Morgunblaðið - 13.02.1992, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÍMMTUDAGÚR 13. FÉBRÚAR 1992
George Bush
Bush tilkynn-
ir framboð
George Bush Bandaríkjaforseti
tilkynnti formlega í gær að hann
sæktist eftir endurkjöri í forseta-
kosningunum í nóvember. Bush
hélt síðan tii New Hampshire
þar sem hann mætir
hægrimanninum Pat Buchanan
í prófkjöri á þriðjudag. Vinsæld-
ir forsetans hafa minnkað veru-
lega á undanfömum mánuðum
vegna efnahagslægðar í landinu
og er búist við að barátta hans
fyrir endurkjöri verði erfíð.
Baker heim-
sækir Bakú
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, heimsótti í gær
Bakú, höfuðborg Azerbajdz-
hans, og sagði að Bandaríkja-
stjóm myndi ekki viðurkenna
sjálfstæði sovétlýðveldisins fyrr-
verandi og taka upp stjómmála-
samband við það nema að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum.
Það myndi ráðast af því hvort
Azerar virtu mannréttindi,
kæmu á lýðræði og fijálsu mark-
aðshagkerfi, gerðu ekki kröfu
um landamærabreytingar og
hefðu friðsamleg samskipti og
samvinnu við önnur fyrrverandi
sovétlýðveldi. Viðræður Bakers
og azerskra embættismanna
snerust einkum um héraðið Nag-
omo-Karabak, sem Azerar og
Armenar hafa deilt um.
fsing olli
SAS-slysinu
Sænsk rannsóknarnefnd sagði í
gær að ísing hefði valdið því að
farþegaþota frá SAS-flugfélag-
inu brotlenti skömmu eftir flug-
tak frá Arlanda-flugvelli við
Stokkhólm um jólin. ísing á
vængjum hefði að öllum líkind-
um borist í hreyfla þotunnar og
valdið bilun í þeim. 129 manns
voru um borð í þotunni og þykir
það ganga kraftaverki næst að
þeir skyldu allir hafa bjargast.
Skotbardagar
í Algeirsborg
Skotbardagar brutust út í þrem-
ur hverfum í Algeirsborg í gær
er hermenn leituðu að bana-
mönnum átta lögreglumanna.
Hverfin þrjú eru á meðal höfuð-
vígja íslmösku hjálpræðisfylk-
ingarinnar (FIS) sem náði miklu
forskoti í fyrstu ljölflokkakosn-
ingunum í Alsír í desember áður
en núverandi valdhafar stöðvuðu
þær.
ísraelar
ögra Bush
Likud-flokkurinn í Israel sagði í
gær að farið yrði með 100.000
innflytjendur um hemumdu
svæðin til að sýna þeim húsnæði
þótt bandaríska stjórnin hefði
skorað á ísraelsk stjórnvöld að
hvetja ekki til frekara landnáms
þar. Háttsettur bandarískur
embættismaður sagði í gær að
stjórn George Bush hefði skýrt
ísraelum frá því að hún vildi að
þeir hættu við frekara landnám
á hemumdu svæðunum í skipt-
um fyrir lánaábyrgðir upp á tíu
milljarða dala.
Bandaríkin:
Ósoneyðandi efni
Washington. Reuter.
GEORGE Bush, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í fyrradag, að öll
efni, sem hafa óholl áhrif á ósonlagið um jörðu, verði bönnuð árið
1995, fimm árum fyrr en áður var ákveðið. Skoráði hann á önnur
ríki að fara eins að.
Bandaríska geimferðastofnunin,
NASA, birti nýlega skýrslu þar sem
fram kemur, að ósonlagið étist upp
hraðar en áður var ætlað, bæði af
náttúrulegum orsökum og manna-
völdum. Þá hefur einnig verið upp-
lýst, að í Bandaríkjunum er herinn
ábyrgur fyrir tveimur þriðju þeirra
ósoneyðandi efna, sem komast út í
andrúmsloftið.
Ósonlagið verndar jörðina fyrir
útfjólubláum geislum en þeir geta
valdið margvíslegum skaða á öllu
lífríkinu, meðal annars húðkrabba-
meini og augnskemmdum í mönn-
um. Hefur verið áætlað, að vegna
ósoneyðingarinnar verði húðkrabb-
ameinstilfelli í Bandaríkjunum
200.000 fleiri en ella á næstu 50
árum. Það eru aðallega klórflú-
orkolefni, sem skaðanum valda,
CFC, en þau eru meðal annars not-
uð til að hreinsa málm og rafbúnað
ýmsan, í úðabrúsum, ísskápum og
plastfrauði. Önnur skaðleg efni eru
til dæmis halon, sem notað er í
slökkvitæki.
