Morgunblaðið - 13.02.1992, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992
Einkavæðing í heilbrigðisþjónustu:
Ekki rétt að vinna
bæði á spítulum
o g í einkarekstri
- segir Eggert Jónsson bæklunar-
lækni, sem rekur Skurðstofu Reykjavíkur
Árni Sigfússon, formaður skólamála-
ráðs Reykjavíkur;
Líst vel á að færa
stjóm grunnskóla
Kennarasambandið mótfallið hugmyndimii
I umræðum um heilbrigðis-
kerfið er sjaldnast rætt um hvað
einstakar aðgerðir kosti, en töl-
ur yfir kostnað við aðgerðir ut-
an tryggingakerfisins þykja há-
ar. Hins vegar er erfitt að finna
sambærilegar tölur frá sjúkra-
húsum, því þær liggja ekki fyr-
ir, að því er fram kom í viðtali
við Eggert Jónsson bæklunar-
lækni, sem rekur skyndimóttöku
á Þorfinnsgötu 14.
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra sagði í Morgun-
blaðinu á sunnudag að læknar
hefðu ekki talið fýsilegt að fara út
í einkarekstur, að Eggert undan-
teknum. í viðtali við Morgunblaðið
sagðist Eggert hafa farið út í
reksturinn, þegar hann stóð
frammi fyrir því að koma sjúklingi
ekki að á spítala, þegar á þurfti
að halda og hefði því kosið að
starfa utan við opinbera trygging-
arkerfíð.„Mér finnst heldur ekki
rétt að vinna bæði á sjúkrahúsum
og í einkarekstri. Það fer ekki sam-
an að vera samtímis launþegi og
verktaki á spítala, sem er almenn-
ingseign. Það var fyrst nú fyrir
skömmu að læknar gátu opinber-
Iega gert verktakasamninga við
spítalana. Dagvinnukaup lækna er
lágt og hefur verið látið drabbast
niður. Margir læknar eru með
fastar stöður á spítölum, kannski
sem yfirlæknar, kenna svo við
háskólann og eru með einkastofur
úti í bæ. Hvemig er þetta hægt?
Svo er verið að tala um stimpil-
klukkur á spítölum. Það er furðu-
legt, þegar farið er að ræða um
hvort menn eigi að vera við í vinnu-
tímanum."
Sérðu raunhæfar leiðir til að
lækka kostnað við heilbrigðisþjón-
ustuna?
„Það er ýmislegt fleira undar-
legt í þessum rekstri. Sjúkrasam-
lagið var stofnað til að tryggja
fátæklingum læknisþjónustu, en
nú tryggir það læknum fýrst og
fremst greiðslur. Læknar láta
sjúkiinga skrifa upp á eyðublöð,
sem eru nokkurs konar ávísana-
eyðublöð fyrir læknana, en þau em
ónúmemð. Þó kveða landslög á um
að bæði reikningar og ávísanir eigi
að vera númerað.
Besta aðferðin til að viðhalda
dýmm rekstri er að halda áfram
að hafa eina stóra upphæð á fjár-
lögum. Mín hugmynd er að sjúkra-
húsin verði rekin í smærri eining-
um en nú er og að einn læknir sé
yfír rekstrinum og um leið ábyrgur
fyrir honum. Hann gæti svo ráðið
fólk, svo hópurinn væri samstillt-
ur, líkt og gerist í hvaða fyrirtæki
sem er.
Einn gallinn við heilbrigðiskerfíð
er að þar er til dæmis verið að
elta uppi fullfrískt fólk og gera
rannsóknir á því, því að kostnaðar-
lausu. Einnig em ýmis smáviðvik,
sem fólk borgar lítið sem ekkert
fyrir. Það fara stórar fjárhæðir í
þetta og svo er ekki til fé til að
sinna gömlu fólki eða þeim, sem
em mikið veikir. Það era til nógir
peningar til að sinna læknisþjón-
ustu, ef við sem emm frísk emm
Eggert Jónsson bæklunarlækn-
ir, sem rekur skyndimóttöku á
Þorfinnsgötu 14.
ekki alltaf að klípa af. Það er dýrt
fyrir þjóðfélagið að geyma að
lækna sjúklinga, sem em ósjálf-
bjarga, ég tala nú ekki um þegar
aðstandendur em frá vinnu, því
þeir þurfa að annast slíka sjúkl-
inga.
Eins og er, em biðlistar á sjúkra-
húsum nokkurs konar stöðutákn,
sem hver deild getur notað til að
fara fram á meiri peninga. Læknir
með langan biðlista hlýtur að vera
eftirsóttur og um leið góður. Það
sorglega er að fólk er sett tíman-
lega á biðlista og er jafnvel á lista
hjá fleiri en einu sjúkrahúsi, svo
það þurfí ekki að bíða, þegar það
er orðið reglulega illa haldið. í
staðinn ætti að taka fólk, þegar
það þarf á því að halda. Allir vita
að það er hvort sem er alltaf tekið
fram fyrir af biðlistunum.
