Morgunblaðið - 26.01.1992, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JANUAR 1992
C 21
ítalskrar hámenningar", eins og ít-
ölsku blöðin komust að orði, en brátt
tóku þær raddir að heyrast, að auð-
vitað þætti myndin hvergi heima
nema á Ítalíu, þótt einhver franskur
kóngur hefði komist yfir hana fyrir
flórum öldum. Ekki var minnst á
það, að Franz I. Frakklandskonung-
ur hafði keypt myndina fyrir 4.000
gullflórínur í frjálsum kaupum, og
listmaðurinn sjálfur, Leonardo da
Vinci, hafði jafnan sóst eftir því að
vera í þjónustu franskra konunga.
Frakkar tóku það nú óstinnt upp,
þegar Italir vildu halda myndinni,
svo að stjórnvöld í Frakklandi og
Italíu flýttu sér að semja um skil
hennar til Louvre, áður en þjóð-
rembingur í báðum löndum ylli milli-
ríkjadeilu.
Réttarhöldin yfir Peruggia hófust
14. júní 1914. Hann sagðist fyrst
hafa séð þessa dýrðarmynd, þegar
hann var að vinna í París árið 1908,
og þegar orðið hrifínn. Næsta ár,
1909, hafði hann næg tækifæri til
þess að virða hana vel fyrir sér, því
að þá fékk hann vinnu í flokki hand-
verksmanna í Louvre (gifsarar,
múrarar og málarar). Þótt hann
hefði sýnt myndinni svo mikinn
áhuga, að öryggisvörðum hefði átt
að þykja hann grunsamlegur, tókst
honum að komast í vinnuflokkinn,
sem setti myndina undir gler í jan-
úar 1911. Sjálfur sagðist hann vera
„töfraður, dáleiddur af myndinni".
Allt var þetta óþægilegur vitnis-
burður um öryggisgæslu í Louvre,
en verðimir sögðu aðeins, að það
væri auðvelt að vera vitur eftir á.
Að vísu hafði fallið grunur á hann
á sínum tíma. Hann var yfirheyrður
skömmu eftir myndhvarfið, og lög-
reglan í París gerði húsrannsókn
þar sem hann bjó. Herbergi hans
var vandlega rannsakað, en lög-
regluþjónunum yfirsást að athuga
ferðakoffortið stóra, sem stóð þar
inni. Þar var Móna Lísa allan tím-
ann í rauða silkiklæðinu í leynihólfí
sínu. Hann var látinn fara fijáls
ferða sinna eftir þessa rannsókn í
París, og skrifað hafði verið við
nafn hans í fjölmennum hópi grun-
aðra, að ekki þyrfti að tortryggja
hann, þar eð hann væri á engan
hátt sú manngerð, sem stæli lista-
verkum. Lengi skal manninn reyna.
ítalski saksóknarinn í réttarhöld-
unum í Flórenz 1914 dró mjög í
efa, að tilgang sakbornings með
athæfi sínu mætti einungis rekja til
óvenju sterkrar þjóðernisástar hans.
Auk þess að hafa krafist hárrar
upphæðar í skilalaun fyrir þýfi sitt,
hefði hann tvívegis komist undir
manna hendur, meðan á Frakk-
landsdvölinni stóð. Hinn 24. júní
1908 var hann handtekinn í Macon
í Frakklandi og sakaður um ránstil-
raun. Hann var dæmdur sekur og
sat stuttan tíma í fangelsi. 9. febrú-
ar 1909 var hann handtekinn í Par-
ís og ákærður fyrir að hafa skot-
vopn undir höndum með ólöglegum
hætti. Aftur var hann dæmdur til
skammrar fangelsisvistar.
Saksóknarinn í Flórenz fór fram
á þriggja ára fangelsun. Þrátt fyrir
skelegga málsvöm Peruggia, þar
sem hann krafðist sýknu, var hann
dæmdur í eins og fimmtán daga
fangelsi.
Honum var sleppt, eftir að hafa
setið inni í sjö mánuði. Þegar hann
gekk út í frelsið að nýju, fögnuðu
sumir honum sem hetju og föður-
landsvini. Aðrir sögðu hann ómerki-
legan og hálfbilaðan smáglæpa-
mann. Þegar blöðin gleymdu honum
að nýju, hélt Peruggia norður í
heimabæ sinn. Þar var honum fagn-
að. Hann kvæntist brátt og stofnaði
heimili. Hann komst í ítalska her-
inn, áður en heimsstyrjöldinni fyrri
lauk, og hlotnaðist þar heiðursmerki
fyrir vasklega framgöngu.
Að stríðinu loknu fluttist hann,
þótt undarlegt megi virðast, til höf-
uðborgar hinna hötuðu Frakka, sem
höfðu misfarið með ítalskan menn-
ingararf, að Hans áliti. Þar settu þau
hjónin á stofn járnvöruverslun, sem
þau ráku af miklum dugnaði og
útsjónarsemi.
Peruggia lést í París árið 1927.
Til leigu í
Borgarkringlunni
Til leigu vel staðsett verslunarhúsnæði
í Borgarkringlunni (við hliðina á
versluninni Blóm og listmunir).
Laust strax.
Upplýsingar í símum 685277 vinnusími
og 689174 heimasími.
Samstarf óskast
Óskað er eftir samstarfi við dugmikinn og
ábyrgan aðila, er starfa vill við innflutning.
Um er að ræða allt að helmings eignaraðild í
fyrirtæki er starfar við mjög sérstæðan og arð-
bæran innflutning.
Lysthafendur vinsamlegast sendi inn tilboð
merkt: „Samstarf - 13763“ á auglýsingadeild
Mbl. fyrir 30. janúar, er greini frá nafni og síma-
númeri.
Fullum trúnaði heitið og öllum tilboðum svarað.
_________________ J
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
Múlalundur
SfMI: 62 84 50
KVÍÐANÁMSKEIÐ
Námskeið um stjórnun streitu, kvíða
og spennu í mannlegum samskiptum.
Kenndar eru og aefðar aðferðir til að
fyrirbyggja og takast á við þessi ein-
kenni.
Upplýsingar um helgar og öll kvöld
ísíma 39109.
Oddi Erlingsson, sálfræðingur.
NÚ Á FRÁBÆRU VERÐIÁ ÍSLANDI
FRÁ KR. 982.080
5 DYRA - 3 ÁRA ÁBYRGÐ
HVARFAKÚTUR
MINNI MENGUN
SÖLUHÆSTIBÍLLINN í EVRÓPU
VOLKSWAGEN