Morgunblaðið - 18.02.1992, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1992
Seyðisfjörður:
Kviknar í
Hafsíld hf.
ELDUR kom upp í Hafsíld hf. á
Seyðisfirði um klukkan 6.30 á
sunnudag og varð af nokkurt tjón
á verksmiðjunni en það hefur ekki
verið metið. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn. Okunnugt er um
eldsupptök.
Löndunarbúnaður verksmiðjunnar
er óvirkur eftir brunann. Talið er að
viðgerð taki tvo til þrjá daga og sagði
Theodór Blöndal verksmiðjustjóri að
þó svo að slæmt væri að verða fyrir
tjóni á þessum tíma, væri óvíst að
rekstur verksmiðjunnar stöðvaðist,
þar sem nokkuð væri af loðnu fyrir
í þróm.
15% botn-
fiskaflans
óunninnut-
an íjanúar
Á sýningunni verða mósaikmyndir frá Jórdaníu.
Listasafn íslands:
Jórdaníudrottning
opnar sýningu í vor
NOOR A1 Hussein, Jórdaníudrottning, opnar sýningu á mósaikmynd-
um, búningum og skarti frá Jórdaníu og Palestínu í Listasafni Is-
lands 30. maí n.k. Sýningin ber yfirskriftina 2000 ára litadýrð. Hún
stendur yfir út júlímánuð.
Bera Nordal, forstöðumaður
Listasafns íslands, sagði að
sýningargripimir skiptust annars
vegar í mósaikmyndir og hins veg-
ar í búninga og skart. Mósaikmynd-
imar koma frá þjóðminjasafninu í
Amman. Þær em frá býzanska
tímabilinu af Madaba-skólanum.
Um er að ræða 37 stórar myndir
og nokkrar litlar myndir. Flestar
eru gerðar milli 600-800 eftir KriSt.
Búningar og skart koma úr einka-
safni jórdönsku konunnar Widad
Kawar en eru frá Palestínu og
Jórdaníu.
Sýningin kemur hingað að til-
hlutan Stefaníu Khalifeh, ræðis-
manns íslendinga í Jórdaníu, en
eftir að ljóst var að úr henni yrði
sýndi Jórdaníudrottning áhuga á
að koma hingað í tengslum við
sýninguna. Hún hefur áður komið
hingað til lands í stutta heimsókn.
Þá hitti hún meðal annars Vigdísi
Noor A1 Hussein Jórdaníu-
drottning.
Finnbogadóttur forseta íslands.
Aðspurð sagðist Bera ekki vita
til þess að jórdönsk list hefði áður
verið sýnd á íslandi.
SAMTALS 6.889 tonn af óunnum TT.,<> 31
botnfiskí voru fiutt utan í síðasta Hoiuoborgarsvæoio:
mánuði og er þá miðað við óslægð-
an fisk. Heildarbotnfiskaflinn var
þá alls 46.108 tonn, þannig að utan
fóru óunnin um 15%. Meðalverð
fyrir þann afla, sem fór utan óunn-
inn var 119,76 krónur á hvert kíló,
en 65,86 fengust að meðaltali fyr-
ir botnfisk hér heima. Heildarverð
útflutta fisksins var 825 milljónir
króna.
Þorskafli í janúar síðastliðnum var
20.747 tonn, en var rúm 17.000 á
sama tíma í fyrra. Botnfiskaflinn nú
er rúm 46.000 tonn, en í fyrra var
hann 32.857. Þá veiddist nú mun
meira af loðnu og sfld en í fyrra, nú
veiddust 24.622 tonn af síld og
75.012 af loðnu en í fyrra náðust
aðeins 7.695 tonn af síld og 13.700
af loðnu. Heildaraflinn nú er því tölu-
vert meiri en f fyrra.
Sé litið á þann tíma, sem af fisk-
veiðiárinu er liðinn eða frá og með
fyrsta september, kemur í ljós að
botnfiskafli er 190.670 tonn nú og
þar af er þorskur 79.705 tonn. Sama
tímabil í fyrra varð botnfiskaflinn
alls 195.258 tonn, þar af þorskur
88.386 tonn.