Breytingar nú em ill nauðsyn.
Þó fólk borgi fyrir heilbrigðiskerfíð
í gegnum skattana, er það engin
trygging fyrir að það fáj þjónustu,
þegar á þarf að halda. Ég vil ekki
rífa niður velferðarkerfið, heldur
gera það þannig að það hjálpi þeim,
sem mest þurfa á því að halda.
Kakan dugir ekki í allt þetta og
við þurfum heldur ekki á þessari
forsjárhyggju að halda.“
ÁRNI Sigfússon, formaður
skólamálaráðs Reykjavíkur,
segir að honum lítist vel á að
stjórn grunnskóla flytjist undir
stjórn sveitarfélaga. Árni
kynnti þessa hugmynd á fundi
sl. laugardag og Ólafur G. Ein-
arsson varpaði fram sömu hug-
mynd á fundi í Kópavogi sl.
mánudagskvöld. Hann kvaðst
telja að breyta þyrfti lögum um
verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga til að svo mætti verða
og ríkið yrði að marka sveitar-
félögunum tekjustofna. Kenna-
rasambandið hefur lýst sig mót-
fallið þessum hugmyndum en
útilokar ekki viðræður.
„Það er alveg ljóst að það em
fjölmörg verkefni sem þarf að
skoða til þess að þetta geti orðið
að veruleika og því full þörf á því
að hefja þá skoðun. Kostirnar við
þetta em einkum tveir. Nálægð
við þjónustuþega, sveitarfélagið
er miklu nær notandanum en rík-
ið, það gerir sér betur grein fyrir
þörfum sem fylgja þjónustunni.
Jafnframt hef ég trú. á því að
Reykjavíkurborg hafi sýnt skóla-
málum áhuga á þann hátt að það
sé full ástæða til að ætla að hún
geti fyrr komið fram með nýjung-
ar en ríkið, og það er full þörf á
því f dag,“ sagði Ámi.
Hann sagði að samkvæmt
verkaskiptalögunum sæi ríkið um
kennsluna og innra skipulag skól-
anna, sveitarfélögin sæju um upp-
byggingu skólahúsnæðis, búnað
og nokkra þætti í rekstrinum. Það
þyrfti því að kanna launaþáttinn,
þ.e. hvernig kennarar gerast
starfsmenn sveitarfélags. „Það
kann að vera flókið, talsverð lög-
fræðileg flækja sem þyrfti að
greiða úr. En allt er hægt ef vilj-
inn er fyrir hendi og við höfum
63 menn á þingi til að leysa úr
þeim málum,“ sagði Ámi. Hann
kvaðst hafa rætt þennan mögu-
leika meðal annars sem mótleik
yegna hugmynda manna um að
taka mætti fé hjá sveitarfélögun-
um til að stoppa í þau göt í skóla-
kerfínu sem niðurskurður ríkisins
hefur orsakað. Þetta hafí ekki
verið rætt í borgarstjómarflokki
sjálfstæðismanna en hins vegar
væri hugmyndin mjög í anda sjálf-
stæðisstefnunnar.
Svanhildur Kaaber, formaður
Kennarasambands íslands, sagði
að sambandið hefði á sínum tíma
ályktað að ríkið ætti að standa
undir öllum kostnaði við skólastarf
grannskólanna, fyrst og fremst til
að tryggja jafnrétti til náms óháð
búsetu. Sveitarfélögin væra misvel
í stakk búin að taka við slíku verk-
efni, mörgum þeirra væri það um
megn. „Ég hefði miklar áhyggjur
af því ef skólastarf grunnskólanna
yrði fært yfir á sveitarfélögin og
vísa til reynslu nágrannaþjóða
okkar, þar sem það hefur ekki
bætt aðstöðu skólanna nema
kannski aðeins í skamman tíma.
