Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992
■
Hard Rock Café
fimmtudaginn
20. febrúar
HARD ROCK CAFE - S. 689888
HEILSU SKÓLI
NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAGS
ÍSLANDS
y
Jón Gfslason Ingibjörg i Dalberg E isgslr Hannes llrfksson
jjit1 ' JBIgV 1
Sigrún Helga Haukur
Óiafsdðttlr Mogensan Haraldsson
Alexandra Sarah Jón Gblason
Kjurugej Blondani
Heilsuskólinn býður nám-
skeið er miða að því að
byggja upp andlega og
líkamlega heilsu og er efni
þeirra því margþætt og fjöl-
breytt eins og t.d. námskeið
í matreiðslu heilsufæðis,
megrun, sjálfsstyrkingu,
minnis- og námstækni,
hvernig öðlast megi sálarró
og gleði og koma um leið í
veg fyrir sjúkdóma. Skólinn
hefur starfsemi sína með
kjörþyngdarnámskeiði og
námskeiói í matreiðslu á
makróbíótísku fæði.
Kjörþyngdarnámskeið felst í
því að kenna fólki að ná
kjörþyngd og halda henni.
Þetta er nýstárlegt námskeið
sem stendur í fjórar vikur
og fylgt er eftir með vikuleg-
um stuðningi eða stoðtím-
um.
Meðal leiðbeinenda eru:
Jón Gíslason næringarfræðing-
ur, Ingibjörg Dalberg snyrti-
fræðingur, Ásgeir Hannes
Eiriksson, Sigrún Ólafsdóttir
leiðbeinandi í matreiðslu, Jón
Ágúst Guðjónsson og Helga
Mogensen leiðbeinendur í
líkamsþjálfun, teygjum, slökun
og sjálfsstyrkingu.
Fyrsti kennsludagur:
18. febrúar.
Fyrsta matreiðslunámskeið
skólans er námskeið í makró-
bíótískum fræðum en þau
byggjast á því að koma á jafn-
vægi í líkamanum með fæðuv-
ali. Makróbíótískt fæði hefur
auk þess hjálpað íjölda manns
til þess að sigrast á sjúkdómum.
Leiðbeinandi: Sigrún Ólafs-
dóttir.
Fyrsti kennsludagur:
15.. febrúar.
Leikjanámskeið er skemmtilegt
„bjartsýnisbrosgleðinámskeið“
sem ætlað er að lækna ófram-
færni og samskiptaótta.
Dæmi um námsgreinar: Hlátur-
tækni, hvað gerist í líkamanum
við hlátur, hlátur til lækninga,
hlátur í námsárangri, kímni í
framsögn, leikræn tjáning og
ýmsir leikir.
Meðal leiðbeinenda: Alexandra
Kjurugej, Haukur Haraldsson,
Sarah Biondani, Örn Ámason
o.fl.
Leikjanámskeiðin eru helg-
arnámskeið og hefjast þau í fe-
brúar.
Námskeiðin em haldin í nota-
legri risíbúð í húsnæði Náttúru-
lækningafélagsins á Laugavegi
20b og á matstofunni sama
stað.
Innritun stendur yfir. Upplýsingar í síma 16371
HEILSUSKÓLI NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAGS ÍSLANDS
LAUGAVEGI 20B, 101 REYKJAVÍK SÍMI: 16371
NÁMSKEIÐ
Farandverkamenn nema íslensku
Höfn.
Nokkrir farandverkamenn af er-
lendu bergi brotnir gengust
nýlega fyrir því að fá einhveija til-
sögn í íslensku máli. Og nú er farið
af stað með námskeið í íslensku við
Heppuskóla á Höfn að frumkvæði
þeirra. Námskeiðið er haldið tvö
kvöld í viku í klukkustund hvort
kvöld. Ákveðið hefur verið að nám-
skeiðið standi næstu sex vikurnar
og sjá svo til um framhaldið.
Nemendumir koma langt að og
eru fullir áhuga á að geta eitthvað
bjargað sér á íslensku enda sumir
búnir að dvelja á íslandi frá 1988
með hléum. Þeir eru því farnir að
skilja talsvert í málinu en gengur
verr að gera sig skiljanlega. En fólk-
ið er mjög ánægt með að eiga von
á smá tilsögn og tilhlökkun skein
úr hveiju andliti.
- JGG.
Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson
Hópurinn frá vinstrj: Áse, Svíþjóð, Maree, AJison og Stuart, Nýja Sjálandi, Elena, Noregi, Dee Collier,
Ástralíu, Margaret, Irlandi, Gunnhild, Noregi, Constanee, Ghana, Ósk (en hún á ættir að rekja til íslands)
og kennarinn, hún Sólrún.
Friðrik Sophusson afhendir Helga K. Hjálms-
syni forstjóra Tollvörugeymslunnar frísvæð-
isleyfið. A milli þeirra er Júlíus S. Ólafsson
stjórnarformaður Tollvörugeymslunnar.
Frá vinstri, Ragna Hjaltadóttir starfsmaður LÍ, Rolf
Johansen stórkaupmaður og Magnús Árnason fram-
kvæmdastjóri Hjólbarðahallarinar.
ÁFANGI
COSPER
Stórafmæli
Tollvöru-
geymslunnar
Fyrir skömmu hélt Tollvöru-
geymslan h.f. upp á 30 ára
afmæli sitt og fagnaði um leið
samstarfí við flugfrakt Flugleiða.
Móttaka var í einni af vöru-
skemmum fyrirtækisins og mættu
þar til gleðinnar 500 boðsgestir.
Meðal annarra gesta má nefna
fjármálaráðherra Friðrik Sophus-
son og á þessum tímamótum fyrir-
tækisins afhenti hann Tollvöru-
geymslunni h.f. leyfi til frísvæðis
fyrst íslenskra fyrirtækja.