Samkvæmt Montreal-samkomu-
laginu hafa iðnríkin frest til alda-
móta að hætta framleiðslu ósoneyð-
andi efna og þróunarlöndin fram
til 2010.
Reuter
Nasísk „dauðabók“
Elizabeth Dole, formaður Rauða krossins í Bandaríkjunum, heldur
hér á einni af „dauðabókum" nasista, sem nýlega komu í leitimar,
en þar erú skráð nöfn hálfrar milljónar manna, sem þeir tóku af lífi.
Með bókunum er unnt að staðfesta örlög margra manna, sem flutt-
ir voru í útrýmingarbúðir nasista.
■ VÍN - Franz Vranitzky,
kanslari Austurríkis, segir að hann
hyggist hafa samband við leiðtoga
Bandaríkjanna og Rússlands og
leggja til að vesturlönd kaupi
kjarnorkuvopnabirgðir fyrrver-
andi Sovétríkja og eyði þeim.
„Það er kominn tími til taka á sig
rögg og binda enda á kjarnorkuvit-
firringuna," sagði Vranitzky i við-
tali við blaðið Neu Kronen Zeitung
í Vín. Hann lagði til í síðustu viku
að auðug ríki í Vestur-Evrópu
keyptu til eyðingar vopn frá fyrr-
um Iýðveldum Sovétríkjanna og
sameinuðu þannig afvopnun og
efnahagsaðstoð.
Hann sagðist mundu hafa sam-
band við George Bush, forseta
Bandaríkjanna, og Boris Jeltsín,
forseta Rússlands, og leita álits
þeirra á útfærslu tillögunnar í ein-
stökum atriðum.
Kasmírsku göngumennirnir:
Fyrirliðinn handtekinn
Chinari. Reuter.
Pakistanskir hermenn handtóku í gær leiðtoga kasmírskra öfga-
manna og 100 stuðningsmenn hans eftir átök, sem kostuðu allt að 12
manns lífið. Ætluðu mennimir yfir til Kasmírs í Indlandi til liðs við
trúbræður sína, múslíma, sem krefjast sjálfstæðis eða sameiningar við
Pakistan.
Herinn hefur ekki staðfest, að
Amanullah Khan, leiðtogi Frelsis-
fylkingar Jammu og Kasmírs, hafi
verið handtekinn en það er haft eft-
ir talsmönnum hreyfmgarinnar. Her-
inn hafði hins vegar lýst yfir, að
komið yrði veg fyrir, að göngumenn
kæmust til Indlands, með öllum ráð-
um. Indveijar og Pakistanar hafa
tvisvar háð styijöld um Kasmír en
það er indverskt að tveimur þriðju
og pakistanskt að einum þriðja. íbú-
arnir eru hins vegar flestir múslímar
og una illa yfirráðum indversku
hindúanna. Er mikill viðbúnaður á
landamærum ríkjanna og var óttast,
að ryddust pakistanskir öfgamenn
yfír landamærin kynni það að valda
blóðbaði og hugsanlega átökum milli
herja ríkjanna.
I fyrradag stöðvuðu hermenn
göngu nokkurra þúsunda manna en
í gær lagði nokkur hópur aftur upp
undir forystu Amanullahs. Skarst
þá herinn í leikinn og skaut á fólkið
með þeim afleiðingum, að 12 manns
féllu. Nawaz Sharif, innanríkisráð-
herra Pakistans, sagði í gær, að
hann harmaði mannfallið en kvað
ekki koma til greina að leyfa Aman-
ullah að leiða saklaust fólk út í op-
inn dauðann.
Nýtt GATT-samkomulag
veltur á „græna kassanum“
Genf, Reuter og The Economist.
Góðu fréttirnar eru að hinn 13. janúar síðastliðinn samþykktu
öll 108 aðildarríki GATT 436 blaðsíðna grundvöll að nýju samkom-
ulagi um verslun og tolla. Ætlun þeirra er að ganga endanlega
frá samkomulaginu fyrir 15. apríl næstkomandi. Gildistaka er
miðuð við janúar 1993. Slæmu fréttirnar eru vafasöm túlkun og
andstaða Evrópubandalagsins við þann hluta samkomulagsins sem
fjallar um styrki til landbúnaðar.
Frá mótmælum bænda í Þýskalandi. Á spjaldinu stendur: „Bráð-
um þurfa menn á söfn vilji þeir sjá bændur.“
Þessi nýi samkomulagsgrund-
völlur er að mestu leyti árangur
fímm ára samningaviðræðna. Um
styrki til landbúnaðar náðist hins
vegar ekki samkomulag og því
varð framkvæmdastjóri GATT,
Arthur Dunkel, að leggja fram
málamiðlunartillögur. Þar er Iýst
þeim skrefum sem aðildarríki
verða að stíga fyrir 1999. Um
framhaldið yrði síðan samið þegar
þar að kemur.
