Morgunblaðið - 26.01.1992, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 26.01.1992, Qupperneq 20
20 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1992 AF SPJÖLDUM GLÆPASOGUNNAR SAGT ER, að listin sé eilíf, en samt er það svo, að listaverk komast í tísku og fara úr tisku, eins og listastraumar og listastefnur. Megnið af listaverkum frá síðustu öld hefur til dæmis verið forsmáð og fyrirlitið lengst af þessari öld. Nú virðist það vera að breytast, og rykið er dustað af þúsundum gleymdra málverka og höggmynda. Stundum gerist það þó, að listaverk verða fræg, um leið og þau eru sýnd í fyrsta skipti, og halda þeirri frægð öldum saman, bæði hjá almenningi og hinum tískumótandi listfræð- ingum hvers tíma. Besta dæmið um slíkt listaverk er málverkið af Mónu Lisu eftir Leonardo da Vinci. Hann fæddist í sveitaþorpinu Vinci, rétt hjá Flórenz (Firenze) árið 1452 og dó í höll Frakkakonungs í Amboise árið 1519. Myndin er máluð á árunum 1503-1506. Fyrirmyndin var eiginkona fyrirmanns í Napólí, Zanobi del Giocondo, Lisa að nafni. Hún var kölluð Mona (stytting úr Madonna) Lisa, og því er myndin ýmist nefnd La Gioconda eða Mona Lisa. Óhætt er að telja þessa mynd frægasta málverk allra tíma. Fréttir berast annað veifið af bíræfnum þjófum, sem stela ómetanlegum listaverkum. Sum verkanna eru svo fræg, að útilokað er að koma þeim í verð. Þau hljóta að dúsa í földum geymslum listelskra sér- vitringa, sem hafa nægilegt fé handa á milli til þess að gera út flokk sérhæfðra listaverkaþjófa. Ástæð- ur slíkra þjófnaða geta annars verið margvíslegar, og þeir eru ekkert nýtt fyrirbæri í sögunni. Hér verður sagt frá einum frægasta listaverkaþjófnaði sögunnar, þegar sjálfri Mónu Lísu var stolið úr dýrgripageymslu frönsku þjóðarinnar. Samtímateikning úr dagblaði sem sýnir reiði almennings á Italiu þegar Mónu Lísu var skilað aftur til Frakklands. Að morgni hins 22. ágústs árið 1911 gekk franski listmálarinn Louis Beroud inn um aðaldyr safnsins mikla í Louvre-höll í. Parísarborg með pensla sína og trönur, málningar- dósir og litaspjald. Beroud og af- rakstur ævistarfs hans væri nú flestum gleymdur, hefði hann ekki tengst einkennilegu máli, sem hér verður sagt frá. Með honum í för þennan morgun var stúlka, sem ætlaði að sitja eða öllu heldur standa fyrir hjá honum, meðan hann mál- aði af henni mynd fyrir framan hið fræga málverk af Mónu Lísu, sem hékk uppi í Ferhyrnda salnum (,.Sal- on Carré“). Nýlega hafði glerhlíf verið sett á málverkið, og hafði Beroud fengið þá hugmynd í kollinn að láta fyrir- sætuna vera að farða sig og greiða sér fyrir framan málverkið og nota glerrúðuna í spegils stað. Árið áður hafði komið fram há- vær gagnrýni á stjómendur safnsins fyrir það, að listaverkin og aðrir safngripir væru ekki nægjanlega vel varðir fyrir skemmdarverkum og þjófnaði. Þá, eins og nú, höfðu menn ástæðu til þess að óttast þjófa, of- stækismenn og geðsjúklinga í lista- söfnum. Stjórn safnsins hafði nú gripið til þess ráðs að setja gler- hjálma og hlífar yfir marga sáfn- gripi. Sú ráðstöfun að setja glerrúð- ur yfir málverk varð afar umdeild. Fólk kvartaði undan því, að ekki væri nokkur vegur að sjá málverkin almennilega og njóta þeirra í gegn- um glampandi glerrúðu. Beroud og fyrirsætan gengu nú inn í Ferhymda salinn og að veggn- um, þar sem Móna Lísa hafði hang- ið á milli tveggja, frægra málverka. Þau héngu bæði á sínum stað („Helgisögnin