Morgunblaðið - 13.02.1992, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992
OLYMPIULEIKARNIR I FRAKKLANDI
Asta
meiddist
áæfingu
ÆT
Asta S. Halldórsdóttir meidd-
ist á ökkla á æfingu í AI-
bertville á þriðjudag og gat ekki
æft í gær. Hún fór til læknis
og var röntgenmynduð og kom
þá í ljós skemmd í lið. Hún fór
síðan til sjúkraþjálfara í geisla-
meðferð og átti einnig að fara
til hans í dag.
Asta haltraði í gær en taldi
að hún yrði orðin góð fyrir risa-
svigið á mánudaginn, sem er
fyrsta grein hennar. Hún kvef-
aðist á opnunarhátíðinni sl.
laugardag og var ekki orðin góð
í gær.
Af Kristni Björnssyni og Öm-
ólfi Valdimarssyni, sem keppa í
alpagreinum, er það að frétta
að þeir hættu við að fara til ítal-
íu. Þeir ætluðu að keppa þar í
tveimur svigmótum, en þeim var
frestað vegna snjóleysis.
SVIG KARLA
Rásmark: 2,070m
Endamark: 1,850
Fallhæð: 220m
Brautarlengd: 625 m
KEPPNI l SVIGI
í svigi eru snöggar beygjur í
gegnum hlið með bláum og
rauðum flöggum til skiptis.
' stórsvigi og risasvigi eru
lengri brautir og lengra
á milli hliða
Óskabyrjun Kronberger
Petra Kronberger, heimsbikarhafi frá Austurríki, byijaði keppnina vel
á Ólympíuleikunum í gær er hún náði besta brautartímanum í bruni
alpatvíkveppninnar. Kronberger hefur aðeins unnið eitt heimsbikarmót í
vetur, en hefur þó forystu í heimsbikarnum samanlagt. Hún á góða mögu-
leika á sigri í alpatvíkeppninni vegna þess að hún er jafnvíg á ailar grein-
■ arnar. „Eg reyndi nú að keyra af öryggi í stað þess að taka áhættu eins
og oft áður. Það var það sem réði úrslitum," sagði Kronberger.
Krista Schmidinger frá Bandaríkjunum náði óvænt næst besta tíman-
um, var rúmlega hálfri sekúndu á eftir Kronberger. En eins og Katja
Seizinger og Kerrin Lee-Gartner frá Kanada, sem náðu þriðja og fjórða
sæti, er hún ekki talin eiga möguleika í sviginu. Svissneska stúlkan Chan- '
____________________ tal Bournissen, heimsmeistari í alp-
Verðlaun
V
„Veltikani" Hámnál
í svigi og stórsvigi eru farnar tvær umferðir í
mismunandi brautum. Sigurvegari er sá kepp-
andi sem nær bestum tíma samnlagt úr báðum
umferðum. Aðeins ein umferð er í risasvigi.
Konur
MERIBEL
Tvíkeppni: 13. febrúar
Risasvig: 17. febrúar
Stórsvig: 19. febrúar
Svig: 20. febrúar
Karlar
LES MENUIRES
Svig: 22. febrúar
VAL' DISERE
Stórsvig: 16. tebrúar
Risasvig: 18. febrúar
Verðlaun hafa skipst þannig milli
þjóða eftir fimm keppnisdaga á
ólympíuleikunum í Frakklandi. Gull,
silfur og brons:
4 2
3 4
1 2
2 0
1 1
1 0
0 0
1 2
1 0
0 1
0 1
0 1
■SSL stendur fyrir Samveldi sjálf-
stæðra lýðvelda.
Þýskaland 4 3
SSL 3
1
Noregur 1
Ítalía 1
1
0
Kína 0
Kanada 0
Japan 0
Sviss 0
atvíkeppni, varð í sjöunda sæti i
gær og verður að teljast helsti
keppinautur Kronberger um gullið.
