Morgunblaðið - 13.02.1992, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992
33
Minning:
Ásta Jósepsdóttir
frá Atlastöðum
Fædd 8. nóvember 1910
Dáin 6. febrúar 1992
Nú er hún amma, Ásta Jóseps-
dóttir frá Atlastöðum í Fljótavík,
dáin. Líf hennar var langt og oft
á tíðum þymum stráð. Hún fékk
að reyna mikið, en samt var hún
alltaf glöð og svo mikill klettur í
tilveru minni og margra annarra.
Amma var fædd og uppalin á Atla-
stöðum í Fljótavík. Þangað lá hug-
urinn alltaf og hún bar þess merki
að vera alin upp í þessu einangr-
aða samfélagi innan um há fjöllin,
björgin og ægikraft hafsins.
Fyrsta minning mín var þegar
ég og Lóló systir mín sátum í eld-
húsinu hjá ömmu og hún var að
kenna okkur að spyrða bönd, sem
hún var að vinna fyrir íshús Hafn-
arfjarðar og á meðan sagði hún
okkur sögur frá bernsku sinni í
Fljótavík. Þá hef ég ekki verið
mikið eldri en fjögurra ára. Svo
man ég líka mjög vel eftir því þeg-
ar amma og Lóló voru að koma í
strætó að heimsækja okkur á
Bergstaðastrætið. Hún kom alltaf
færandi hendi þótt efnin væru ekki
mikil og vildi alltaf fóma sér fyrir
mömmu og okkur systkinin.
I eitt skiptið þegar amma kom
fannst ég ekki hvernig sem leitað
var. Það endaði með því að haft
var samband við lögregluna. Að
skömmum tíma liðnum komu frétt-
ir þess efnis að fimm ára drengur
hefði fundist á Arnameshæðinni á
leið til ömmu sinnar í Hafnarfirði.
Sem unglingur leitaði ég alltaf
til hennar ömmu þegar ég þurfti
á stuðningi og aðstoð að halda og
reyndist hún mér alltaf vel.
Amma var alltaf svo jákvæð og
sérstaklega lagin við að útiloka það
neikvæða. Hún hélt því t.d. alltaf
fram að ís væri ekki fitandi vegna
þess að henni þótti hann svo góð-
ur. Henni þótti mjög gaman að
spila á spil og sátum við og spiluð-
um oft tímunum saman og þá til-
heyrði alltaf að fá sér ís í lokin.
Eitt var það í fari ömmu sem
entist fram á síðustu stundu, það
var hversu barngóð hún var. Síð-
ustu fjögur árin sem hún bjó á
Suðurgötunni átti ég og fjölskylda
mín heima við hliðina á henni.
Bæði mín börn og önnur í götunni
leituðu mikið til hennar og aldrei
fór það svo að hún stingi ekki að
þeim einhverju góðgæti, enda undi
hún sér best innan um börn. Hún
gat endalaust spjallað við þau og
sagt þeim sögur og þannig var það
líka eftir að hún fór á Hrafnistu.
Það er skrítið að amma skuli
vera dáin. Hún var þarna og mað-
ur heimsótti hana þótt það hefði
kannski mátt vera oftar. Hún hélt
manni við bernskuna og uppruna
sinn. Nú er hún farin og það er
svo tómlegt. í einfeldni minni hélt
ég að hún yrði þama alltaf svo
einkennilegt sem það er. Ég er svo
feginn að hafa fengið að vera við-
staddur þegar hún amma mín dó.
Það styrkti mig í þessum missi og
það að verða vitni að andláti ná-
komins ættingja gerir mann með-
vitaðri um dauðann, sem við öll
eigum eftir að taka á móti.
Blessuð sé minning ömmu
minnar.
Rúrik.
Amma, Ásta á Suðurgötu 71,
er dáin. Hún var góð við okkur
öll. Hýr var hún og góð. Hún var
lasin greyið þegar hún dó. Mikið
sakna ég hennar.
Guð geymi hana.
Vala.
■ STJÓRN Foreldrafélags
grunnskólans í Borgarnesi mót-
mælir þeirri ákvörðun ríkisstjómar
og meirihluta Alþingis að skerða
fjárveitingar til grunnskóla fyri^
árið 1992. Fjárveitingar til grunn-
skóla hérlendis eru minni en tíðkast
í flestum þeim löndum sem við vilj-
um bera okkur saman við og enn
eigum við langt í land að hafa lok-
ið uppbyggingu skólakerfisins okk-
ar. Enn höfum við ekki einsetinn
skóla, lítill hluti íslenskra skóla-
barna fær skólamáltíðir, skólatími
hefur verið skorinn niður seinustu
áratugi og nemendaíjöldi er of mik-
ill í bekkjum til þess að hægt sé
að sinna þörfum allra bama. Því
teljum við það óskynsamlegt að láta
menntastefnu þjóðarinnar til næstii. •
ára stjórnast af tímabundnum hag-
sveiflum. Við eigum frekar að horf-
ast til framtíðar og hafa það í huga
að þær þjóðir sem hafa varið mest-
um fjármunum til skólamála em
þær þjóðir sem búa við mestu hag-
sæld og þjóðartekjur.Við megum
ekki gleyma því að í skólunum er
framtíðin mótuð og ef við búum
ekki vel að börnum okkar mun það
koma niður á framtíðarkynslóðum.
Við hvetjum til þess að síðustu
ákvarðanir í málefnum grunnskóla
verði endurskoðaðar og áfram verði
haldið á þeirri braut sem mótuð
hefur verið seinustu ár og áratugi.