um Alfonso d’avalos" eftir Tizian (Feneyinginn Tiziano Vecellio, 1477-1576) og „Hið himn- eska brúðkaup heilagrar Katrínar" eftir ítalann Antonio Allegri da Correggio, sem uppi var 1494- 1534). En á milli þessara tveggja guðrækilegu persóna brosti nú eng- in veraldleg Móna Lísa sínu dular- fulla brosi. Þar vom aðeins jám- stólpar og grindur, sem málverkið hafði verið fest á. Beroud varð hissa og gekk að næsta safnverði. Vörð- urinn sagði honum, að málverkið hefði líklega verið flutt inn í ljós- myndunardeild safnsins. Aðeins þar mátti gera viðurkenndar eftirmyndir af málverkum, til þess að nota á póstkortum, í skólabókum o.s.frv. Væntanlega yrði myndinni skilað á sinn stað síðar um daginn. Nú jæja, hugsaði Beroud, ég kem þá aftur seinna í dag. Hann bauð fyrirsætunni í seinna morgunkaffi og síðar í hádegismat. Síðan sneru þau aftur í safnið. Wlyndin góða var enn ókomin. "Beroud fékk nú einn safnvörðinn til þess að spyrjast fyrir um það, hve- nær hún kæmi aftur úr ljósmyndun- ardeildinni. Við athugun hans kom Af frægasta listaverkaþjófnaði sögunnar, þegar Móna Lísa hvarff úr Louvre í ljos, að hún var þar ekki og hafði ekki verið þar undanfama daga. Smám saman varð gæslumönnum ljóst, að Móna Lísa var horfin úr vörslu þeirra. Fyrst var leitað í of- boði um allt safnið, og öll yfir- mannahersing safnsins hrúgaðist saman inni í aðalskrifstofu hins æðsta. „Þar gaf að líta tárfellandi fræðimenn, æpandi hreinsideildar- stjóra, bölvandi varðstjóra og mál- lausa yfir- og undirsafnstjóra,“ skrifaði einn viðstaddra í endur- minningar sínar. „Flestir munu hafa verið að hugsa um skömmina og hugsanlegan stöðumissi." Brátt varð ekki komist hjá því að leita til lögreglunnar. Fjölmennt lögreglu- þjónalið kom þegar á vettvang og leitaði vandlega í allri höllinni. Hlið- grindur voru settar fyrir alla út- ganga og leitað á öllum safngestum, um leið og þeim var vísað út. Loks fann einn lögregluþjónanna glerhlíf- ina og rammann. Hvom tveggju hafði verið stungið neðst á bak við stiga, sem lá niður að umluktum hallargarði við Signu. Fréttirnar af hvarfi Mónu Lísu flugu út um víða veröld, og þótti Frökkum hin mesta hneisa að þessu. Almenningur æsti sig upp gegn öll- um yfirvöldum vegna þessa máls, og eins og oft vill henda, urðu þeir stundum reiðastir, sem aldrei höfðu lagt það á sig að gera sér ferð í safnið til þess að sjá hið fræga málverk eigin augum. Þótt myndin væri ítölsk að uppruná, var hún samt álitin ein af ómissandi þjóðar- gersemum frönsku þjóðarinnar. Um þetta leyti var gamla Þjóðveijahatr- ið enn að blossa upp í Frakklandi, enda lá við styrjöld milli þjóðanna á þessu ári, 1911, þótt heimsstyij- öldin fyrri hæfist svo ekki fyrr en í ágúst 1914. Sá kvittur kom upp, að Þjóðveijar hefðu stolið Mónu, Frökkum til háðungar. Lögreglu- þjónar voru látnir handtaka fjölda- marga Þjóðveija í París vegna lítil- fjörlegra grunsemda árvökulla borgara, en flestum var fljótlega sleppt, þar eð ekkert sannaðist á þá. Tækifærið var þó notað til þess að vísa hinum tortryggilegustu úr landi, og voru þeir sendir í lokuðum járnbrautarlestarklefum austur yfir Rínarfljót og Þjóðveijum sendur reikningur fyrir kostnaðinum. Hann hefur ekki verið greiddur enn. Blöð- in létu málið að sjálfsögðu til sín taka. L’illustrationsem var mjög útbreitt á þessum árum, bauð 40 þúsund franka verðlaun handa þeim, sem tryggði örugga heim- komu Mónu Lísu. Dagblaðið „Le