Anita Wachter, austurríski
ólympíumeistarinn í tvíkeppni, hélt
upp á 25 ára afmæli sitt í gær með
því að ná 12. besta tímanum.
Olympíugull náðist
en framtíðin óljós
ALBERTVILLE92
<?>
M ISLENSKA karlaliðið í alpa-
greinum kom til Méribel frá Val
d’Isere í gær til að horfa á íshokkí-
leik. Strákarnir sáu leik Tékka og
Samveldisríkjanna.
■ ÁSTA Halldórsdóttir hefur
NATALÍA Míshkutíenok og Artur Dmítríev, sem keppa fyrir Sam-
veldi sjálfstæðra lýðvelda, unnu hug og hjörtu þeirra sem á
horfðu ífyrrakvöld, er þau sigruðu í parakeppni í listhlaupi á
skautum. Þar með bættu þau ólympíugulli við glæsilegt verð-
launasafn sitt, en á rúmu ári hafa þau einnig orðið heims- og
Evrópumeistarar í greininni. Þau voru stigahæst hjá öllum dómur-
unum. Gerðu þó ein mistök, en enginn tók eftir þeim nema þjálf-
ari þeirra — sem sagði mistökin engu máli hafa skipt.
Míshkutíenok fór einfalda
skrúfu í stað tvöfaldrar, eins
og hún ætlaði að gera, um miðbik
æfingarinnar. Þetta var hið eina
aðftnnsluverða í æfingum þessa sig-
ursæla pars, „Ástardansinum", sem
þau framkvæmdu undir tónlist eftir
Franz Liszt eins og í fyrra þegar
þau urðu Evrópu- og heimsmeistar-
ar, og þjálfari þeirra var himinlif-
andi. „Þetta gildir einu, verðlaunin
eru það sem skiptir máli,“ sagði
þjálfarinn, Tamara Moskvína. „Á
morgun man enginn hver gerði
hvað.“
Og Moskvína hafði tvöfalda
ástæðu til að fagna því annað par
sem hún þjálfar, Elena Etsjke og
Denís Petrov, unnu silfuverðlaun.
Þau þóttu ekki síðri en landar þeirra
tæknilega, en einstakir hæfileikar
Dmítríevs í að túlka tilfinningar
sínar á svellinu, eru taldir hafa
haft úrslitaáhrif á dómarana.
En þó ólympíugull sé í höfn hjá
Míshkutíenok og Dmítríev er fram-
tíðin óljós eftir fall Sovétríkjanna
og gleði þeirra og þjálfarans var
blandin. í Sovétríkjunum tryggði
ólympíugull íþróttamönnum fjár-
hagslegan stuðning ríkisins. Nú er
matarskortur mikill í Samveldi
sjálfstæðra lýðvelda, sem saman-
stendur af flestum lýðveldum Sov-
étríkjanna gömlu og yfirvöld þurfa
nánast að horfa í hvetja rúblu.
„Við vitum ekki hvort fjárstyrkir
sem við nutum verði enn til staðar.
Kannski svo verði. Við eigum nægt
fé til að taka þátt í heimsmeistara-
mótinu [í Kalifomíu] í næsta mán-
uði. Eftir það vitum við ekki hvað
verður," sagði þjálfarinn og bætti
því við að hún gæti þurft að leita
sér að öðru starfi. Sagði laun sín
reyndar hafa tvöfaldast en verðlag
í landinu hefði tuttugu-faldast.
Áður fyrr, sagði Moskvína, hefðu
lærisveinar hennar getað búist við
aukagreiðslum frá stjórnvöldum
heima fyrir eftir sigur á Ólympíu-
leikum; greiðslum sem hefðu í það
minnsta nægt til kaupa á hljóm-
flutningstækjum, jafnvel bifreið.
