Morgunblaðið - 02.02.1992, Blaðsíða 16
*I6
seei fíAvnam .s srjÐAwmnft cne/vi g ; jiov
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRUAR 1992
JEPPA-, VÉLSLEÐA- OG SKÍÐAMENN HORFA TIL HIMINS OG BÍOA EFTIR SNJÓ:
hraða og úrkomu, en suðvestan-
áttin kalda hefur engan snjó fært
okkur í staðinn, sem hún þó venju-
lega gerir,“ sagði Ólafur, sem er
einn fárra vélsleðamanna á
landinu, sem hefur kynnst almenn-
ilegu sleðafæri. Fyrir norðan og
austan og reyndar á Suðurlandi
hafa sárafáir komist á sleða af
einhverju viti og þeir sem hafa
reynt hafa ófáir skemmt sleða á
grjótnibbum. „Fyrir viku gátu
menn hér sunnanlands með naum-
indum komist í snjó með því að
fara eftir vegi, sem liggur upp
Gjábakka fyrir norðan Lyngdals-
heiðarveginn, hjá Dímon að Tinda-
skaga. Tindarnir draga úrkomu
að sér og hafa safnað snjó í fjallk-
verkarnar. Svo tekur við Skjald-
breið sem ávallt hefur miklar fann-
ir fram á sumar. Frá Skjaldbreið
liggur snjóþungt hálendi allt að
Langjökli. Einnig mátti komast í
fannirnar í Skjaldbreið af línuveg-
inum með því að fara Uxahryggja-
leið, en ekki er hægt að mæla
með því að jeppamenn eða óreynd-
ir vélsleðamenn fari þessar leiðir,
þar sem mikið hefur rignt alla vik-
una og viðkvæmur gróður er víða,
trúlega hafa þessar leiðir nú alveg
lokast umferð“sagði Ólafur. „Ég
man ekki eftir jafn snjólitlum vetri
á Sigöldusvæðinu, sem ég skoðaði
um daginn. í janúar og febrúar
1987 var hæð yfir Bretlandseyjum
og hlýtt loft streymdi endalaust
til okkar svo tún grænkuðu, en
þá var þó sleðafæri inn í Land-
mannalaugar . Um það er ekki
að ræða núna, allt er grátt og
klakað, nánast snjólaust. Nýlega
ók'ég frá Sigöldu langan veg inn
á Sprengisand og var ekki snjó-
korn á veginum, einungis gamlir
veðraðir skaflar í skorningum og
slökkum. Ég yrði ekki hissa ef
fært væri alla leið í Bárðardal eft-
ir veginum. Það má segja að vetur-
inn verði að byija upp á nýtt, ef
takast á að þekja þó ekki væri
nema hálendið sínum venjulega
vetrarfeldi," sagði Ólafur.
Jeppamenn biða og vona
í fyrstu brostu jeppamenn yfir
snjóleysinu, en brosið hefur stirnað
og menn hugsa með óhug hvort
sérútbúin tæki þeirra verði bara
malbikstæki meirhluta vetrar. En
veðrið hindrar þó ekki smíði nýrra
risavaxinna jeppa og það verður
sífellt algengara að bílaumboðin
sjálf leggi áherslu á að hækka upp
og selja sérútbúna jeppa og pall-
bíla. Fæstir kaupenda nota þó
slíka jeppa til hálendisferða, en
harðsnúnustu jeppamennirnir bíða
alvöru vetrar, með hríð og kulda.
í ferðaklúbbnum 4x4 eru yfir 500
meðlimir og Steingrímur Friðriks-
son formaður félagsins taldi með
öllu ófært að menn sæktu á há-
lendið núna sökum krapa og hættu
á náttúruskemmdum. „Ástandið
er alls staðar eins, krapagildrur
og vatnselgur hindrar menn í að
ferðast á j eppum. Menn ættu að
halda sig heima og bíða snjókomu.
Það þarf líka að frysta, svo snjór-
inn haldist, en við erum yfirleitt
að aka í 30-100 sm snjólagi, þeg-
ar aðstæður eru eðlilegar,“ sagði
Steingrímur.
„Það var lítill snjór framan af
vetri í fyrra, en það hlýtur að snjóa
í febrúar. Jeppamenn eru heppn-
ari en vélsleðamenn að því leyti
að við notum jeppana dags dag-
eftir Gunnloug Rögnvoldsson
Jeppa-, vélsleða- og skíðamenn
horfa til himins og bíða eftir
snjó, sem hvergi finnst nema
nærri jöklum og í mjög litlu
magni á Ísafírði. Blíða-
skaparveðrið sem verið hefur á
öllu landinu kemur mörgum í gott
skap, fólk losnar við ófærð, kulda
og slabb á víxl og kemst leiðar
sinnar í sumarklæðum. En skíða-,
jeppa- og vélsleðamenn eru ekki
jafn hressir með snjóleysið. Dýr
tæki liggj a í mörgum tilfellum í
skúrum og geymslum engum til
gagns og gleði, þar sem undirlag-
ið hvíta er ekki til staðar nema á
takmörkuðum svæðum.