joumai“ í París bauð þá 50.000 franka. „Le matin“ hét á alla skyggna menn, miðla og aðra, sem dulrænum hæfileikum voru gæddir, til þess að finna myndina. Þessi áskorun blaðsins var beint til alls heimsins, en að auki tilkynnti blað- stjórnin, að franskir ríkisborgarar, sem vissu lengra en nef þeirra næði, myndu fá laun hjá blaðinu fyrir all- ar vísbendingar. Þetta framtak blaðsins var rækilega auglýst. Dul- rænir menn og spákonur flyktust til Parísar, og lesendur blaðsins fylgdust daglega með framlagi þeirra til leitarinnar; sem var nú orðið að hjartans máli allrar frönsku þjóðarinnar. Ráðherrar lýstu unn- vörpum yfir áhyggjum sínum og létu hafa við sig ýtarleg viðtöl af þessu tilefni. Eftir á var talið, a þeim hefði þótt gott að geta beint sathygli þjóðarinnar frá landstjórn- inni. Auk hinnar opinberu rannsókn- ar á málinu, blómstraði einkafram- takið á þessu sviði einnig. Ýmsir höfðu ekki aðeins illan bifur á Þjóð- veijum, heldur einnig Englending- um, sem nú voru grunaðir af sumum um að hafa stolið myndinni, til þess að gera frönsku þjóðinni svívirðu. Smám saman fór athyglin að bein- ast áð öllum útlendingum í París. Lögregluþjónar og jafnvel almennir borgarar áttu það til að stöðva menn á götu, bæru þeir grunsam- lega böggla undir hendi, svo sem aflanga, ferhynida kassas eða sí- vala ströngla. í ljós kom, að lista- menn voru ekki eins vinsælir meðal alþýðu og ætla hefði mátt í þessari höfuðborg lista og menningar, því að ótrúleg margir fóru nú að vísa lögreglunni á þá. Pablo Picasso, sem var svo ólánsamur að ver allt í senn, listamaður, bóhem og innflytjandi, var hnepptur í varðhald um stundar- sakir og spurður spjörunum úr. Sama henti skáldið Guillaume Ap- pollinaire. Ekkert upplýstist þó í málinu. Smám saman fengu blaðamenn og þar með blaðalesendur og franska þjóðin leið á málinu. Þjóðin fékk um annað að hugsa, og málið þokaðist til hliðar fyrir öðrum málum. Samt gleymdist það ekki alveg, og annað veifið komu fram nýjar skýringar og tilgátur, sem allar runnu þó einn- ig út í sandinn. Rúmum tveimur áram eftir hvarf myndarinnarr haustið 1913, setti ítalskur listaverkasali, Alfredo Geri í Flórenz, auglýsingu í blöð og tíma- rit, þar sem hann óskaði eftir lista- verkum á sýningu, er hann hugðist halda. Eitt svarbréfanna kom frá manni, sem kallaði sig aðeins „Leon- ard“. Það var dagsett í París 29. nóvember 1913. Ljónharður þessi kvaðst hafa Mónu Lísu undir hönd- um og vera reiðubúinn til þess að skila henni, gegn gjaldi, en aðeins til Ítalíu, alls ekki til Frakklands. Ljóst var af bréfinu, að ritari þess áleit Frakka hafa haft myndina með röngu í vörslu sinni, og nú væri tími kominn til þess að bæta úr því. Franskir herflokkar hefðu unnið mörg hervirki á ítölskum listaverk- um allt frá árinu 1499 til daga Napóleons Bonaparte, en tekið önn- ur herskildi og haft með sér að her- fangi heim til Frakklands. Alfredo Geri bjóst helst við því, að bréfritari væri annað hvort vit- leysingur eða listaverkafalsari. Hann svaraði bréfinu því þannig, að hann ætti ekki heimangengt og gæti með engu móti tekist ferð á hendur til Parísar, til þess að skoða málverkið þar, eins og bréfritari hafði boðið. Hins vegar myndi hann með ánægju athuga það, gæti Leo- nard komið með það til sín í Flór- enz. Reyndist það vera hið eina og sanna málverk af Mónu Lísu, væri hann tiibúinn til þess að greiða fyr- ir það hátt verð. Leonard sendi nú svar