„Nú eigum við ekki von á neinu.“
Guy tryggði Frökkum
fyrstu gullverðlaunin
Fabrice Guy varð í gær fyrsti ólympíumeistari Frakka að þessu sinni
er hann sigraði í norrænni tvíkeppni, sem er samanlagður árang-
ur úr stökki af 90 metra palli og 15 km göngu. Þetta var jafnframt
í fyrsta sinn sem Frakki sigrar í einni af norrænu greinunum á ÓL.
„Þessi'sigur er miklu meira en ég hafði nokkru sinni þorað að vona.
Frönsku áhorfendurnir voru frábærir og studdu mig vel,“ sagði Guy,
sem er 23 ára. „Þetta er stór stund fyrir okkur sem stunda norrænar
greinar í Frakklandi."
Frakkar hafa ekki unnið tvöfalt á ólympíuleikum síðan Jean-Claude
Killy, sem nú er annar framkvæmdastjóra leikanna, og Guy Perillat
unnu gull og silfurverðlaun í bruni í Grenoble 1968.
Reuter
Frábær tilþrif! Artur Dmítríev og Natalía Míshkutíenok bættu ólympíugulli
í verðlaunasafn sitt í fyrrakvöld. „Astardansinn", eins og þau nefndu frjálsu
æfingar sínar, þótti frábær — einkenndist af giæsileik.
rásnúmer 100 í stórsvigskeppninni,
en þar eru 128 keppendur skráðir
til leiks. Hún hefur væntanlega rás-
númer 68 í sviginu og 49 í risasvig-
inu.
■ JACQUELINE Börner frá
Þýskalandi, sem slasaðist illa í
umferðarslysi fyrir tveimur árum,
varð í gær ólympíumeistari í 1.500
metra skautahlaupi kvenna. 1990
varð hún fyrir því óhappi að bíll
keyrði hana niður á reiðhjóli. Börn-
er byrjaði að keppa aftur á síðasta
ári og nú fagnaði hún ólympíu-
sigri. Landi hennar, Gunda Nie-
mann, varð önnur aðeins 0,05 sek.
á eftir. Yvonne van Gennip frá
Hollandi, sem varð ólympíumeist-
ari í Calgary, datt eftir aðeins 300
metra og hætti keppni.
H RAY LeBlanc, markvörður ís-
hokkíliðs Bandaríkjamanna, varð
fyrstur til að halda marki sínu
hreinu í íshokkíkeppninni í Albert-
viUe er Bandaríkjamenn unnu
Þjóðverja, 2:0. Le Blanc varði alls
46 skot í leiknum. „Hann átti frá-
bæran leik,“ sagði Dave Peterson,
þjálfari Bandaríkjamanna.
■ JOSEP Polig og Gianfranco
Martin frá Ítalíu halda verðlaunum
sínum í alpatvíkeppninni. Frakkar
kærðu þá fyrir að vera með of stór-
ar auglýsingar á keppnisgalla.
„Þessi mistök höfðu ekki áhrif á
árangurinn,“ sagði Michele Verdi-
er, upplýsingafulltrúi IOC. ítölum
var gefínn 48 tíma frestur til að
minnka auglýsingarnar og hugsan-
lega verður samband þeirra sektað.
ídag
Dagskrá Ólympíuleikanna í Albert-
ville í dag:
09.00 - 10 km ganga karla
(Rögnvaldur Ingþórsson og
Haukur Eiríksson meðal
keppenda)
Alpatvíkeppni kvenna, svig:
09.00 - Fyrri umferð
13.00 - Síðari umferð
12.00 - 5 km ganga kvenna
10.30 - Hólasvig, úrslit
13.45 - 5.000 m skautahlaup karla
18.30 - Listhlaup karla
Íshokkí, a-riðill:
12.00 - Pólland - Italía
15.30 - Finnland - Bandaríkin
19.15 - Þýskaland - Svíþjóð
Veðurútlit: Skýjað og búist við snjó-
komu á öllum skSðasvæðum þegar líð-
ur á daginn.