Skíðamenn faro til Austurríkis
Þeir skíðáhugamenn sem efni
hafa á flykkjast til Austurríkis og
beita tækjum sínum til að bjarga
einhveiju, en vélsleða og jeppa-
mönnum eru flestar bjargir
bannaðar, nema hvað reyndustu
vélsleðaferðamönnum gefst tæki-
færi til að spretta úr spori nærri
jöklum. í nágrenni byggða er hins-
vegar snjólaust. Svo vakna versl-
unarmenn sem selja vetrarbúnað
upp á hveijum morgni og vona
að snjó hafi kyngt niður um nótt-
ina, stórar vörusendingar liggja
óhreyfðar í hillum og vörugeymsl-
um. En ósk allra þ essara aðila
hefur enn ekki ræst, snjór er sjald-
séður, jafnvel á hálendinu. Ein af
fáum vetraríþróttum sem hægt
hefur verið að stunda að marki
er íshokkí og þó hefur það gengið
illa vegna þýðu, þó skautasvellin
séu vélfryst í dag. Helst hafa
menn getað laumast á jökla á skíð-
um eða tveimur jafnfljótum til
gönguferða.
Svo hafa vélsleðamenn í byggð
getað fundið einn og einn skafl til
að spyrna í. Um fyrri helgi var
haldin keppni í spymu á vélsleðum
á Akureyri og hún fór fram á grasi!
Slíkar spyrnur þekkjast frá
Bandaríkjunum. Það er í raun
ekkert grín fyrir vélsleðamenn að
eiga tæki upp á hálfa til eina millj-
ón króna í skúmum, ónothæf leik-
tæki með öllu í vorlegu vetrarveðr-
inu. Um leið og smá snjóföl mynd-
ast, rignir jafnharðan og menn
hafa leitað dymm og dyngjum að
sköflum til að beita vélfákum sín-
um í, en fæstir hafa haft erindi
sem erfíði. Sala vélsleða hefur
hægt vemlega á sér og sum um-
boð eiga enn tugi vélsleða óselda
og ef ekki snjóar á næstu vikum
er hætt við því að þau sitji uppi
með einhveijar birgðir, sem verði
að selja næsta vetur eða með afs-
lætti í sumar, en dýmstu vél sleð-
ar sem hér fást kosta tæpar 1,2
milljónir.
Áætlað hafði verið að halda
mörg vélsleðamót í vetur, bæði
sunnanlands og norðan en skipu-
lag þeirra gæti nú riðlast veru-
lega. Reyndir vélsleðaáhugamenn
víða um land, sem nota sleða til
ferðalaga, eru ekkert betur settir,
en sunnlenskir ferðalangar hafa
þó getað fundið leiðir til að kom-
ast í snjó nærri Skjaldbreið. Ólafur
Sigurgeirsson lögmaður er kunnur
vélsleða- og veiðimaður. Hann fór
fyrir skömmu í skoðunarferð upp
á hálendi í leit að snj'o fyrir vél-
sleða sinn og annara.
Mon ekki eftir
jafnlitlum snjó
„Frá því fyrir jól hef ég og félag-
Svo rommt kveður oð
snjóleysinu oð sportvöru-
verslunin Útilíf ouglýsti
nýlego rúlluskauta, sem
ætlaðir eru til að holda
íshokkí-, skíðamönnum
og fleirum í æfingu að
sumarlogi. Arni Bírgisson
klifurkappi sýnir hér
skautana, sem eru ó litl-
um hj ólum, skíðin í bak-
sýn hafa litið hreyfst í
sölu enn sem komið er.
ar mínir getað farið í sleðaferðir
um hveija helgi, þar til nú síðustu
helgarnar í janúar. Hámarki náði
snjórinn fyrstu helgi mánaðarins,
en síðan hefur gengið verulega á
forðann með hverri hitabylgjunni
af annari. Suðaustanáttin hefur
verið mjög hlý með miklum vind-
Sú litla snjóföl
sem hefur
myndast annað
veifið hefur
neytt jeppa-,
vélsleða- og
skíðamenn til
að leita fanga
eftir leiksvæði.
Á meðan enginn
snjór er undirbúa
jeppamenn vet-
urinn og aðrir
smíða ný tröll-
vaxin tæki, eins
og Benedikt Ey-
jólfsson, sem
lætur fylla þenn-
an nýja Econoline
öllum helstu ferð-
atækjum til hó-
lendisferða.