i sím- skeyti til Geri og sagðist mundu koma í verslun hans 10. desember. Geri bað Giovanni Poggi, forstöðu- mann Uffizi-safnsins í Flórenz, að vera hjá sér þennan dag, svó að hann gæti sannreynt staðhæfingu Leonards um það, að hér væri hann kominn með ósvikna vöra, Mónu Lísu sjálfa. Geri og Poggi biðu nú saman í búðinni, og loks kom Leonardo. ítal- irnir vildu fá að sjá myndina hið fyrsta, og fór Leonardo þá með þá í gistihús, þar sem hann hafði her- bergi á leigu, Hotel Tripoli-Italia. Hann læsti dyrunum, lagðist á fjóra fætur við rúmstæðið og dró undan því stóreflis ferðakistu, hvíta að lit. Þegar hann hafði bisað henni fram á mitt gólf, opnaði hann hana og tók að gramsa i henni. Geri og Poggi gægðust yfír öxl hans og sáu furðu- legasta samsafn ósamstæðra hluta í kistunni. Þarna var gömul hatt- beygla, skældir og skítugir skóg- armar, vinnuáhöld múrara, pens- ilskúfar o.s.frv. Þegar Leonardo hafði raðað þessu öllu á gólfið, virt- ist þeim kistan að lokum galtóm. Þá tók hinn ókunni maður að losa botnfjölina úr kistunni, innan frá, og var þá leynihólf í henni yfir hinni raunverulegu botnfjöl. Þaðan dró hann upp einhvern stóran, ferhyrnd- arl og flatan hlut, sem vafinn var inn í rautt silkiklæði. Hann dró klæðið utan af innihaldinu, og sjá! Þarna blasi við þeim La Gioconda sjálf, Móna Lísa, og brosti enn við áhorfendum sínum hinu leyndar- dómsfulla og óútskýranlega brosi. Þeir störðu orðvana á myndina góða stund, en báðir þóttust þegar full- vissir um það, að hér væri hin rétta mynd fundin. Síðan báru þeir hana í birtuna við gluggann og rannsök- uðu hana nánar. Eftir nokkra stund voru þeir sannfærðir. Geri og Poggi fengu nú Leonard til þess að koma með sér og hafa myndina með. Þeir yrðu að láta at- huga hana gaumgæfilega í Uffizi- safninu, áður en hann gæti fengið greidd fundarlaun. Hann setti upp 100.000 Bandaríkjadollara, og féll- ust þeir á það, en fyrst yrði úrskurð- ur sérfræðinga að liggja fyrir. Mennirnir þrír héldu nú í Uffízi, þar sem myndinni var komið í geymslu. Geri og Poggi sögðu Leonardo að snúa aftur til gistihússins og bíða greiðslunnar. Hann gerði svo. Þegar myndin hafði svo verið rannsökuð ýtarlega og dómur kveðinn upp, um að hér væri hið ófalsaða málverk, fór Poggi á fund lögreglustjóra. Hann sendi síðan lögregluþjóna í Hotel Tripoli-Italia, þar sem þeir handtóku Leonardo. Hann hafði skráð sig í hótelkladd- ann undir nafninu Vincenzo Leo- nardo, en við lögreglurannsókn kom í ljós, að í reynd hét hann Vincenzo Peruggia og var húsamálari frá Dumenza á Norður-ítaliu. Við yfir- heyrslur stóð hann staðfastlega’við þá fullyrðingu sína (og fullvissu, að því er virtist), að hann væri föður- landsvinur en ekki þjófur. Hann stóðst ekki reiðari en þegar hann var kallaður þjófur. Ættjarðarvinur skyldi hann vera. En hvers vegna vildi hann taka 100.000 bandaríska dollara fyrir föðurlandsást sína? Því lét hann ósvarað. Vörn hans byggð- ist öll á því, að hann hefði „flutt málverkið á réttan stað til aukinnar og réttmætrar dýrðar og vegsemdar Italíu, og til þess að hefna fyrir syndir Napóleons litla og Napóleons feita“ (þ.e. Napóleons I. og Napó- leons III.) Tvær snáskrámur höfðu komið á léreftið, meðan myndin var í fórum Peruggia. Hún var nú sýnd á heiðursstað í Uffizi. ítalir komu hvarvetna að til Flórenz, til þess að sjá eigin augum „einn helsta hátind

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.