Atvinnulausum hefur fjölg-
að um 200 í febrúarmánuði
ATVINNULEYSI hefur farið vaxandi á höfjuðborgarsvæðinu undan-
farnar vikur, samkvæmt þeim upplýsingum sem Morgunblaðið aflaði
sér hjá nokkrum verkalýðsfélögum í gær, og er ástandið í atvinnumál-
um verulega verra en það var á sama tíma fyrir ári. Gera má ráð fyrir
að atvinnulausum hafi fjölgað um nálægt 200 það sem af er febrúar
samanborið við janúar, en þá voru 1.219 skráðir atvinnulausir að stað-
aldri í mánuðinum. Atvinnulausum fjölgaðu um rúmlega 300 frá des-
ember til janúar, en 906 voru að staðaldri atvinnulausir I desember á
höfuðborgarsvæðinu.
í kringum 200 manns eru nú á
atvinnuleysisskrá hjá verkamanna-
félaginu Dagsbrún og hefur fjölgað
um nálægt 50 manns frá því atvinnu-
leysisbætur voru síðast greiddar út
fyrir tæpum hálfum mánuði; en þá
fengu 157 manns bætur. Á sama
tíma fyrir ári voru 120 manns á at-
vinnuleysisskrá hjá félaginu.
Um 30 konur eru skráðar atvinnu-
lausar í starfsmannafélaginu Sókn
og hefur fjölgað í viku hverri að
undanförnu, en þar voru engar konur
skráðar atvinnulausar í nóvemberlok.
Davíð Oddsson forsætisráðherra í ísrael:
Vona að ekki verði fram-
hald á þessum atburðum
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður
Sóknar, segir að atvinnuástandið
hafí breyst á skömmum tíma. Það
sé búið að skrúfa fyrir ráðningar og
stöður sem ekki hefur verið hægt
að manna í 2-3 ár séu nú mannað-
ar. Skýringarinnar sé ekki að leita í
uppsögnunum á Landakoti, því þeirra
fari ekki að gæta fyrr en í apríl/maí.
í kringum 40 konur voru skráðar
atvinnulausar hjá verkakvennafélag-
inu Framsókn sem er svipað og ver-
ið hefur.
Hjá Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur voru 189 á atvinnuleys-
isskrá 10. febrúar þegar bætur voru
síðast greiddar út og hefur að
minnsta kosti fjölgað um 62 síðan,
þannig að atvinnulausir hjá félaginu
eru í kringum 250. Á svipuðum tíma
á síðasta ári voru 155 skráðir atvinn-
ulausir.
Um 130 voru skráðir atvinnulaus-
ir hjá Iðju, Félagi verksmiðjufólks,
og hafði fjölgað úr 110 frá því bæt-
ur voru greiddar út síðast. Guðmund-
ur Þ. Jónsson, formaður Iðju, sagði
að þeir hefðu ekki séð slíkar atvinnu-
leýsistölur í áratug. Árið 1987 hafi
atvinnuleysi að vísu verið meira um
skamman tíma vegna tímabundinnar
stöðvunar vinnu hjá Álafoss. Nú sé
ástandið hins vegar alvarlegra, því
þetta sé fólk úr öllum iðngreinum.
Hjá verkamannafélaginu Hlif í
Hafnarfirði voru 56 skráðir atvinnu-
lausir í gær og hafði Ijölgað um 6
frá síðustu skráningu. 25 voru skráð-
ir atvinnulausir hjá félaginu á sama
tíma fyrir ári. Hjá verkakvennafélag-
inu Framtíðinni í Hafnarfírði voru
22 skráðir atvinnulausir og hefur
farið fjölgandi. 14 voru skráðir at-
vinnulausir á sama tíma í fyrra.
Hjá Sambandi málm- og skipa-
smiða voru 38 manns skráðir at-
vinnulausir og hefur atvinnulausum
fjölgað frá síðustu skráningu um 4.
Um 40 voru skráðir atvinnulausir
hjá Trésmiðafélagi Reykjavíkur og
hefur atvinnuleysi farið vaxandi frá
áramótum. 21 var á skrá hjá Rafiðn-
aðarsambandi íslands og hafði fjölg-
að um 4 frá síðustu skráningu, en
þar hefur atvinnuleysi verið svo til
óþekkt árum saman.
„ÞAÐ er allt með kyrrum kjörum hér en menn vita af þessum
óróleika sem hefur legið í lofti eftir atburði síðustu daga. Það
virðist þó vera ró yfir fólki,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráð-
herra í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, en hann var þá
nýkominn á hótel sitt, Hotel King David, í Jerúsalem I opinbera
heimsókn til ísraels. Hann kveðst harma atburði síðustu daga í
samskiptum Israelsmanna og Palestínumanna og segist ætla að
láta í ljós vonir um að ekki verði framhald á þeim.