í fyrsta lagi verða aðildarríki
að minnka framleiðslustyrki tii
bænda um 20%. Undir þetta
ákvæði falla öll opinber framlög
sem tengjast framleiðslumagni á
einn eða annan hátt.
í öðru lagi ber aðildarríkjum
að afnema ýmiskonar innflutn-
ingshömlur. Þess í stað geta ríkin
lagt hlutfallslega og fastákveðna
tolla á umræddar landbúnaðaraf-
urðir. Innflutningstollar eiga jafn-
framt að lækka um 36% á tímabil-
inu.
I löndum Evrópubandalagsins
er óheimilt að selja innfluttar land-
búnaðarafurðir undir viðmiðunar-
verði bandalagsins. Sé inn-
flutningsverðið lægra er það ein-
faldlega hækkað upp með breyti-
legu gjaldi.
í þriðja lagi skuldbinda aðild-
arríki sig til að minnka útflutn-
ingsstyrki um 24% og útgjöld
vegna undirboða um 36%. 1 síðara
tilvikinu kaupir hið opinbera vörur
á heimamarkaði og selur þær síð-
an fyrir lægra verð á erlendum
mörkuðum.
Sérfræðingar hafa bent á að
undarlegt misræmi á milli fyrsta
og þriðja ákvæðis draganna geri
endanlega út af við núverandi
sameiginlega landbúnaðarstefnu
Evrópubandalagsins (CAP). Evr-
ópubandalagið tryggir bændum
ákveðið verð fyrir hveija afurð og
skiptir þá engu máli hversu mikil
framleiðslan er. Þetta kerfi hefur
leitt af sér gífurlega mikla og
dýra offramleiðslu. Nú þegar eru
meira en tvær milljónir tonna af
kjöti og mjólkurafurðum í frystig-
eymslum Evrópubandalagsins.
Framleiðslustyrkir verða áfram
svo háir að þörfin fyrir út-
flutningsstyrki minnkar ekki í
samræmi við boðaðan niðurskurð
þriðja ákvæðis. Eigi að koma í veg
fyrir stóraukna birgðasöfnun
verður bandalagið að brúa bilið
með framleiðslukvótum.
Ray MacSharry, framkvæmda-
stjóri landbúnaðarmála Evrópu-
bandalagsins, berst nú harðri bar-
áttu fyrir endurskoðun landbún-
aðarstefnu bandalagsins. MacS-
harry leggur einmitt til að dregið
verði úr framleiðslu með kvótum.
En á móti yrði bændum að ein-
hveiju leyti bætt skerðingin með
beinum greiðslum.
í svokölluðum „grænum kassa“
Arthurs Dunkels eru landbúnað-
arstyrkir sem ekki hafa áhrif á
framleiðslu og verðákvarðanir.
Slíkar greiðslur raska ekki verslun
með búvörur og falla þar af leið-
andi ekki undir áðurnefnd ákvæði
um niðurskurð styrkja.
Öðru fremur snýst deilan um
það hvort fyrirhugaðir styrkir til
evrópskra bænda komist í „græna
kassann". Dunkel gerir þá ein-
földu kröfu að greiðsla sé algjör-
lega óháð framleiðslu. Styrkir til
evrópskra kornframleiðenda yrðu
hins vegar miðaðir við stærð þess
lands sem korni er sáð í hveiju
sinni.
Ray MacSharry hefur lýst því
yfír að verði túlkun „græna kass-
ans“ ekki breytt, þannig að hann
rúmi þessar greiðslur, geti Evr-
ópubandalagið hvorki endurskoð-
að landbúnaðarstefnu sína né
skorið niður styrki í samræmi við
drög Dunkels.
í Bandaríkjunum leggja menn
tillögur MacSharry að jöfnu við
styrki tii þarlendra kornframleið-
enda sem fá greitt fyrir hvert tonn
af uppskeru. Bandaríkjamenn
hafa þegar fallist á að minnka þær
greiðslur og nú finnst þeim röðin
vera komin að Evrópubandalag-
inu.
Mörg aðildarríki GATT eru
reiðubúin að falla frá grundvall-
arkröfum ef það má verða til þess
að samkomulag náist. En fái Evr-
ópubandalagið því framgengt að
samkomulagsdrögin verði endur-
skoðuð má fastlega búast við því
að önnur ríki geri slíkt hið sama.
Þar með yrði þessi viðkvæma
málamiðlun nánast úr sögunni og
árangurinn af fimm ára starfi ef
til vill minni en enginn.