(Fréttatilkynning)
Tamningastöð
Stúlka óskast til aðstoðar við tamningar og
þjálfun í Norður-Þýskalandi. Þarf að vera vön
hestum og geta byrjað strax.
Upplýsingar gefur Gunnar Örn ísleifsson eft-
ir kl. 20.00 í síma 9049-5043-5312
Báturtil sölu
Til sölu 63 tonna frambyggður eikarbátur
með 503 hestafla Caterpillar aðalvél árgerð
1985. Endurbyggður 1985.
Aflahlutdeildir fylgja.
Upplýsingar gefur Friðrik J. Arngrímsson, hdl.,
Ingólfsstræti 3, Reykjavík, sími 91-625654.
Húsnæði
fyrir félagasamtök
Við leitum að húsnæði til kaups, a.m.k.
600 fm, fyrir félagasamtök á svæðinu frá
Snorrabraut að Elliðaám. Húsnæðið á að
nota fyrir skrifstofur og gistiaðstöðu.
Mjög traustir kaupendur.
Upplýsingar gefur:
HUGINN, fasteignamiðlun,
Borgartúni 24, sími 625722.
Stórútsalan
enn í fullum gangi.
Enn lægra verð á ýmsum titlum.
Allt að 96% afsláttur.
Opið virka daga frá kl. 9-18 og laugardag
SKÁLHOLTSSTÍG 7» REYKJAVlK
SÍMI 6218 22
Ársfundur
Hins íslenska Biblíufélags
verður haldinn í safnaðarheimili Dómkirkj-
unnar, Lækjargötu 14A (gengið inn frá Von-
arstræti), sunnudaginn 23. febrúar 1992,
kl. 15.30.
Dagskrá:
' Tvö stutt erindi:
Um þýðingu Gamla testamentisins,
dr. Sigurður Örn Steingrímsson.
Um Apókrýfar bækur Gamla testamentisins,
séra Árni Bergur Sigurbergsson.
Venjuleg aðalfundarstörf. _ ..
Stjorn Hlb>.
Tilkynning
WAliNER
Kristján Ó. Skagfjörð hf. hefur nú tekið
að sér einkaumboð á íslandi fyrir Wagner
Spraytech Scandinavia A/S.
Fimmtudaginn 13. og föstudaginn 14. febrúar
mun fulltrúi frá Wagner, hr. Gunnar Jensen,
vera til viðtals hjá okkur.
Allar nánari upplýsingar gefnar í bygginga-
vörudeild, sími 24120.
rriKRisTjÁN ó
1»JSKAGRIÖRn HF
Hóimaslóð 4 Box 906 121 Reykjavík
Vestmannaeyingar
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiþtaráð-
herra, verður með viðtalstíma föstudaginn
14. febrúar á bæjarskrifstofunum í Vest-
mannaeyjum frá kl. 10.00-12.00.
Þeir, sem áhuga hafa á að panta viðtalstíma
við ráðherrann, geta látið skrá sig á skrifstof-
um Vestmannaeyjabæjar í síma 11088.
Iðnaðarráðuneytið,
viðskiptaráðuneytið,
6. febrúar 1992.
HÚSNÆÐIÓSKAS T
Óskasttil leigu
Einbýlishús, raðhús eða stór íbúð óskast til
leigu á höfuðborgarsvæðinu.
Upplýsingar gefur Guðjón Tómasson í sjma
641750 og á kvöldin í síma 50873. ^
Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur
Ásgarður 2-40
Tillaga að deiliskipulagi á staðgr.r. 1.834.2 við
Ásgarð 2-40, sem markast af Ásgarði og Bú-
staðavegi, er auglýst samkvæmt 17. og 18.
grein skipulagslaga nr. 19/1964.
Uppdráttur með greinargerð verður til sýnis
hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3,
3. hæð, kl. 13.00-16.15 alla virka daga frá
13. febrúar til 27. mars 1992.
Athugasemdum, ef einhverjar eru, skal skila
skriflega á sama stað eigi síðar en 10. apríl
1992. Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Borgarskipulag Reykjavíkur,
Borgartúni 3, 105 Reykjavík.
Slllá auglýsingar
FÉLAGSÚF
HELGAFELL 59922137 IV/V 2
I.O.O.F. 11=17302138Va = 9.11.
St.St.59922137 VII
I.O.O.F. 5 = 1732138'h = 9. II
□ SINDRI59922137 = 2 í Rvik
Hjálpræðisherinn
Samkoma í kvöld kl. 20.30 í um-
sjá hermanna. Veriö velkomin.
Samkoma verður i kapellunni i
Hlaðgerðarkoti í kvöld kl. 20.30.
Umsjón: Dorkas-konur
Samhjálp.
VT--, /
KFUM
V
AD KFUM
Fundur i kvöld kl. 20.30 á Holta-
vegi. Kynnt staða og stefna
KFUM, opinn stjórnarfundur.
Umræður. Hugleiðing: Sr. Ólaf-
ur Jóhannsson.
Kaffi eftir fund. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Samkoma i kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Skipholti 50b, 2. hæð.
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir.
Aðalfundur Bandalags Islenskra
farfugla verður í kvöld, 13. febrú-
ar, kl. 20 á Suridlaugavegi 34,
Reykjavik.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
ÖKFUK
KFUM©
Matarfundur
verður á Háaleitisbraut 58
þriðjudaginn 18. febrúar kl. 19.
Miðar eru seldir á skrifstofunnl
við Holtaveg. Einnig verða seld-
ir miðar eftir samkomu sunnu-
daginn 16. febrúar.
Stjórnin.