ár, gerir
hann ekki víkingamynd
heldur mynd sem er nær
samtímanum og fjallar
reyndar um atburði úr
æsku Hrafns frá því
hann var í sveit á Breið-
afjarðareyjum.
Karlakórinn Hekla er
gamanmynd en Guðný
hefur áður gert slíkar.
Fjallar hún um karlakór
frá Hveragerði sem
ferðast til Þyskalands.
Styrkur Kvikmynda-
sjóðs nægir reyndar
engan veginn til að gera
þessar myndir en er-
lendir aðilar virðast hafa
meiri trú á bíómyndum
frá íslandi en íslending-
ar sjáifir og leggja t.d.
fé í mynd Guðnýjar. Það
er nöturlegt til þess að
hugsa að án þeirra er
ekki víst að þrifíst hér
nein kvikmyndagerð.