Við eram tilbúin að ræða og skoða
leiðir og möguleika, en þetta er
sú meginhugmynd sem við höfum
unnið eftir, að grannskólinn og
framhaldsskólinn séu ríkisreknir
til að tryggja jafnrétti til náms,“
sagði Svanhildur.
ora iSMR HILlil
Ráðist að kennarastéttinni
Laugardaga frá kl. 10—14
sunnudaga frá kl. 13—17
Ú.M. teppi/filtteppi
frá kr. 375 m2
Lykkjuteppi, fallegír litir
frá kr. 995 mz
Ó.M dúkar/gólfdúkar
frá kr. 550 mz
Ó.M. flísar/keramik veggflísar
15x20 frá kr. 1.180 m2
segir Svanhildur Kaaber, formaður KI
GUÐRÚN Ebba Ólafsdóttir, for-
maður Kennarafélags Reykjavík-
ur, segir að misskilnings gæti hjá
Ólafi Amarsyni, aðstoðarmanni
menntamálaráðherra, varðandi
vinnutíma kennara. Svanhildur
Kaaber; formaður Kennarasam-
bands Islands, sagði ótrúlegt að
einn af æðstu embættismönnum
menntamálaráðuneytisins skuli
ráðast að kennarastéttinni og
væna hann um vinnusvik.
Guðrún Ebba sagði að kennarar,
líkt og allir aðrir opinberir starfs-
menn, ynnu átján hundmð stundir
á ári. Hluta þess tíma ynnu þeir af
sér um veturinn í formi yfirvinnu á
dagvinnulaunum sem greidd væm
eftir á. Kennsluskylda væri 29
kennslustundir á viku. Vikuleg vinn-
uskylda væri 45,45 klukkustundir.
Vinnuskylda á starfstíma skóla væru
36 vikur, alls 1.647 klukkustundir.
Vinnutími utan starfstíma á sumrin
væri 153 klukkustundir, þ.e. undir-
búningur kennslu, námskeið, endur-
menntun og annað, eða samtals
1.800 klukkustundir. „Við höfum
verið tilbúin til viðræðna um leng-
ingu skólaársins samfara styttingu
vikulegrar kennsluskyldu okkar, en
Okkur finnst sorglegt að aðstoðar-
maður menntamálaráðherra viti ekki
betur, hvernig okkar vinnutími er,“
sagði Guðrún Ebba.
Svanhildur Kaaber, formaður
Kennarasambands íslands, tók í
sama streng. „Það kemur mjög skýrt
fram í þessari frétt hversu ókunnugt
aðstoðarmanni menntamálaráðherra
er um skólastarf í landinu og það
harma ég. Hann ber saman tölur
um kennslumagn og segir að heildar-
kennslumagn í gmnnskólum hafí
aukist frá 1960 til 1992. 1960 vom
átta árgangar í skóla en 1991 era
tíu árgangar í skóla. Hann ber sam-
an annars vegar kennslumagn fyrir
átta árganga og hins vegar fyrir tíu
árganga. Hann tekur sex ára bömin
inn, eins og kemur fram, og það
sýnir fáfræði hans alveg sérstaklega
því kennsla hefur verið greidd fyrir
sex ára börn í marga áratugi. Það
er 1990, en ekki 1991, sem sex ára
börn verða skólaskyld. Svanhildur
sagði að svo virtist sem aðstoðar-
maður menntamálaráðherra hefði
ekki áttað sig á þeim þjóðfélags-
breytingum sem hér hefðu orðið á
síðustu áratugum þegar hann segði
að þeir nemendur sem fái þessa
skerðingu núna hefðu fengið mun
meiri kennslu þegar þeir úskrifíst
úr grannskóla en sömu árgangar
fyrir 30 ámm. Hann virtist ekki átta
sig á því hvaða kröfur eru gerðar
um kennslu og starf í grunnskóla.
Nefna mætti alla þá námsþætti sem
væm komnir inn í skólastarfið, alla
fjölmiðlunina sem hefði mikil áhrif
á börn og unglinga og ekki síst
hvernig heimilishagir fólks hafi
breyst. Skólarnir hafí þurft að taka
á sig meira af því uppeldisstarfi sem
heimilin höfðu áður. „Mér fínnst
ekki eyðandi orðum í það þegar að-
stoðarmaður menntamálaráðherra
lætur að því liggja að kennarar út-
húði menntamálaráðherra og gefi
börnum frí til að vera á útifundum.
Það er vitaskuld rangt,“ sagði Svan-
hildur.
„Það sem aðstoðarmaðurinn segir
um lengingu skólaársins sýnir um-
fram allt annað sem þama kemur
fram, fáfræði hans á starfi kennara
og ótrúlegt er að einn af æðstu
embættismönnum menntamála-
ráðuneytisins skuli ráðast þannig að
kennarastéttinni og hreinlega væna
hannaum vinnusvik," sagði Svan-
hildur.
SIEMENS
Litlu raftœkin frá SIEMENS
gleöja augað!
Kaffivélar, hrœrlvélar, brauðristar, vöfflujárn,
strokjárn, handþeytarar, eggjaseyðar,
hraðsuðukönnur, áleggshnífar, veggklukkur,
vekjaraklukkur, djúpstelkingarpottar o.m.fl.
SNIÍTH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300