Dagskrá heimsóknarinnar
hefst í dag með því að skoðuð
verða minnismerki í Jerúsalem.
Kl. 11.50 heimsækir Davíð, Yitz-
hak Shamir forsætisráðherra á
skrifstofu hans, þar sem haldinn
verður klukkutíma langur fundur.
Að sögn Davíðs mun hann snæða
hádegisverð með Shamir, sem
áætlað er að standi til kl. 14.45.
Að honum loknum verður haldið
í Knesset, þjóðþing Israels, þar
sem Dov Shilansky, forseti þings-
ins, tekur á móti gestunum.
Þvínæst verður haldið til Betle-
hem og þar mun Davíð hitta borg-
arstjóra að máli. Síðdegis verður
haldið aftur til Jerúsalem þar sem
Davíð mun hitta Chaim Herzog
forseta landsins og í kjölfar þess
fundar mun hann eiga fund með
Shimon Peres formanni Verka-
mannaflokksins.
Á morgun er m.a. áformað að
Davíð heimsæki innflytjendamið-
stöð og hitti ráðherra innflytj-
endamálefna að máli og fari skoð-
unarferð í Ormat-verksmiðjurnar,
sem hafa selt Hitaveitu Suður-
nesja túrbínur.
Áðspurður hvort hann hefði
íhugað að hætta við ferðina tii
ísraels í ljósi síðustu atburða í
samskiptum ísraelsmanna og Pal-
estínumanna sagði Davíð að það
hefði ekki hvarflað að sér. „Þetta
er opinber kurteisisheimsókn og
með henni erum við ekki að taka
neina sérstaka afstöðu. Ég harma
þá atburði sem hafa gerst á síð-
ustu dögum, bæði morðin á ungu
hermönnunum og þá atburði sem
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra.
hafa fylgt í kjölfarið. Ég vona og
læt það koma fram að ekki verði
framhald á slíku og að þetta hafl
ekki áhrif á þær friðarviðræður
sem hafnar eru,“ sagði Davíð.
15-20 verkum stolið
í innbroti í gallerí
15-20 myndum eftir marga þekkta myndlistarmenn var stolið í inn-
broti í FÍM-salinn við Garðastræti aðfaranótt siðastliðins föstudags.
Að sögn Þorbjargar Daníelsdóttur forstöðumanns gallerísins eru mynd-
irnar ótryggðar en verðmæti þeirra nemur hundruðum þúsunda. Allar
eru myndirnar merktar listamönnunum og fremur litlar, þær stærstu
eru 40x50 sentimetrar að flatarmáli.
Um var að ræða þijár myndir eft-
ir Braga Ásgeirsson, en sýning hans
hófst í FÍM-salnum á laugardag.
Þessar myndir Braga eru teikningar
og hinar einu sem ekki var ætlunin
að selja á sýningunni. Ein þeirra er
sjálfsmynd af Braga ungum, önnur
er af Erik Sönderholm fyrrum for-
stjóra Norræna hússins, en þá mynd
hafði Bragi gefíð ekkju Sönderholms
og áritað sérstaklega. Þriðja myndin
er af norska listmálararnum Arne
Lindaas og er hún með áletruninni:
„Tegnet i en bus paa vej til Spanien
i 1953.“
Að auki er þarna um að ræða
myndir málaðar á flísar eftir Sigrúnu
Guðjónsdóttur, túss- og blekteikn-
ingar eftir Margréti Jónsdóttur, 4
litlar myndir á striga eða.pappír eft-
ir Myriam Bat Josef, tvær akrílmynd-
ir eftir Jens Kristleifsson þrjár coll-
age myndir Rúnu Gísladóttur og 2
myndir eftir Rósku.
Þorbjörg Daníelsdóttir sagði ljóst
að afskaplega erfitt yrði fyrir þjófana
að koma þessum verkum á markað
hér á landi og kvaðst hún eindregið
vonast til að þeim yrði skilað án
þess að unnin yrðu á þeim spjöll.
Hún vildi beina eindregnum tilmæl-
um til allra sem búa yfir upplýsingum
um innbrotið að hafa samband við
lögregluna.